AI assistant
Syn — Earnings Release 2019
Feb 26, 2020
2210_rns_2020-02-26_5ecd3d5c-b71e-412e-be1e-602f738fffc5.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- febrúar 2020
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fjórða fjórðungi og árinu 2019
Niðurstaða í samræmi við horfur
Í ársbyrjun var meðferð á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt, samanburðartölur 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2019 námu 4.935 milljónum króna sem er 9% lækku frá sama tímabili 2018. Tekjur ársins lækkuðu um 943 milljónir króna milli ára, eða um 5%.
EBITDA nam 1.409 milljónum króna á 4F í samanburði við 1.449 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 28,6% á 4F 2019 samanborið við 26,7% á 4F 2018. EBITDA leiðrétt fyrir IFRS 16 á 4F er 1.270 milljónir króna. EBITDA ársins 2019 nam 5.509 milljónum króna og lækkaði um 110 milljónir króna miðað við árið 2018. - Tap á 4F 2019 nam 2.101 milljónum króna samanborið við 193 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Á 4F 2019 var viðskiptavild færð niður um 2.452 milljónir króna sem skýrir tapið á 4F 2019. Afkoma 4F 2019 að frádreginni niðurfærslu viðskiptavildar hefði verið hagnaður að fjárhæð 351 milljón króna.
- Tap ársins nam 1.748 milljónum króna miðað við hagnað upp á 443 milljónir króna árið 2018. Hagnaður ársins að frádreginni niðurfærslu á viðskiptavild var 703 milljónir króna. Einskiptiskostnaður ársins nemur 358 milljónum króna.
- Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.953 milljónum króna samanborið við 1.358 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 44%.
- Heildarfjárfestingar félagsins á árinu námu 4.719 milljónum króna bar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og öefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.833 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 2.789 milljónir króna.
- Fjármögnunarhreyfingar félagsins á árinu voru neikvæðar um 380 milljónir króna á móti jákvæðum hreyfingum upp á 434 milljónum króna á árinu 2018 sem er breyting um 814 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Sýn hf. var 27,5% í lok árs 2019.
- Markmið stjórnenda er að ná aukinni framlegð og betra sjóðstrey mi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Fjárfestingar ársins verða í kringum 1 milljarð.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
| 4F 2019 | 4F 2018 | Breyt. | % breyt. | 2019 | 2018 | Breyt. | % breyt. | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og bjónusta | 4.935 | 5.424 | -489 | -9% | 19.811 | 20.754 | -943 | -5% |
| Kostnaðarverð | -3.098 | -3.441 | 343 | -10% | -12.589 | -12.716 | 127 | -1% |
| Framlegð | 1.837 | 1.983 | -146 | -7% | 7.222 | 8.038 | -816 | -10% |
| Rekstrarkostnaður | -1.570 | -1.682 | 112 | -7% | -6.720 | -6.871 | 151 | -2% |
| Virðisrýrnun | -2.452 | 0 | -2.452 | - | -2.452 | 0 | 0 | - |
| EBITDA | 1.409 | 1.449 | -40 | - | 5.509 | 5.619 | -110 | - |
| EBIT | -2.185 | 301 | -2.486 | - | -1.950 | 1.167 | -3.117 | - |
| Hrein fjármagnsgjöld | -153 | -168 | 15 | - | -995 | -702 | -293 | - |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 119 | -13 | 132 | - | 963 | -27 | 990 | - |
| Tekjuskattur | 119 | 73 | 46 | - | 234 | 5 | 229 | - |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | -2.101 | 193 | -2.294 | - | -1.748 | 443 | -2.191 | - |
| Framlegð (%) | 37,2% | 36,6% | 36,5% | 38,7% | ||||
| EBITDA % | 28,6% | 26,7% | 27,8% | 27,1% | ||||
| EBIT % | -44,3% | 5,5% | -9,8% | 5,6% |
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Uppgjör síðasta árs liggur nú fyrir með tap uppá 1.748 milljónir króna. Það ætti ekki að vera margt þar sem kemur á óvart enda eru sjóðstreymi og EBITDA ársins í takt við horfur. Árið markast af því að verið var að framkvæma miklar breytingar á rekstrinum og færa niður viðskiptavild. Jákvæð breyting er verulega bætt sjóðstreymi en frjálst fjárflæði eykst um yfir milljarð króna.
Á síðasta ári fór fyrirtækið fyrst í sameiginlega stefnumótun. Í framhaldi af því var skipuriti breytt og nýir framkvæmdastjórar eru nú í öllum stöðum, utan tæknisviðs. Tæknisviði var skipt upp og sett að hluta undir rekstrarsvið, sem mun auk skilvirkni og hraða framförum í starfrænni aðlögur. Við innleiddum nýja vörumerkja- og samskiptastefnu og fórum í framhaldi af því í 4DX átaksverkefni. Ánægja viðskiptavina jókst strax umtalsvert í kjólfarið. Nú erum við í stöðu til að sækja fram.
Lykill að betri rekstrarárangri er að umbreyta föstum kostnaði í breytilegan. Þar eru ýmis verkefni í gangi. Við erum að auka útvistun verkefna auk þess sem við erum enn að hagræða með því að efla frekari samvinnu á milli deilda fyrirtækisins. Varðandi framtíð fjarskipta þá skiptir mestu að fjárfestingar séu markvissar með tilliti til öryggis og hagkvæmni. Mikilvægur liður í því var yfirlýsing fjarskiptafyrirtækjanna frá 19. desember síðast liðnum, þó enn sé of snemmt að fullyrða um árangur af því starfi.
