AI assistant
Syn — Earnings Release 2020
Feb 24, 2021
2210_rns_2021-02-24_c7d9f32d-8a3a-4ec4-ad0d-942fb654bb03.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- febrúar 2021
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fjórða fjórðungi og árinu 2020.
Ár viðsnúnings
Ársreikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir árið 2020 var sambykktur á stjórnarfundi þann 24. febrúar 2021.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2020 námu 5.413 m.kr. sem er aukning um 478 m.kr. frá sama tímabili árið 2019. Tekjur ársins 2020 hækkuðu um 975 m.kr. milli ára, eða um 4,9%. Heimsfaraldur hefur haft talsverð áhrif á bæði reikitekjur og auglýsingatekjur félagsins.
- EBITDA nam 1.427 m.kr. á 4F í samanburði við 1.409 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 26,4% á 4F 2020 samanborið við 28,6% á 4F 2019. EBITDA ársins 2020 nam 5.739 m.kr. og hækkaði um 230 m.kr. miðað við árið 2019. EBITDA hlutfallið er 27,6% á árinu 2020 samanborið við 27,8% á árinu 2019.
- Tap á 4F 2020 nam 3 m.kr. samanborið við 2.132 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Tap ársins 2020 nam 405 m.kr. samanborið við 1.748 m.kr. tap árið 2019. Virðisrýrnun að fjárhæð 2.452 m.kr. var færð í 4F 2019. Söluhagnaður að fjárhæð 872 m.kr. vegna sölu á færeyska dótturfélaginu P/F Hey er innifalinn í hreinum vaxtagjöldum árið 2019.
- Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 2.051 m.kr. samanborið við 1.953 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 5%. Handbært fé frá rekstri á árinu 2020 nam 5.912 m.kr. samanborið við 5.377 m.kr. árið 2019, sem er aukning um 10%.
- Heildarfjárfestingar ársins 2020 námu 3.516 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og öefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.049 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 2.511 m.kr. Greiðsla vegna kaupa á eignarhluta nam 100 m.kr. og móttekinn arður 144 m.kr.
- Fjármögnunarhreyfingar á árinu voru neikvæðar um 2.238 m.kr. á móti 380 m.kr. á sama tímabili árið 2019 sem er aukning um 1.858 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,8% í lok ársins 2020.
- Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að heimsfaraldurinn haldi áfram að hafa áhrif á rekstur félagsins, sér í lagi reikitekjur og kostnað í erlendri mynt, en væntingar eru um að það dragi úr neikvæðum áhrifum þegar líður á árið. Áfram verður unnið í takt við stefnu félagsins sem var innleidd sumarið 2019 þar sem áhersla er á góða þjónustu, einföldun rekstrar, aukna sjálfvirknivæðingu og sterkara og skýrara vöruframboð.
- Það er óbreytt markmið stjórnenda að ná aukinni EBITDA framlegð úr rekstri félagsins á árinu 2021. Fjárfestingar ársins eru áætlaðar á bilinu 1.000 – 1.500 m.kr.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
KIRI
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Helstu niðurstöður úr rekstri ársins 2020
| 4F 2020 | 4F 2019 | % br. | 2020 | 2019 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og bjónusta | 5.413 | 4.935 | 9,7% | 20.786 | 19.811 | 4,9% |
| Kostnaðarverð | -3.812 | -3.098 | 23,0% | -14.278 | -12.589 | 13,4% |
| Framlegð | 1.601 | 1.837 | -12,8% | 6.508 | 7.222 | -9,9% |
| Rekstrarkostnaður | -1.625 | -1.570 | 3,5% | -6.347 | -6.720 | -5,5% |
| Virðisrýrnun | - | -2.452 | - | 0 | -2.452 | - |
| EBITDA | 1.427 | 1.409 | 1,3% | 5.739 | 5.509 | 4,2% |
| EBIT | -24 | -2.185 | - | 161 | -1.950 | - |
