Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn AGM Information 2022

Feb 24, 2022

2210_rns_2022-02-24_baf1aab1-c9e2-4c1d-82e3-2a661ec48560.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn föstudaginn 18. mars 2022 kl. 15:00. Fundurinn verður rafrænn og honum streymt frá Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík, en hluthafar sem það kjósa eru jafnframt velkomnir á fundarstað.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2021
  4. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum
  5. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins, sem felur í sér:
    i) Að lækka hlutafé félagsins vegna kaupa á eigin hlutum
    ii) Að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við samþykktrnar.
  6. Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta.
  7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
  8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár.
  9. Kosning stjórnar félagsins.
  10. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar.
  11. Kosning endurskoðenda félagsins.
  12. Önnur mál löglega upp borin.

O vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

X

X

C2 restricted - External permitted

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Tillögur stjórnar til aðalfundar Sýnar hf. árið 2022

I. Dagskrárliður 2. - Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar

Tillaga: Fyrirliggjandi ársreikningur fyrir árið 2021 verði staðfestur

II. Dagskrárliður 3. - Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2021

Tillaga: „Stjórn leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur út arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2021, en vísar að öðru leyti til ársreiknings um ráðstöfun á hagnaði ársins og breytingu á eigin fé.“

Greinargerð: Í ljósi endurkaupa á eigin hlutum og tillögu um lækkun hlutafjár, sem og arðgreiðslustefnu félagsins, leggur stjórn til að ekki verði greiddur arður vegna rekstrarársins 2021.

III. Dagskrárliður 4. - Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum

Tillaga: „Aðalfundur Sýnar hf. haldinn 18. mars 2022 samþykkir að hlutafé félagsins verði lækkað um kr. xxxx að nafnvirði, einvörðungu til lækkunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/2995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. xxxx að nafnvirði í kr. xxxx að nafnvirði.“¹

Greinargerð: Á aðalfundi Sýnar hf. þann 19. mars 2021 var samþykkt heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa eigin hluti. Samkvæmt heimildinni gátu endurkaupin numið allt að 10% af útfgefnu hlutafé félagsins. Á grundvelli heimildarinnar samþykkti stjórn félagsins að hefja endurkaup á eigin hlutum félagsins fyrir allt að 9,9% af útistandandi hlutum, eða 2 milljörðum króna að kaupvirði. Endurkaupin hófust með öfugu tilboðs fyrirkomulagi sem fram fór dagana 7.-9. janúar 2022. Í lok endurkaupa skv. tilboðsfyrirkomulagi átti Sýn hf. 20.750.000 hluti, eða sem nam um 7% af útgefnu hlutafé félagsins. Í kjölfarið ákvæða stjórn Sýnar að halda áfram endurkaupum eigin hluta á grundvelli endurkaupaáætlunar. Endurkaupaáætluninni lauk þann 3. mars 2022 og í lok hennar átti félagið samtals kr. xxxxxx að nafnvirði eða sem nemur x% af útgefnu hlutafé félagsins.

Tilgangur endurkaupanna var að lækka hlutafé félagsins og á þeim grundvelli leggur stjórn félagsins fram tillögu um að lækka hlutaféð um þá eigin hluti sem keyptir voru. Mun niðurfærslan ekki hafa áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs. Lækkunin

¹ Fjárhæð lækkunar mun liggja fyrir við lok endurkaupa og birtast í endanlegum tillögum stjórnar þann 4. mars 2020

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

X

X

C2 restricted - External permitted

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

verður framkvæmd eftir að lögboðin skilyrði fyrir henni hafa verið uppfyllt, svo sem að fyrir liggi heimild fyrirtækjaskrár RSK.

