Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn AGM Information 2021

Mar 19, 2021

2210_rns_2021-03-19_e66dfbea-b1e3-4caf-9ce9-bec3605198a0.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

A

Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2021

Á aðalfundi Sýnar hf., sem fram fór þann 19. mars 2021, voru eftirfarandi tillögur samþykktar auk þess sem ný stjórn var sjálfkjörin:

I. Tillögur sem samþykktar voru á aðalfundinum:

  1. Ársreikningur samstæðu og móðurfélags fyrir liðið starfsár var kynntur og staðfestur

  2. Tillaga um ráðstöfun afkomu félagsins vegna reikningsársins 2020

Stjórn lagði til við aðalfund að ekki yrði greiddur út arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2020, en vísaði að öðru leyti til ársreiknings hvað varðar ráðstöfun á afkomu ársins og breytingu á eigin fé.

  1. Eftirfarandi tillögur um breytingar á samþykktum voru samþykktar

a. Að stjórn hafi skýrari heimild til að boða til rafrænna hluthafafunda

b. Að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við samþykktirnar.

  1. Tillaga um arðgreiðslustefnu o.fl.

Sýn hf. stefnir að því að greiða hluthöfum árlega arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni.

Við mótun tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til:

  • markmiða fjárstýringarstefnu félagsins
  • markaðsaðstæðna
  • fjárfestingarþarfar félagsins

  • Tillaga um starfskjarastefnu félagsins

Stjórn lagði til óbreytta starfskjarastefnu frá fyrra ári og var hún samþykkt.

  1. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár

Stjórn lagði til við aðalfund að stjórnarlaun komandi starfsárs yrðu sem hér segir og var tillagan samþykkt:

a) Stjórnarformaður fái kr. 600.000 á mánuði.

b) Varaformaður fái kr. 450.000 á mánuði

c) Aðrir stjórnarmenn fái kr. 300.000 á mánuði.

d) Varastjórnarmenn fái kr. 120.000 fyrir hvern setinn fund.

O vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2021

X

C2 restricted - External permitted

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

e) Formenn undirnefnda fái kr. 120.000 á mánuði.
f) Aðrir nefndarmenn undirnefnda fái kr. 60.000. á mánuði, sbr. þó g. liður.
g) Kosnir meðlimir tilnefningarnefndar, sem og aðrir utanaðkomandi ráðgjafar undirnefnda, fái greitt á grundvelli samþykkt's tilboðs. Greiðslur til endurskoðenda skulu jafnframt vera samkvæmt samþykktu tilboði."

  1. Kosning endurskoðunarfélags Sýnar hf.

Svofelld tillaga var samþykkt:
„Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að Deloitte ehf. verði endurskoðunarfélag Sýnar hf.“

II. Stjórn félagsins

Eins og áður hafði verið tilkynnt var sjálfkjörrið í aðal- og varastjórn félagsins.

Aðalstjórn félagsins skipa:
* Hjörleifur Pálsson
* Páll Gíslason
* Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
* Sigríður Vala Halldórsdóttir
* Tanya Zharov

Varastjórn félagsins skipa:
* Óli Rúnar Jónsson
* Þyrí Dröfn Konráðsdóttir

Einnig var sjálfkjörrið í sæti tveggja að þremur nefndarmönnum tilnefningarnefndar, sem kjörnir eru á aðalfundi.

Þessi tveir nefndarmenn eru:
* Ragnheiður S. Dagsdóttir
* Þröstur Olaf Sigurjónsson

Að aðalfundi loknum kom stjórn saman og skipti með sér verkum. Formaður stjórnar er Hjörleifur Pálsson og varaformaður stjórnar er Tanya Zharov.

O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2010
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is