AI assistant
Syn — Earnings Release 2021
May 12, 2021
2210_rns_2021-05-12_d42dbad4-d465-4cfc-bd5b-281e8ab05ca1.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- mai 2021
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta fjórðungi ársins 2021.
Viðsnúningur í efnahag
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2021 var sambykktur á stjórnarfundi þann 12. maí 2021.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2021 námu 4.962 m.kr. en tekjur dragast saman um 33 m.kr. frá sama tímabili árið 2020.
- EBITDA nam 1.388 m.kr. á 1F 2021 í samanburði við 1.355 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 28,0% á 1F 2021 samanborið við 27,1% á 1F 2020. EBITDA hækkar á milli tímabila vegna lægri rekstrarkostnaðar sem er að miklu leyti vegna þeirrar kostnaðarhagræðingar sem unnið hefur verið að.
- Tap á 1F 2021 nam 231 m.kr. samanborið við 350 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Af 231 m.kr. tapi eru 189 m.kr. gjaldfærsla vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu.
- Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 542 m.kr. samanborið við 1.053 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er lækkun um 49%.
- Heildarfjárfestingar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 námu 807 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 231 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 576 m.kr.
- Fjármögnunarhreyfingar á fyrsta ársfjórðungi voru neikvæðar um 320 m.kr. á móti 590 m.kr. á sama tímabili árið 2020 sem er 270 m.kr. lækkun.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,8% í lok fyrsta fjórðungs ársins 2021.
- Þann 31. mars var skrifað undir samninga um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Viðskiptin munu styrkja efnahagsreikning félagsins. Umsamið söluverð er um 7,1 milljarðar og nemur væntur söluhagnaður yfir 6,5 milljörðum króna. Samhliða var gerður langtimaleigusamningur, sem tryggja mun áframhaldandi aðgang félagsins að hinum óvirku farsímainnviðum. Allur virkur farsímabúnaður verður áfram í eigu Sýnar hf. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) verður farið með viðskiptin sem sölu og endurleigu á eignum. Af þeirri ástæðu mun meðferð þess söluhagnaðar sem verður af viðskiptunum ekki vera færður nema að hluta í gegnum rekstur á söludegi. Viðskiptin eru háð sambykkti eftirlitsstofnanna.
- Þann 31. mars var einnig undirritaður samningur um sölu á 49,9% hlut í færeyska hlutdeildarfélaginu P/F 20.11.19. Kaupverðið er 52,5 milljónir DKK. Bókfært verð fjárfestingar í hlutdeildarfélaginu var hærra en söluverð og því var gjaldfært tap af sölunni að fjárhæð 189 m.kr. Kaupverðið var greitt að fullu til félagsins þann 21. apríl. Áfram verður til staðar þjónustusamningur á milli félaganna.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
KÝT
X
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
- Viðskiptin hafa engin áhrif á EBITDA en styrkja efnahagsreikning og lausafjárstöðu félagsins.
Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2021
| 1F 2021 | 1F 2020 | Br. | % Br. | |
|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 4.962 | 4.995 | -33 | -0,7% |
| Kostnaðarverð | -3.337 | -3.350 | 13 | -0,4% |
| Framlegð | 1.625 | 1.645 | -20 | -1,2% |
| Rekstrarkostnaður | -1.583 | -1.666 | 83 | -5,0% |
| EBITDA | 1.388 | 1.355 | 33 | 2,4% |
| EBIT | 42 | -21 | 63 | -302% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -93 | -441 | 348 | -79% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | -193 | 20 | -213 | -1064% |
| Tekjuskattur | 13 | 92 | -79 | -86% |
| Tap tímabilsins | -231 | -350 | 119 | - |
| Framlegð | 32,7% | 32,9% | ||
| --- | --- | --- | ||
| EBITDA | 28,0% | 27,1% | ||
| EBIT | 0,9% | -0,4% |
- Fjárhæðir eru í milljónum króna
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Ég hef sagt að árið 2020 hafi verið ár viðsnúnings í rekstri. Það er ljóst að árið 2021 er ár viðsnúnings í efnahag Sýnar hf. Með sölu á óvirkum innviðum úr farsímakerfinu erum við að innleysa um 6,5 milljarða söluhagnað án þess að reksturinn til framtíðar verði fyrir neikvæðum áhrifum. Við náðum í samningaviðræðum að hækka söluandvírðið upp í 7,1 milljarð. Eins seldum við frá okkur hlut okkar í fjarskiptafélaginu Hey í Færeyjum á ríflega milljarð en munum áfram þjónusta þann rekstur. Við stefnum á meiri sölu innviða á árinu en nú þegar er ljóst að skuldirnar sem við tókum á okkur við kaup á eignum 365 verða greiddar upp á þessu ári auk þess sem mikið svigrúm myndast til endurkaupa hlutabréfa. Þessar aðgerðir koma í framhaldi af stefnumótun félagsins um að verða markaðs- og þjónustufyrirtæki og einfalda reksturinn.
