Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn AGM Information 2020

Mar 16, 2020

2210_rns_2020-03-16_5d33f137-5bf7-4b45-b744-2d94db6a9eee.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.: Framkomin framboð – breytt tillaga að starfskjarastefnu – fyrirkomulag aðalfundar

Sýn hf.: Framkomin framboð – breytt tillaga að starfskjarastefnu – fyrirkomulag aðalfundar

Eftirtalin gefa kost á sér til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar Sýnar á aðalfundi, sem haldinn verður föstudaginn 20. mars 2020 kl. 10:00.

Framboð til aðalstjórnar:

*  Hjörleifur Pálsson

*  Tanya Zharov

*  Sigríður Vala Halldórsdóttir

*  Petrea Ingileif Guðmundsdóttir

*  Hilmar Þór Kristinsson

Framboð til varastjórnar:

*  Óli Rúnar Jónsson

*  Þyri Dröfn Konráðsdóttir

Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Sýnar hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Verður því sjálfkjörið í báðum tilvikum.

Framboð til tilnefningarnefndar:

Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.

Framboð til tilnefningarnefndar:

*  Ragnheiður S. Dagsdóttir

*  Þröstur Olaf Sigurjónsson

Þar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru af aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.

Breytt tillaga að starfskjarastefnu:

Í viðhengi er að finna endanlegar tillögur stjórnar, sem og tillögu að starfskjarastefnu.  Vakin er athygli á að lagt er til að 4. gr. starfskjarastefnunnar verði breytt á þann veg að árangurstengdar greiðslur geti að hámarki numið fjögurra mánaða grunnlaunum hlutaðeigandi stjórnanda eða lykilstarfsmanns.

Fyrirkomulag aðalfundar:

Fundurinn verður aðalstöðvum félagsins, að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík. Öllum tilmælum Landlæknis um fundarhald verður að sjálfsögu fylgt. Fundinum verður jafnframt streymt. Ekki er unnt að bjóða upp á möguleika á rafrænni þáttöku í fundinum, en hluthafar geta veitt umboð til umboðsmanns um þátttöku á fundinum með fyrirmælum um hvernig atkvæði skuli greidd um þær tillögur sem til afgreiðslu eru. Óskir um útgáfu umboðs og skipan umboðsmanns skal beint til netfangsins [email protected]

Viðhengi: