AI assistant
Síminn — Report Publication Announcement 2025
Feb 11, 2025
2203_fs_2025-02-11_4d6a4d93-93e5-4404-aaae-fed79c9b8386.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Disclosure 454684
Síminn hf. - Fjárhagsdagatal
Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2024 verður birt eftir lokun markaðar 18. febrúar 2025
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2024 þann 18. febrúar næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar 2025 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi [email protected].