Horfur ársins 2020 eru ágætar. Við vitum að í óbreyttum rekstri munum við sýna bata í sjóðstreymi. Ofan á það kemur enn straumlínulagaðri rekstur og hugsanlegt hagræði af samstarfi í uppbyggingu 5G og tengdra verkefna sem gerir það að verkum að erfitt er styðjast við sama form á horfum og áður hefur verið. Eldra form á horfum nær ekki utan um þær breytingar sem við ætlum að gera á rekstrinum.“
vodafone
^{}[]
vísir
SPORT
BYLGJAN
^{}[]
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Rekstrarafkoma á 4. ársfjórðungi 2019:
Tekjur félagsins á 4F 2019 námu 4.935 milljónum króna sem er lækkun um 9% frá sama tímabili í fyrra.
Tekjur af fjölmiðlun námu 2.079 milljónum króna á 4F og lækkuðu um 9% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.182 milljónum króna á 4F, sem er lækkun um 57 milljónir króna á milli ára eða 5%. Tekjur af farsima námu 953 milljónum króna og lækkuðu um 2% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 174 milljónum króna á 4F og lækkuðu um 25% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 342 milljónum króna á tímabilinu sem er 26% lækkun miðað við sama ársfjórðung 2018. Einskiptissala var á 4F 2018 að fjárhæð 119 m.kr. og því er raunlækkun í vörusölu á milli fjórðunga 0,3%. Aðrar tekjur námu 205 milljónum króna á 4F og lækkuðu um 11% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 3.098 milljónum króna og lækkæði um 10% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.570 milljónum króna og er 7% lægri en á sama tímabili árið 2018. EBITDA tímabilsins nam 1.409 milljónir króna og lækkar um 40 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2018. EBITDA hlutfall var 28,6%.
Hrein fjármagnsgjöld námu 153 milljónum króna á 4F 2019 sem er lækkun um 15 milljónir króna á milli ára. Tap á 4F 2019 nam 2.101 milljónum króna samanborið við 193 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Á 4F 2019 var viðskiptavild færð niður um 2.452 milljónir króna sem skýrir tap á 4F 2019.
Sjóðstreymi 4. ársfjórðungs 2019:
Handbært fé frá rekstri á 4F ársins 2019
var 1.953 milljónir króna sem er 44%
hækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 1.666
milljónum króna.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 220 milljónum króna á 4F 2019.
Handbært fé í lok 4F nam 634
milljónum króna sem er hækkun um
278 milljónir króna miðað við sama
tímabil árið 2018.

Sjóðstreymi 4F 2019
O
vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Rekstrarafkoma ársins 2019:
Tekjur ársins 2019 námu 19.811 milljónum króna og lækkuðu um 943 milljónir króna eða 5% á milli ára. Tekjur af fjölmiðlun námu 8.367 milljónum króna á árinu og lækkar um 5% á milli ára. Tekjur af interneti námu 4.811 milljónum króna á árinu, sem er lækkun um 94 milljónir króna á milli ára eða 2%. Tekjur af farsíma námu 3.902 milljónum króna og lækkuðu um 1% á milli ára.
Tekjur af fastlínu námu 789 milljónum króna á árinu og lækkuðu um 23% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 1.122 milljónum króna á árinu sem er 11% lækkun milli ára. Aðrar tekjur námu 820 milljónum króna á árinu og jukust um 3% milli ára.
Kostnaðarverð seldra vara nam 12.589 milljónum króna og lækkáði um 127 milljónir króna eða um 1%. Framlegð nam 7.222 milljónum króna og var framlegðarhlutfallið 36,5% samanborið við 38,7% árið 2018. Rekstrarkostnaður nam 6.720 milljónum króna og var 151 milljónum króna lægri en árið 2018.
EBITDA hagnaður félagsins nam 5.509 milljónum króna, sem er lækkun um 110 milljónir króna á milli ára. EBITDA hlutfall félagsins var 27,8% til samanburðar við 27,1% árið 2018.
Efnahagur 31. desember 2019:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.798 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 27,5%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 milljónum króna.
Heildarskuldir félagsins voru 23.180 milljón króna í lok árs 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17.281 milljón króna í lok árs 2019. Veltufjárhlutfall var 1,3.
Sjóðstreymi ársins 2019:
Handbært fé frá rekstri á árinu 2019 nam 5.377 milljónum króna. Fjárfestingarhreyfingar námu 4.719 milljónum króna bar af eru fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (að undanskildum sýningarrétti) 1.833 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 2.789 milljónir króna.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 380 milljónir króna á árinu 2019. Handbært fé í lok ársins 2019 nam 634 milljónum króna.

Sjóðstreymi 2019
O
vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Kynningarfundur 27. febrúar 2020:
- Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar 2020. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
- Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
- Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl.
Fjárhagsdagatal 2020:
✓ Aðalfundur 2020 20. mars 2020
✓ Afkoma 1F 2020 13. maí 2020
✓ Afkoma 2F 2020 26. ágúst 2020
✓ Afkoma 3F 2020 4. nóvember 2020
✓ Afkoma 4F 2020 24. febrúar 2021
✓ Aðalfundur 2021 19. mars 2021
Frekari upplýsingar:
✓ Lilja Birgisdóttir samskiptastjóri Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 779-3002.
vodafone
^{}[]
vísir
SPORT
BYLGJAN
^{}[]
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is