AI assistant
Syn — Earnings Release 2024
May 7, 2024
2210_rns_2024-05-07_6db00434-5e39-4aa8-b78f-5c8ecebb2d37.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Afkomutilkynning
- mai 2024
syn
Sýn hf.: Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2024
Helstu atriði varðandi afkomu og samanburður milli ára
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2024 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. maí 2024.
- Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2024 námu 5.934 m.kr. og jukust um 1,3% (1F 2023: 5.860 m.kr.). Þær skiptast þannig:
- Fjölmiðlun 2.381 m.kr., hækkun um 10,0% milli ára (1F 2023: 2.165 m.kr.). Leiðrétt fyrir auknum tekjum vegna innkomu Já, er tekjuvöxtur á milli ára 3,6%.
- Internet 1.147 m.kr., hækkun um 3,4% milli ára (1F 2023: 1.109 m.kr.)
- Farsími 1.062 m.kr., lækkun um 11,5% milli ára (1F 2023: 1.200 m.kr.)
- Fastlína 106 m.kr., lækkun um 9,3% á milli ára (1F 2023: 116 m.kr.)
- Hýsingar- og rekstrarlausnir (Endor) 708 m.kr., hækkun um 0,8% á milli ára (1F 2023: 702 m.kr.)
- Vörusala 288 m.kr., lækkun um 12,5% á milli ára (1F 2023: 329 m.kr.)
-
Aðrar tekjur 242 m.kr., hækkun um 1,5% á milli ára (1F 2023: 238 m.kr.)
-
Sterkur tekjuvöxtur í auglýsingatekjum nam 22%, þar af 51% í auglýsingatekjum sjónvarps, og er umfram væntingar stjórnenda. Lækkun í farsímatekjum um 138 m.kr. skýrist einkum af lækkun í IoT tekjum. Viðsnúningur var í heimatengingum með rúmum 6% vöxt frá fyrra ári en einnig var öflugur vöxtur í tekjum af gestareiki (30%).
- EBITDA 23,2% af tekjum eða 1.379 m.kr. (1F 2023: 25,5% og 1.497 m.kr.).
- Rekstrarhagnaður EBIT 2,0% af tekjum eða 119 m.kr. (1F 2023: 7,3% og 428 m.kr.).
- Tap ársfjórðungsins nam 153 m.kr. (1F 2023: hagnaður 213 m.kr.) og eiginfjárhlutfall var 29,5%.
- Skipulagsbreytingar: Starfslok gerð við framkvæmdastjóra, deildir sameinaðar og stöðugildum fækkað um 20 á tímabilinu. Sparnaður á ársgrundvelli áætlaður um 380 m.kr., þegar breytingar koma fram að fullu á 4F 2024.
„Stjórn og lykilstjórnendur Sýnar eru sammála um að arðsemi fyrirtækisins hafi ekki verið ásættanleg undanfarin ár. Við erum jafnframt samstíga um að hefja stefnumótunar vegferð félagsins undir merkjum skilvirkni, vaxtar og samvinnu, sem leitast við að gefa viðskiptavinum, starfsmönnum og fjárfestum, skýra mynd af markmiðum og áherslum fyrirtækisins. Gildi félagsins eru Gleði - Ástriða – Metnaður sem verður drifkraftur fyrirhugaðrar vegferðar.
Frá því ég hóf störf hjá Sýn hefur samstarfsfólk mitt sýnt mikla áræðni, drifkraft og metnað til að efla rekstur samstæðunnar enn frekar. Þeirri vegferð verður haldið áfram með skýrri stefnu og framsetningu á lykiláherslum og þannig getum við fært markaðsaðilum reglulega fréttir af framgangi verkefna. Samtakamáttur og skýr stefna er lykilþáttur í árangri. Það má segja að vegferðin fari vel af stað. Skipulagsbreytingar sem nú þegar hefur verið gripið til á þessu ári, munu skila um 32 m.kr. sparnaði á mánuði, eða um 380 m.kr. á ársgrundvelli þegar áhrif þeirra verða að fullu komin fram.
Á fyrsta ársfjórðungi, var ég einstaklega ánægð með sterkan tekjuvöxt í auglýsingatekjum og einnig er ánægjulegt að sjá góðan viðsnúning í heimatengingum. Reikitekjur halda til viðbótar áfram að vaxa.
