Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Board/Management Information 2023

Oct 16, 2023

2210_rns_2023-10-16_bf267c1a-0aa4-44d1-b7f8-e7ea866fff19.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.: Breytingar á yfirstjórn Sýnar

Sýn hf.: Breytingar á yfirstjórn Sýnar

Stjórn Sýnar og Yngvi Halldórsson, forstjóri, hafa í dag gert samkomulag um starfslok forstjóra. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði forstjóra. Hann hefur látið af störfum.

Páll Ásgrímsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, tekur tímabundið við starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Ráðningarferli er hafið.

Jón Skaftason, stjórnarformaður:

“Við þökkum Yngva fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum velfarnaðar. Um leið erum við lánsöm að geta leitað til Páls Ásgrímssonar um að leiða félagið tímabundið. Hann hefur fullt traust stjórnar til að leiða félagið þar til nýr fastráðinn forstjóri tekur til starfa”

Yngvi Halldórsson:

„Sýn er frábært fyrirtæki sem er fullt af afburða fagfólki sem leggur ástríðu í störf sín á hverjum degi. Ákvörðun mín að hætta störfum hjá félaginu er rétt ákvörðun fyrir mig á þessum tímapunkti.  Ég óska Sýn alls hins besta og þakka kærlega fyrir samstarfið síðustu fjögur ár.”

Nánari upplýsingar veitir Páll Ásgrímsson á netfanginu: [email protected]