Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2022

Nov 2, 2022

2210_rns_2022-11-02_366e1de4-8621-4b0d-8852-33b172f09bcf.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

vodafone

  1. nóvember 2022

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2022.

Áframhaldandi rekstrarbati og vaxandi framlegð

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022 var sambykktur á stjórnarfundi þann 2. nóvember 2022.

Rekstrarhagnaður (EBIT) á þriðja ársfjórðungi 2022 (3F) nam 486 m.kr. og hagnaður eftir skatta 181 m.kr.

Rekstrarhagnaður nam 1.209 m.kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins, en var 406 m.kr. á sama tímabili árið 2021. Hagnaður eftir skatta á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur 454 m.kr., en félagið tapaði 176 m.kr. á sama tímabili í fyrra.

Undirritað var samkomulag við Ljósleiðarann ehf. um einkaviðræður vegna sölu á grunnneti Sýnar til Ljósleiðarans. Kaupverð er 3.000 m.kr. en auk þess fylgir hagræðing í rekstri og minni fjárfestingaðorf, þar sem um er að ræða beina sölu án endurleigukvaðar. Söluhagnaður verður færður að fullu í gegnum rekstur á söludegi.

Stjórn Sýnar sambykkti endurkaup eigin bréfa fyrir allt að 300 m.kr. Endurkaupaáætlun verður hrint í framkvæmd í nóvember.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2022 námu 5.501 m.kr. í samanburði við 5.533 m.kr. á sama tíma í fyrra. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins voru 17.192 m.kr. sem er 8,7% hærra en á sama tíma árið 2021.
  • Tekjuvöxtur vegna loT (hlutanets) og hjá dótturfélaginu Endor hefur jákvæð áhrif á niðurstöðu fyrstu níu mánaða ársins 2022. Þessar tekjustoðir vógu einnig þungt á 3F 2021, en eru hins vegar sveiflukenndar innan ársins og torvelda beinan samanburð á milli fjórðunga. Áætlanir gera ráð fyrir auknum tekjum vegna þessara starfsþátta.
  • EBITDA nam 1.799 m.kr. á 3F 2022 í samanburði við 1.886 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 32,7% á 3F 2022 samanborið við 34,1% á 3F 2021. EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins var 5.116 m.kr. sem er 7,4% hækkun frá síðasta ári.
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) á 3F nam 486 m.kr. og eykst um 15% miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður eftir skatta nam 181 m.kr. en var 172 m.kr. í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrstu 9 mánuði ársins nemur 1.209 m.kr. en var 406 m.kr. yfir sama tímabil árið 2021. Hagnaður eftir skatta nemur 454 m.kr. samanborið við 176 m.kr. tap á sama tímabili árið 2021.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 640 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 sem er hækkun um 219 m.kr. á milli tímabila. Hækkun vaxtagjalda kemur að mestu til vegna hærri leiguskuldbindinga í kjölfarið af sölu á óvirkum farsímainnviðum.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

K

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

  • Handbært fé frá rekstri á þriðja fjórðungi nam 1.249 m.kr. samanborið við 1.756 m.kr. á sama tímabili árið áður. Handbært fé frá rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3.937 m.kr. samanborið við 3.730 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 5,5%. Handbært fé nam 2.195 m.kr. í lok uppgjörstímabils.
  • Heildarfjárfestingar á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 námu 2.673 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.006 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.647 m.kr. Fjárfesting í sýningarréttum var 149 m.kr. lægri á 3F 2022 heldur en yfir sama tímabil 2021, þrátt fyrir óhagstæða þróun erlendra gjaldmiðla. Lægri fjárfesting í erlendum dagskrárréttindum birtist í minni afskriftum í rekstrarreikningi og gera áætlanir félagsins ráð fyrir að sú þróun haldi áfram.
  • Fjármögnunarhreyfingar á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 voru neikvæðar um 3.275 m.kr. á móti 2.439 m.kr. á sama tímabili árið 2021. Innifalið í fjármögnunarhreyfingum 2022 eru kaup á eigin bréfum að fjárhæð 1.860 m.kr., afborgun leiguskuldbindinga að fjárhæð 1.019 m.kr. og afborgun langtímalána að fjárhæð 396 m.kr.
  • Þann 5. september var skrifað undir samkomulag við Ljóslíðarann ehf. um einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljóslíðarans ehf. og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila til tíu ára. Viðskiptin munu skila hagkvæmari rekstri og lægri fjárfestingabörf þar sem um er að ræða beina sölu án endurleigukvæðar. Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3.000 m.kr. Mat á bókfærðu virði eignanna sem yrðu seldar er tæplega 600 m.kr. Endanlegur sölihagnaður liggur ekki fyrir þar sem áreiðanleikakönnun stendur enn yfir og kaup- og þjónustusamningar hafa ekki verið undirritaðir. Áætlað er að ljúka samningum fyrir árslok 2022, og verður sölihagnaður færður í gegnum rekstur á söludegi.
  • Stjórn Sýnar hefur sambykkt kaup eigin bréfa fyrir allt að 300 m.kr. Áætlað er að endurkaup hefjist í nóvember og muni standa fram að næsta aðalfundi nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Nánari upplýsingar um framkvæmd endurkaupa verða veittar við upphaf endurkaupaáæt lunar.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

