AI assistant
Síminn — Report Publication Announcement 2018
Apr 9, 2018
2203_rns_2018-04-09_129fb08e-f331-43f8-97ab-fbd675de5d4c.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2018 verður birt eftir lokun markaðar 24. apríl 2018
Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2018 verður birt eftir lokun markaðar 24. apríl 2018
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 eftir lokun markaðar þann 24. apríl næstkomandi. Vakin er athygli á því að uppgjörið verður birt tveimur dögum fyrr en áætlað var samkvæmt uppgjörsdagatali sem birt var í fréttakerfi Kauphallar þann 21. desember 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl 2018 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8151236/player
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi [email protected]