Farsimatekjur lækkø hins vegar frå sama tímabili í fyrra, likt og greint var frá í nylegri tilkynningu. Rekstrarafkoma félagsins er ekki ásættanleg en hins vegar er gert ráð fyrir umtalsverðum rekstrarbata á síðari hluta ársins og á því næsta, eftir því sem skipulagsbreytingar ná fram að ganga," segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.
Skilvirkni – Vöxtur – Samvinna
Innan sem utan fyrirtækisins verður unnið að aukinni skilvirkni, stutt við tekjuvöxt og samvinna efld. Samhliða ársfjórðungsuppgjørum, verða markaðsællar upplýstir um framgang lykilverkefna sem snúa að fyrrgreindum áherslum.
Skilvirkni: Fjölmorg tækifæri eru til aukinnar skilvirkni og skýrari áherslna innan fyrirtækisins. Dæmi um skref sem þegar hafa verið tekin á 1F, má nefna að svið Nýsköpunar- og rekstrar var lagt niður í mars, sem skilaði bæði fjárhagslegri hagræðingu og skilvirkara flæði verkefna. Verkefnin voru færð til annarra deilda og ekki var ráðið í stað þeirra stöðugilda sem lögð voru niður. Þá kom framkvæmdastjóri Endor nýr inn í lykilstjórnendateymi Sýnar og hefur nú beina að komu að ákvarðanatöku samstæðunnar. Endor er einn af vaxtarbroddum Sýnar og umræddar breytingar fela í sér aukna skilvirkni og betri samvinnu.
Vöxtur: Vefmiðlar og útvarp sem heyrir undir Fjölmiðlun í uppgjøri félagsins er sú eining sem óx mest innan Sýnar á þessum ársfjórðungi. Framundan eru mikil vaxtartækifæri fyrir einingarnar innan samstæðunnar, þar sem verðmæti þeirra heldur áfram að aukast. Forsetakosningar eru á næsta leiti, sem koma með aukið súrefni inn í auglýsingasölu. Þar mun sérstaða miðla Sýnar; visir.is, Bylgjunnar, Stöðvar 2, FM957 og X-ins fá að njóta sín.
Um 95% landsmanna nota miðla Sýnar í viku hverri. Á sama tíma og vaxtarbroddar fyrirtækisins fá verðskuldaða athygli, verður áfram lögð áhersla á að styðja við kjarnatekjur Vodafone. Jafnframt verður áhugavert að fylgjast með loforðum stjórnmálamanna um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði og hvort jákvæð skref verða stigin í þá átt, líkt og boðað hefur verið fyrir lok maí 2024.
Hjá Endor, felast umtalsverð tækifæri í að halda áfram innleiðingu viðskiptavina í skýja- og rekstrarþjónustu. Með frekari útvíkkun lausnaáherslna tengdum netöryggi og sjálfvirkni mun félagið auka rekstraröryggi og hagkvæmni fjárfestinga sinna verðmætu viðskiptavina enn meir.
Samvinna: Aukin áhersla verður lögð á samvinnu og samheldni á næstu misserum, til að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins og auka starfsánægju enn frekar. Nú þegar óvissu um eignarhald hefur verið eytt, verður lögð ríkari áhersla á vinnustaðarmenningu móðurfélagsins Sýnar, á sama tíma og menning einstakra rekstrareininga er viðhaldið og varðveitt. Það er mikið keppikefli að efla vinnustaðarmenningu Sýnar, þannig að allir starfsmenn rói í sömu átt, upplífi sig sem hluta af sterkri heild og séu stolt af vinnustaðnum Sýn. Sérstakt teymi mun að fylgja þessu eftir innan fyrirtækisins og mun heyra beint undir forstjóra.
Helstu áfangar á fyrsta ársfjórðungi
- Skipulagsbreytingar – Nýr forstjóri hóf störf í janúar, breytingar voru gerðar á framkvæmdastjóm, deildir sameinaðar og skilvirkni aukin innan fyrirtækisins.
