Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2018

Nov 1, 2018

2210_rns_2018-11-01_73808365-0864-415c-8c82-a1e6b42ba412.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

A

Reykjavík, 1. nóvember 2018.

SÝN - Lækkun EBITDA spár fyrir árið 2018

Í ljósi bráðabirgðatalna þriðja ársfjórðungs sem liggja nú fyrir í drögum, og nýrrar spár fyrirtækisins um fjórða fjórðung, er útlit fyrir að EBITDA Sýnar verði undir uppgefnum horfum félagsins sem voru um neðri mörk núverandi horfa (4.000m af grunnrekstri). Drög árshlutauppgjörs þriðja fjórðungs skilar EBITDA upp á 1.032m.kr. sem er 21% aukning frá sama fjórðungi á síðasta ári. Prátt fyrir þennan vöxt í EBITDA er fjórðungurinn undir væntingum einkum vegna verkefna sem tengjast sameiningu kerfa, flutnings starfsmanna og eininga, sem hafa bæði í fór með sér álag og í sumum tilvikum truflun á starfsemi. Nú er ljóst að samspil áframhaldandi stórra samrunaverkefna, eins og tilfærslu myndvera á Suðurlandsbraut á fjórða fjórðungi, auk áhrifa af veikingu íslensku krónunnar að undanförnu mun hafa neikvæð áhrif á horfur félagsins á þeim fjórðungi.

Endanlegur árshlutareikningur vegna þriðja fjórðungs 2018 verður birtur eftir lokun markaða þann 7. nóvember nk.

Samkvæmt nýjum innri horfum Sýnar fyrir 2018 er gert ráð fyrir um 3.600 m.kr. EBITDA af grunnrekstri, miðað við 150 m.kr. skilgreinda einskiptisliði sem féllu aðallega til á fyrri hluta ársins í tengslum við kaup félagsins á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla.

Sameining félagsins hefur einnig reynst fjárfestingarfrekari en búist var við. Vegna flutninga og fjárfestingar í tengslum við myndver félagsins sem mun eiga sér stað nú um áramótin er ljóst að hækka verður fjárfestingarhorfur ársins sem hlutfall af veltu í um 11%, en félagið hafði áður ljyst því yfir að það yri við efri mörk útgefinna horfa eða 10%.

Almennt má segja að breytingar á horfum ársins séu tengdar meiri kostnaði og fjárfestingum í tengslum við sameininguna en upprunalegar áætanir gerðu ráð fyrir, auk nýtilkominnar veikingar íslensku krónunnar.

Mikill árangur hefur hins vegar náðst í samþættingu á stuttum tíma sem mun skila félaginu samlegð og ábata í framtíðinni eins og að hluta til er farið að gæta í niðurstöðu þriðja fjórðungs. Samlegð er á áætlun en kostnaður við samrunaverkefni og álag innan fyrirtækisins er meira en búist var við.

Stjórnendur telja ekki forsendur til að breyta áður útgefnum horfum áranna 2019 og 2020 enda margar aðgerðir í gangi sem munu hafa áhrif á niðurstöðuna auk ytri óvissuþátta eins og komandi kjarasamninga og gengisþróun.

sýn

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Nánar verður farið yfir uppfærðar afkomuhorfur félagsins og árshlutareikning á afkomufundi í höfuðstöðvum Sýnar þann 8. nóvember nk.

Samandregið um nýjar horfur núverandi samstæðu*:

EBITDA 2018 Um 3.600m.kr. af grunnrekstri

Fjárfestingarhlutfall 2018 Um 11%

EBITDA 2019** 4.600m – 5.000m

Fjárfestingarhlutfall 2019 8-9%

EBITDA 2020** Yfir 5ma

Fjárfestingahlutfall 2020 Um 8%

*Núverandi staða gjaldmiðla er notuð til grundvallar í horfum félagsins fyrir 2018 og 2019.

** Ofangreindar horfur eru miðað við núverandi samstæðu með Hey í Færeyjum. Tilkynnt hefur verið að samkomulag hafi náðst um helstu skilmála sameiningar Hey í Færeyjum og Nema sem myndi færa eignarhlut Sýnar í félaginu í 49,9% en þar af leiðandi yrðu Færeyjar ekki lengur hluti af samstæðu Sýnar heldur yrðu færð með hlutdeildaraðferð. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum en verði af þeim verður til samræmis breyting á samstæðu Sýnar. EBITDA Hey í útgefnum 2019 horfum nema um um DKK 14m eða um ISK 258m.kr. miðað við núverandi gengi. Áhrif á horfur um CAPEX hlutfall yrðu hins vegar engin og áhrif á frjálst fjárflæði samstæðu óveruleg.

Frekari upplýsingar og aðstoð:

✓ Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Sýnar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 669-9330.

sýn

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is