Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Annual Report 2019

Feb 26, 2020

2210_rns_2020-02-26_3c7ea5b0-e528-4845-85a2-1fd24e1f67ab.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740

Sýn hf.

Samstæðuársreikningur

2019

img-0.jpeg


Efnisyfirlit

BIs.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 6
Áritun óháðra endurskoðenda 7
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 11
Efnahagsreikningur 12
Eiginfjáryfirlit 13
Sjóðstreymisyfirlit 14
Skýringar 15

Viðauki :
Stjórnarháttayfirlýsing 38
Ófjárhagslegar upplýsingar 43
Ársfjórðungsyfirlit 46

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatæknibjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölbættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Samstæðuársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma ársreikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf.

Rekstur ársins 2019

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 19.811 millj. kr. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 5,5 millj. kr. Tap samstæðunnar á árinu nam 1.748 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 31.978 millj. kr. Eigið fé samstæðunnar þann 31. desember 2019 nam 8.798 millj. kr. og var eiginfjárhlutfallið 27,5%. Vísað er í skýringar 26 vegna áhættustýringar félagsins og helstu áhættur tengdar fjármálagerningum í rekstri félagsins.

Þann 25. apríl tók Heiðar Guðjónsson við sem forstjóri félagsins. Í framhaldi af því voru gerðar skipulagsbreytingar hjá félaginu með það að markmiði efla þjónustu við viðskiptavini til að einfalda og styrkja reksturinn.

Í kjólfar stefnumótunarvinnu sem fór fram um mitt ár var nýtt skipurit kynnt þar sem tekjusvið voru skýrt afmörkuð og heyra nú beint undir forstjóra, boðleiðir styttar og nýtt svið, samskiptasvið, stofnað. Ný gildi félagsins, Einföldun, Upplífun og Tryggð voru jafnframt sett fram.

Félagið hefur unnið að uppbýggingu á gagnaveri á Korputorgi í samstarfi við Opin kerfi, Reiknistofu Bankanna og Korputorg. Það samstarf felur í sér tækifæri til frekari útvikkunar á starfsemi félagsins.

Þann 19. desember undirritaði félagið viljayfirlýsingu við Símann hf. og Nova hf. um viðræður um möguleika á samnýtingu og samstarfi við uppbýggingu fjarskiptainnviða. Markmið viðræðanna er að kanna möguleika á því að vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins, draga úr umhverfisraski og auka almannaóryggi með því að eiga með sér samstarf um uppbýggingu fjarskiptainnviða. Með viðræðunum vilja aðilar kanna möguleika á því að fyrirtækin geti býgtt undir markmið Alþingis sem koma fram í stefnu Alþingis í fjarskiptum fyrir árin 2019-2033 um aðgengi að fjarskiptum, öryggi, hagkvæmni og skilvirkni fjarskipta sem og að draga úr umhverfisáhrifum fjarskipta. Viðræðurnar munu taka mið af fyrirhuguðum breytingum á fjarskiptalögum vegna innleiðingar á regluverki vegna samstarfs Íslands á vettvangi Evrópska efnahagssvæðisins en þar er í auknum mæli hvatt til samreksturs, samfjárfestinga og samnýtingar fjarskiptainnviða. Viljayfirlýsingin felur ekki í sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir fyrirtækin og hefur ekki áhrif á rekstur eða afkomu þeirra.

Óvissuþættir og ytra umhverfi

Á samráðsgátt stjórnvalda og á www.althingi.is eru fyrirliggjandi umfangsmikil frumvörp til breytinga á fjarskiptalögum og fjölmiðlalögum sem óhjákvæmilega munu hafa áhrif á kjarnastarfsemi félagsins verði þau að lögum. Sammerkt er með báðum frumvörpum að í þeim felast bæði ívilnandi og íþyngjandi áform. Hefur félagið sent umsagnir til ráðuneytis og Alþingis og átt gagnlega fundi með stjórnvöldum og þingnefnd um frumvörpin.

Fjarskiptalagafrumvarpið er að mati Sýnar hf. ívilnandi að því leyti að það greiðir fyrir viðræðum um samstarf félaga á markaði um uppbýggingu innviða, einkum hvað varðar 5G farnetsþjónustu. Á hinn bóginn eru áform um auknar álögur á fjarskiptafyrirtæki sem selja jafnframt fjölmiðlaþjónustu saman í pakka, sem myndu að óbreyttu hækka rekstrargjald félagsins til Póst- og fjarskiptastofnun um 60%. Jafnframt eru þar áform um aukna gjaldtöku við endurúthlutun tíðna sem leiðir að óbreyttu til hærri útgjalda fjarskiptafélaga fyrir tíðninotkun. Ef Sýn hf. endurnýjar allar þær tíðnir sem félagið hefur til ráðstöfunar myndi það leiða til gjaldtöku að fjárhæð 290 millj. kr. Hefur félagið andmælt þessum áformum og er óvíst hvort þau nái fram að ganga.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra frh.:

Óvissubættir og ytra umhverfi frh.:

Fjólmiðlafrumvörpin eru tvö. Fyrra frumvarpið, sem er til meðferðar Alþingis, miðar að styrkveitingum til einkarekinna fjölmiðla að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Er það mat Sýnar hf. að félagið uppfylli skilyrði til hámarksstyrks sem nema mun 50 millj. kr. ef frumvarpið verður að lögum.

Síðara frumvarpið, sem er til meðferðar í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, innleiðir breyttar EES-reglur. Þar eru m.a. lagðar auknar skyldur á fjólmiðlaveitur sem miðla mynddefni eftir pöntun til að tryggja að evrópskt efni á veitum þeirra sé að lágmarki 30% af framboði þeirra. Ef frumvarpið verður að lögum hafa fjólmiðlar og fjólmiðlaveitur hins vegar aukið svigrúm til að ákveða hvenær í dagskrá auglýsingar eru birtar.

Hefur Sýn hf. lagt ríka áherslu við stjórnvöld að gætt verði að því að allar íþyngjandi kvaðir sem lagðar kunna að verða á innlendar fjólmiðlaveitur gildi jafnframt um erlendar efnis- og streymisveitur sem starfa á EES-svæðinu og beina þjónustu sinni að íslenskum almenningi.

Hlutafé og samþykktir

Útgefið hlutafé félagsins nam í árslok 2.964 millj. kr. Hver hlutur er 10 krónur að nafnverði. Hlutaféð er í einum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland. Allir hlutir njóta sömu réttinda. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun.

Á aðalfundi félagsins þann 21. mars 2019 var samþykkt arðgreiðslustefna fyrir félagið. Stefnt er að því að greiða hluthöfum arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Við mótun tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til; markmiða fjárstýringastefnu félagsins, markaðsæstæðna og fjárfestingarþarfar félagsins.

Stjórn gerir tillögu um að tap ársins verði flutt til næsta árs.

Hluthafar í árslok 2019 voru 251 (2018: 230) Eftirfarandi voru 10 stærstu hluthafar við árslok 2019.:

Nafn Fjöldi hluta 31.12.2019 (°000) hlutur % 31.12.2019
Gildi - lífeyrissjóður 40.396 13,6%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 31.822 10,7%
Ursus ehf. 27.147 9,2%
Kvika banki hf. 23.171 7,8%
Birta lífeyrissjóður 22.269 7,5%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A deild 15.540 5,2%
Stapi lífeyrissjóður 14.629 4,9%
Lansdowne Icav Lansdowne Euro 13.900 4,7%
Arion banki hf. 13.710 4,6%
Landsbankinn hf. 11.219 3,8%
213.804 72,1%
Aðrir hluthafar 82.637 27,9%
Samtals útistandandi hlutir 296.441 100,0%

Félagið á engin eigin bréf í árslok 2019. Nánari upplýsingar um atriði tengd hlutafé er að finna í skýringu 23. Víðbótarupplýsingar um hluthafa má nálgast á vefsíðu Sýnar hf. www.syn.is

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra frh.:

Stjórnarhættir og ófjárhagsleg upplýsingagjóf

Stjórn Sýnar hf. leitast við að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem. Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq Ísland og Samtök atvinnulifsins gáfu út í júní 2015. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef. Viðskiptaráðs Íslands www.vi.is. Sýn hf. varð fyrst skráðra félaga á hlutabréfamarkaði á Íslandi til að koma á fót tilnefningarnefnd og starfsreglum fyrir hana haustið 2014. Hlutverk nefndarinnar er að tilnefna frambjóðendur til stjórnarsetu í félaginu fyrir aðalfund þess og við þá vinnu taka mið af heildarhagsmunum hluthafa. Markmiðið er að stuðla að aukinni fagmennsku, gagnsæi og skilvirkni við myndun stjórnar Sýnar hf. hverju sinni. Félagið er með skráð hlutabréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum. Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef. Kauphallarinnar. Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum. Stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjóf sem eru viðaukar með ársreikningnum.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkrófur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga. Er það álit stjórnar og forstjóra að ársreikningurinn gefi glógga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2019 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á árinu 2019. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar fyrir árið 2019 gefi glóggt yfirlit um árangur af rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og þróun og lýsi helstu áhættuþáttum sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag rætt samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2019 og staðfest hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 26. febrúar 2020

Í stjórn
Hjörleifur Pálsson
Anna Guðný Aradóttir
Sigríður Vala Halldórsdóttir
Tanya Zharov
Óli Rúnar Jónsson

Forstjóri
Heiðar Guðjónsson

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

HEILDARTEKJUR EBITDA OG EBITDA HLUTFALL
19.811
2019 20.754
2018 5.509
28% 5.619
27%
AFKOMA
(ÁFRAMHALDANDI STARFSEMI) NETTÓ VAXTABERANDI SKULDIR
-1.748
2019 443
2018 10.953
2019 11.205
2018
FJÁRFESTINGAR FJÁRFESTINGAR Í SYNINGARRETTI
1.833
2019 2.234
2018 2.789
2019 2.804
2018
HANDBÆRT FÉ FRÁ REKSTRI FRJÁLST FJÁRFLÆDI
5.377
2019 4.689
2018 1.682
2019 318
2018

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019

Fjárhæðir eru í millj. kr.


Áritun óháðra endurskoðenda

Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.

Álit

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi samstæðuársreikning Sýnar hf. fyrir árið 2019. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigirí fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2019, efnahag þess 31. desember 2019 og breytingu á handbæru fé á árinu 2019, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið sambykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.

Grundvöllur fyrir áliti

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér fyrir neðan. Við erum óháð Sýn hf. í samræmi alþjóðlegar síðareglur og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Megináherslur við endurskoðunina

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér fyrir neðan. Við erum óháð Sýn hf. í samræmi við alþjóðlegar síðareglur og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Megináherslur við endurskoðun Hvernig við endurskoðuðum megináherslur
Tekjuskráning
Tekjuskráning félagsins er umfangsmikil og byggir á miklu magni færslna úr mörgum kerfum. Endurskoðunaraðgerðir okkar voru miðaðar að því að leggja mat á hönnun, innleiðingu og virkni viðeigandi tölvueftirlitspátta sem tengjast tekjuskráningu ásamt því að beita gagnaendurskoðunaraðgerðum með það að markmiði að sannreyna nákvæmni og heild tekjuskráningar. Í þessari vinnu fólst m.a. eftirfarandi:
• Yfirferð á innra eftirliti félagsins vegna tekjuskráningar og prófanir á eftirlitspáttum í upplýsingakerfum ásamt prófunum á öðrum mikilvægum eftirlitspáttum tengdum tekjuskráningu.
• Skoðun á flæði milli tekju- og fjárhagskerfa og afstemmingar á milli kerfanna.
• Skoðanir á aðgangsheimildum starfsmanna í tekjukerfi og ferlið í kringum breytingar á kerfinu.
• Prófanir á tekjuskráningu félagsins með greininga-aðgerðum
Af þessum ástæðum er tekjuskráning ein af megináherslum í endurskoðuninni.
Frekari upplýsingar um tekjustrauma félagsins má sjá í skýringu 6 með ársreikningnum.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Áritun óháðra endurskoðenda, frh.:

Megináherslur við endurskoðun Hvernig við endurskoðuðum megináherslur
Viðskiptavild
Viðskiptavild félagsins nemur 8,8 milljörðum króna í árslok. Við endurskoðun viðskiptavildar fórum við ásamt verðmatssérfraðingum okkar yfir virðisrýrnunarpróf stjórnenda félagsins. Við fórum yfir þá aðferðarfraði sem beitt er við virðisrýrnunarprófið og hvort breytingar hafi orðið á henni á milli ára. Við yfirferð okkar á virðisrýrnunarprófinu framkvæmdum við m.a. eftirfarandi vinnu:
Virði viðskiptavildar er háð mati stjórnenda á forsendum í áætluðu framtiðarsjóðstreymi sjóðskapandi einingar og öðrum forsendum sem notaðar eru við núvírðingu á áætluðu sjóðstreymi. Þar sem viðskiptavild er verulegur liður í efnahagsreikningi félagsins og háð mati stjórnenda teljum við þetta vera eina af megináherslum við endurskoðunina. • Yfirferð á reiknilikani félagsins og áreiðanleika þess.
• Yfirferð á forsendum í áætlunum stjórnenda sem byggt er á við útreikninga í virðisrýrnunarprófinu og hvort þær séu raunhæfar.
Á árinu 2019 er færð virðisrýrnun vegna viðskiptavildar að fjárhæð 2,45 milljörðum króna. Nánari umfjöllun um viðskiptavildina er að finna í skýringu 14 með ársreikningnum. • Yfirferð á forsendum fyrir áætluðum framtiðarvexti að loknu spätímabili.
• Yfirferð á frávikum frá áætlunum fyrri ára.
• Yfirferð yfir ávöxtunarkröfu (WACC) og samanburður á ávöxtunarkröfu við markaðsforsendur.

Aðrar upplýsingar

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar samanstanda af skýrslu stjórnar, stjórnarháttayfirlýsingu, ófjárhagslegum upplýsingum og ársfjörðungsyflriti.

Álit okkar á ársreikningnum nær ekki yfir aðrar upplýsingar og við látum ekki í ljós staðfestingu eða ályktun, í neinu formi, vegna þeirra ef frá er talin sú staðfesting varðandi skýrslu stjórnar sem fram kemur hér fyrir neðan.

Í tengslum við endurskoðun okkar, berum við ábyrgð á að lesa ofangreindar aðrar upplýsingar og skoða hvort þær séu í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða þá þekkingu sem við höfum aflað við endurskoðunina. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, byggt á þeirri vinnu sem við höfum framkvæmt, að það séu verulegar skekkjur í öðrum upplýsingum sem við fengum fyrir áritunardag ber okkur að skýra frá því. Það er ekkert sem við þurfum að skýra frá hvað þetta varðar.

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir samstæðuársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Áritun óháðra endurskoðenda, frh.:

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum frh.:

Við gerð samstæðuársreikningsins eru stjórn og forstjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Sýnar hf. Ef við á, skulu stjórn og forstjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna þau ákváðu að beita forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins, nema stjórn og forstjóri hafi ákveðið að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafa enga aðra raunhæfa möguleika en að gera það.

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreiknings

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að samstæðuársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar.

Nægjanlega vissa er þó ekki trygging þess að endurskoðun sem er framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda samstæðuársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.

Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við faglegri tortryggni í gegnum endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvísandi framsetningu samstæðuársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.

  • Öflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.

  • Metum hvort reikningsskilaaðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningshaldslegt mat stjórnenda sé raunhæft.

  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.