| Hrein fjármagnsgjöld | -118 | -185 | - | -910 | -995 | - |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 27 | 119 | - | 98 | 963 | - |
| Tekjuskattur | 112 | 119 | - | 246 | 234 | - |
| Tap tímabilsins | -3 | -2.132 | - | -405 | -1.748 | - |
| Framlegð | 29,6% | 37,2% | 31,3% | 36,5% | ||
| EBITDA | 26,4% | 28,6% | 27,6% | 27,8% | ||
| EBIT | -0,4% | -44,3% | 0,8% | -9,8% |
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Heimsfaraldurinn hafði tóluverð áhrif á reksturinn á árinu. Ef við leiðréttum fyrir því er ljóst að árangur af nýrri stefnu hefði skilað okkur hagnaði á árinu 2020. Við höfum unnið hart að því að framfylgja þeirri stefnu sem við settum okkur á árinu 2019, að rækta langtíma viðskiptasamband við okkar viðskiptavini sem byggir á virðingu og trausti. Í maí settum við herferð í loftið sem bar heitið Nýtt upphaf. Hluti af þessu verkefni var að tryggja að allir okkar viðskiptavinir væru í réttum bjónustuleiðum. Skemmst er að segja frá því að í lok árs höfðu bjónustuleiðir 25.000 heimila verið yfirfarnar. Verkefnið hlaut frábærar viðtökur hjá viðskiptavinum okkar, sem birtist meðal annars í aukinni ánægju í mælingum okkar, þeim hæstu í sögu fyrirtækisins, en einnig í Ánægjuvoginni fyrir árið 2020. Þessi aðgerð leiðir til lækkunar á tekjum til skemmri tíma en við trúum því að til lengri tíma skili þetta okkur betri árangri. Við ætlum okkur auðvitað að geta mætt óvæntum ytri áföllum og erum í því augnamiði að straumlínulaga reksturinn enn frekar.
Fjölmiðlahlutinn nær alltaf til fleiri
Með breytingum á vöruframboði hefur okkur tekist að fjölga viðskiptavinum Stöðvar 2. Þeim fjölgaði um 14% á árinu 2020. Við höfum stöðugt lækkað verð frá því tókum yfir fjölmiðlareksturinn. Verð á Stöð 2 Sport hefur helmingast á síðustu 3 árum og nú bjóðum við upp á að kaupa áskrift að Stöð 2 Ísland og Stöð 2 Erlent á áður óþekktum verðpunkti, eða á 3.990 kr.
Efnisveitan okkar Stöð 2+ er í miklum vexti og á síðasta ári fjölgaði áskrifendum um 9% á árinu. Stöð 2+ er stærsta efnisveitan með íslenskt efni og hefur algera sérstöðu á markaði.
Bylgjan er sem fyrr stærsta útvarpsstöð landsins og FM957 og X-ið halda sínu. Vísir er svo orðinn stærsti vefur landsins í fyrsta skipti í sögunni. Ég bind miklar vonir við Vísi og tel að hann eigi mikið inni á komandi árum.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
KÝT
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Að skilja frá innviði
Á árinu stigum við mjög mikilvægt skref í þá veru að auka skilvirkni á markaði með því að hefja söluviðræður um óvirka innviði fjarskiptakerfisins. Með því getum við gert meira fyrir minna. Þá aukast líka tækifærin til sameiginlegrar uppyggningar á 5G. Á sama tíma gefst tækifæri til að losa um fé og greiða upp skuldir sem stofnað var til við kaup á fjölmiðlaeignum árið 2017. Allt miðar þetta í sömu átt, að gera fyrirtækið sveigjanlegra, hluthöfum og viðskiptavinum til hagsbóta.
Samkomulag hefur tekist í öllum megin atriðum varðandi söl á óvirkum innviðum farsímakerfisins. Fjárhagslegir skilmálar verða í samræmi við fyrri tilkynningar til Kauphallar. Stjórn félagsins hefur veitt stjórnendum umboð til að undirrita nauðsynleg skjöl á þeirri forsendu að skjalagerð verði að fullu lokið í síðasta lagi fyrir birtingu árshlutareiknings 1. fjörðungs 2021, en stefnt er að því að undirritun samninga takist vel fyrir þann tíma. Samningarnir verða með fyrirvara um sambykki hlutaðeigandi eftirlitsaðila.
