Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Share Issue/Capital Change 2020

May 12, 2020

2203_rns_2020-05-12_1268d884-61d6-44c6-b839-5f766b219c38.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf. – Lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum samkvæmt ákvörðun aðalfundar

Síminn hf. – Lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum samkvæmt ákvörðun aðalfundar

Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars 2020 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins til jöfnunar á eigin hlutum. Lækkunin nemur kr. 500.000.000 að nafnverði, eða sem nemur jafn mörgum hlutum. Eftir lækkunina er hlutafé félagsins kr. 8.750.000.000, sem skiptist í jafn marga hluti, hvern að nafnverði ein króna og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Lækkunin hefur ekki áhrif á hlutafé annarra hluthafa Símans hf.

Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.  

Lögmæt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin verið skráð í hlutafélagaskrá.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi [email protected]