Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Board/Management Information 2019

May 2, 2019

2210_rns_2019-05-02_4c755b67-b895-4d77-bf7f-59db075750ab.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf. : Ráðningar nýrra framkvæmdastjóra - fjármálastjóri og framkvæmdastjóri Miðla

Sýn hf. : Ráðningar nýrra framkvæmdastjóra - fjármálastjóri og framkvæmdastjóri Miðla

Sýn hf. hefur ráðið Signýju Magnúsdóttur sem fjármálastjóra Sýnar hf. frá 1.
júní næstkomandi og Þórhall Gunnarsson sem framkvæmdastjóra Miðla frá og með
22. maí næstkomandi en undir Miðla heyra m.a. fjölmiðlarnir Stöð 2, Stöð 2 sport
og útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og Xið977 auk Vísis.

Signý Magnúsdóttir lauk meistaranámi í reikningsskilum og endurskoðun við
Háskóla Íslands árið 2007 og hlaut löggildingu til endurskoðunar árið 2011.
Signý hóf störf hjá Deloitte árið 2006 og varð meðeigandi á endurskoðunarsviði
félagsins árið 2013. Hjá Deloitte sinnti Signý einna helst endurskoðun og
ráðgjöf á sviði reikningsskila fyrir meðalstór og stór fyrirtæki, þar á meðal
skráð fyrirtæki og fyrirtæki sem starfa í alþjóðlegu umhverfi. Signý er
yfirmaður reikningsskilaþjónustu Deloitte ásamt því að vera í forsvari fyrir
líftækni- og heilbrigðishóp Deloitte. Signý situr í Reikningsskilaráði.

Þórhallur Gunnarsson er með meistaragráðu í sjónvarpsþáttagerð frá Goldsmiths,
University of London og hefur undanfarin 6 ár verið framkvæmdastjóri sjónvarps
og kvikmyndadeildar Sagafilm. Þar áður var hann dagskrárstjóri RÚV, ritstjóri
Kastljóss, auk þess sem hann hefur stýrt fjölmörgum sjónvarpsþáttum af öllu
tagi, m.a. Íslandi í dag á Stöð 2. Þórhallur hefur átt sæti í framkvæmdastjórn
RÚV og stjórn Sagafilm. Hann hefur undanfarin ár verið framleiðandi margra
stærstu sjónvarpsþátta á Íslandi, hvort sem um er að ræða leiknar
sjónvarpsþáttaseríur, heimildarmyndir, fræðsluefni eða skemmtiþætti. Þórhallur
kennir einnig miðlun upplýsinga við MBA nám Háskóla Íslands.

[]