Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2021

Feb 16, 2022

2210_rns_2022-02-16_569c3225-1024-4842-a582-de2b66ca4311.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

vodafone

  1. febrúar 2022

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fjórða fjórðungi og árinu 2021.

Gott fyrirtæki verður betra

Ársreikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir árið 2021 var sambykktur á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2022.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur af reglulegri starfsemi á fjórða ársfjórðungi (4F) 2021 námu 5.943 m.kr. sem er aukning um 478 m.kr. frá sama tímabili árið 2020. Tekjur ársins 2021 af reglulegri starfsemi námu 21.765 m.kr. og hækkuðu um 821 m.kr. milli ára, eða um 3,9%.
  • Árið 2021 voru óvirkir farsímainnviðir seldir og nam söluandvirðið 6.946 m.kr. Bókfært verð eignanna sem voru seldar var 401 m.kr. og sölihagnaður því rúmir 6,5 ma.kr. Samhliða sölunni var gerður langtíma leigusamningur. Í samræmi við reikningsskilastaðla er hluta af sölihagnaði frestað. Árið 2021 var bókfærður sölihagnaður að frádregnum kostnaði við söluna að fjárhæð 2.552 m.kr.
  • EBITDA leiðrétt fyrir áhrifum innviðasölu nam 1.670 m.kr. á 4F í samanburið við 1.427 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Aðlagað EBITDA hlutfall er 28,1% á 4F 2021 samanborið við 26,1% á 4F 2020. Aðlóguð EBITDA ársins 2021 nam 6.432 m.kr. og hækkaði um 693 m.kr. miðað við árið 2020. Aðlagað EBITDA hlutfall var 29,6% árið 2021 samanborið við 27,4% árið 2020.
  • Hagnaður á 4F 2021 nam 2.276 m.kr. samanborið við 3 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Hagnaður ársins 2021 nam 2.100 m.kr. samanborið við 405 m.kr. tap árið 2020. Innifalið í hagnaði ársins 2021 er hagnaður af sölu óvirkra innviða.
  • Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.287 m.kr. samanborið við 2.057 m.kr. á sama tímabili árið áður. Handbært fé frá rekstri á árinu 2021 nam 5.017 m.kr. samanborið við 5.912 m.kr. árið 2020, sem er lækkun um 15%.
  • Heildarfjárfestingar ársins 2021 voru jákvæðar sem nemur 4.238 m.kr. Innifalið í fjárfestingarhreyfingum er 6.946 m.kr. vegna sölu á óvirkum farsímainnviðum og 1.065 m.kr. vegna sölu á eignarhlut í hlutdeildarfélaginu Hey. Þá námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.214 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 2.541 m.kr. Greiðsla vegna kaupa á eignarhlut nam 18 m.kr.
  • Fjármögnunarhreyfingar á árinu 2021 voru neikvæðar um 5.902 m.kr. á móti 2.238 m.kr. árið 2020 sem er aukning um 3.664 m.kr. Söluandvirði af óvirkum farsímainnviðum og Hey var notað til að greiða niður langtímalán og lækka lánalínur.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 28,9% í lok ársins 2021.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2021

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

  • Spá félagsins fyrir árið 2022 gerir ráð fyrir tekjuvexti umfram hækkun verðlags ásamt góðum vexti í nýlegum tekjustoðum. Pá er gert ráð fyrir að neikvæð áhrif heimsfaraldurs fara minnkandi og reikitekjur taki við sér.
  • Gengisbróun hefur tóluverð áhrif á rekstrarafkomu, einkum við kaup á sýningarréttum og í fjárfestingum á farsímainnviðum. Fjárfestingar ársins 2022 eru áætlaðar 1,5-2,0 ma.kr. og aukinn þungi verður lagður í 5G fjárfestingu.
  • Hluti af sóluandvirði óvirkra farsímainnviða verður nýttur til fjárfestinga í innri vexti félagsins.

Helstu niðurstöður úr rekstri ársins 2021

4F 2021 4F 2020 % br. 2021 2020 % br.
Seldar vörur og þjónusta 5.943 5.465 8,7% 21.765 20.944 3,9%
Kostnaðarverð -3.884 -3.864 0,5% -14.672 -14.436 1,6%
Framlegð 2.059 1.601 28,6% 7.093 6.508 9,0%
Hagnaður af innviðasölu 2.552 - - 2.552 - -
Rekstrarkostnaður -1.731 -1.625 6,5% -6.359 -6.347 0,2%
EBITDA 4.222 1.427 195,9% 8.984 5.739 56,5%
EBIT 2.880 -24 - 3.286 161 -
Hrein fjármagnsgjöld -152 -118 - -573 -910 -
Áhrif hlutdeildarfélaga -78 27 - -251 98 -
Tekjuskattur -374 112 - -362 246 -
Hagnaður (tap) tímabilsins 2.276 -3 - 2.100 -405 -
Framlegð 34,6% 29,3% 32,6% 31,1%
Aðlóguð EBITDA * 1.670 1.427 6.432 5.739
Aðlagað EBIT * 328 -24 734 161
Aðlóguð EBITDA % 28,1% 26,1% 29,6% 27,4%
Aðlagað EBIT % 5,5% -0,4% 3,4% 0,8%
  • Fjárhæðir eru í milljónum króna

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Síðustu misseri höfum við lagt ríka áherslu á að þróa fyrirtækið úr því að vera tæknidrífið (e. Engineer driven) og yfir í að vera þjónustumiðað (e. Customer centric), í samræmi við pá stefnu sem mótuð var sumarið 2019. Í takt við þessar áherslur er ánægjulegt að segja frá því að ánægja viðskiptavina hefur aldrei mælst meiri eftir sameiningu félagsins árið 2017.

Mikill árangur hefur náðst við að einfalda og rétta af rekstur fyrirtækisins síðustu ár. Okkur hefur tekist að snúa við taprekstri upp á um 100 milljónir á mánuði yfir í hagnað upp á sambærilega fjárhæð. Á sama tíma hefur okkur tekist að snúa algerlega við efnahag fyrirtækisins, greiða niður skuldir uppá fjóra milljarða og myndu sóluhagnað uppá sex og

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

BUNDE

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

hálfan milljarð. Þetta tvennt náðum við að gera í miðjum heimsfaraldri þar sem reikitekjur og auglýsingatekjur hrundu og lækkun krónunnar hækkaði innkaup fyrirtækisins umtalsvert. Þar að auki höfum við endursamið við alla okkar birgja til að auka sveigjanleika í rekstrinum. Stærsti áfanginn í þeirri vegferð var þó óumdeilanlega sala óvirkra innviða úr farsímakerfinu sem gekk í gegn þann 14. desember síðastliðinn og hyggjum við á enn frekari sölu innviða á næstu misserum í takt við stefnumótun okkar.

Til þess að draga úr áhættu og auka arðbærni fyrirtækisins höfum við leitast við að breyta stórum hluta kostnaðar í breytilegan kostnað sem hreyfist í takt við tekjur. Í þessu verkefni höfum við stuðst við framlegðargreiningu sem stjórntæki niður á hverja einingu fyrirtækisins. Þetta öfluga stjórntæki styður við rekstrarákvarðanir og stöndum við ekki í rekstri eininga sem skila ekki ásættanlegri framlegð. Til viðbótar við einföldun rekstrarins og viðsnúning efnahagsreikningsins höfum við komið fram með nýjar tekjustoðir sem styrkja reksturinn enn frekar. Má þar nefna nýjan hlaðvarpsheim, væntanlegan greiðsluvegg fyrir framan valið efni á Vísi og færsluhirðingu fyrir fyrirtæki. Um helmingur allra heimila og fyrirtækja landsins eru í föstu mánaðarlegu reikningssambandi við fyrirtækið í kringum fjarskipti og fjölmiðla og með þennan stóra viðskiptamannahóp sjáum við fram á að geta útvíkkað þjónustuframboð okkar enn frekar. Þar liggja áhugaverðustu tækifærin út frá markmiðum stefnumótunarinnar.

Við teljum okkur standa mjög vel varðandi langtímaþróun á fjarskiptamarkaði. Heimavinna færist sífellt meira í aukana og með því fylgir að atvinnurekendur greiða fyrir farsíma og heimatengingu starfsmanna sinna. Heildarstærð vinnumarkaðar er yfir 200.000 manns. Á sama tíma fjölgar netárásum á fyrirtæki og stofnanir gríðarlega og því ljóst að bað er ekki hverjum sem er treystandi fyrir því að halda tengingu beint inni upplýsingahjarta viðkomandi rekstrar. Samstarf okkar við Vodafone Group skiptir okkur miklu máli enda hrindir fyrirtækið ótrúlegum fjölda netárasa á hverjum degi og skráir að meðaltali 40 milljarða atvika í hverjum mánuði. Við erum öryggisvottað fyrirtæki með sterka stöðu á fyrirtækjamarkaði sem á að hjálpa okkur til sóknar í fjarskiptum.