Framtíð fjarskipta
Það er oft sagt að 5G geri það sama fyrirtæki og heimili og 4G gerði fyrir einstaklinginn. 4G tæknin færði háhraða fjarskiptanet í hendur almennings sem gat óhikað streymt, tekið á móti streymi og nánast stundað vinnu með snjallsíma einan að vopni, eins og glögglega hefur komið fram á síðustu misserum. Hlutanet (e. Internet of Things, IoT) er einn angi af fjarskiptum framtíðar. Þar náðust miklir áfangar á árinu 2020.
Við höfum unnið með Controlant í yfir áratug. Við bjuggum til fyrstu sérhæfðu kortin sem fyrirtækið gat notað í mæla sína. Með samningi Controlant við lyfjageirann hefur vöxtur okkar í IoT verið ævintýralegur. Við höfum gert Ísland að eina landi heims sem hefur fleiri útistandandi símkort fyrir tæki en fyrir fólk. Við þetta bætist að við erum að fara tengja alla nýja snjallmæla Veitna á um 160.000 stöðum. Til viðbótar við þetta hefur samstarf okkar við Vodafone Global gert það að verkum að nánast allir nýir bílar sem koma til landsins frá og með þessu ári munu tengjast við símkerfi okkar, sem aftur léttir á viðhaldi bíla, minnkar kostnað við bílanagreiningu og eykur öryggi allra. Þarna eru við í algerum farabroddi í uppyggninga fjarskiptakerfis framtíðar.
Við kveiktum á fyrsta sendinum fyrir 5G í farsíma í september 2020. Við höfum farið mun hægar en við ætluðum okkur í þá uppyggninga því skilmálar stjórnvalda varðandi úthlutun varanlegra tíðniheimilda liggja ekki fyrir.
Rekstrarafkoma á 4. ársfjörðungi 2020:
Tekjur félagsins á 4F 2020 námu 5.413 m.kr sem er 478 m.kr hæk kun frá sama tímabili árið áður.
Tekjur af fjölmiðlun námu 2.085 m.kr á 4F og stöðu í stað milli ára. Tekjur af interneti námu 1.115 m.kr á 4F, sem er læk kun um 67 m.kr á milli ára eða 6%. Tekjur af farsíma námu 838 m.kr og lækkuðu um 115 m.kr miðað við sama tímabil árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 141 m.kr á 4F og lækkuðu um 19% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfse mi Endor ehf. námu 662 m.kr. á 4F 2020. Tekjur af vörusölu námu 353 m.kr á tímabilinu sem er 3% hæk kun miðað við sama ársfjörðung 2019. Aðrar tekjur námu 219 m.kr á 4F og hækkuðu um 7% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 3.812 m.kr og hækkaði um 23% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.625 m.kr og er 3,5% hærri en á sama tímabili árið 2019. EBITDA tímabilsins nam 1.427 m.kr og hækkar um 18 m.kr miðað við sama tímabil árið 2019. EBITDA hlutfall var 26,4% samanborið við 28,6% árið áður.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Hrein fjármagnsgjöld námu 118 m.kr á 4F 2020 sem er lækkun um 67 m.kr á milli ára. Gengismunur eykst um 51 m.kr 4F 2019 og var gengishagnaður á 4F 2020 54 m.kr. Vextir af langtímaskuldum lækka um 55 m.kr milli fjörðunga en vextir vegna leigusamninga aukast um 26 m.kr sem skýrist að mestu af viðbót vegna leigusamninga Endors ehf. Tap á 4F 2020 nam 3 m.kr samanborið við 2.132 m.kr tap á sama tímabili í fyrra en innifalið í tapi árið 2019 var virðisrýrnun á viðskiptavild að fjárhæð 2.452 m.kr.
Sjóðstreymi 4. ársfjörðungs 2020:
Handbært fé frá rekstri á 4F ársins 2020
var 2.051 m.kr sem er 5% hækkun frá fyrra
ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 1.171 m.kr á 4F 2020.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 306 m.kr á 4F 2020.
Handbært fé í lok 4F nam 831 m.kr sem er hækkun um 197 m.kr króna miðað við sama tímabili árið 2019.