Uppgjör fyrsta ársfjörðungs litast af árstíðarsveiflu sem jafnan er í rekstrinum. Við sjáum að Fjölskyldupakkinn sem við hleyp tum af stokkunum í lok tímabilsins selst framar vonum en hefur ekki áhrif á uppgjórið. Viðsnúningur í rekstri er því í fullum gangi. Á móti kemur að sölutap er innleyst af eign í Færeyjum uppá tæpar 200 milljónir.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Rekstrarafkoma á 1. ársfjórðungi 2021:
Tekjur félagsins á 1F 2021 námu 4.962 m.kr. samanborið við 4.995 m.kr. árið 2020.
Tekjur af fjölmiðlun námu 1.918 m.kr. á 1F 2021 og lækkuðu um 17 m.kr. miðað við fyrsta fjörðung ársins 2020. Tekjur af interneti námu 1.145 m.kr. á 1F 2021, sem 1% lækkun á milli ára. Tekjur af farsíma námu 939 m.kr. og hækkuðu um 28 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020. Tekjur af fastlínu námu 140 m.kr. á 1F 2021 og lækkuðu um 16% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 313 m.kr. á 1F 2021 samanborið við 371 m.kr. á sama tímabili árið 2020, en það er lækkun um 16%. Helsta skýringin á þeirri lækkun er minni búnaðarsala og veikara gengi íslensku krónunnar í fjörðungnum samanborið við sama tímabil árið áður. Tekjur af vörusölu námu 293 m.kr. á tímabilinu sem er 25% hækkun miðað við sama ársfjörðung 2020. Aðrar tekjur námu 214 m.kr. á 1F 2021 og stóðu í stað á milli ára.
Kostnaðarverð nam 3.337 m.kr. og stóð nærri í stað á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.583 m.kr. og er 5% lægri en á sama tímabili árið 2020. EBITDA tímabilsins nam 1.388 m.kr. og hækkar um 33 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020. EBITDA hlutfall fyrsta ársfjörðungs var 28,0% samanborið við 27,1% á 1F 2020.
Hrein fjármagnsgjöld námu 93 m.kr. á 1F 2021 sem er lækkun um 348 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var jákvæður um 46 m.kr. á 1F 2021 samanborið við gengistap upp á 230 m.kr. á 1F 2020. Vextir af langtímaskuldum lækka um 75 m.kr. milli fjörðunga.
Tap af sölu færeyska hlutdeildarfélagsins nam 189 m.kr.
Tap á 1F 2021 nam 231 m.kr. samanborið við 350 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra.
Sjóðstreymi 1. ársfjórðungs 2021:
Handbært fé frá rekstri á 1F ársins 2021 var 542 m.kr. sem er 49% lækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 807 m.kr. á 1F 2021.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 320 m.kr. á 1F 2021.
Handbært fé í lok 1F 2021 nam 240 m.kr. sem er lækkun um 145 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020.
Sjóðstreymi 1F 2021
- Útstreymi
- Innstreymi

vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Efnahagur 31. mars 2021:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.208 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27,8%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.
Heildarskuldir félagsins voru 21.328 m.kr. í lok fyrsta fjörðungs 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.686 m.kr. í lok fjörðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,32.
Kynningarfundur 14. maí 2021:
- Fjárfestafundur verður einungis sendur út rafrænt í gegnum streymisupptöku föstudaginn 14. maí frá og með kl. 08:30 á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
- Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Fjárhagsdagatal 2021:
✓ Afkoma 2F 2021
1. september 2021
✓ Afkoma 3F 2021
3. nóvember 2021
✓ Afkoma 4F og ársuppgjör 2021
23. febrúar 2022
✓ Aðalfundur 2021
18. mars 2022
Frekari upplýsingar:
✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is