AI assistant
Síminn — Report Publication Announcement 2018
Aug 15, 2018
2203_rns_2018-08-15_6940c1a5-c0b7-441e-894e-805cbf16fb92.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2018 verður birt eftir lokun markaðar 28. ágúst 2018
Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2018 verður birt eftir lokun markaðar 28. ágúst 2018
*Kynningarfundur verður haldinn 29. ágúst kl. 8:30*
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2018 eftir lokun markaðar þann 28. ágúst næstkomandi. Vakin er athygli á því að uppgjörið verður birt tveimur viðskiptadögum fyrr en áætlað var samkvæmt uppgjörsdagatali sem birt var í fréttakerfi Kauphallar þann 21. desember 2017.
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 29. ágúst 2018 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8330642/player