Sýn hf. | Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | 599 9000 | syn.is
- Eignarhal – Óvissu var eytt þegar tilkynnt var um samstíga ákvörðun stjórnar, lykilstjórnenda og stærstu hluthafa um að auka verðmæti og vöxt miðla innan Sýnar.
- Hlutverk Sýnar skilgreint: Verðmætar einingar – Verðmætari heild – Verðmætin felast í sameinuðum áhrifum eininganna.
- Opinn fréttatími Stöðvar 2 (Kvöldfréttir, Sportpakkinn og Ísland í dag) – Landsmenn hafa fagnað opinni dagskrá fréttatímans og sýna mælingar strax verulega aukningu í áhorfi sem gert er ráð fyrir að hafi jákvæð áhrif á þróun auglýsingatekna.
- Birgðastaða – Heldur áfram að lækka í takt við áætanir félagsins um minnkun í fjárbindingu vegna lagervara. Lækkun birgða frá sama tímabili í fyrra er 42%.
- Sala stofnnets – Tæplega helmingur af söluvirði stofnnetsins hefur verið greiddur til félagsins. Það sem eftir stendur af söluvirðinu (1.570 m.kr.) verður greitt í áföngum fyrir lok október á þessu ári, sem mun hafa veruleg áhrif til hækkunar á sjóðsstöðu félagsins.
Yfirlit yfir rekstur 1F 2024
Rekstrartekjur á 1F námú 5.934 m.kr. (1F 2023: 5.860 m.kr.) Heildartekjur eftir tekjustraumum skiptast þannig: 1) Fjölmiðlun 2.381 m.kr., 2) Internet 1.147 m.kr., 3) Farsími 1.062 m.kr., 4) Fastlína 106 m.kr., 5) Hýsingar- og rekstrarlausnir 708 m.kr., 6) Vörusala 288 m.kr. og 7) Aðrar tekjur 242 m.kr. Neðangreind tafla sýnir tekjuskiptingu og samanburð milli ára.
| 1F 2024 | 1F 2023 | % br. | |
|---|---|---|---|
| Fjölmiðlun | 2.381 | 2.165 | 10,0% |
| Internet | 1.147 | 1.109 | 3,4% |
| Farsími | 1.062 | 1.200 | -11,5% |
| Fastlína | 106 | 116 | -9,3% |
| Hýsingar- og | |||
| rekstrarlausnir | 708 | 702 | 0,8% |
| Vörusala | 288 | 329 | -12,5% |
| Aðrar tekjur | 242 | 239 | 1,0% |
| Samtals tekjur | 5.934 | 5.860 | 1,3% |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 4.082 m.kr. og jókst um 7,7% á milli ára (1F 2023: 3.791 m.kr.), sem skýrist að stærstum hluta af hærri afskriftum sýningarrétta en afskriftir þeirra vegna ársins 2023 voru lægri vegna endursamninga við birgja. Áhrif þessa mun gæta áfram út árið, en heildar lækkun afskrifta sýningarrétta á árinu 2023 vegna endursamninga við birgja var 529 m.kr., eins og kom fram í ársreikningi ársins 2023. Aukning í kostnaðarverði seldrar þjónustu er 5% á milli ára ef leiðrétt er fyrir innkomu Já. Einnig er nokkur hækkun vegna samstarfsssamnings við Viaplay sem ekki var til staðar á sama tímabili í fyrra.
Rekstrarkostnaður samstæðunnar var 1.733 m.kr. og hækkaði um 5,6% milli ára (1F 2023: 1.641 m.kr.) sem er umtalsvert undir verðbólgu og almennri þróun. Þegar tekið er tillit til innkomu Já inn í samstæðuna nemur aukningin einungis 3,8% á milli ára. Rekstrarhagnaður (EBIT) var 119 m.kr. á tímabilinu,
Sýn hf. | Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | 599 9000 | syn.is
framlegðarhlutfall 31,2% og EBITDA hlutfall var 23,2%. Nánara yfirlit og samanburður milli ára má sjá í töflu að neðan.
