AI assistant
Síminn — Report Publication Announcement 2022
Feb 8, 2022
2203_rns_2022-02-08_d0858885-165d-400b-8470-4afe87413257.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2021 verður birt eftir lokun markaðar 15. febrúar 2022
Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2021 verður birt eftir lokun markaðar 15. febrúar 2022
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2021 þann 15. febrúar næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 16. febrúar 2022 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: www.siminn.is/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi [email protected].
