Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn AGM Information 2022

Mar 14, 2022

2210_rns_2022-03-14_a9541edf-90f7-4b24-b8f5-3768b340d91b.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Viðauki við skýrslu tilnefningarnefndar Sýnar 2022

Samantekt

Tilnefningarnefnd Sýnar studdist í aðdraganda aðalfundar félagsins árið 2022 við matsþætti sem lagðir voru til grundvallar starfi nefndarinnar árið 2020. Þá var tekin sú ákvörðun að skerpa á þeim þáttum í matinu sem snúa að hagsmunatengslum og þeim sem meta stjórn sem teymi. Enn fremur var stuðst við endurskoðað framboðsform, sem þeir sem sækjast eftir tilnefningu í stjórn Sýnar fylla út. Það form var jafnframt samþykkt árið 2020. Í mati þessu felst ítarleg skoðun á þekkingu, reynslu og hæfi viðkomandi einstaklings áður en tillaga er gerð að viðkomandi til setu í stjórn. Hlutlægir þættir eru metnir, eins og til dæmis bein reynsla af stjórnun, stefnumótun, fjármálum- og markaðsmálum. Enn fremur eru huglægir þættir eins og persónulegir eiginleikar, viðhorf og gildi metnir. Áherslur tilnefningarnefndarinnar út frá framtíðarsýn og markmiðum Sýnar eru að mörgu leyti þær sömu og seinustu tvö ár. Áhersla er á markaðssetningu, sölu og þjónustu ásamt innleiðingu veflausna sem nýta stafræna tækni og jákvæða upplifun viðskiptavina.

Starfsemi tilnefningarnefndar

Tilnefningarnefnd Sýnar lauk hefðbundum störfum þann 23. febrúar 2022. Skýrsla nefndarinnar var birt með auglýsingu um aðalfund félagsins þann 24. febrúar 2022.

Þann 10. mars 2022 barst nefndarmönnum tilkynning þess efnis að einn tilnefndra aðila yrði ekki í framboði til stjórnarsetu.

Tilnefningarnefnd hóf þá aftur vinnu við tillögugerð að stjórn Sýnar. Nefnarmenn fóru yfir áður framkomin framboð/tillögur að stjórnarmönnum sem og kynntu sér framboð aðila sem sent hafði inn gögn eftir að vinnu tilnefningarnefndar lauk þann 24. febrúar. Nefndarmenn tilnefningarnefndar áttu fundi með tveimur aðilum vegna þessa. Í framhaldi skilaði tilnefningarnefnd af sér neðangreindri tillögu.

Nefndin leggur til að þau Hjörleifur Pálsson, Jóhann Hjartarson, Páll Gíslason, Petrea Ingileif Guðmundsdóttir og Sesselía Birgisdóttir verði kjörin til setu í aðalstjórn Sýnar og að Óli Rúnar Jónsson og Salóme Guðmundsdóttir verði kjörin til setu í varastjórn.

Það er mat tilnefningarnefndar að fyrir bestu samsetningu stjórnar Sýnar sé lykilhæfni, reynslu og þekkingu helst að finna í þessum hópi frambjóðenda. Stjórnin uppfyllir kröfur um kynjahlutföll.

Jóhann Hjartarson er fæddur árið 1963. Jóhann hefur verið yfirlögfræðingur Íslenskrar erfðagreiningar ehf. frá árinu 1998 og er einnig stjórnarformaður fyrirtækisins. Þá situr hann í stjórn Þjónustumiðstöðvar rannsóknarverkefna. Jóhann lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 1992 og öðlaðist lögmannsréttindi 1998. Hann er með diplóma í alþjóðlegum hugverka- og einkaleyfarétti frá University of Washington School of Law og öðlaðist réttindi til málareksturs hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (e. European Patent Attorney) 2006. Jóhann sat í stjórn N1 sem stjórnarformaður árin 2011 til 2012, HB Granda hf. (nú Brim hf.) árin 2011 til 2014 og Landsbankans hf. árin 2014 til 2016. Jóhann er stórmeistari í skák og var atvinnumaður í skák og kennari við Skákskóla Íslands á árunum 1985 til 1997.


Jóhann á 240.000 hluti í Sýn hf. Það er mat tilnefningarnefndar, út frá leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands um góða stjórnarhætti, að Jóhann Hjartarson sé óháður félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum í félaginu.

Tillaga tilnefningarnefndar

Tilnefningarnefnd um stjórn Sýnar leggur til að eftirtaldir frambjóðendur, í stafrófsröð, verði kosnir í stjórn félagsins á aðalfundi félagsins 18. mars 2022:

  • Hjörleifur Pálsson
  • Jóhann Hjartarson
  • Páll Gíslason
  • Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
  • Sesselía Birgisdóttir

Tilnefningarnefnd um stjórn Sýnar leggur til að eftirtaldir frambjóðendur, í stafrófsröð, verði kosnir í varastjórn félagsins á aðalfundi félagsins 18. mars 2022:

  • Óli Rúnar Jónsson
  • Salóme Guðmundsdóttir

Reykjavík, 13. mars 2022

Ragnheiður S. Dagsdóttir
Þröstur Olaf Sigurjónsson
Hjörleifur Pálsson