AI assistant
Síminn — Report Publication Announcement 2023
Feb 7, 2023
2203_rns_2023-02-07_55f3d473-7578-49dd-a6a3-09ced9ed1415.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2022 verður birt eftir lokun markaðar 14. febrúar 2023
Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2022 verður birt eftir lokun markaðar 14. febrúar 2023
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2022 þann 14. febrúar næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar 2023 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: www.siminn.is/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi [email protected].