Afskriftir tímabilsins voru 1.259 m.kr. og jukust um 17,8% á milli ára (1F 2023: 1.068 m.kr.), er skýrist af hærri afskriftum sýningarrétta eins og áður hefur verið tekið fram.
| 1F 2024 | 1F 2023 | % br. | |
|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.934 | 5.860 | 1,3% |
| Kostnaðarverð | -4.082 | -3.791 | 7,7% |
| Framlegð | 1.852 | 2.069 | -10,5% |
| Rekstrarkostnaður | -1.733 | -1.641 | 5,6% |
| EBITDA | 1.379 | 1.497 | -7,9% |
| Afskriftir* | -1.259 | -1.068 | 17,8% |
| EBIT | 119 | 428 | -72,1% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -319 | -210 | 51,8% |
| Tekjuskattur | 46 | -5 | -1038,8% |
| (Tap) hagnaður | -153 | 213 | -171,8% |
| Framlegð | 31,2% | 35,3% | |
| EBITDA % | 23,2% | 25,5% | |
| EBIT % | 2,0% | 7,3% |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
*Áhrif lægri afskrifta vegna endursamninga við birgja voru 193
m.kr. á 1. ársfjörðungi 2023
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt var 1.213 m.kr. og hækkar frá sama tímabili í fyrra (1F 2023: 1.173 m.kr.). Frjálst fjárflæði á fjórðungnum var 269 m.kr. og batnar umtalsvert á milli ára (1F 2023: 53 m.kr.) vegna lækkunar á birgðastöðu og lægri fjárfestinga. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 893 m.kr. og lækkar á milli tímabila í takt við hækkandi vaxtaumhverfi og tímabundinnar aukningar í skammtímalánum félagsins (1F 2023: 921 m.kr.). Fjárfestingahreyfingar námu 943 m.kr. og lækka á milli tímabila, einkum vegna lækkunar á fjárfestingum í rekstrarfjármunum (1F 2023: 1.120 m.kr.). Fjármögnunarhreyfingar námu 514 m.kr. og lækka einnig verulega frá sama tímabili í fyrra, aðallega vegna lækkunar í kaupum á eigin bréfum (1F 2023: 1.259 m.kr.).
Efnahagur
Heildareignir fyrirtækisins í lok fjórðungsins námu 34.042 m.kr. (4F 2023: 34.935 m.kr.) og vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 18.823 m.kr. (4F 2023: 19.220 m.kr.). Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 18.765 m.kr í lok tímabilsins (4F 2023: 18.596 m.kr.). Eigið fé Sýnar stendur í 10.053 m.kr. og eiginfjárhlutfall 29,5%.
Sýn hf. | Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | 599 9000 | syn.is
Sýn hf. | Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | 599 9000 | syn.is
Áhrif skipulagsbreytinga
Fyrirtækið ákvað í upphafi árs að gefa ekki út afkomuspá fyrir árið 2024, í ljósi þess að framtíðareignarhald á Vefmiðlum og útvarpi var til skoðunar og umtalsverðar skipulagsbreytingar hafa staðið yfir samhliða breyttum áherslum í rekstri.
Áhrif þessara breytinga það sem af er ári mun gæta fram á síðari helmingi ársins, þar sem áætlað er að sparnaður í kostnaði verði um 380 m.kr. á ársgrundvelli, og mun að fullu byrja að koma fram á seinni hluta ársins. Jafnframt gera áætlanir ráð fyrir að síðari hluti ársins verði talsvert tekjuhærri, en sá fyrri.
Fjárfestatengsl
Til að auka gagnsæi er afkomutilkynning þessi ítarlegri en verið hefur. Við birtingu á 2F og 4F 2024 munu stjórnendur Sýnar halda sérstaka kynningarfundi fyrir markaðsaðila, ásamt aðgengilegu vefstreymi. Afkomutilkynning og árshlutareikningur, ásamt eldra efni, er aðgengilegt á fjárfestasíðu Sýnar.
Fyrirtækið hyggst boða til fjárfestadags fyrir markaðsaðila í nóvember næstkomandi. Á fundinum verður gefin frekari innsýn inn í rekstur fyrirtækisins og framgang lykilverkefna.
Fjárhagsdagatal 2024
Afkoma 2F: 28. ágúst 2024
Afkoma 3F: 6. nóvember 2024
Afkoma 4F og ársuppgjör: 19. febrúar 2025.
Frekari upplýsingar veitir:
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið fjá[email protected].