K

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

^{}[]

Helstu niðurstöður úr rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2022

3F 2022 3F 2021 % br. 9M 2022 9M 2021 % br.
Seldar vörur og þjónusta 5.501 5.533 -0,6% 17.192 15.822 8,7%
Kostnaðarverð -3.480 -3.654 -4,8% -11.270 -10.788 4,5%
Framlegð 2.021 1.879 7,6% 5.922 5.034 17,6%
Rekstrarkostnaður -1.535 -1.457 5,4% -4.713 -4.628 1,8%
EBITDA 1.799 1.886 -4,6% 5.116 4.762 7,4%
EBIT 486 422 15% 1.209 406 198%
Hrein fjármagnsgjöld -272 -211 - -640 -421 -
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 0 - 0 -173 -
Tekjuskattur -33 -39 - -115 12 -
Hagnaður (tap) 181 172 - 454 -176 -
Framlegð 36,7% 34,0% 34,4% 31,8%
EBITDA 32,7% 34,1% 29,8% 30,1%
EBIT 8,8% 7,6% 7,0% 2,6%
  • Fjárhæðir eru í milljónum króna

Yngvi Halldórsson, forstjóri:

„Það er ánægjulegt að rekstrarbati heldur áfram og rekstrarhagnaður eykst. Tekjuvóxtur á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur 8,7% og er drifinn áfram af aukningu í farsímatekjum og góðu gengi í fjölmiðlastarfseminni. Sýn er með fjölbreytta starfsemi og mikil sóknartækifæri til vaxtar og aukinnar framlegðar.

Á undanförnum þremur árum hefur verið mikill viðsnúningur á starfseminni. Umtalsverðar breytingar hafa orðið hjá okkur á undanförnum vikum. Tekin er við ný stjórn og forstjóri. Það er einhugur í okkur að byggja ofan á þann rekstrarbata sem orðið hefur. Við erum að koma fram með spennandi nýjungar í vóruframboðinu okkar þar sem sótt verður fram og á sama tíma að vinna í að bæta framlegð og reksturinn í heild. Við munum leggja áherslu á að lækka fjárfestingar í erlendum sýningarréttum og styrkja á sama tíma innlenda dagskrárgerð sem mun skila sér í áframhaldandi rekstrarbata. Við ætlum að sýna ábyrgð í rekstri.

Samkomulag Sýnar og Ljósleiðarans er gæfuspor fyrir félagið og vinna að viðskiptunum gengur vel. Við losum umtalsverða fjármuni en náum á sama tíma fram rekstrarhagræði. Félagið er því í góðri stöðu til að skila frekara fjármagni til eiganda.

Sýn rekur öflugt fjarskiptafyrirtæki sem þjónar m.a. meirihluta af stærstu fyrirtækjum landsins og stórum hluta íslenskra heimila. Félagið er bæði ríkt af innviðum og með sterkan alþjóðlegan bakhjarl í Vodafone Group. Við rekum stærstu og fjölbreyttustu fjölmiðlastarfsemi landsins þar sem áframhaldandi áhersla verður á framleiðslu á innlendu efni. Endor er síðan vaxandi félag í upplýsingatækni sem við munum styrkja enn frekar á næstunni.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

KIRISTÓRIO

X

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Verkefni okkar er að gera Sýn að enn áhugaverðari fjárfestingakosti. Við viljum fjölga hluthófum og stór þáttur í því er að lýsa vegferðinni og þeim verðmætum sem í félaginu felast. Það munum við kappkosta að gera á næstunni."

Efnahagur 30. september 2022:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 9.078 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27,9%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.684 m.kr.

Heildarskuldir félagsins voru 23.445 m.kr. í lok þriðja fjórðungs 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.554 m.kr. í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,45.

Fjárhagsdagatal 2022:

  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2022 15. febrúar 2023
  • Aðalfundur 2022 17. mars 2023

Frekari upplýsingar:

  • Eftir breytingar á lögum um upplýsingaskyldu skráðra félaga verður ekki fjárfestafundur til að kynna uppgjör 3F 2022. Næsti fjárfestafundur verður haldinn 15. febrúar 2023 en fjárfestar geta sent fyrirspurn á fjá[email protected] eða óskað eftir fundi.
  • Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjárfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

KIRISTÓFEN

Sýn

X

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is