Rekstrarafkoma ársins 2020:
Tekjur félagsins ársins 2020 námu 20.786 m.kr sem er 975 m.kr hækkun samanborið við árið 2019.
Tekjur af fjölmiðlun námu 7.808 m.kr á árinu 2020 og lækkuðu um 7% á milli ára. Tekjur af interneti námu 4.557 m.kr á árinu, sem er lækkuð um 254 m.kr á milli ára eða 5%. Tekjur af farsíma námu 3.512 m.kr og eru 390 m.kr lægri en á sama tímabili árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 608 m.kr á árinu og lækkuðu um 23% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 2.420 m.kr á árinu 2020. Tekjur af vörusölu námu 1.082 m.kr á tímabilinu sem er 4% lækkuð miðað við árið 2019. Aðrar tekjur námu 799 m.kr á árinu og lækkuðu um 3% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 14.278 m.kr og hækkaði um 13,4% á milli ára, sem skýrist helst af því að framlegð af þjónustu og sölu Endor ehf. er mun lægri en framlegð móðurfélagsins. Rekstrarkostnaður nam 6.347 m.kr og er 5,5% lægri en árið 2019. EBITDA ársins nam 5.739 m.kr og hækkar um 230 m.kr miðað við árið 2019. EBITDA hlutfall var 27,6% samanborið við 27,8% árið áður.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Hrein fjármagnsgjöld námu 910 m.kr á árinu 2020 sem er lækkun um 85 m.kr á milli ára. Gengistap eykst um 170 m.kr á milli ára. Vextir af langtímaskuldum lækka um 402 m.kr milli tímabila en vextir vegna leigusamninga aukast um 136 m.kr sem skýrist að mestu af viðbót vegna fjármögnunarleigusamninga Endors ehf.
Tap ársins 2020 nam 405 m.kr samanborið við 1.748 m.kr tap árið 2019.
Sjóðstreymi ársins 2020:
Handbært fé frá rekstri ársins 2020 var 5.912 m.kr sem er 10% hækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 3.516 m.kr.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 2.238 m.kr árið 2020.
Handbært fé í lok fjórða ársfjórðungs nam 831 m.kr sem er hækkun um 197 m.kr samanborið við árið 2019.

Sjóðstreymi 2020
Efnahagur 31. desember 2020:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.549 m.kr og eiginfjárhlutfall var 27,8%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.
Fastafjármunir lækka um 1.345 m.kr á milli ára. Ástæður þeirrar lækkunar eru minni fjárfestingar á árinu 2020 samanborið við árið á undan. Lækkun í fjárfestingum snýr að mestu að lægri fjárfestingum í varanlegum rekstrarfjármunum. Á árinu 2019 var talsverð endurnýjun á ljósvakabúnaði, nýju stúdió undir fjölmiðlastarfsemi félagsins og frágangi á nýjum höfuðstöðvum félagsins. Aðrar ástæður lækkunar fastafjármuna eru vegna þess að hluti leigueigna er nú flokkaður sem eignir til sölu í samræmi við kröfur IFRS 5 eða tæplega 540 m.kr. Flokkunin skýrist af þeim samningaviðræðum sem félagirð er í um sölu á óvirkum farsímainnviðum.
Heildarskuldir félagsins voru 22.313 m.kr í lok ársins 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.419 m.kr í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,08.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN 669
SPORT
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Kynningarfundur 25. februar 2021:
- Kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 25. februar 2020, klukkan 8.30. Sökum beirra støðu sem til staðar er í bjóðfélaginu vegna COVID-19 verður fundurinn aðeins rafrænn og streymt á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
- Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Fjárhagsdagatal 2021:
✓ Aðalfundur 2020 19. mars 2021
✓ Afkoma 1F 2021 12. maí 2021
✓ Afkoma 2F 2021 1. september 2021
✓ Afkoma 3F 2021 3. nóvember 2021
✓ Afkoma 4F og ársuppgjör 2021 23. februar 2022
✓ Aðalfundur 2021 18. mars 2022
Frekari upplýsingar:
✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is