Þjónusta til viðskiptavina er að taka hröðum breytingum í takt við þróun tækninnar en hana má nýta með ýmsum hætti til að einfalda líf viðskiptavina og auka skilvirkni í rekstri. Framtíð fjarskipta snýr í minna mæli að neytandanum og alltaf í meira mæli að tækjum, þar sem mannshöndin kemur hvergi nærri en tækjatengingar af þessu tagi eru kallaðar hlutanetið (e. IoT). Við höfum algera yfirburði á Íslandi í slíkum tengingum. Í raun erum við einsdæmi í heiminum með þrisvar sinnum fleiri hlutanetskort en íbúafjölda. Við sjáum ekkert annað en áframhaldandi vöxt á þessu sviði. Við höfum farið varlega í uppbýggingu á 5G til neytenda út af seinagangi löggjafans um að klára fjarskiptalagafrumvarp sem hefur tafist í yfir tvö ár. Uppbýgging á fjarskiptakerfum varðandi hlutanetið hefur aftur á móti verið mjög hröð.

Framtíð fjölmiðla er spennandi. Við höfum gert stefnumarkandi breytingar á Stöð 2 þar sem efnisveitan er sett í fyrirrúm, íslenskt efni og afhending fram hjá myndlyklum. Við teljum okkur eiga mikinn fjölda áskrifenda inni með þessari nálgun. Á sama hátt erum við að endurskoða dreifingu útvarps með nýju appi og aukum vægi hlaðvarpa en skilin á milli hljóðbóka, hlaðvarps og útvarps verða æ minni með hverju misserinu sem líður.

Ánægja viðskiptavina hefur aldrei mælst meiri í sögu fyrirtækisins sem og ánægja starfsmanna. Við höfum í sameiningu gert gott fyrirtæki enn betra."

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2014

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Rekstrarafkoma á 4. ársfjórðungi 2021:

Tekjur félagsins á 4F 2021 námu 5.943 m.kr. sem er 8,7% hækkun frá sama tímabili árið áður.

Tekjur af fjölmiðlun námu 2.178 m.kr. á 4F og hækkuðu um 2% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.097 m.kr. á 4F, sem er lækkun um 2%. Tekjur af farsíma námu 1.364 m.kr. og hækkuðu um 526 m.kr. miðað við sama tímabili árið 2020. Tekjur af fastlínu námu 128 m.kr. á 4F og lækkuðu um 9% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfse mi dötturfélagsins Endor ehf. námu 601 m.kr. á 4F 2021. Tekjur af vörusölu námu 371 m.kr. á tímabilinu sem er 5% hækkun miðað við sama ársfjórðung 2020. Aðrar tekjur námu 204 m.kr. á 4F og lækkuðu um 10% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.884 m.kr. og hækkaði um 0,5% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.731 m.kr. og er 6,5% hærri en á sama tímabili árið 2020. Aðlóguð EBITDA tímabilsins nam 1.670 m.kr. og hækkar um 243 m.kr. miðað við sama tímabili árið 2020. Aðlagað EBITDA hlutfall var 28,1% samanborið við 26,1% árið áður.

Hrein fjármagnsgjöld námu 152 m.kr. á 4F 2021 sem er hækkun um 34 m.kr. á milli ára en helsta skýringin er að gengishagnaður lækkar um 34 m.kr. á 4F 2021 samanborið við 4F 2020. Vextir af langtímaskuldum hækka um 3 m.kr. milli fjörðunga. Hagnaður á 4F 2021 nam 2.276 m.kr. samanborið við 3 m.kr. tap á sama tímabili 2020 en innifalið í hagnaði 2021 er 2.552 m.kr. hagnaður af sölu óvirkra innviða.

Sjóðstregmi 4. ársfjórðungs 2021:

Handbært fé frá rekstri á 4F ársins 2021 var 1.287 m.kr.

Fjárfestingahreyfingar voru jákvæðar sem nemur 5.925 m.kr á 4F 2021. Innifalið í fjárfestingahreyfingum er 6.946 m.kr. vegna sölu á óvirkum innviðum.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 3.463 m.kr. á 4F 2021.

Handbært fé í lok 4F nam 4.214 m.kr. sem er hækkun um 3.383 m.kr. króna miðað við árslok 2020.

img-0.jpeg
Sjóðstregmi 4F 2021

Rekstrarafkoma ársins 2021:

Tekjur félagsins árið 2021 námu 21.765 m.kr. sem er 821 m.kr. hækkun samanborið við árið 2020.

