AI assistant
Syn — Board/Management Information 2022
Sep 27, 2022
2210_rns_2022-09-27_66c50c38-3715-4955-a958-1ee0b33fc4a7.html
Board/Management Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf.: Ráðning forstjóra - breyting á framkvæmdastjórn
Sýn hf.: Ráðning forstjóra - breyting á framkvæmdastjórn
Stjórn Sýnar hf. hefur gengið frá ráðningu Yngva Halldórssonar, sem forstjóra félagsins. Yngvi er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og sat í stjórn félagsins árin 2014-2019. Frá árinu 2019 hefur Yngvi gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstarsviðs Sýnar hf. Áður starfaði Yngvi meðal annars hjá Össur hf. um tíu ára skeið.
Petrea I. Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar hf.: “Það er mikilvægt við núverandi aðstæður að tryggja áframhaldandi festu í rekstri félagsins. Yngvi þekkir afar vel til félagsins og því mikill fengur að fá hann til að leiða daglegan rekstur þess.”
Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar hf.: “Ég hlakka til að takast á við þessa áskorun í samstarfi við allt það framúrskarandi fólk sem starfar hjá félaginu. Þá mun ég leggja mig allan fram um að leiða félagið áfram á þeirri braut sem hefur verið mörkuð.”