  • Metum í heild sinni hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbýggingu, innihald og þar með talið skýringar við samstæðuársreikninginn með tilliti til glöggrar myndar.

  • Öflun fullnægjandi endurskoðunargagna, vegna fjárhagsupplysinga eininga innan samstæðunnar, til að geta látið í ljós álit á samstæðuársreikningi. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, umsjón og framgangi endurskoðunar samstæðunnar. Við berum ein ábyrgð á áliti okkar.

Okkur ber skylda til að upplýsa stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Áritun óháðra endurskoðenda, frh.:

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreiknings frh.:

Við höfum einnig lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur siðareglna um óhæði og höfum miðlað til þeirra upplýsingum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega haft áhrif á óhæði okkar og þar sem viðeigandi er, hvaða varnir við höfum sett til að tryggja óhæði okkar.

Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, lögðum við mat á hvaða atriði höfðu mesta þýðingu í endurskoðuninni á yfirstandandi ári og eru það megináherslur í endurskoðuninni. Við lýsum þessum atriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé um slík atriði eða í undantekningartilfellum þegar endurskoðandinn metur að ekki skuli upplýsa um viðkomandi atriði þar sem neikvæðar afleiðingar upplýsinganna eru taldar vega þyngra en almannahagsmunir.

Reykjavík, 26. febrúar 2020.

Deloitte ehf.

Páll Grétar Steingrímsson
endurskoðandi

Jóhann Óskar Haraldsson
endurskoðandi

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Rekstrarreikningur

Skýr. 2019 2018*
Seldar vörur og þjónusta 6 19.811 20.754
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu 7 (12.589) (12.716)
Framlegð 7.222 8.038
Rekstrarkostnaður 8 (6.720) (6.871)
Virðisrýrnun 14 (2.452) -
Rekstrartap / hagnaður (1.950) 1.167
Fjármunatekjur 55 49
Fjármagnsgjöld (1.050) (751)
Hrein fjármagnsgjöld 10 (995) (702)
Áhrif hlutdeildarfélaga 963 (27)
(Tap) / Hagnaður fyrir tekjuskatt (1.982) 438
Tekjuskattur 18 234 5
(Tap) / Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi (1.748) 443
Hagnaður tímabilsins af aflagðri starfsemi - 30
(Tap) / Hagnaður ársins (1.748) 473
(Tap) / Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi** 24 (5,9) 1,5

Yfirlit um heildarafkomu

2019 2018
(Tap) / Hagnaður ársins (1.748) 473
Líðir sem gætu síðar verið færðir í rekstrarreikning
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dóttur- og hlutdeildarfélaga (103) 46
Áhættuvarnir - 58
Heildarafkoma ársins (1.851) 577

Fjárhæðum vegna 2018 hefur verið breytt, sjá skýringu 5.
*Þynntur hagnaður (tap) á hlut er sá sami og hagnaður (tap) á hlut.
Skýringar á bls. 15-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Efnahagsreikningur

Skýr. 31.12.2019 31.12.2018*
Fastafjármunir
Afnotaréttr 4 5.828 -
Rekstrarfjármunir 11 4.793 4.785
Viðskiptavild 14 8.787 10.646
Aðrar óefnislegar eignir 14 4.648 4.808
Eignahlutir í félögum 15 1.383 48
Tekjuskattsinneign 19 97 -
Fastafjármunir samtals 25.536 20.287
Veltufjármunir
Sýningarréttir 16 1.814 1.545
Birgðir 20 427 364
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 21 3.567 3.403
Handbært fé 634 356
Veltufjármunir í áframhaldandi starfsemi 6.442 5.668
Eignir flokkaðar til sölu - 1.056
Veltufjármunir samtals 6.442 6.724
Eignir samtals 31.978 27.011
Eigið fé
Hlutafé 2.964 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.465 2.465
Annað eigið fé 112 (1)
Óráðstafað eigið fé 3.257 5.279
Eigið fé 23 8.798 10.707
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 25 10.898 10.874
Leiguskuldbindingar 4 5.390 -
Aðrar langtímaskuldir 29 252 -
Tekjuskattsskuldbinding 19 9 138
Langtímaskuldir samtals 16.549 11.012
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 25 689 687
Leiguskuldbindingar 4 938 -
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 22 5.004 4.167
Skammtímaskuldir í áframhaldandi starfsemi 6.631 4.854
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu - 438
Skammtímaskuldir samtals 6.631 5.292
Skuldir samtals 23.180 16.304
Eigið fé og skuldir samtals 31.978 27.011

*Fjárhæðum vegna ársins 2018 hefur verið breytt, sjá nánar í skýringu 5.
Skýringar á bls. 15-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Eiginfjáryfirlit

Hlutafé Yfirverð Annað eigið fé
Þýðingar-munur Bundinn-reikningur Áhættu-varnir Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
2018
Eigið fé 1.1.2018 2.964 2.465 64 87 (169) 4.719 10.131
Hagnaður ársins - - - - - 473 473
Þýðingarmunur dótturf. - - 46 - - - 46
Áhrif áhættuvarna - - - - 58 - 58
Heildarafkoma ársins 0 0 46 0 58 473 577
Hagnaður dótturf. umfram arðgr. - - - (87) - 87 0
Eigið fé 31.12.2018 2.964 2.465 110 0 (111) 5.279 10.707
2019
Eigið fé 1.1.2019 2.964 2.465 110 0 (111) 5.279 10.707
IFRS 16, áhrif innleiðingar - - - - - (169) (169)
Leiðrétt eigið fé 1.1.2019 2.964 2.465 110 0 (111) 5.110 10.538
Tap ársins - - - - - (1.748) (1.748)
Breyting þýðingarmunar - - (103) - - - (103)
Áhrif áhættuvarna - - - - 111 - 111
Heildarafkoma ársins 0 0 (103) 0 111 (1.748) (1.740)
Hagnaður hlutd.fél. umfram arðgr - - - 105 - (105) 0
Eigið fé 31.12.2019 2.964 2.465 7 105 0 3.257 8.798

Skýringar á bls. 15-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Sjóðstreymisyfirlit

Skýr. 2019 2018*
(Tap) / hagnaður tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi (1.748) 473
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 12 5.007 4.451
Virðisrýrnun 14 2.452
Hrein fjármagnsgjöld 10 995 702
Áhrif hlutdeildarfélaga 15 (962) (4)
Tekjuskattur 18 (234) (5)
Veltufé frá rekstri 5.509 5.617
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, breyting 20 (43) (195)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting 21 287 (381)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting 22 551 315
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 6.304 5.356
Innborgaðar vaxtatekjur 55 49
Greidd vaxtagjöld (983) (716)
Handbært fé frá rekstri 5.377 4.689
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala eignarhluta að frádregnu yfirteknu handbæru fé (97) (58)
Fjárfesting í rekstrarfjármunum 11 (1.218) (1.554)
Fjárfesting í óefnislegum eignum 14 (615) (680)
Fjárfesting í sýningarrétti 16 (2.789) (2.804)
Fjárfestingahreyfingar (4.719) (5.096)
Fjármögnunarhreyfingar
Lántökur - 8.999
Afborganir langtímalána (684) (8.555)
Rekstrarlán 705 (10)
Afborgun leiguskuldbindinga 4 (401) -
Fjármögnunarhreyfingar (380) 434
Breyting á handbæru fé 278 27
Handbært fé í byrjun tímabils 356 329
Handbært fé í lok tímabilsins 634 356

**Fjárhæðum vegna ársins 2018 hefur verið breytt, sjá nánar í skýringu 5
Skýringar á bls. 15-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir árið 2019 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

  1. Reikningsskilin

Þessi hluti ársreikningsins inniheldur upplýsingar um grundvöll reikningsskila samstæðunnar. Ítarlegri upplýsingar um reikningsskilaarðferðir samstæðunnar eru veittar undir hverjum lið í skýringum.

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga. Reikningsskilareglum samstæðunnar hefur verið beitt með samræmdum hætti á milli ára fyrir utan breytingar vegna innleiðingar á nýjum staðli um leigusamninga (IFRS 16) og breyttri meðferð á sýningaréttum félagsins. Áhrifum þessar breytingar er lýst í skýringu 4 og 5.

Til að auka upplýsingargildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.

b. Dótturfélög

Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Samstæðan fer með yfirráð þegar hún ber áhættu eða hefur ávinning af breytilegri arðsemi af hlutdeild sinni í félaginu og getur haft áhrif á arðsemina vegna yfirráða sinna. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðureikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur. Eignir eða eignasamstæður (þ.m.t. dótturfélög) sem flokkaðar eru til sölu í samræmi við IFRS 5 Fastafjármunir til sölu og aflögð starfsemi eru metnar í samræmi við kröfur þess staðals.

Dótturfélög Sýnar hf. voru þrjú í árslok og eru eftirfarandi: Eignarhlutur
2019 2018
Endor ehf. 100% -
EC Sweden AB. 100% -
P/F Hey (aflögð starfsemi) - 100%

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðla einstakra samstæðufélaga á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar á gengi uppgjörsdags. Gengismunur sem myndast vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning.

Eignir og skuldir erlendrar starfsemi eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við gengi uppgjörsdags. Tekjur og gjöld erlendu starfseminnar eru umreiknuð í íslenskar krónur á meðalgengi ársins. Gengismunur sem myndast við yfirfærslu í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið í yfirliti um heildarafkomu sem þýðingarmunur. Þegar erlend starfsemi er seld, að hluta til eða öllu leyti, er tengdur þýðingarmunur fluttur í rekstrarreikning.

Viðskipti milli félaga innan samstæðunnar, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð ársreiknings samstæðunnar.

c. Sameiginlegur rekstur

Sendafélagið ehf. var stofnað um sameiginlegan rekstur á farsímadreifikerfum Sýnar hf. og Nova ehf. Hvort félag um sig á 50% hlut í Sendafélaginu ehf. og er hlutur samstæðunnar í hverjum lið rekstrar og efnahags í Sendafélaginu ehf. færður í ársreikning samstæðunnar linu fyrir linu.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

2. Reikningsskilin frh.:

d. Mat stjórnenda í reikningsskilum

Gerð samstæðársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera fráþrugðar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á. Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningi er að finna í skýringu 14 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum sjóðskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.

e. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Ársreikningur samstæðunnar er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

f. Ákvörðun gangvirðis

Hluti af reikningsskilaaðferðum og skýringum samstæðunnar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði vegna fjármálagerninga og annarra eigna og skulda.

Að svo miklu leyti sem hægt er, notar samstæðan markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda. Gangvirði hefur verið ákvarðað vegna mats og/eða skýringa samkvæmt eftirfarandi aðferðum.

  • Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir sem yfirteknar eru við samruna eru metnar á gangvirði á yfirtökudegi.
  • Gangvirði við upphaflega færslu eignarhluts í hlutdeildarfélagi, P/F Hey, var metið með hliðsjón af söluverði.
  • Gangvirði á skuld vegna árangurstengds kaupverðs vegna kaupa á Endor ehf. er metið út frá núvirtum framtíðargreiðslum og mati á líkum á því að árangurstenging sé uppfyllt.

3. Nýir reikningsskilastaðlar

a. IFRS 16 Leigusamningar

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Aðrir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2019 hafa óveruleg áhrif á reikningsskil samstæðunnar.

IFRS 16 innleiðir eitt reikningshaldslegt líkan um færslu leigusamninga í efnahagsreikning leigutaka. Samstæðan hefur tekið upp IFRS 16 með því að beita aðferð uppsafnaðra áhrifa, þar sem uppsöfnuð áhrif upphaflagrar beitingar eru færð á óráðstafað eigið fé 1. janúar 2019. Eigið fé félagsins lækkaði um 169 millj. kr. við innleiðinguna. Félagið nýtir sér undanpágu staðalsins frá endurflokkun samninga sem hafa áður verið skilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 og IFRC 4 fyrir innleiðingardag. Kröfur IFRS 16 er þannig við innleiðingu beitt á leigusamninga sem voru flokkaðir sem sílkir á innleiðingardegi. Vegna þessa hefur samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2018 ekki verið breytt, það er þær eru settar fram eins og þær voru birtar áður samkvæmt IAS 17 og tengdum túlkunum. Breytingunum á reikningsskilaaðferðum er lýst nánar hér á eftir.

b. Meðferð leigusamninga þar sem samstæðan er leigutaki

Samkvæmt fyrri reikningsskilaaðferðum skilgreindi samstæðan við gildistöku samnings hvort hann væri eða inniheldi leigusamning samkvæmt IFRIC 4. Samstæða leggur nú mat á það hvort samningur sé eða innihaldi leigusamning byggt á nýrri skilgreiningu á leigusamningi. Samkvæmt IFRS 16 er samningur leigusamningur eða inniheldur leigusamning ef hann veitir rétt til yfirráða yfir skilgreindri eign á tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Samningar sem hófðu ekki verið skilgreindir sem leigusamningur samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4 voru ekki endurmetnir með tilliti til nýrrar skilgreiningar á leigusamningi. Af því leiðir að skilgreining á leigusamningi samkvæmt IFRS 16 hefur aðeins verið beitt á samninga sem voru gerðir eða var breytt frá og með 1. janúar 2019.

Samstæðan færi eignir og skuldir vegna leigusamninga um skrifstofuhúsnæði, lagerhúsnæði, bifreiða, hýsinga og klasa. Afnotaréttur á eignunum og leiguskuldbinding er færð í sér línu í efnahagsreikningi.

Samstæðársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Nýir reikningsskilastaðlar frh.:

b. Meðferð leigusamninga þar sem samstæðan er leigutaki frh:

Samstæðan færir leigueign og leiguskuld á upphafsdegi leigusamnings. Leigueignin er upphaflega metin á kostnaðarverði og eftir það á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun og leiðrétt vegna viss endurmats á leiguskuldinni (verðbölguhækkunum).

Leiguskuldin er upphaflega metin miðað við núvírði leigugreiðslna sem eru ógreiddar á upphafsdegi leigusamningsins, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með innbyggðum vöxtum í leigusamningnum, eða ef það er ekki hægt að ákvarða þá vexti, með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan sína vexti á nýju lánsfé við núvírðingu leigugreiðslna af húsnæði en fyrir aðra vísitölutengda leigusamninga notast samstæðan við vexti samstæðunnar af nýju lánsfé að viðbætu álagi sem endurspeglar tímalengd samninga, undirliggjandi veð og ábyrgðir. Vegið meðaltal vaxta er 5,2%.

Leiguskuldin er svo hækkuð vegna vaxtagjalda og lækkuð vegna greiddra leigugreiðslna. Hún er endurmetin þegar það er breyting á framtíðarleigugreiðslum vegna breytingar á vísitölu eða vöxtum, breytingar á mati á þeirri fjárhæð sem vænst er að þurfi að greiða á grundvelli hrakvírðistryggingar ef slikt er til staðar, eða þegar við á, breytinga á mati á því hvort nokkuð víst er að kaupheimild eða framlengingarheimild verði nýtt eða hvort nokkuð víst er að uppsagnarheimild verði ekki nýtt. Stjórnendur hafa beitt dómgreið við ákvörðun leigutíma sumra leigusamninga þar sem samstæðan er leigutaki og samningarnir innihalda endurnýjunarheimildir. Mat á því hvort samstæðan er nokkuð viss að hún muni nýta slíkar heimildir hefur áhrif á leigutímann, sem hefur veruleg áhrif á fjárhæð færðra leiguskulda og leigueigna.

Við upptöku IFRS 16 eru leiguskuldir vegna leigusamninga sem voru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar samkvæmt IAS 17 metnar miðað við núvírði ógreiddra leigugreiðslna, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé þann 1. janúar 2019. Leigueignir eru metnar á bókfærðu verði eins og IFRS 16 hefði verið beitt frá upphafsdegi leigusamninga, núvirt með vöxtum leigutaka á nýju lánsfé með álagi ef við á eftir eðli eignarinnar, á degi upphaflegar beitingar.

  1. Áhrif innleiðingar IFRS 16

Með innleiðingu IFRS 16 þá breytist meðferð þeirra gjalda sem tengjast rekstrarleigusamningum þar sem félagið færir nú afskriftir af afnotarétti og vaxtagjöld af leiguskuld, en hafði áður gjaldfært leigugreiðslur á meðal rekstrargjalda línulega yfir líftíma samningana. Áhrif þessara breytinga leiða til þess að afkoma ársins 2019 er 45 millj. kr. lægri en afkoman hefði verið undir fyrri staðli (IAS 17). Áhrif á einstaka liði rekstrarreiknings eru eftirfarandi: Hækkuð afskrifta um 458 millj. kr., hækkuð fjármagnsliða um 196 millj. kr. og lækkuð rekstrargjalda um 609 millj. kr.

Tap á hlut ársins 2019 var -5,9 kr. og þynnt tap á hlut -5,9. Tap á hlut hefði verið -5,8 og þynnt tap á hlut -5,8 undir eldri staðli.

Á innleiðingardegi 1. janúar 2019 færði félagið í efnahagsreikning afnotarétt að fjárhæð 3.583 millj. kr., leigukröfu að fjárhæð 199 millj. kr., leiguskuldbindingu að fjárhæð 3.613 milljónir kr. og á eigið fé því 169 millj. kr.

Samkvæmt IAS 17 voru allar greiðslur vegna rekstrarleigu sýndar meðal rekstrarhreyfinga í sjóðstreymi. Áhrif innleiðingar IFRS 16 á sjóðstreymi eru hækkuð handbærss fjár frá rektri um 401 millj. kr. og lækkuð á handbæru fé vegna fjármögnunarhreýfinga um sömu fjárhæð.

Leigusamningar

Afnotaréttur: Fasteignir Bifreiðar Hýsingar Klasar Samtals
Staða á innleiðingardegi 1. janúar 2019 2.541 52 990 - 3.583
Verðbætur af leiguskuldbindingu 76 1 11 - 88
Viðbætur vegna nýrra samninga 11 106 15 - 132
Dótturfélag yfirtekið - - - 2.489 2.489
Samningar færðir út - (45) - - (45)
Afskriftir (220) (34) (165) - (419)
Staða 31. desember 2019 2.408 80 851 2.489 5.828

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Áhrif innleiðingar IFRS 16 frh.:
Upphæðir færðar í rekstrarreikning: 2019
Afskriftir af afnotarétti 458
Vaxtagjöld af leiguskuldbindingu 209
Vaxtatekjur af leigukröfu (13)
Samtals fært í rekstrarreikning á árinu 654
Leiguskuldbinding 31.12.2019
--- ---
Innan árs 938
Eftir ár eða innan 5 ára 3.595
5 ár og síðar 1.795
Samtals 6.328
  1. Breyting á samanburðartölum

a. Breytt meðferð sýningarétta

Í ársbyrjun var reikningshaldslegri meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt. Sýningarréttir voru áður meðhöndlaðir sem birgðir en eru frá og með 1. janúar 2019 meðhöndlaðir sem óefnislegar eignir. Gjaldfærsla sýningarréttar er því færð frá og með 1.1.2019 meðal afskrifta. Fjárhæðum vegna 2018 hefur því verið breytt til samræmis. Sjá nánar í skýringum hér að neðan:

31.12.2018 Breyting Endurgert 31.12.2018
Birgðir 1.909 (1.545) 364
Afskriftir 1.893 2.558 4.451

b. Aflögð starfsemi

Á árinu 2018 var P/F Hey flokkað til sölu í samstæðuársreikningi félagsins. Þar sem áhrif af rekstri P/F Hey voru metin överuleg á rekstur samstæðunnar þá var ekki gerð leiðrétting fyrir aflagðri starfsemi á árinu 2018. Til að tryggja samanburðarhæfni reksturs samstæðu félagsins á árinu 2019 hafa samanburðarfjárhæðir nú verið leiðréttar fyrir áhrifum P/F Hey. Hér að neðan má sjá áhrif þeirra breytinga á fjárhæðir áður birtar í rekstri og sjóðstrey mi samstæðu Sýnar hf. í ársreikningi 2018. Leiðréttingar innihalda viðskipti sem áttu sér stað á milli félaganna á árinu 2018.

31.12.2018 Breyting Endurgert 31.12.2018
Seldar vörur og þjónusta 21.951 (1.197) 20.754
Rekstrarhagnaður 1.203 (36) 1.167
Hrein fjármagnsgjöld (702) (702)
Tekjuskattur (2) 7 5
Hagnaður ársins 473 (30) 443
Rekstrarfreyfingar 2.081 85 2.166
Fjárfestingahreyfingar (2.449) 157 (2.292)
Fjármögnunarfreyfingar 444 30 474

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Seldar vörur og bjónusta
Seldar vörur og bjónusta greinist bannig: 2019 2018
Vörusala 1.122 1.258
Seld bjónusta 18.689 19.496
Seldar vörur og bjónusta samtals 19.811 20.754

Samstæðan skilgreinir starfsbætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsbáttur.

Tekjustraumar

Tekjustraumar eru birtir eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjóf samstæðunnar.

Samstæðan skiptist í sex tekjustrauma sem eru mismunandi í eðli sínu. Tekjustraumarnir eru:

img-1.jpeg
Tekjustraumar

Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum Sýnar hf., leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu Sýnar hf. (SVOD), tekjum af áskriftum að línulegum stöðvum og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða. Frammistöðuskuldbindingar vegna áskriftatekna og leigu á efni eru uppfylltar yfir tímabil þar sem viðskiptavinurinn nýtur þjónustunnar samhliða bví að hún er veitt, tekjur eru færðar samkvæmt bví. Tekjur af auglýsingasölu eru færðar þegar félagið hefur uppfyllt skuldbindingu sína gagnvart viðskiptavinum um birtingu. Tekjur af leigu á einstaka kvikmyndum, þáttum og sýningu viðburða eru færðar eftir að sýningartíma viðkomandi efnis lýkur sem er almennt 48 klukkustundum eftir kaup.

Internet samanstendur af tekjum af netbjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL bjónustu og aðrar gagnatengingar, internetbjónustu, aðgangsgjöldum og leigu á netbeinum. Frammistöðuskuldbinding vegna internetbjónustu er uppfyllt yfir tímabil þar sem viðskiptavinurinn nýtur þjónustunnar samhliða bví að samstæðan veitir hana. Tekjur eru færðar mánaðarlega samkvæmt uppgjóri á föstu gjaldi að viðbættu breytilegu gjaldi vegna notkunar þegar það á við. Tekjur af leigu á búnáði, s.s. myndlyklum og netbeinum, eru færðar mánaðarlega samkvæmt samningum.

Farsími samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsíma. Víðskiptavinir geta keypt farsímabjónustu í gegnum áskrift þar sem fast gjald að viðbættum notkunartengdum gjöldum er gert upp mánaðarlega miðað við notkun, eða fyrirframgreitt frelsi. Frammistöðuskuldbindingar félagsins vegna farsímabjónustu eru uppfylltar yfir tímabil þar sem viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða bví að hún er veitt.

Samstæðúrsreikningur Sýnar hf. 2019

Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Seldar vörur og þjónusta frh.:

Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum í fastlínu. Samningar eru til mánaðar í senn og fast gjald að viðbættu breytilegu gjaldi fyrir notkun er gert upp mánaðarlega. Frammistöðuskuldbinding vegna heimasíma er uppfyllt yfir tímabil þar sem viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða því að hún er veitt.

Vörusala samanstendur af sölu á búnaði og fylgihlutum. Tekjur af vörusölu eru færðar á þeim tímapunkti þegar yfirráð yfir vörunni flytjast til viðskiptavinar, sem er við afhendingu vörunnar.

Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum, tekjum af hugbúnaði, útseldri vinnu og öðrum tilfallandi tekjum.

Tekjur af sölu á vöru og þjónustu eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og öðrum endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu greinist þannig: 2019 2018
Kostnaðarverð seldrar vöru og bjónustu 6.652 7.159
Laun og launatengd gjöld 2.171 2.063
Afskriftir 3.766 3.495
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu samtals 12.589 12.716
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2019 2018
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 1.332 1.647
Sölu- og markaðskostnaður 426 535
Laun og launatengd gjöld 3.723 3.732
Afskriftir 1.241 956
Rekstrarkostnaður samtals 6.720 6.871
  1. Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld greinast þannig: 2019 2018
Laun 4.803 4.726
Lífeyrisiðgjöld 628 586
Önnur launatengd gjöld 463 483
Laun og launatengd gjöld samtals 5.894 5.795
Stöðugildi að meðaltali á árinu 522 553

Í árslok 2019 voru 60% af stjórnendum samstæðunnar karlar og 40% konur (2018: 59% / 41%).

Samstæðan greiðir iðgjöld vegna starfsmanna sinna til lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöld eru gjaldfærð í rekstrarreikningi á sama tíma og vinnuframlag starfsmanns fellur til.

  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af lánum og kröfum félagsins og öðrum vaxtatekjum sem geta verið vegna arðstekna af fjáreignum, söluhagnaði og hreinum gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning eftir því sem þær falla til. Arðstekjur eru færðar í rekstrarreikning á þeim degi sem arðsúthlutun er samþykkt.

Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum og leiguskuldbindingum félagsins, bjónustugjöldum og hreinu gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtagjöld vegna lána eru færð miðað við aðferð virkra vaxta.

Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig: 2019 2018
Vaxtatekjur af lánum og kröfum 44 37
Aðrar vaxtatekjur 11 12
Fjármunatekjur samtals 55 49
Vaxtagjöld og önnur bjónustugjöld (1.015) (718)
Hreint gengistap (35) (33)
Fjármagnsgjöld samtals (1.050) (751)
Hrein fjármagnsgjöld samtals (995) (702)

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

11. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði, að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin og við að koma eigninni í notkun. Aðkeyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur hluti til að starfrækja ákveðinn búnað er færður til eignar sem hluti af þeim búnaði.

Pegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann. Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og bókéfærðu verði eignarinnar og er fært í rekstrarreikning meðal annarra tekna eða rekstrarkostnaðar.

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til samstæðunnar og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.

Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
Fasteignir Fjarskipta- og ljósvaka búnaður Áhöld, tæki bifreiðar og innréttingar Samtals
Kostnaðarverð
Kostnaðarverð 1.1.2018 51 14.052 1.624 15.727
Viðbætur á árinu - 1.229 428 1.658
Selt og niðurlagt á árinu - ( 52) ( 9) ( 61)
Áhrif gengisbreytinga - 104 ( 2) 102
Endurflokkun og fullafskrifaðar eignir - ( 197) ( 43) ( 240)
Aflögð starfsemi færð út - ( 1.511) ( 118) ( 1.629)
Kostnaðarverð 31.12.2018 51 13.625 1.880 15.557
Endurflokkun og fullafskrifaðar eignir - ( 4.449) ( 328) ( 4.777)
Viðbætur á árinu - 927 291 1.218
Yfirtekið við kaup á dótturfélagi - - 23 23
Selt og niðurlagt á árinu - - ( 60) ( 60)
Kostnaðarverð 31.12.2019 51 10.103 1.806 11.960
Afskriftir og virðisrýrnun
--- --- --- --- ---
Fasteignir Fjarskipta- og ljósvaka búnaður Áhöld, tæki bifreiðar og innréttingar Samtals
Afskriftir 1.1.2018 19 9.773 1.035 10.825
Endurflokkun og fullafskrifaðar eignir - ( 189) ( 51) ( 240)
Afskrift ársins 2 964 209 1.175
Selt og niðurlagt á árinu - ( 47) ( 6) ( 53)
Áhrif gengisbreytinga - 113 ( 8) 105
Aflögð starfsemi færð út - ( 941) ( 99) ( 1.040)
Afskrifað alls 31.12.2018 21 9.673 1.080 10.772
Endurflokkun og fullafskrifaðar eignir - ( 4.449) ( 328) ( 4.777)
Afskrift ársins 2 1.018 213 1.232
Selt og niðurlagt á árinu - ( 60) ( 60)
Afskrifað alls 31.12.2019 23 6.242 903 7.167
Bókfært verð
--- --- --- --- ---
Fasteignir Fjarskipta- og ljósvaka búnaður Áhöld, tæki bifreiðar og innréttingar Samtals
1.1.2018 32 4.279 589 4.900
31.12.2018 30 3.952 800 4.785
31.12.2019 28 3.861 903 4.793
Afskriftarhlutföll 3% 5-33% 15-33%

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

12. Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar og færðar í rekstarreikning línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna. Afskriftartími hefst þegar eignirnar eru tilbúnar til notkunar.

Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir 33 ár
Fjarskiptabúnaður 3 til 20 ár
Ljósvakabúnaður 4 til 7 ár
Áhöld, tæki, bifreiðar og innréttingar 3 til 7 ár

Á hverjum uppgjørsdegi er lagt mat á hvort eignir samstæðunnar sem ekki teljast til fjáreigna, kunni að hafa orðið fyrir virðisrýrnun. Ef vísbendingar eru til staðar um að virðisrýrnun hafi átt sér stað, er lagt mat á endurheimtanlega fjárhæð viðkomandi eigna.

Virðisrýrnun er færð þegar bókfært verð eignar, eða fjárskapandi einingar sem hún tilheyrir, er hærra en endurheimtanleg fjárhæð. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi flokkur eigna sem skapar sjöðstreymi sem að mestu er óháð öðrum eignum og eignaflokkum. Virðisrýrnun er færð í rekstrarreikning. Virðisrýrnun fjárskapandi einingar er fyrst færð til lækkunar á bókfærðu verði viðskiptavildar sem til staðar er innan viðkomandi einingar. Virðisrýrnun umfram viðskiptavild er svo hlutfölluð með hliðsjón af bókfærðu verði einstakra eigna hinnar fjárskapandi einingar og færð til lækkunar á þeim.

Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við áætlaðan nýtingartíma þeirra. Afskriftartími hefst þegar eignirnar eru tilbúnar til notkunar. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Endurheimtanleg fjárhæð eigna eða fjárskapandi einingar er nýtingarvirði eða gangvirði að frádregnum sólukostnaði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er fundið með því að núvirða áætlað framtiðarsjóðstreymi. Við útreikninginn er miðað við afvóxtunarhlutfall fyrir skatta sem endurspeglar núgildandi mat markaðar á tímavirði peninga og þeirri sérstöku áhættu sem eignin felur í sér.

Á hverjum uppgjørsdegi er lagt mat á hvort vísbendingar séu til staðar um að virðisrýrnun, sem færð hefur verið vegna annarra eigna en viðskiptavildar, eigi ekki lengur við. Virðisrýrnun er bakfærð ef breyting hefur orðið á því mati sem lá til grundvallar við ákvörðun endurheimtanlegrar fjárhæðar. Virðisrýrnun er aðeins bakfærð að því marki að bókfært verð eignar verði ekki hærra en það hefði verið á þeim degi sem bakfærsla er gerð ef engin virðisrýrnun hefði átt sér stað.

Hugbúnaður 10 ár
Vörumerki og viðskiptasambönd 9 til 30 ár
Aðrar óefnislegar eignir 3 til 10 ár
Afskriftir og virðisrýrnun í rekstrarreikningi greinast þannig: 2019 2018
--- --- ---
Afskriftir rekstrarfjármuna, sbr. skýringu 11 1.232 1.175
Afskriftir óefnislegra eigna, sbr. skýringu 14 797 718
Virðisrýrnun viðskiptavildar, sbr. skýringu 14 2.452 -
Afskriftir afnotarétta, sbr. skýringu 4 458 -
Afskriftir sýningarétta, sbr. skýringu 16 2.520 2.558
Fært í rekstrarreikning sem afskriftir 7.459 4.451

Afskriftir á rekstrarliði

Afskriftir á rekstrarliði greinast þannig: 2019 2018*
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu 3.766 3.495
Annar rekstrakostnaður með virðisrýrnun viðskiptavildar 3.692 956
Fært í rekstrarreikning sem virðisrýrnun og afskriftir 7.459 4.451

*Fjárhæðum vegna 2018 hefur verið breytt, sjá nánar í skýringu 5.

13. Fasteignamat og vátryggingarverðmæti

Bókfært verð fasteigna samstæðunnar nam 28 millj. kr. í árslok 2019 (2018: 30 millj. kr.), en á sama tíma nam fasteignamat þeirra 57 millj. kr. (2018: 60 millj. kr.) og brunabótamat 68 millj. kr. (2018: 64 millj. kr.). Vátryggingarverðmæti annarra eigna nam 5.007 millj. kr. í árslok (2018: 6.950 millj. kr).

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

14. Óefnislegar eignir

Viðskiptavild sem myndast við sameiningu er færð til eignar þann dag sem félagið nær yfirráðum í keyptu félagi eða rekstri. Viðskiptavild er mismunur á kaupverði og hlutdeildar í hreinni eign hins keypta eftir að eignir og skuldir hafa verið metnar til gangvirðis á kaupdegi.

Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur metin árlega með tilliti til virðisrýrnunar eða oftar ef vísbending um virðisrýrnun er til staðar. Ef bókfært verð sjóðskapandi einingar er hærra en endurheimtanlegt virði hefur virðisrýrnun átt sér stað. Hafí virðisrýrnun átt sér stað er viðskiptavild fyrst færð niður og síðar aðrar eignir sem tilheyra viðkomandi sjóðskapandi einingu. Óheimilt er að bakfæra áður færða virðisrýrnun viðskiptavildar á síðari tímabilum.

Aðrar óefnislegar eignir sem samstæðan hefur keypt og hafa takmarkaðan nýtingartíma eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun þar sem við á.

Kostnaður sem fellur til síðar er einungis eignfærður ef hann eykur efnahagslegan framtiðarávinning sem felst í eign sem kostnaðurinn varðar. Annar kostnaður, þar á meðal vegna viðskiptavildar og vörumerkja, sem myndast hefur innan samstæðunnar er færður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.

Óefnislegar eignir greinast þannig:

Vörumerki
Viðskipta - vild og viðskipta - sambönd Hug-búnaður Samtals
Kostnaðarverð
Kostnaðarverð 1.1.2018 13.748 3.293 3.879 20.920
Viðbætur á árinu - - 749 749
Selt og niðurlagt á árinu - - (188) (188)
Áhrif gengisbreytinga (38) - 49 11
Aflögð starfsemi færð út (224) - (290) (514)
Kostnaðarverð 31.12.2018 13.486 3.293 4.199 20.978
Fullafskrifaðar eignir - - (1.180) (1.180)
Viðbætur á árinu - - 615 615
Yfirtekið við kaup á dótturfélagi 593 - 22 616
Kostnaðarverð 31.12.2019 14.079 3.293 3.656 21.029

Afskriftir og virðisrýrnun

Afskriftir og virðisrýrnun 1.1.2018 3.027 17 2.271 5.315
Afskrift ársins - 199 519 718
Selt og niðurlagt á árinu - - (188) (188)
Áhrif gengisbreytinga (43) - (1) (44)
Aflögð starfsemi færð út (145) - (134) (279)
Afskrifað alls 31.12.2018 2.839 215 2.469 5.522
Fullafskrifaðar eignir - - (1.180) (1.180)
Afskrift ársins - 199 598 797
Virðisrýrnun 2.452 2.452
Afskrifað alls 31.12.2019 5.291 414 1.887 7.590

Bókfært verð

1.1.2018 10.721 3.276 1.608 15.605
31.12.2018 10.646 3.078 1.730 15.454
31.12.2019 8.787 2.879 1.769 13.435

Afskriftarhlutföll

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Óefnislegar eignir, frh.:

Viróisrýnunarpróf vegna sjóóskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild

Viðskiptavild hefur verið úthlutað á sjóóskapandi einingar fyrir framkvæmd viróisrýnnarprófs, eins og fram kemur hér að neðan.

Bókfært verð viðskiptavildar greinist þannig:

2019 2018
Viðskiptavild Sýnar hf. 8.194 10.646
Viðskiptavild vegna kaupa á Endor ehf. 593 -
Viðskiptavild samtals 8.787 10.646

Endurheimtanleg fjárhæð sjóóskapandi eininga var metin út frá nýtingarvirði. Nýtingarvirði var ákvarðað á þann hátt að núvirða áætlað framtiðarfjárstreymi miðað við áframhaldandi nýtingu eininganna. Fjárstreymi var byggt á rekstraráætlun næstu fimm ára. Viróisrýnun að fjárhæð 2,5 milljaðar var færð vegna viðskiptavildar sem úthlutað hefur verið á Sýn hf., sem er ein sjóóskapandi eining sem inniheldur fjarskipta- og fjölmiðlarekstur félagsins. Lykilástæður á bak við mat á viróisrýnunni er hægari framgangur samlegðar í rekstri félagsins vegna kaupa á rekstri 365 miðla en gert var ráð fyrir við kaupin sem og breytingar á samkeppnismarkaði félagsins.

Stuðst var við eftirfarandi forsendur við mat á nýtingarvirði:

2019 2018
Nafnvöxtur tekna 2019 / 2018 -4,5% 58,7%
Meðalvöxtur tekna 2020 til 2024 / 2019 til 2023 1,5% 1,5%
Framtiðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar 3,0% 2,5%
EBITDA meðalvöxtur 2020 til 2024 / 2019 til 2023 2,6% 10,4%
Ávöxtunarkrafa, WACC 9,3% 11,1%

Stjórnendur telja að raunhæfar breytingar á lykilforsendum myndu ekki leiða til þess að endurheimtanlegt virði viðskiptavildarinnar yrði lægra en bókfært verð hennar.

Viðskiptavild vegna kaupa á Endor ehf. var einnig prófuð með tilliti til viróisrýnunar með því að bera saman þá viðskiptaáætlun sem lá til grundvallar kaupunum við raun niðurstöður ársins 2019 og áætlanir fyrir framtiðarrekstur félagsins. Niðurstöður þess mats voru þær að endurheimtanlegt virði viðskiptavildarinnar stendur undir bráðabirgðamati á viðskiptavild vegna kaupanna.

  1. Eignarhlutur í félögum

Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum eru færðir með hlutdeildaráðferð. Hlutdeildarfélög eru þau félög sem samstæðan hefur veruleg áhrif á fjárhags- og rekstrarstefnu, en ekki yfirráð. Hlutdeildarfélög eru upphaflega færð á kostnaðarverði sem innihelur viðskiptakostnað. Eftir upphaflega skráningu er hlutdeild samstæðunnar í afkomu og heildarafkomu hlutdeildarfélaga færð í samstæðureikninginn þar til verulegum áhrifum eða sameiginlegum yfirráðum lýkur.

Eignarhlutir í öðrum félögum eru óverulegir og eru færðir á kostnaðarverði.

Meirihluti hlutafjár í P/F Hey var seldur í upphafi árs 2019. Hlutur Sýnar hf. (49,9%) í nýju sameinuðu félagi er færður samkvæmt hlutdeildaráðferð frá og með 1. janúar 2019. Hagnaður vegna sölunnar að fjárhæð 872 millj. kr. var færður á árinu 2019. Þar sem öll skilyrði fyrir flokkun á P/F Hey til sölu í samstæðureikningi Sýnar hf. fyrir árið 2018 voru uppfyllt voru eignir og skuldir félagsins settar fram á þann hátt. Eignir P/F Hey voru metnar á bókfærðu verði eða gangvirði að frádregnum sölukostnaði, hvort heldur sem lægra reynist og skuldir félagsins settar fram miðað við bókfært virði.

2019
Bókfært verð 1.1.2019 48
Eignarhlutur í Hey færður sem hlutdeildarfélag 452
Matsbreyting á eignarhlut í Hey 690
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga 91
Þýðingarmunur (8)
Fjárfesting á árinu 87
Bókfært verð 31.12.19 1.360
Eignarhlutir í öðrum félögum 23
Bókfært verð eignarhluta í félögum 31.12.19 1.383

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Sýningarréttir

Sýningarréttir samanstanda af eigin framleiðslu og aðkeyptum sýningaréttum. Sýningaréttir eru færðir á kostnaðarverði að viðbættum beinum kostnaði við að koma eigninni í starfhæft form. Innlendir og erlendir sýningaréttir eru afskrifaðir miðað við nýtingartíma þeirra. Nýtingartími er metinn út frá eðli réttindanna (línuleg og/eða SVOD) og samningstíma. Við það mat er horft á þann tíma sem rétturinn er talinn skila félaginu efnahagslegum ávinningi. Afskrift á sýningaréttum hefst þegar félagið hefur fengið efni afhent til sýninga. Sýningaréttir vegna íþróttaefnis eru afskrifaðir yfir þann tíma sem viðburðurinn er sýndur.

Sýningarréttir í árslok greinast þannig: 2019 2018
Staða í ársbyrjun 1.545 1.299
Erlendir sýningarréttir 2.226 2.236
Innlent efni 565 568
Afskrift tímabilsins (2.520) (2.558)
Sýningarréttir í árslok 1.814 1.545

Í árslok 2019 nam skuldbinding vegna sýningarétta utan efnahags 1.979 millj. Kr. (2018: 2.100 millj. kr.)

  1. Þóknun til endurskoðunarfyrirtækja
Veitt þjónusta skiptist með eftirfarandi hætti: Endurskoðendur félagsins Aðrir endurskoðendur
2019 2018 2019 2018
Endurskoðun 17 18 - -
Önnur þjónusta 8 23 11 14
Þóknun til endurskoðendafyrirtækja samtals 25 41 11 14
  1. Tekjuskattur

Tekjuskattur af afkomu ársins er frestaður tekjuskattur og skattur til greiðslu. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé.

Frestaður tekjuskattur er færður vegna tímabundins mismunar á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Útreikningur á frestuðum skatti byggist á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundinn mismunur kemur til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna fjárfestinga í dótturfélögum eða keyptum rekstri.

Skatteign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtiðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.

Virkur tekjuskattur greinist þannig: 2019 2018
(Tap) / Hagnaður fyrir tekjuskatt (1.982) 438
Tekjuskattur samkvæmt gildandi skatthlutfalli (20,0%) 396 20,0% (95)
Áhrif hlutdeildarfélaga (1,0%) 19 0,5% (2)
Öfrádráttarbar virðisrýrnun 24,7% (490) (22,6%) 99
Öskattskyldur söluhagnaður (8,8%) 174 - -
Aðrir liðir (6,9%) 134 (0,7%) 3
Virkur tekjuskattur (11,9%) 234 (2,8%) 5

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Tekjuskattsinneign (skuldbinding)
Frestaður tekjuskattur samstæðunnar greinist pannig: 2019 2018
Skatteign Skatt-skuldb. Skatteign Skatt-skuldb.
Staða 1.1 (138) - - (193)
Tekjuskattur í rekstrarreikningi 234 - - (2)
Aflögð starfsemi færð út - - - 57
Aðrir liðir 1 (9) - -
Frestaður tekjuskatur í árslok 97 (9) 0 (138)
Frestaður tekjuskattur greinist pannig á einstaka liði: 2019 2018
--- --- --- --- ---
Rekstrarfjármunir (257) - - (326)
Veltufjármunir 164 - - 184
Afnotarétur 43 -
Aðrir liðir 7 (9) - 4
Yfirfæranlegt skattalegt tap 140 - -
Frestaður tekjuskattur í árslok 97 (9) - (138)
Yfirfæranlegt tap samstæðunnar greinist pannig: Staða í upphafi árs Breyting á árinu Staða í árslok
Yfirfæranlegt tap ársins 2019 nýtanlegt til 2029 - 276 276
  1. Birgðir

Birgðir eru færðar á kostnaðarverði eða hreinu söluverði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða er byggt á „fyrst inn - fyrst út“ reglunni og tekur til kostnaðar sem stofnað hefur verið til við kaup birgðanna og við að koma beim á núverandi stað og í núverandi ástand. Hreint söluvirði er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja võru.

Birgðir greinast pannig: 2019 2018*
Fjarskiptabúnaður til endursölu 336 231
Õuppsettur sendabúnaður (rekstrarvörubirgðir) 71 133
Aðrar rekstrarvörubirgðir 20 -
Birgðir í árslok 427 364

*Fjárhæðir vegna 2018 hafa verið endurgerðar vegna breytinga á meðhöndlun sýningarétta, sjá nánar í skýringu 5.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

21. Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur

Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur eru upphaflega færðar á gangvirði á þeim degi sem félagið gerist aðili að samningsbundnum ákvæðum fjármálagerningsins. Eftir upphaflega skráningu eru þessar fjáreignir metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun. Fjáreignirnar eru afskráðar ef samningsbundinn réttur félagsins að sjóðstreymi vegna fjáreignanna rennur út. Viðskiptakrófur og aðrar kröfur í erlendum gjaldmiðlum eru færðar á gengi uppgjörsdags.

Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast þannig: 2019 2018
Viðskiptakrófur 3.167 3.021
Aðrar skammtímakrófur 356 461
Leigukrófur 147 0
Niðurfærsla viðskiptakrafna (102) (79)
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals 3.567 3.403

Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun viðskiptakrafna og annarra skammtímakrana. Eignirnar hafa orðið fyrir virðisrýrnun ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem hafa orðið benda til þess að vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar sé lægra en áður var talið.

Virðisrýrnun er mismunurinn á bókfærðu verði annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar. Metin virðisrýrnun er færð sem hluti af niðurfærslu viðskiptakrafna og gjaldfærð í rekstrarreikning. Virðisrýrnun er aðeins bakfærð ef hægt er að tengja bakfærsluna á hlutlægan hátt atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnun er færð.

Breyting á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig:
Staða í ársbyrjun (79) (81)
Upphafsstaða leiðrétt fyrir aflagðri starfsemi - 10
Breyting á niðurfærslu vegna krafna sem kunna að tapast (44) (55)
Tapaðar viðskiptakrófur á árinu 21 47
Staða niðurfærslu viðskiptakrafna í lok árs (102) (79)

22. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir eru færðar á þeim degi þegar samstæðan gerist aðili að samningsbundnum ákvæðum fjármálagerningsins. Slikar skuldir eru upphaflega færðar á gangvirði að viðbættum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru þessar fjárskuldir metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar á gengi uppgjörsdags.

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 2019 2018
Viðskiptaskuldir 3.431 2.672
Aðrar skammtímaskuldir 1.129 1.241
Fyrirfram innheimtar tekjur 444 254
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 5.004 4.167

Fyrirframinnheimtar tekjur

Fyrirframinnheimtar tekjur eru vegna fyrirframgreiddrar áskrifta og annarra fyrirframgreiðslna frá viðskiptavinum.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
28
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

23. Eigið fé

Hlutafé

Samtals útgefið hlutafé félagsins samkvæmt sambykktum þess er 2.964 millj. kr. (2018: 2.964 millj. kr.). Hver hlutur er 10 krónur að nafnverði. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun. Samkvæmt sambykktum eru engar hömlur lagðar á sölu eða framsal hlutabréfa í félaginu.

Yfirverðsreikningur hlutafjár

Yfirverðsreikningur hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagið hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem ekki má nota til að greiða hluthöfum arð. Lögbundinn varasjóður er færður sem hluti af yfirverðsreikningi.

Þýðingarmunur

Þýðingarmunur sem verður til við umreikning reikningsskila erlands hlutdeildarfélags í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið meðal eigin fjár. Ef erlend starfsemi er seld eða lögð niður, að hluta eða öllu leyti, er eiginfjárliðurinn leystur upp og færður í rekstrarreikning.

Arður

Ekki var greiddur út arður vegna rekstrarársins 2018 og tillaga stjórnar til aðalfundar er að ekki verði greiddur út arður vegna rekstrarársins 2019.

Bundinn reikningur

Samkvæmt 41. gr. ársreikningalaga ber félögum að færa hlutdeild í rekstri döttur- og hlutdeildarfélaga umfram það sem nemur mótteknum arði eða þeim arði sem ákveðið hefur verið að úthluta á bundinn reikning á meðal eigin fjár. Miðað er við að kröfur um bindingu gilda fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2016 og síðar.

24. Hagnaður á hlut

Hagnaður á hlut er hlutfall hagnaðar sem tilheyrir hluthöfum í félaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í félaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kaupréttta starfsmanna. Þynntur hagnaður á hlut er jafn hagnaði á hlut, þar sem félagið hefur hvorki tekið lán sem eru breytanleg í hlutafé né gert kaupréttarsamninga.

(Tap) / Hagnaður á hlut greinist þannig: 2019 2018
(Tap) / Hagnaður ársins ( 1.748) 443
Hlutafé í ársbyrjun 2.964 2.964
Áhrif keyptra og seldra eigin hluta - -
Áhrif hlutafjárhækkunar(lækkunar) - -
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu 2.964 2.964
(Tap) / Hagnaður á hlut og þynnt(ur) (tap) hagnaður á hlut ( 5,90) 1,53
(Tap) / Hagnaður og þynnt(ur) (tap) / hagnaður á hverja krónu hlutafjár ( 0,59) 0,15

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

25. Vaxtaberandi skuldir

Vaxtaberandi skuldir eru færðar á þeim degi þegar samstæðan gerist aðili að samningsbundnum ákvæðum fjármálagerningsins. Vaxtaberandi skuldir eru upprunalega færðar á gangvirði að viðbættum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru þessar fjárskuldir metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Samstæðan afskráir fjárskuld þegar samningsbundnum skyldum vegna skuldagerningsins er lokið, þær felldar niður eða falla úr gildi.

Vaxtaberandi langtímaskuldir greinast þannig: 2019 2018
Skuldir við lánastofnarir 11.587 11.561
Næsta árs afborganir ( 689) ( 687)
Vaxtaberandi langtímaskuldir samtals 10.898 10.874
Hreyfingar vaxtaberandi langtímaskulda 2019 2018
Upphafsstaða 11.561 11.350
Aflögð starfsemi 5 ( 196)
Afborganir ( 684) ( 8.583)
Ný lán - 8.999
Breytingar á rekstrarlánalínu 705 ( 10)
Lokastaða 11.587 11.561

Vaxtaberandi langtímaskuldir í árslok eru óverðtryggðar í íslenskum krónum og vegið meðaltal vaxta er 4,4% (2018: 5,4%)

Afborganir af langtímalánum greinast þannig á næstu ár: 2019 2018
Afborganir 2019 - 687
Afborganir 2020 689 687
Afborganir 2021 985 687
Afborganir 2022 683 2.078
Afborganir 2023 9.231 7.422
Samtals 11.587 11.561

Kvaðir í lánasamningum

Í lánasamningum félagsins eru til staðar kvaðir sem félagið þarf að uppfylla. Kvaðirnar snúa bæði að ákvæðnum hömlum á aðgerðir félagsins án fyrirfram sambykkis lánveitanda sem og fjármálahlutföllum sem félagið þarf að uppfylla. Í árslok uppfyllti félagið allar kvaðir lánasamnings sem og þá lánaskilmála sem snúa að fjármálahlutföllum í rekstri þess.

Veðsetningar

Á eignum samstæðunnar hvílir tryggingarbréf að fjárhæð 5.807 millj kr. (2018: 5.650 millj kr.) til tryggingar öllum skuldum og skuldbindingum félagsins við Landsbanka Íslands í árslok 2019. Tryggingin nær til alls lausafjár, þ.m.t. veð í bifreiðum, fjarskiptabúnaði, leigusamningum, afnotasamningum, vörubirgðum, viðskiptakrófum og vörumerkjum.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

26. Áhættustýring

a. Yfirlit

Eftirfarandi áhætta fylgir fjármálagerningum samstæðunnar:

  • Lánsáhætta
  • Lausafjáráhætta
  • Markaðsáhætta

Hér eru veittar upplýsingar um framangreinda áhættu og markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar við að meta og draga úr áhættunni. Að auki eru veittar tölulegar upplýsingar við að reikningnum.

Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustefna samstæðunnar og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á áhættu tengdri markaði og starfsemi samstæðunnar.

b. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sinar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna og ræðst af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Stjórnendur hafa innleitt stefnu vegna innheimtu og mánaðarlega er fylgst með áhættu vegna hennar. Mat á innheimtu er unnið reglulega og nauðsynlegar niðurfærslur gerðar.

Samstæðan hefur sett reglur þar sem greiðsluhæfi nýrra viðskiptavina er kannað áður en þeim er veittur gjaldfrestur. Innheimtuferli hefur verið skilgreint fyrir alla flokka viðskiptakrafna, viðskiptakröfur eru yfirfarnar reglulega og kröfur metnar.

Aldursgreining viðskiptakrafna er yfirfarin mánaðarlega og mynduð niðurfærsla vegna áætaðrar virðisrýrnunar þeirra. Niðurfærslan er reiknuð hlutfallslega miðað við aldur viðskiptakrafna, innheimtusögu og framtiðarhorfur í efnahagsumhverfi viðskiptamanna. Lagt er mat á áhættukröfur og ef ástæða þykir til, er færð sérstök niðurfærsla.

Mesta mögulega tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra sem var eftirfarandi í árslok:

Skýring 2019 2018
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 21 3.567 3.403
Handbært fé 634 356
Samtals 4.201 3.759

Í árslok námu viðskiptakröfur á fimm stærstu viðskiptamenn samstæðunnar 736 millj. kr. (2018: 372 millj. kr.) Auking á milli ára skýrist af einum viðskiptavini Endor ehf.

Virðisrýrnun viðskiptakrafna

Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok: Nafnverð kröfu Niðurfærsla
2019 2018 2019 2018
Ógjaldfallið 3.268 3.042 (30) (30)
Gjaldfallið innan 90 daga 177 269 (14) (21)
Gjaldfallið fyrir meira en 90 dögum 225 171 (59) (28)
Heildarstaða viðskiptakrafna í árslok 3.669 3.482 (102) (79)

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

26. Áhættustýring frh.:

c. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar.

Félagið hefur sett sér fjárstýringarstefnu þar sem skilgreind er stefna varðandi lausafjárstýringu. Stefnan er til grundvallar meðhöndlunar á handbæru fé og ráðstöfun þess og segir til um hvernig skuli lágmarka áhættu og tryggja handbært fé til að standa skil á skuldbindingum félagsins. Sjöðstreymisáætlanir eru gerðar mánaðarlega og spáð fyrir um lausafjárþörf. Samstæðan hefur að gengi að rekstrarlánalínu hjá viðskiptabanka sínum ef á þarf að halda. Önýtt lánsheimild rekstrarlánalínu og yfirdráttar var 704 millj. kr. í árslok. (2018: 960 millj. kr.)

Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, að meðtöldum áætluðum vaxtagreiðslum, greinast þannig (fjárhæðirnar eru ekki núvirtar):

Bókfært verð Umsamið sjóð-streymi Innan árs 1 til 2 ár 2 til 5 ár Meira en 5 ár
31. desember 2019
Fjárskuldir:
Vaxtaberandi skuldir 11.587 13.138 1.131 3.277 8.729 -
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 5.004 5.004 5.004 - - -
Samtals 16.591 18.142 6.135 3.277 8.729 0
31. desember 2018
Fjárskuldir:
Vaxtaberandi skuldir 11.576 14.000 1.269 2.690 10.041 -
Afleiður 124 124 46 40 38 -
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 3.928 3.928 3.928 - - -
Samtals 15.628 18.052 5.243 2.730 10.079 0

d. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar á markaðsverði erlendra gjaldmiðla, vaxta og gengi hlutabréfa hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

26. Áhættustýring frh.:

e. Gjaldmiðlagengisáhætta

Starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar er íslenskar krónur, en hluti tekna og innkaupa samstæðunnar er í óðrum gjaldmiðlum. Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evrur (EUR), dollar (USD), sterlingspund (GBP) og SDR (uppgjörsgjaldmiðill vegna reikis). Fjármálasvið er ábyrgt fyrir að fylgjast með gengisþróun helstu gjaldmiðla með tilliti til áhrifa fjáreigna og fjárskulda í erlendum gjaldmiðli á reikningsskilín.

Áhætta samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla var sem hér segir í nafnverðsfjárhæðum í millj. kr.

31. desember 2019 EUR USD GBP SDR
Viðskiptakröfur 400 3 - 110
Handbært fé 115 - - -
Viðskiptaskuldir ( 937) ( 735) ( 37) ( 81)
Áhætta í efnahagsreikningi ( 422) ( 732) ( 37) 29
31. desember 2018 EUR USD GBP SDR
--- --- --- --- ---
Viðskiptakröfur 83 16 1 81
Handbært fé 1 - - -
Viðskiptaskuldir ( 429) ( 527) ( 87) ( 9)
Áhætta í efnahagsreikningi ( 345) ( 511) ( 86) 72

Gengi helstu gjaldmiðla á árinu var sem hér segir:

Meðalgengi Árslokagengi
2019 2018 2019 2018
EUR 137,30 127,73 135,83 133,23
USD 122,65 108,38 121,10 116,33
GBP 156,49 144,35 159,42 148,33
SDR 169,44 153,24 167,75 161,82

Næmnigreining

10% styrking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum í árslok myndi hækka eigið fé og afkomu samstæðunnar um 111 millj. kr. fyrir tekjuskatt, (2018: hækkun 82 millj. kr.). Greiningin byggir á að allar aðrar breytur, þ.m.t. vextir, haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti fyrir árið 2018.

10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

f. Vaxtaáhætta

Lántökur samstæðunnar eru allar með breytilegum vöxtum.

Vaxtaberandi fjárskuldir samstæðunnar greinast með eftirfarandi hætti í lok ársins: 2019 2018
Fjárskuldir með breytilega vexti 11.587 11.561

Hækkun á vöxtum um 100 punkta hefði lækkað afkomu og eigið fé um 116 millj. kr. fyrir tekjuskatt (2018: 115 millj. kr.), lækkun á vöxtum um 100 punkta hefði haft áhrif í gagnstæða átt. Samstæðan er hvorki með fjáreignir né fjárskuldir á föstum vöxtum.

g. Meðferð vaxtaskiptasamnings

Vaxtaskiptasamningur sem félagið gerði á árinu 2016 til varnar sjóðstreymisáhættu á langtímalánum sínum var gerður upp á þriðja ársfjörðungi. Vegna þessa uppgjörs voru gjaldfærðar 120 millj. kr. í rekstrarreikning meðal vaxtagjalda. Sjóðstreymisáhrif uppgjörsins voru 98 millj. kr.

h. Gangvirði

Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvirði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegt.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

27. Eiginfjárstyring

Það er markmið félagsins að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að styðja við stöðugleika í framtíðarþrún starfseminnar. Til lengri tíma er markmið um að minnsta kosti 30% eiginfjárhlutfall. Eiginfjárhlutfall í lok árs 2019 nam 27,5% (2018: 39,6%).

Félaginu ber ekki að fylgja ytri reglum um lágmarks eiginfjárstöðu.

28. Tengdir aðilar

Aðilar teljast vera tengdir aðilar ef þeir fara með bein eða óbein yfirráð í félaginu eða hafa vald til að stjórna fjárhags- og rekstrarstefnu þess. Meðal tengdra aðila samstæðunnar eru: Lykilstjórnendur, nánir fjölskyldumeðlimir lykilstjórnenda og félög þar sem lykilstjórnendur eða nánir fjölskyldumeðlimir þeirra fara með yfirráð í eða hafa veruleg áhrif á. Hluthafar sem fara með yfirráð eða hafa veruleg áhrif teljast einnig tengdir aðilar.

Laun og eignarhald stjórnar og lykilstjórnenda

Laun stjórnenda skiptast á eftirfarandi hátt í föst og breytileg starfskjór, án launatengdra gjalda. 2019 2019 2018 2018 Fjöldi virkra hluta
Föst kjör Breytilg kjör Föst kjör Breytilg kjör árslok 2019
Stjórn:
Hjörleifur Pálsson, stjórnarform. 7,0 - 5,0 - 250.000
Anna Guðný Aradóttir, stjórnarm. 5,5 - 5,0 - -
Sigríður Vala Halldórsdóttir, stjórnarm. 2,4 - - - -
Tanya Zharov, stjórnarm. 4,8 - 1,2 - -
Óli Rúnar Jónsson, stjórnarm. 1,1 - - - -
Heiðar Guðjónsson, fyrrv. stjórnarform. 3,1 - 9,2 - - *
Yngvi Halldórsson, fyrrv. stjórnarm. 4,6 - 5,0 - 34.000
Hildur Dungal, fyrrv. varaform. 0,6 - 4,2 - -
Baldur Már Helgason, fyrrv. varam. - - 0,2 - -
Tilnefningarnefnd:
Ragnheiður S. Dagsdóttir 1,6 - 1,5 - -
Þröstur Olaf Sigurjónsson 1,6 - 0,2 - -
Ásdís Jónsdóttir - - 1,2 - -

Lykilstjórnendur:

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar hf. 35,1 - - - -
Stefán Sigurðsson, fyrrv. forstj. Sýnar hf 51,4 - 45,3 - 196.186
Rúnar Reistrup, forstjóri P/F Hey - - 26,4 - -
Tveir framkvæmdastjórar Sýnar hf. 56,8 - 59,0 - 87.550
Tveir framkvæmdastj. Sýnar frá Júní 2019 33,4 - - - -
Fjórir fyrrv. framkvæmdastjórar Sýnar hf. 84,8 - 110,0 - 0
  • Heiðar Guðjónsson á ekki eignarhlut í Sýn hf. en Ursus ehf. fjárhagslega tengdur aðili á 9,16% í félaginu.

Með eignarhlutum eru taldir eignarhlutir maka og ófjárráða barna ásamt eignarhlutum í eigu félaga sem stjórnendurnir ráða.

Önnur viðskipti við stjórn og lykilstjórnendur eru óveruleg. Skilmálar og skilyrði viðskipta við stjórn og lykilstjórnendur eru sambærileg við það sem gerist í viðskiptum við ótengda aðila.

Viðskipti við tengda aðila

Sala á vörum og þjónustu til tengdra aðila og félaga tengdum þeim nam 304 millj. kr. á árinu 2019 (2018: 20 millj. kr.), en kaup á vörum og þjónustu námu 42 millj. kr. (2018: 6 millj. kr.).

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

29. Kaup á Endor ehf.

Kaupaðferðinni er beitt við færslu á kaupum samstæðunnar á eignarhlutum í dótturfélögum. Kaupverðið er metið sem gangvirði þeirra eigna sem látnar eru af hendi, eiginfjárgerninga sem gefnir eru út og skulda sem stofnað er til, eða teknar eru yfir á yfirtökudegi. Eignir, skuldir og skuldbindingar sem eru yfirteknar við sameiningu fyrirtækja eru metnar í upphafi á gangvirði á kaupdegi. Sú fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði er skráð sem viðskiptavild. Ef kaupverð er lægra en gangvirði hreinna eigna yfirteknins félags er mismunurinn færður beint til tekna í rekstrarreikningi.

Þann 18. október 2019 undirritaði Sýn hf. kaup á öllu hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækinu Endor ehf (Endor). Félagið mun reka Endor í öbreyttri mynd sem dótturfélag og nýta stuðning og innviði Sýnar hf. og alþjóðlegar tengingar Endor í að styðja enn frekar við frekari vöxt Endor ehf. Samkeppniseftirlitið sambykkti kaupin 1. desember 2019. Efnahagur Endor hefur verið tekin inn að fullu í samstæðureikningsskilin en rekstur félagsins í desember er ekki hluti af samstæðureikningsskilunum þar sem um överulegar fjárhæðir er að ræða.

Hluti af kaupverði á Endor ehf. er skilyrt og háð árangri í rekstri félagsins næstu 3 ár. Samkvæmt því skal kaupverðið leiðrétt til hækkunar um allt að 300 milljónir króna ef skilyrtur árangur næst. Árangurinn snýr að því að raunframlegð af heildarveltu Endor vegna samnings þess við Atos Information Technology GmbH og annarra gagnaversviðskipta verði umfram skilgreint lágmark. Ef raunframlegð fer niður fyrir skilgreint lágmark lækkar kaupverðið hlutfallslega krónu fyrir krónu.

Kaupverð skiptist á eftirfarandi hátt: 2019
Handbært fé 366
Skilyrt kaupverð 252
Kaupverð samtals 618

Kostnaður í tengslum við kaupin er ekki meðtalin í kaupverði heldur var gjaldfærður þegar hann féll til.

Neðangreint mat á gangvirði eigna og skulda er í samræmi við bráðabirgða kaupverðsútdeilingu. Endanleg kaupverðsútdeiling mun liggja fyrir innan 12 mánaða frá yfirtökudegi í samræmi við kröfur IFRS 3.

Mat á eignum og skuldum á yfirtökudegi 2019
Veltufjármunir
Vörubirgðir 20
Viðskiptakröfur 259
Aðrar skammtímakröfur 10
Handbært fé 190
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir og óefnislega eignir 45
Afnotaréttur 2.520
Eignir samtals 3.044
Skammtímaskuldir
--- ---
Viðskiptaskuldir 90
Fyrirfram innheimtar tekjur 215
Skuldir samtals 305
Langtímaskuldir og skuldbindingar
--- ---
Leigusamningar 2.706
Tekjuskattsskuldbinding 9
Skuldir samtals 2.715
Gangvirði hreinna eigna 24
--- ---
Viðskiptavild
Kaupverð 618
Gangvirði hreinna eigna og skulda (24)
Viðskiptavild vegna kaupanna 593

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

30. Önnur mál

Sýn hf. á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarbrún málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurða, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.

Sýn hf. gegn Símanum hf. og gagnsök

Sýn hf. stefndi Símanum hf. fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta vegna brota á samkeppnislögum á árunum 2001 til 2007. Brotin fólust í ofrukkun lúkningargjalda sem leiddu til ólögmæts verðþrýstings. Síminn hófðaði mál í gagnsök og krafðist einnig bóta. Héraðsdómur sýknaði af framangreindum kröfum með dómi sem kveðinn var upp 23. nóvember 2018. Var dómurinn staðfestur af Landsrétti þann 8. nóvember 2019 með dómi í máli nr. 919/2108. Synjaði Hæstiréttur í kjólfarið um áfrýjunarleyfi. Telst málinu þar með lokið.

Síminn hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Samkeppniseftirlitinu, Sýn hf. og Nova ehf.

Síminn hf. stefndi Samkeppniseftirlitinu, Sýn hf., Nova ehf. og Sendafélaginu og krafðist ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 7/2015 ásamt því sem Síminn stefndi Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Nova ehf. og krafðist ógildingar á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 14/2014. Jafnframt átti Sendafélagið ehf. aðild að málunum. Með þessum stjórnvaldsákvörðunum heimiluðu Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitið Sýn hf. og Nova ehf. að samnýta tíðniheimildar félaganna í sérstöku rekstrarfélagi. Hefur sá samrekstur farið fram á vegum Sendafélagsins ehf.

Með dómum Héraðsdóms sem kveðnir voru upp 1. apríl 2019 var sýknað af öllum kröfum Símans hf. í báðum dómsmálunum. Áfrýjaði Síminn hf. málinu til Landsréttar hvar málið býður meðferðar. Engri fjárkröfu er beint að Sýn hf. í málunum.

Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf., og gagnsök

Í málinu gerir stefnandi málsins, Síminn hf., aðallega kröfu um að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018 verði fellð úr gildi í heild sinni. Til vara er gerð sú krafa að 6. tl. ákvörðunarinnar, um álagningu stjórnvaldssektar á Símann, verði fellður úr gildi eða sektarfjárhæðin lækkuð. Þá er gerð krafa um að stefndu verði dæmd til greiðslu málkostnaðar.

Ágreiningur málsins lýtur fyrst og fremst að túlkun á ákvæði 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og hvort Síminn hf. hafi brotið gegn ákvæðinu með því að bjóða eingöngu upp á efnisveitu sína til þeirra sem keyptu fjarskiptabjónustu hjá samstæðu Símans, með það að markmiði að ná viðskiptavinum í fjarskiptabjónustu. Félagið hefur skilað greinargerð í málinu og krafist sýknu auk þess sem krafa er gerð um að Síminn hf. greiði því málskostnað. Aðalmeðferð málsins er áformuð á vormisserum 2020.

Yfirvofandi kröfur og annar ágreiningur

Krafa á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson, 365 hf. og Torg ehf.

Með bréfi 17. des. 2019 gerði Sýn hf. kröfu á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson, 365 miðla hf. og Torgs ehf. á grundvelli samkeppnisákvæða í kaupsamningi Sýnar hf. við 365 hf. (hét áður 365 miðlar hf.) frá 14. mars 2017. Í bréfinu er lýst þeirri skoðun að tilteknir þættir í starfsemi vefmiðilsins frettabladid.is samrýmist ekki þeim skuldbindingum sem fram komi í þeim samningi. Þá er vísað til þess að umrædd ákvæði feli í sér rétt Sýnar hf. til að krefjast févitis/dagsekta að fjárhæð 5 millj. kr. á dag að viðbættum verðbótum. Á þeim grundvelli er svo gerð krafa um greiðslu á 1.140 millj. kr. auk verðbóta. Af hálfu Ingibjargar, Jóns Ásgeirs og 365 hf. var kröfunni mótmælt með bréfi 20. des. 2019. Sýn hf. hefur falið lögmanni að undirbúa hófðun dómsmáls til heimtu þessarar kröfu og má búast við því að það verði hófðað á næstu víkum.

Skaðabótakrafa frá Símanum hf.

Með dómi Hæstaréttar 18. okt. 2018 í máli nr. 329/2017 var m.a. staðfest lögbann sem lagt var 16. des. 2015 á ólinulega dreifingu Sýnar hf. á sjónvarpsefni Símans. Síminn hf. hófðaði í kjólfarið eða 1. mars 2019 mál til heimtu skaðabóta að fjárhæð 555 millj. kr. úr hendi Sýnar hf. Héraðsdómur vísað kröfunni frá dómi með úrskurði 12. sept. 2019. Síminn hf. kærði þann úrskurð til Landsréttar sem staðfesti hann með úrskurði 11. nóv. 2019.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Skýringar, frh.:

  1. Önnur mál frh.:

Yfirvofandi kröfur og annar ágreiningur frh.:

Skaðabótakrafa gegn Símanum hf.

Sýn hf. hefur gert bótakröfu á Símann hf. vegna þeirra brota Símans hf. á 5. mgr. 45. gr. laga nr. 38/2011 sem úrskurður Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018 laut að, sbr. umfjöllun að framan. Sýn hf. óskaði þess 19. júní 2019 að dómkvaddir yrðu tveir hæfir og óvilhallir matsmenn til að leggja mat á tjón Sýnar hf. vegna brota Símans hf. Í þeirri matsbeiðni taldi tjón sitt nema að fjárhæð 1.141 millj. kr. Héraðsdómur dómkvaddi matsmenn skv. beiðni Sýnar hf. þann 5. sept. 2019 og matsmenn eru enn að störfum. Vonast er til að matsgerð þeirra liggi fyrir á vormisseri.

Mál fyrir eftirlitsstofunun

Á hverjum tíma eru ýmis mál rekin fyrir hinum ýmsu eftirlitsaðilum. Í engu tilviki hafa verið boðaðar sektarákvarðanir eða aðrar mjög íþyngjandi aðgerðir.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í ársreikning félagsins.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Stjórnarháttayfirlýsing

Með yfirlýsingu þessari um stjórnarhátti Sýnar hf. er félagið að fylgja þeim viðurkenndu leiðbeiningum um stjórnarhátti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdag Iceland (5. útgáfa leiðbeininganna), með það að markmiði að styrkja innviði Sýnar hf. og auka gagnsæi.

Lög og reglur

Stjórnarháttir Sýnar hf. taka mið af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, lögum nr. 81/2003 um fjarskipti, lögum nr. 38/2011 um fjölmiðla og öðrum almennum lögum sem gilda um starfsemina, reglum um útgefendur fjármálagerninga, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og einstakra undirnefnda stjórnar. Lögin má nálgast á vef Alþingis, www.althingi.is, en samþykktir og reglur félagsins á www.syn.is.

Félagið hefur verið vottað fyrirnyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum og fylgir leiðbeiningum um stjórnarhátti fyrirtækja sem hægt er að nálgast á heimasíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is. Sýn hf. hefur einnig fengið vottað og staðfest að stjórnkerfi fyrirtækisins fyrir upplýsingaóryggi samræmist alþjóðlega upplýsingaóryggisstaðlinum ISO 27001, vinnuvernd samkvæmt alþjóðlega vinnuverndarstaðlinum ISO 45001 og íslenska jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Þá hefur fyrirtækið fengið Hvatningarverðlaun jafnréttismála.

Stjórn Sýnar hf. 2019

Í stjórn Sýnar sitja öllu jöfnu fimm aðalmenn og tveir varamenn og eru þeir allir kosnir á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Forstjóri situr stjórnarfundi, auk lögmanns félagsins sem er rítari stjórnar. Þá er framkvæmdastjóri fjármálsviðs reglulegur þátttakandi á stjórnarfundum. Stjórn félagsins ásamt forstjóra fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórninn hefur lögbundnu hlutverki að gegna sem henni ber sjálfri að annast nema heimild sé veitt í lögum til að framselja valdið með umboði.

Á árinu 2019 voru bókaðir 15 formlegir stjórnarfundir. Góð mæting stjórnarmanna var á stjórnarfundi og var stjórn ákvörðunarbær á öllum fundum ársins. Sama gildir almennt um mætingu og ákvörðunarbærni á fundum undirnefnda stjórnar.

Á aðalfundi 22. mars 2019 var kosið í aðal- og varastjórn félagsins. Á aðalfundi voru þau: Anna Guðný Aradóttir, Heiðar Guðjónsson, Hjörleifur Pálsson, Tanya Zharov og Yngvi Halldórsson kjörin í stjórn félagsins. Óli Rúnar Jónsson og Sigríður Vala Halldórsdóttir voru kjörin varamenn.

Nokkrar breytingar urðu á skipan stjórnar frá aðalfundi til ársloka 2019. Heiðar Guðjónsson sagði sig úr stjórn félagsins og tók við sem forstjóri þess, sbr. kauphallartilkynning dags. 25. apríl 2019. Hjörleifur Pálsson tók á sama tíma við stjórnarformennsku og Sigríður Vala Halldórsdóttir, varastjórnarmaður tók sæti í stjórn. Yngvi Halldórsson sagði sig úr stjórn Sýnar hf. og réð sig sem framkvæmdastjóra rekstrarsviðs félagsins, sbr. kauphallartilkynning dags. 5. desember 2019. Á sama tíma tók Óli Rúnar Jónsson varastjórnarmaður sæti í stjórn félagsins.

Við árslok 2019 var stjórn Sýnar hf. því skipuð eftirfarandi aðilum:

Aðalmenn

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður er fæddur árið 1963. Hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 11. apríl 2013. Hjörleifur er viðskiptafræðingur, útskrífaður með Cand Oecon gráðu frá Háskóla Íslands 1988. Hann hlaut löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 1989 og starfaði sem endurskoðandi til 2001. Hann var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar hf. frá 2001 til 2013. Hjörleifur er formaður stjórnar og formaður háskólaráðs Háskólans í Reykjavík. Hann situr í fjárfestingarráði Akurs fjárfestinga slhf., í stjórn Brunns vaxtarsjóðs slhf., Lotus Pharmaceutical Co., Ltd í Taiwan og Ankra ehf. Hann er jafnframt formaður tilnefningarnefnar Icelandair Group hf. og á sæti í endurskoðunarnefnd Landsbankans hf. Hjörleifur átti 250.000 hluti í félaginu í árslok 2019.

Tanya Zharov, varaformaður er fædd árið 1966. Tanya lauk Cand. jur. prófi frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Hún var fyrst kosin í varastjórn félagsins 16. mars 2017 og var síðan kjörin í stjórn þann 22. mars 2019. Hún starfaði sem framkvæmdarstjóri lögfræðisviðs Auðar Capital og síðar Virðingar hf., 2008-2015. Tanya er formaður stjórnar Íslandssjóða hf. og CRI ehf. Hún situr í stjórn Skólavegs ehf. og Talna ehf. Í árslok 2019 átti Tanya 3.472 hluti í félaginu.

Anna Guðný Aradóttir er fædd árið 1956. Hún var fyrst kosin varamaður í stjórn félagsins 29. ágúst 2012, en varð síðan aðalmaður í stjórn félagsins 9. nóvember 2012. Hún hefur lokið viðskipta- og rekstrarnámi frá Háskóla Íslands og hefur MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Anna Guðný, sem er starfsmaður Icelandair, situr í stjórn Lyfja & heilsu hf. og Faxa ehf.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Stjórnarháttayfirlysing, frh.:

Aðalmenn frh.:

Óli Rúnar Jónsson er fæddur árið 1980. Hann var kjörinn varamaður í stjórn Sýnar hf. í mars árið 2019 og tók sæti í stjórn félagsins í desember sama ár. Óli hefur starfað hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni frá árslokum 2007 þar sem hann sinnir nú hlutverki útflutningsstjóra, stýrir félögunum Borg Brughús og Agla Gosgerð og vinnur að ýmiskonar viðskiptapróun og markaðsmálum hjá Ölgerðinni. Þá hefur hann starfað sem tónlistarmaður um árabil. Óli er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 2006.

Sigríður Vala Halldórsdóttir er fædd árið 1983. Hún var kjörin sem varamaður í stjórn Sýnar hf. í mars 2019 og tók sæti í stjórn félagsins í apríl 2019. Hún hefur frá árinu 2016 starfað sem forstöðumaður Hagdeildar hjá Sjóvá, ásamt því að sitja í fjárfestinganeð félagsins og sinna hlutverki fjárfestatengils. Af öðrum stjórnarstörfum má nefna að hún hefur verið í stjórn HS Veitna frá árinu 2014. Sigríður Vala er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2006 og M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota 2008. Sigríður Vala er jafnframt löggiltur verðbréfamiðlari frá 2009. Sigríður Vala starfaði hjá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka 2008-2015 sem sérfræðingur og síðar verkefnastjóri. Hún var forstöðumaður viðskiptastýringar Creditinfo 2015-2016.

Allir stjórnarmenn félagsins teljast vera óháðir félaginu, viðskiptaaðilum, samkeppnisaðilum og stórum hluthöfum.

Helstu hlutverk stjórnar

  • Meginhlutverk stjórnar Sýnar hf. er að marka félaginu stefnu og hafa eftirlit með framkvæmd hennar. Kjarni stefnunnar er að hagsmunir viðskiptavina, eigenda og starfsmanna séu hafðir að leiðarljósi. Áhersla er lögð á traustan og arðbæran rekstur og að rekstraráhætta sé lágmörkuð.
  • Gæta þess að starfsemi félagsins sé í samræmi við tilgang þess samkvæmt samþykktum og markaðri stefnu.
  • Taka ákvarðanir í málum sem telja verður óvenjuleg eða mikilsháttar.
  • Gæta þess að skipulag félagsins og starfsemi sé jafnan í góðu horfi, t.d. hvað varðar reikningsskil, innra eftirlit og fjárhagsáætlanir.
  • Sjá til þess að nægilegt eftirlit sé haft með reikningshaldi og meðferð fjármuna félagsins.
  • Ráða forstjóra og veita honum lausn.

Starfsreglur stjórnar

Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar af stjórn þann 15. maí 2019. Starfsreglur stjórnar eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, https://syn.is/fyrirtaekid/stjorn

Árangursmat stjórnar

Stjórn félagsins framkvæmdi formlegt árangursmat þann 31. janúar 2020. Helstu þættir sem lagt var mat á voru:

  1. Störf stjórnar, verklag og starfshættir.
  2. Virkni stjórnar.
  3. Frammistaða stjórnarformanns og forstjóra.
  4. Undirnefndir stjórnar.
  5. Þróun félagsins.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Stjórnarháttayfirlýsing, frh.:

Undirnefndir stjórnar

Í endurskoðunarnefnd Sýnar hf. sitja allt að þrír nefndarmenn skipaðir af stjórn félagsins til eins árs í senn. Nefndin hefur sett sér starfsreglur sem yfirfarnar eru og bornar upp til staðfestingar í stjórn árlega, síðast voru reglurnar samþykktar af nefndinni 13. maí 2019 og staðfestar af stjórn 15. maí 2019. Nefndin skal m.a. hafa eftirfarandi hlutverk án tillits til ábyrgðar stjórnar, stjórnenda eða annarra á þessu sviði:

  1. Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila.
  2. Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, áhættustýringu og annarra eftirlitsaðgerða er varðar fjármál ásamt því að fylgja eftir úrbótum vegna annmarka sem fram koma.
  3. Hafa eftirlit með og yfirfara endurskoðun ársreikninga, samstæðureikninga og annarra fjárhagsupplysinga félagsins.
  4. Mat á óhæði ytri endurskoðenda og eftirlit með öðrum störfum ytri endurskoðenda.
  5. Setja fram tillögu til stjórnar um val á ytri endurskoðendum.

Endurskoðunarnefnd yfirfer einnig stjórnarháttayfirlýsingu félagsins ár hvert. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega.

Við árslok 2019 var endurskoðunarnefnd Sýnar hf. skipuð Tanyu Zharov, formanni nefndarinnar og Sigríði Völu Halldórsdóttur. Tanya tók við sem formaður nefndarinnar í tengslum við skipulagsbreytingar sem tilkynntar voru í kauphöll þann 25. apríl 2019 og Sigríður Vala tók sæti í nefndinni í desember 2019. Nefndin kom sex sinnum saman á árinu. Báðir nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Sýnar hf., daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum.

Í starfskjaranefnd Sýnar hf. sitja allt að þrír nefndarmenn og eru skipaðir af stjórn félagsins til eins árs í senn. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur og voru þær staðfestar á stjórnarfundi félagsins 15. maí 2019. Starfskjaranefnd útbýr starfskjarastefnu Sýnar hf. Hlutverk nefndarinnar er að öðru leyti m.a. að undirbúa tillögur til stjórnar varðandi laun og aðrar greiðslur til forstjóra og annarra æðstu stjórnenda og lykilstjórnenda félagsins, svo og stjórnarmanna þess. Nefndinni er ætlað að tryggja að laun og önnur starfskjör séu í samræmi við lög, reglur og bestu framkvæmd hverju sinni. Þá er henni ætlað að taka sjálfstæða afstöðu til áhrifa launa á áhættutöku og áhættustýringu félagsins í samráði við endurskoðunarnefnd félagsins.

Við árslok 2019 var starfskjaranefnd Sýnar hf. skipuð Önnu Guðnýju Aradóttur, formanni nefndarinnar og Hjörleifi Pálssyni. Starfskjaranefnd félagsins hélt þrjá fundi á árinu. Starfskjaranefnd félagsins leggur áherslu á að gagnsæi ríki um starfskjör hjá félaginu gagnvart hluthöfum þess og hefur fylgst með óskum hluthafa um aukið gagnsæi og unnið í því að bæta upplysingar bæði í ársreikningi og í skýrslu starfskjaranefndar. Báðir nefndarmenn eru óháðir félaginu.

Ákveðið var að tækningefnd Sýnar hf. myndi taka sér hlé frá störfum á starfsárinu. Þess í stað var sett á laggirnar sérstök markaðsnefnd, sem ætlað var að stýðja við markaðamál félagsins og stefnumörkun í vörumerkjamálum. Við árslok 2019 var markaðsnefndin skipuð þeim Önnu Guðnýju Aradóttur, formanni og Óla Rúnari Jónssyni. Nefndin hefur ekki sett sér starfsreglur, en hún hélt sex fundi á árinu. Báðir nefndarmenn eru óháðir félaginu.

Tilnefningarnefnd Sýnar hf. hefur sett sér starfsreglur sem voru síðast staðfestar á fundi stjórnar Sýnar hf. 15. maí 2019. Þar er kveðið á um að stjórn Sýnar hf. skuli tilnefna einn nefndarmenn en hina tvo nefndarmennina skuli hluthafafundur Sýnar hf. kjósa ef stjórnarkjör er á dagskrá. Á aðalfundi félagsins 22. mars 2019 fór fram kjör tveggja nefndarmanna í samræmi við starfsreglurnar, en leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, geyma nú tilmæli um starfsemi tilnefningarnefnda.

Tilnefningarnefnd er ætlað að auka líkur á því að stjórn félagsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna félagsins sem og að tryggja aukið gagnsæi í málefnum varðandi tilnefningu stjórnarmanna.

Starfsreglur undirnefnda eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.syn.is. félagsins. Jafnframt er að finna upplysingar um skipan og hlutverk undirnefnda á vefsíðu félagsins.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Stjórnarháttayfirlysing, frh.:

Forstjóri Sýnar hf.

Í lok árs 2019 var forstjóri félagsins Heiðar Guðjónsson og hefur hann með höndum stjórn á daglegum rekstri félagsins og kemur fram fyrir hönd þess í málum sem varða venjulegan rekstur. Hlutverk hans er skilgreint nánar í sambykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og ráðningarsamningi.

Heiðar Guðjónsson er fæddur árið 1972. Hann var kosinn í stjórn félagsins 11. apríl 2013 og átti sæti þar fram til 25. apríl 2019 þegar hann tók við starfi forstjóra. Heiðar hefur lokið prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann situr einnig í stjórn Ursus ehf., Köldukvíslar hf., Innviða fjárfestinga slhf. og HS Veitna. Heiðar á ekki eignarhlut í félaginu en Ursus ehf., sem átti 9.16% hlut í félaginu í árslok 2019, er fjárhagslega tengt Heiðari. Hann er ekki með kaupréttarsamninga við félagið. Hagsmunatengsl við viðskiptaaðila og samkeppnisaðila eru engin.

Framkvæmdastjórn Sýnar hf. 2019

Forstjóri og framkvæmdastjórar myndar framkvæmdastjórn félagsins og ber hún ábyrgð á daglegum rekstri þess og fylgni við rekstraráætlanir. Framkvæmdastjórn hittist einu sinni í viku og oftar ef þurfa þykir. Við árslok 2019 voru framkvæmdastjórar þessir, auk forstjóra félagsins:

Kjartan Briem framkvæmdastjóri tæknisviðs, Signý Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Yngvi Halldórsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Miðla og Páll Ásgrímsson, lögmaður félagsins, sem jafnframt ritar fundarðerðir.

Ársreikningur félagsins

Reikningsár Sýnar hf. er almanaksárið. Ársreikningar félagsins fyrir árin 2012 til 2019 sem og árshlutareikningar 2012 til 2019 eru aðgengilegir á vefsíðu félagsins.

Samfélagsleg ábyrgð og síðferðisleg viðmið

Sýn hf. sýnir samfélagslega ábyrgð í verki með því að sinna hlutverki sínu sem fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki af fagmennsku og ábyrgð. Það er stefna Sýnar hf. að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og samfélagið í heild með því að vinna að stöðugum umbótum í rekstri félagsins. Þannig viljum við stuðla að framþrðun fyrirtækisins og lágmarka sðun sem fellur til í starfseminni.

Meginstoðir samfélagsábyrgðar félagsins eru þrjár: Hlítni, sjálfðæri og sameiginlegt virði. Undir hlítni falla lög, reglur, staðlar og vottanir, undir sjálfðæri falla mannaður umhverfi og efnahagur og undir sameiginlegt virði falla nýsköpun, öryggi og innviðir og samskipti og fræðsla.

Sýn hf. hefur sett ákveðin markmið í umhverfis- og loftslagsmálum sem eru til þess fallin að draga úr mengun og hafa þannig jákvæð áhrif á vistspor félagsins. Félagið hefur sett fram samfélagsskýrslu sem endurspeglar ESG leiðbeiningar frá Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum sem gefnar voru út í mars 2017.

Sýn hf. skrifáði undir loftslagsýfirlysingu FESTU og Reykjavíkurborgar um markmið í loftslagsmálum í lok árs 2015 og hefur einsett sér að efla vistvænar samgöngur, draga úr myndun úrgangs og stuðla að betri orkunýtingu fram til ársins 2030. Þá hefur félagið sett sér samgöngustefnu en markmið hennar er að auðvelda starfsfólki að ferðast til og frá vinnu á hagkvæman og vistvænan máta, en jafnframt að hvetja starfsfólk til að nota sjálfðæran ferðamáta við leik og störf.

Einblint er á jafnvægi milli vinnu og einkalifs sem og öryggi og heilsu starfsmanna. Sýn hf. gætir jafnréttis starfsmanna á öllum sviðum. Í jafnréttisstefnu félagsins kemur fram að leitast er við að gæta fyllsta jafnréttis kynjanna og þess er gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað. Lögð er áhersla á að allir starfsmenn séu metnir að eigin verðleikum og umburðarlyndi sé ríkjandi þáttur í samskiptum. Stuðlað er að fjölbreytileika í starfsmannahópi til að endurspegla stóran viðskiptavinahóp félagsins, með það að markmiði að nýta sem best hæfileika hvers og eins.

Sýn hlaut í ágúst 2019 formlega jafnlaunavottun á allt félagið en úttektin var framkvæmd af BSI á Íslandi. Með vottuninni staðfestist að hjá Sýn er starfrækt jafnlaunakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Markmið jafnlaunavottunar er að vinna gegin kynbundnum launamun innan fyrirtækja og styðja við jafnrétti kynjanna á vinnustaðnum. Með innleiðingu jafnlaunastaðalsins hefur Sýn komið sér upp stjórnkerfi sem styður við faglegar launaákvarðanir, byggðar á málefnalegum sjónarmiðum sem fela ekki í sér kynbundna mismunun.

Sýn hlaut í lok árs 2018 formlega vinnuverndarvottun samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO 45001 og var á þeim tíma fyrst íslenskra fyrirtækja til að nota staðalinn til að votta stjórnskipulag vinnuverndar. Tilgangurinn með vottuninni er að tryggja að ferlar og skipulag vinnuverndar styðji við markmið Sýnar um öryggi, heilbrigði og vinnuumhverfi.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Stjórnarháttayfirlysing, frh.:

Samfélagsleg ábyrgð og siðferðisleg viðmið frh.:

Fyrirtækið fylgir í hvívétna lögum og reglum og einsetur sér að sýna starfsfólki og viðskiptavinum virðingu í öllum samskiptum. Félagið stuðlar að opnum og gagnsæjum samskiptum við alla hagsmunaaðila og stendur vörð um þær trúnaðarupplysingar sem falla til í starfseminni.

Sýn hf. tekur virkan þátt í margvíslegum samfélagsmálum með stuðningi af ýmsum toga. Fjöldi aðila leitar til félagsins eftir stuðningi eða samstarfi ár hvert og eru ákvarðanir um styrki og samstarf teknar út frá stefnu fyrirtækisins í styrktarmálum.

Siðferðissjónarmið eru kjarninn í starfsemi félagsins og eru höfð í huga við allar ákvarðanir. Félagið hefur sett sér siðareglur og voru þær gefnar út í október 2012 og síðast uppfærðar í ágúst 2016. Siðareglurnar eru birtar á vefsvæði félagsins, syn.is. Félagið stuðlar að opnum og gagnsæjum samskiptum við alla hagsmunaaðila og stendur vörð um þær trúnaðarupplysingar sem falla til í starfseminni.

Upplýsingar um brot á reglum sem viðeigandi eftirlits- og/eða úrskurðaraðili hefur ákvarðað

Neytendastofa lagði kr. 400.000,- stjórnvaldssekt á Sýn hf. vegna fullyrðinga um stærstu efnisveitu landsins í einum markpósti, sbr. ákvörðun stofnunarinnar nr. 57/2019. Ákvörðuninni hefur verið skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála. Að öðru leyti hlaut félagið ekki dóm eða stjórnvaldssekt á árinu af hálfu dómstóla eða þar til bærra eftirlitsaðila.

Helstu þættir innra eftirlits og áhættustýring félagsins

Reglulegur hluti af starfsemi félagsins er að hafa eftirlit með helstu þáttum í rekstri fyrirtækisins og tryggja þannig samfellu í rekstri og lágmörkun áhættu. Áhættustýring er samofin ábyrgð við daglegan rekstur félagsins. Uppbygging fjarskiptakerfis tekur mið af þeirri áhættu sem felst í rekstri slíkra kerfa og er sú áhætta lágmörkuð með viðeigandi ráðstöfunum, skilgreindri viðbragðsaætlun og varaleiðum. Viðtækar úttektir eru gerðar á helstu þáttum í rekstri félagsins, t.d. á ytra og innra öryggi kerfa, getu gagnaflutningsneta, upplýsingaöryggi, viðkvæmum ferlum sem og fjármálaferlum félagsins.