Tekjur af fjölmiðlun námu 8.372 m.kr. á árinu 2021 og hækkuðu um 6% á milli ára. Tekjur af interneti námu 4.463 m.kr. á árinu, sem er lækkun um 94 m.kr. á milli ára eða 2%. Tekjur af

vodafo ne

vísir

SPORT

BYLGJAN

2021

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

farsima námu 4.616 m.kr. og eru 1.104 m.kr. hærri en árið 2020. Tekjur af fastlínu námu 535 m.kr. á árinu og lækkuðu um 12% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 1.676 m.kr. á árinu 2021 og lækka um 31% samanborið við árið 2020. Tekjur af vörusölu námu 1.267 m.kr. á tímabilinu sem er 17% hækkun miðað við árið 2020. Aðrar tekjur námu 836 m.kr. á árinu og standa í stað á milli ára.

Kostnaðarverð nam 14.672 m.kr. og hækkaði um 1,6% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 6.359 m.kr. og er sambærilegur og árið 2020. Árið 2021 var bókfærður söluhagnaður að fjárhæð 2.674 m.kr. vegna sölu á óvirkum farsímainnviðum. Kostnaður við söluna var 122 m.kr. og kemur til lækkunar á söluhagnaðinum.

Aðlöguð EBITDA ársins nam 6.432 m.kr. og hækkar um 693 m.kr. miðað við árið 2020. Aðlagað EBITDA hlutfall var 29,6% samanborið við 27,4% árið áður.

Hrein fjármagnsgjöld námu 573 m.kr. á árinu 2021 sem er lækkun um 337 m.kr. á milli ára. Gengishagnaður ársins er 18 m.kr. samanborið við 205 m.kr. gengistap árið 2020. Vextir af langtímaskuldum lækka um 115 m.kr. milli tímabila vegna lægri skuldsetningar.

Hagnaður ársins 2021 nam 2.100 m.kr. samanborið við 405 m.kr. tap árið 2020.

Sjóðstrey mi ársins 2021:

Handbært fé frá rekstri ársins 2021 var 5.017 m.kr. sem er 15% lækkun frá fyrra ári.

Fjárfestingahreyfingar voru
jákvæðar sem nemur 4.238 m.kr.
Innifalið í fjárfestingahreyfingum
árið 2021 er 1.065 m.kr. vegna sölu á
eignarhluta í hlutdeildarfélaginu Hey
og 6.946 m.kr. vegna sölu á
óvirkum innviðum.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 5.902 m.kr. árið 2021. Söluandvirði af óvirkum innviðum og Hey var að hluta til nýtt til að greiða niður langtímalán og lækka lánalínur.

Handbært fé í lok fjórða ársfjörðungs nam 4.214 m.kr. sem er hækkun um 3.383 m.kr. samanborið við árið 2020.

img-1.jpeg
Sjóðstrey mi 2021

vodafo ne

vísir

SPORT

BYLGJAN

2014

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Efnahagur 31. desember 2021:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 10.535 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 28,9%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Fastafjármunir hækka um 545 m.kr. á milli ára. Leigueign hækkar um 2.822 m.kr. vegna langtímaleigusamnings sem gerður var samhliða sölu óvirkra innviða en á móti lækka rekstrarfjármunir vegna innviðasölu. Til viðbótar hefur sala á eignarhlut í færeyska félaginu P/F 20.11.19 (áður Hey) áhrif til lækkunar á fastafjármunum.

Heildarskuldir félagsins voru 25.966 m.kr. í lok ársins 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14.073 m.kr. í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,58 við árslok en í byrjun árs 2022 sambykkti stjórn kaup á eigin bréfum fyrir 1.390 m.kr. Í framhaldi var virkjuð endurkaupaáætlun en heildarkaupverð verður ekki hærra en 600 m.kr. Þegar leiðrétt er fyrir þessum liðum er eiginfjárhlutfall þann 31.12.2021 24,8% og veltufjárhlutfall 1,31.

Kynningarfundur 17. febrúar 2022:

  • Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar 2022 og verður hann einungis sendur út rafrænt frá og með kl. 8.30 á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Fjárhagsdagatal 2022:

✓ Aðalfundur 2021 18. mars 2022
✓ Afkoma 1F 2022 11. maí 2022
✓ Afkoma 2F 2022 31. ágúst 2022
✓ Afkoma 3F 2022 2. nóvember 2022
✓ Afkoma 4F og ársuppgjör 2022 15. febrúar 2023
✓ Aðalfundur 2022 17. mars 2023

Frekari upplýsingar:

✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2022

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is