IV. Dagskrárliður 5. – Breytingar á samþykktum félagsins:

i) Að lækka hlutaféð vegna kaupa á eigin hlutum

Tillaga: Verði tillaga samkvæmt dagskrárlið 4 um lækkun hlutafjár samþykkt leggur stjórn til eftirfarandi breytingar á 1. mgr. 4. gr. samþykktá félagsins til samræmis, þannig að málsgreinin verði eftirleiðis svohljóðandi:

„Hlutafé félagsins er kr. xxxx, tveirmilljaðar...“²

Greinargerð: Tillagan þarfnast ekki frekari skýringa, en henni er ætlað að stuðla að betri fjármagnsskipan skv. ákvörðun stjórnar.

ii) Að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við samþykktirnar

Tillaga: „Aðalfundur Sýnar hf. haldinn 18. mars 2022 samþykkir að veita stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, til að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu, setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Viðskipti félagsins með eigin hluti skulu tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. Heimild þessi gildir í 18 mánuði frá samþykkt hennar. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.“

Greinargerð: Heimild þessi um kaup á eigin hlutum er hliðstæð heimild frá síðasta aðalfundi, þó þannig að ákvæðið er gert skýrara um heimild til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum. Í samræmi við 30. gr. samþykktá félagsins verður heimildarinnar getið í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins, fáist hún samþykkt, sem kemur í stað viðauka sama efnis í gildandi samþykktum.

² Nafnvirði hlutafjár mun liggja fyrir við lok endurkaupa og birtast í endanlegum tillögum stjórnar þann 4. mars 2020

vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

V. Dagskrárliður 6. - Tillaga um stefnu um aðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta

Tillaga: „Sýn hf. stefnir að því að greiða hluthöfum árlega arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni.

Við mótun tillagna um aðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til:

  • markmiða fjárstýringarstefnu félagsins
  • markaðsaðstæðna
  • fjárfestingarparfar félagsins“

Greinargerð:

Tillagan er efnislega samhljóða tillögu að aðgreiðslustefnu, sem samþykkt var á síðasta aðalfundi félagsins og þarfnast ekki skýringa.

VI. Dagskrárliður 7. - Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.

Tillaga: „Stjórn leggur til óbreytta starfskjarastefnu frá síðasta aðalfundi.“

Greinargerð: Á undangengnum árum hefur aðalfundur reglulega gert breytingar á starfskjarstefnu félagsins. Stjórn telur að pær breytingar hafi gefist vel og sér ekki ástæðu til að gera frekari breytingar á stefnunni að þessu sinni. Stefnan í heild sinni er meðal gagna fundarins.

VII. Dagskrárliður 9. – Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna

Tillaga: „Stjórn leggur til við aðalfund að stjórnarlaun komandi starfsárs verði sem hér segir:

a) Stjórnarformaður fái kr. 625.000 á mánuði.
b) Varaformaður fái kr. 470.000 á mánuði
c) Aðrir stjórnarmenn fái kr. 310.000 á mánuði.
d) Varastjórnarmenn fái kr. 125.000 fyrir hvern setinn fund.
e) Formenn undirnefnda fái kr. 125.000 á mánuði.
f) Aðrir nefndarmenn undirnefnda fái kr. 65.000. á mánuði, sbr. þó g. liður.

vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
X


C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

g) Kosnir meðlimir tilnefningarnefndar, sem og aðrir utanaðkomandi ráðgjafar undirnefnda, fái greitt á grundvelli samþykkt's tilboðs. Greiðslur til endurskoðenda skulu jafnframt vera samkvæmt samþykktu tilboði."

Greinargerð:

Lagt er til að stjórnarlaun og laun nefndarmanna undirnefnda hækki lítillega til samræmis við launa-og verðlagsþróun. Þá er lagt til að greiðslur til kjörinna meðlima tilnefningarnefndar, utanaðkomandi ráðgjafa og endurskoðenda verði samkvæmt samþykktu tilboði.

VIII. Dagskrárliður 11. – Kosning endurskoðenda félagsins

Tillaga: „Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að Deloitte ehf. verði endurskoðunarfélag Sýnar hf."

vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
360
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is