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á stefnumótun áhættustýringar en felur gæða- og öryggisráði að sjá um framkvæmd stefnunnar, vöktun og eftirlit með breytingum á áhættuumhverfinu. Úttektir með öryggismálum, hlítni við lög, meðferð trúnaðarupplysinga, upplýsingaöryggi og raunlægu öryggi eru í höndum gæða- og öryggisdeildar, sem upplýsir ráðið um niðurstöður úttekta. Skilgreindar hafa verið boðleiðir til að tilkynna öll frávik og ábendingar frá starfsfólki er varða öryggisbrott, öryggisrof eða það sem betur má fara. Í gæða- og öryggisráði situr öryggisstjóri, forstjóri, framkvæmdastjórar og tilnefndir forstöðumenn frá hverju sviði. Nefndin fundar að jafnaði ársfjörðungslega.

Stjórn fer a.m.k. einu sinni á starfsári yfir helstu þætti innra eftirlits og áhættustýringar félagsins og skilgreinir þá áhættupætti sem félagið þarf að takast á við. Stjórn sér einnig til þess að til staðar sé fullnægjandi kerfi innra eftirlits, sem er formlegt og skjalfest.

Félagið hefur ekki starfandi innri endurskoðanda, en ytri endurskoðendur félagsins vinna afmarkaðar úttektir á ferlum félagsins.

Hluthafar félagsins og samskipti

Félagið er hlutafélag og upplýsingar um helstu eigendur þess er að finna á vefsíðu félagsins, www.syn.is.

Sýn hf. hefur sett sér upplýsingastefnu, sem sækir stoð í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland, og var hún samþykkt af stjórn Sýnar hf. þann 18. febrnar 2015. Þar kemur m.a. fram að í kjölfarið á birtingu ársfjörðungsuppgjøra og ársuppgjørs heldur félagið upplýsingafundi fyrir fjárfesta, hluthafa, greiningaraðila og fjölmiðla. Sýn hf. svarar fyrirspurnum þessara aðila að því marki sem félaginu er heimilt þegar tekið er mið af jafnræði fjárfesta á markaði. Félagið birtir reglulega á vefsíðu sinni fréttir af starfsemi félagsins sem ekki falla undir upplýsingaskyldu þess og sendir eftir atvikum fréttatilkynningar þess efnis til fjölmiðla. Hluthafar sem vilja beina fyrirspurnum til stjórnar eða gera grein fyrir viðhorfum sínum tengdum rekstri geta sent tölvupóst á stjó[email protected] eða beint fyrirspurnum til stjórnarformanns. Skal stjórnarformaður í slíkum tilvikum annast samskipti við hluthafa f.h. stjórnar og upplýsa stjórn um slík samskipti.

Endurskoðunarnefnd fór yfir yfirlysinguna og er hún staðfest á fundi í stjórn Sýnar hf. 31. janúar 2020.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Ófjárhagslegar upplysingar

Viðskiptalíkan

Sýn hf. er alhliða fjarskipta- og fjölmiðunarfyrirtæki sem á og rekur vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM 957, X-977 og Endor ehf. Markmið félagsins er að vera leiðtogi í að skapa framtíð snjallra fjarskiptalausna og fjölmiðlunar í gegnum breiða starfsemi sterkra vörumerkja. Stefna fyrirtækisins á næstu árum mun snúast um viðskiptavininn og bjónusta við hann verður í fyrirrúmi. Markmiðið er að breyta fyrirtækinu úr því að vera með verkfræðilega nálgun (e. engineer based) yfir í viðskiptavinadrífna (e. customer driven). Sýn hf. stendur einstaklega vel gagnvart þessari þróun. Félagið er með öfluga tækniinnviði og hefur sterka samstarfssamninga við fremstu aðila á markaðnum. Pannig getur félagið takmarkað fjárfestingar og áhættu án þess að það bitni á gæðum bjónustunnar.

Mannauður

Sýn hf. hefur sambykkt starfsmannastefnu sem leggur áherslu á að starfsfólk upplífi velliðan í vinnu. Stefnan miðar að því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Einblint er á jafnvægi milli vinnu og einkalífs sem og öryggi og heilsu starfsmanna. Sýn hf. gætir jafnréttis starfsmanna á öllum sviðum. Í jafnréttisstefnu félagsins kemur fram að leitast er við að gæta fyllsta jafnréttis kynjanna og þess er gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað. Lögð er áhersla á að allir starfsmenn séu metnir að eigin verðleikum og umburðarlyndi sé ríkjandi þáttur í samskiptum. Stuðlað er að fjölbreytileika í starfsmannahópi til að endurspegla stóran viðskiptavinahóp félagsins, með það að markmiði að nýta sem best hæfileika hvers og eins.

img-0.jpeg
Kynjaskipting stjórnenda

img-1.jpeg
Kynjaskipting starfsfólks

Jafnlaunavottun

Síðastliðið sumar hlaut félagið formlega jafnlaunavottun eftir úttekt sem framkvæmd var af BSI á Íslandi. Með vottuninni staðfestist að hjá félaginu er starfrækt jafnlaunakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Með innleiðingu jafnlaunastaðalsins hefur félagið komið sér upp stjórnkerfi sem styður við faglegar launaákvarðanir, byggðar á málfñalegum sjónarmiðum sem fela ekki í sér kynbundna mismunun.

Vinnuverndarvottun

Í nóvember 2019 varð Sýn hf. fyrst íslenskra fyrirtækja til að hljóta vinnuverndarvottunina ISO 45001 samkvæmt nýrri útgáfu staðalsins. Mannauður tók þátt í vottunarferlinu ásamt fjölmörgum öðrum einingum. Fyrirtækið hlaut lof fyrir það góða starf sem unnið hefur verið í vinnuverndarmálum hingað til en einnig ábendingar um það sem betur mætti fara. Unnið var markvísst að því að bæta úr úrlausnarefnum á árinu með viðkomandi einingum fyrir næstu endurvottun sem fer fram nú í febrúar 2020. Vottunin staðfestir að félagið vinnur heilshugar að stöðugum umbótum með það fyrir augum að bæta öryggi og heilsu starfsfólks.

Vinnustaðagreining

Á árinu var framkvæmd fyrsta vinnustaðagreiningin fyrir sameinað félag og var afar ánægjulegt að sjá hversu vel hún kom út. Starfsfólk var á heildina litið stolt af vinnustaðnum, taldi þar ríkja góðan starfsanda og jafnrétti á meðal starfsfólks. Starfsánægja mældist 4,2 af 5 mögulegum sem verður að teljast ágætt, almennt hlakkar fólk til að mæta til vinnu auk þess sem að meðmælaskor starfsfólks með vinnustaðnum mældist 4,1 af 5 mögulegum.

Starfsfólk taldi álag hafa verið heldur meira en við síðustu greiningu sem framkvæmd var fyrir kaup á rekstri á 365 Miðlum. Þær niðurstöður komu ekkert sérstaklega á óvart þar sem verkefni sem fallið hafa til eftir kaupin hafa valdið álagi í flestum einingum en tallið er að stærstu verkefnin séu nú að baki.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Ófjárhagslegar upplysingar frh.:

Stefna félagsins gegn spillingu og mútum

Fyrirtækið leggur ríka áherslu á að stunda ábyrga viðskiptahætti, starfa af heilindum og sanngirni í samskiptum við starfsfólk, viðskiptavini og aðra sem tengjast fyrirtækinu á einhvern hátt. Í ljósi þess hefur fyrirtækið markað sér skýra stefnu gegn hverskyns spillingu eða mútugreiðslum. Stefna fyrirtækisins byggir á stefnu Vodafone Group um málaflokkinn og tekur til allrar starfsemi fyrirtækisins. Samkvæmt stefnunni er starfsfólki fyrirtækisins með öllu óheimilt að veita eða þiggja mútur, með beinum eða óbeinum hætti og ber að tilkynna um allt mögulegt misferli.

Umhverfisstefna Sýnar hf.

Sýn hf. hefur sett sér stefnu og ákveðin markmið í umhverfis- og loftslagsmálum sem eru til þess fallin að draga úr mengun og hafa þannig jákvæð áhrif á vistspor félagsins. Við erum staðráðin í því að vernda umhverfið og höfum einsett okkur að efla vistvænar samgöngur, draga úr myndun úrgangs og stuðla að betri orkunýtingu. Við ætlum að ganga um landið af virðingu, með umhverfisvernd að leiðarljósi. Þannig er ávallt leitast við að framkvæmdir á vegum félagsins valdi sem minnstu umhverfisraski. Við höfum sett okkur það markmið að flokka allt sorp sem fellur til í starfseminni, auka þannig endurvinnslu og draga úr ónauðsynlegri urðun á sorpi. Við leitumst við að lágmarka notkun á óendurnýjanlegum auðlindum og losun skaðlegra efna út í umhverfið eins og kostur er.

Við vinnum með viðskiptavinum, birgjum og verktökum við að þróa vörur og þjónustu til að lágmarka áhrifin sem við höfum á umhverfið.

img-2.jpeg

Markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun

17 Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun tóku gildi árið 2016 og gilda til ársins 2030. Þessi viðtæku markmið, sem ríki heims hafa komið sér saman um, stefna að því að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim. Markmiðunum er ætlað að vera ákveðinn leiðarvísir fyrir samfélög og fyrirtæki um hvar áherslurnar ættu að liggja þegar lítið er til velmegunnar og mannréttinda.

Heimsmarkmiðin eru samþætt og órjúfanleg og myndu jafnvægi milli briggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu.

Hér má sjá hvernig Sýn hf. tengir starfsemi sína við nokkur Heimsmarkmið.

img-3.jpeg
3 HEILSA OG VELLÍBAN

img-4.jpeg

img-5.jpeg

img-6.jpeg

Vinnuvernd.
Samgöngustyrkir.
Íþróttastyrkir.
Búningsaðstaða.
Núvítundarrými.
Góð hjólageymsla.
Heilsustefna
í mötuneti.
BESTA
vinnuumhverfið.
Heilsuleikar Sýnar.
Samstarf við Kara
Connect.

S JAFNRÉTTI KYNJANNA

img-7.jpeg

Jafnlaunavottun.
Jafnréttisstefna.
Stefna Sýnar að
auka hlut kvenna í
fjölmiðlum

Þingöngu er notast
við endurnýjanlega
orku í
skrifstofuhúsnæði
Sýnar.
Notast er eingöngu
við græna og
sjálfbæra orka í
Gagnaverinu (DC)
okkar sem skilur
eftir sig lítið sem
ekkert kolefnisspor.

Áhersla á góðan
rekstur.
Sýn hf. er fyrir-
myndarfyrirtæki.
Yfir 500 starfsmenn.

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019


Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:

Umhverfisstefna Sýnar hf. frh.:

img-8.jpeg
3 NÝSKÖPUN OG UPPBYGGING

img-9.jpeg
11 SJÁLFBERAR BORGIR OG SAMFÉLÖG

img-10.jpeg
13 ADGERBIR I LOFTSLAGSMÁLUM

img-11.jpeg
16 FRÌBUR OG RĒTTLÆTI

Samstarf við
viðskiptavini við
þróun á võru og
þjónustu.

Samstarf við
háskóla í þróun og
kennslu.

Þáttaka í þróun
nýsköpunar-
fyrirtækja.

Þróun á nýrri
götuljósastýringu.

Snjallari sorphirða.

Snjallir vatns- og
rafmagnsmælar.

Samgöngu-
samningar við
starfsmenn.

Styðjum við betra
upplýsingaflæði
fyrir sjálfbæran
rekstur.

Áherlsa á
umhverfisvænar
lausnir.

Kolefnisjöfnun í
rekstri.

Mannauðsstefna.
Jafnréttisstefna.
Síðareglur.

Stefna gegn einelti
og áreitni.

Stefna gegn
peningapvætti og
mútum.

Vottun í
upplýsingaöryggi.

Reglur um vernd
persónuupplýsinga.

Ítarlegri upplýsingar, markmið og áreiðanleikaferli vegna ófjárhagslegra upplýsinga er að finna í ársskýrslu Sýnar hf. vegna 2019

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
45


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist bannig á ársfjórðunga

2019 1F 2019 2F 2019 3F 2019 4F Samtals
Seldar vörur og bjónusta 4.975 5.023 4.878 4.935 19.811
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu (3.068) (3.290) (3.133) (3.098) (12.589)
Framlegð 1.907 1.733 1.745 1.837 7.222
Rekstrarkostnaður (1.822) (1.769) (1.559) (1.570) (6.720)
Virðisrýrnun - - - (2.452) (2.452)
Rekstrarhagnaður 85 (36) 186 (2.185) (1.950)
Fjármunatekjur 13 14 11 17 55
Fjármagnsgjöld (271) (271) (337) (171) (1.050)
Hrein fjármagnsgjöld (258) (257) (326) (153) (995)
Áhrif hlutdeildarfélaga 820 8 16 119 963
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt 647 (285) (124) (2.220) (1.982)
Tekjuskattur 23 70 22 119 234
Hagnaður (tap) tímabilsins 670 (215) (102) (2.101) (1.748)
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturf. (55) (22) (21) (5) (103)
Áhættuvarnir 11 (36) 136 0 0
Heildarafkoma tímabilsins 626 (273) 13 (2.106) (1.851)
EBITDA 1.260 1.216 1.623 1.409 5.509
EBITDA % 13,5% 13,2% 18,9% 28,6% 27,8%
Handbært fé frá rekstri 819 1.261 1.344 1.953 5.377
Fjárfestingarhreyfingar (1.027) (799) (1.227) (1.666) (4.719)
Fjármögnunarhreyfingar (48) (184) (368) 220 (380)

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist bannig á ársfjórðunga

| | 2018
1F | 2018
2F | 2018
3F | 2018
4F | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5.030 | 5.157 | 5.143 | 5.424 | 20.754 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | (3.005) | (3.158) | (3.112) | (3.441) | (12.716) |
| Framlegð | 2.025 | 1.999 | 2.031 | 1.983 | 8.038 |
| Rekstrarkostnaður | (1.821) | (1.810) | (1.557) | (1.682) | (6.871) |
| Rekstrarhagnaður | 204 | 189 | 474 | 301 | 1.167 |
| Fjármunatekjur | 10 | 16 | 10 | 13 | 49 |
| Fjármagnsgjöld | (144) | (206) | (220) | (181) | (751) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (134) | (190) | (210) | (168) | (702) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | (4) | (8) | (2) | (13) | (27) |
| Tekjuskattur | (15) | 1 | (55) | 73 | 5 |
| Hagnaður (tap) af áframhaldandi starfsemi | 51 | (8) | 207 | 193 | 443 |
| Hagnaður tímabilsins af aflagðri starfsemi | 5 | 5 | 19 | 1 | 30 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 56 | (3) | 226 | 194 | 473 |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturf. | (21) | 13 | 28 | 26 | 46 |
| Áhættuvarnir | 37 | (8) | (1) | 30 | 58 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 72 | 2 | 253 | 250 | 577 |
| EBITDA | 1.230 | 1.321 | 1.619 | 1.449 | 5.619 |
| EBITDA % | 22,9% | 22,5% | 24,8% | 26,7% | 27,1% |
| Handbært fé frá rekstri | 1.198 | 947 | 1.185 | 1.358 | 4.688 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (1.285) | (1.412) | (1.184) | (1.215) | (5.096) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (4) | 576 | (45) | (93) | 434 |

Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2019
Fjárhæðir eru í millj. kr.