AI assistant
Syn — Earnings Release 2018
May 16, 2018
2210_rns_2018-05-16_d8259bdd-6bef-4537-b93c-f4211e6cc616.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf. : 69% hækkun tekna en samlegðar ekki tekið að gæta
Sýn hf. : 69% hækkun tekna en samlegðar ekki tekið að gæta
Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 var samþykktur af
stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 16. maí 2018.
Á aðalfundi félagsins í mars var samþykkt að nafnabreyta félaginu úr Fjarskipti
hf. í Sýn hf. Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365
miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða á milli ára.
Einskiptisliðir í tengslum við kaupin höfðu áhrif á afkomu fjórðungsins og er
leiðrétt afkoma sýnd hér fyrir neðan. Einskiptisliðirnir eru samsettir úr
fjölmörgum mismunandi liðum í tengslum við kaupin.
* Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2018 námu 5.304 m.kr. sem er hækkun um 69% á
milli ára.
* EBITDA hagnaður nam 718 m.kr. á ársfjórðungnum og stendur í stað á milli
ára. Leiðréttur EBITDA hagnaður sbr. ofangreint nam 833 m.kr. sem er 11%
hækkun milli ára.
* Hagnaður tímabilsins nam 56 m.kr. sem er 72% lækkun á milli ára. Leiðréttur
hagnaður tímabilsins nam 150 m.kr. sem er 33% lækkun frá sama tímabili á
fyrra ári.
* Hagnaður á hlut var 0,20.
* Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu 522 m.kr. sem er 61% hækkun á milli
ára.
* EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru áætlaðar á bilinu 4.000-4.400 m.kr. af
reglulegri starfsemi. Áætlað fjárfestingarhlutfall stendur óbreytt í 8-10%
af tekjum.
Stefán Sigurðsson, forstjóri:
"Það er ánægjulegt að sjá fyrsta fjórðung sameinaðs fyrirtækis skila
tekjuaukningu upp á 69% sem er umfram væntingar. Fyrsta skref samrunans hefur
verið að tryggja yfirfærslu viðskiptavina og tekna félagsins sem hefur tekist
vel hingað til, þrátt fyrir mikið álag í tengslum við samþættingu. Kostnaður
fjórðungsins er hár enda samlegðar ekki tekið að gæta í neinum mæli, auk þess
sem samrunakostnaður er talsverður í fjórðungnum, sem og afskriftir og
skuldsetning hækka með stærri efnahag. Verkefni ársins er að lækka kostnað
sameinaðs félags en samlegð mun skila sér af sífellt meiri krafti eftir því sem
líður á árið. Stendur félagið við þær áætlanir að 1.000-1.100 milljónir í
samlegð verði náð fram innan 18 mánuða, það er um 60% af heildaraukningu EBITDA
við kaupin. Áfram er einnig gert ráð fyrir að sameinað félag skili meira en 5
ma.kr. EBITDA árið 2020.
Sameinað fyrirtæki undir merkjum Sýnar er mjög alhliða og sterkt í fjarskiptum
og fjölmiðlun. Fyrirtækið er til dæmis annað stærst samkvæmt nýrri skýrslu PFS
þegar kemur að markaðshlutdeild á farsímamarkaði (32,8%), gagnatengingum (37,1%)
og gagnvirku sjónvarpi IPTV (47,4%) við lok ársins 2017.
Fyrstu mánuðir samrunans fara vel af stað og hann á að geta verið mjög jákvæður
gagnvart öllum haghöfum. Auk þess að geta skilað meira en 5 ma.kr. í EBITDA árið
2020, munu starfsmenn á árinu vera sameinaðir á einn stað í nýjum og glæsilegum
höfuðstöðvum að Suðurlandsbraut 8-10 og gagnvart neytendum lækkaði verð á völdum
sjónvarpspökkum og aðrir stækkuðu. Þessar breytingar hafa verið hluti af
áætlunum í tengslum við kaupin frá upphafi og þar af leiðandi inn í horfum
sameinaðs félags. Með þessari aðgerð er ætlunin að sækja fram og gefa enn
fleirum kost á að gerast áskrifendur að hágæða íslensku og erlendu sjónvarpsefni
og íþróttum." segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.
[]
Viðhengi: