AI assistant
Syn — Earnings Release 2018
Dec 4, 2018
2210_rns_2018-12-04_374bfb12-bfd9-42a5-b471-fcbf0522d984.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Reykjavík, 4. desember 2018.
SÝN - Lækkun EBITDA horfa fyrir árið 2018 og 2019
Við yfirferð uppgjörs fyrir október 2018 ásamt yfirferð auglýsingatekna og áskriftarsölu í nóvember er það niðurstaða stjórnenda að færa þurfi frekar niður afkomuspá fyrir árið 2018 og horfur fyrir árið 2019.
2018
Horfur fyrir 2018 eru niðurfærðar um 150 m kr. Niðurfærslan skýrist bæði vegna fyrirsjáanlegs hærri kostnaðar og lægri tekna en búist var við. EBITDA spá ársins stendur því nú í 3.450 m kr. af grunnrekstri í stað 3.600 m kr., sem tilkynnt var um þann 1. nóvember sl.
Hærri kostnaður en gert var ráð fyrir hefur áhrif á niðurstöðuna. Um er að ræða kostnað tengdan fjarskiptakerfum og dagskrárkostnaði. Unnið er í fjölmorgum kostnaðarverkefnum innan fyrirtækisins en ljóst er að eitt helsta verkefnið er að ná utan um og halda áfram að lækka kostnað sameinaðs fyrirtækis.
Gert er ráð fyrir að tekjur verði lægri en áætlað var. Auglýsingatekjur og sala sjónvarpsáskrifta voru lægri en gert var ráð fyrir í nóvember. Vert er að benda á að nóvember og desember eru stærstu mánuðir ársins í tekjum Miðla. Ástæður má rekja til efnahagsaðstæðna og harðrar samkeppni á markaðnum nú í haust. Fjarskiptatekjur hafa einnig orðið fyrir áhrifum af mikilli samkeppni þar sem viðskiptavinavelta og sólukostnaður var umfram áætlanir í september og október, sem einnig hefur neikvæð áhrif á fjörðunginn.
2019
Að teknu tilliti til breytingar á spá fyrir 2018 hafa horfur fyrir 2019 verið endurskoðaðar og lækkaðar í 3,9 ma til 4,4 ma. kr frá 4,6 ma til 5 ma kr miðað við núverandi samstæðu. Ástæður lækkunar er að útlit er fyrir að hörð samkeppni muni halda áfram inn á árið 2019 með aukinni verðpressu og sölu- og markaðskostnaði. Ennfremur er um að ræða frestun á kostnaðarsamlegð upp á um 200 m kr. sem gert var ráð fyrir að féli til árið 2019 en mun ekki koma fram fyrr en 2020. Það er vert að minna á að veiking krónunnar hefur haft um 350 m neikvæð áhrif á kostnað félagsins fyrir 2019.
Samandregið um nýjar horfur:
Það eru mikil vonbrigði að áætlanir hafi ekki staðist en almennt má segja að samrunaverkefnið hafi haft meiri áhrif á fyrirtækið en gert var ráð fyrir. Þar sem við bætist gengisveiking, mikil óvissa í íslensku efnahagslífi sem hefur áhrif á hegðun neytenda og fyrirtækja auk mjög harðrar samkeppni á fjarskiptamarkaðnum þessa dagana. Verkefnið framundan er eftir sem áður að nýta styrk sameinaðs fyrirtækis til að sækja fram á markaðnum og ná markmiðum sameiningarinnar þó lengri tíma taki.
Samandregið um nýjar horfur núverandi samstæðu*:
EBITDA 2018 Um 3.450 m.kr. af grunnrekstri (miðað við 162 m af skilgreindum einskiptisliðum)
Fjárfestingarhlutfall 2018 Um 11%
EBITDA 2019** 3.900 m – 4.400 m
Fjárfestingarhlutfall 2019 8-9%
EBITDA 2020** Yfir 4.400 m
sýn
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Fjárfestingahlutfall 2020 Um 8%
*Núverandi staða gjaldmiðla er notuð til grundvallar í horfum félagsins fyrir 2018 og 2019.
**Ofangreindar horfur eru miðað við núverandi samstæðu með Hey í Færeyjum. Tilkynnt hefur verið að samkomulag hafi náðst um helstu skilmála sameiningar Hey í Færeyjum og Nema sem myndi færa eignarhlut Sýnar í félaginu í 49,9% en þar af leiðandi yrðu Færeyjar ekki lengur hluti af samstæðu Sýnar heldur yrðu færð með hlutdeildaraðferð. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum en verði af þeim verður til samræmis breyting á samstæðu Sýnar. EBITDA Hey í útgefnum 2019 horfum nema um um DKK 14m eða um ISK 258m.kr. miðað við núverandi gengi. Áhrif á horfur um CAPEX hlutfall yrðu hins vegar engin og áhrif á frjálst fjárflæði samstæðu óveruleg.
Frekari upplýsingar og aðstoð:
- Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Sýnar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 669-9330.
sýn
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is