Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Remuneration Information 2016

Mar 7, 2016

2203_rns_2016-03-07_9ec5b52b-da6d-45ae-af53-fcc6093d9a77.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn®

Starfskjarastefna

2016

1. gr. Markmið

Stefna stjórnar Símans hf. um starfskjör forstjóra, stjórnenda og stjórnarmanna hefur það að markmiði að laða að hæfa stjórnendur sem hafa hagsmuni fyrirtækisins að leiðarljósi og styðja við rekstrar- og árangursmarkmið félagsins til langs tíma. Markmið starfskjarastefnu þessarar er að gera starf hjá Símanum hf. að eftirsóknarverðum kosti fyrir starfsfólk og þar með tryggja félaginu stöðu í fremstu röð á Íslandi. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að stjórn félagsins sé kleift að bjóða samkeppnishæf laun og aðrar greiðslur í takt við það sem tíðkast hjá sambærilegum fyrirtækjum og að ákveðið samræmi sé í starfskjörum æðstu stjórnenda og annarra starfsmanna félagsins.

2. gr. Starfskjör stjórnarmanna

Stjórnarmönnum skal greidd föst mánaðarleg þóknun í samræmi við ákvörðun aðalfundar ár hvert, svo sem kveðið er á um í 79. gr. laga um hlutafélög. Gerir stjórninn tillögu um þóknunina fyrir komandi starfsár og skal í þeim efnum taka mið af þeim tíma sem stjórnarmenn verja til starfans, þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir, og afkomu félagsins. Stjórnarmenn skulu fá fasta þóknun fyrir setu í undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun ákveðin af aðalfundi félagsins.

3. gr. Starfskjör forstjóra

Gera skal skriflega(n) ráðningarsamning(a) við forstjóra. Kjör hans/þeirra skulu ávallt vera samkeppnishæf. Fjárhæð grunnlauna og annarra greiðslna til forstjóra skal taka mið af menntun, reynslu, fyrri störfum, ábyrgð og umfangi starfsins. Tilgreina skal önnur starfskjör í ráðningarsamningnum, svo sem greiðslur í lífeyrissjóð, orlof, hlunnindi og uppsagnarfrest. Heimilt er að semja við forstjóra um upphafsgreiðslu vegna ráðningar hans/þeirra að félaginu. Stjórn er jafnframt heimilt að umbuna forstjóra til viðbótar grunnlaunum, sbr. 4. gr. Við gerð ráðningarsamnings við forstjóra skal haft að leiðarljósi að ekki komi til frekari greiðslna við starfslok en fram koma í ráðningarsamningi. Heimilt er þó við sérstök skilyrði að mati stjórnar að gera sérstakan starfslokasamning við starfslok forstjóra.

4. gr. Umbun til æðstu stjórnenda og starfsmanna

Stjórninn hefur tilnefnt sérstaka starfskjarafnd til ráðgjafar fyrir stjórn varðandi starfskjör æðstu stjórnenda og fyrirkomulag á hvatingakerfi og hlutabréfvalréttarkerfum. Starfskjarafndin upplýsir stjórnina reglulega um störf sín og gerir þær tillögur sem hún telur nauðsynlegar eða viðeigandi.

Forstjóra er heimilt að leggja fram tillögu fyrir stjórn félagsins og starfskjarafnd um að umbuna æðstu stjórnendum til viðbótar grunnlaunum í forma árangurstengdra starfskjara eða annars konar umbunar sem tengd er þróun verðs á hlutabréfum í félaginu og styðja við rekstrar- og árangursmarkmið félagsins til langs tíma. Við ákvörðun um hvort veita skuli æðstu stjórnendum umbun til viðbótar grunnlaunum skal taka mið af stöðu, ábyrgð, frammistöðu og framtíðarmöguleikum viðkomandi stjórnanda innan félagsins.

Helstu skilmálar árangurstengdra greiðslna í forma hlutabréfa, kaup- og sóluréttar, forkaupsréttar og annars konar greiðslna sem tengdar eru hlutabréfum í félaginu eða þróun verðs á hlutabréfum í félaginu, skulu lögð fyrir hlutha-fafund til samþykktar.


Stjórn félagsins skal vera heimilt að gera kaupréttaráætlun sem byggir á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og gera kaupréttarsamning við starfsmenn félagsins og dótturfélaga, að Milu ehf. undanskilinni, um kaup á hlutafé í Símanum hf. enda hefur hluthafafundur félagsins samþykkt slíka áætlun og veitt heimild til að gefa út nýtt hlutafé til að uppfylla skyldur sem félagið kann að takast á hendur með gerð slíkra kaupréttarsamninga.

5. gr. Samþykkt starfskjarastefnu og fleira

Starfskjarastefna félagsins skal tekin til afgreiðslu á aðalfundi og skal hún tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund til samþykktar eða synjunar. Er starfskjarastefnan bindandi fyrir stjórn félagsins að því er varðar ákvæði um kaupréttarsamninga og hvers konar samninga eða greiðslur er fylgja þróun verðs á hlutabréfum í félaginu, sbr. 2. mgr. 79. gr. a. hlutafélagalaga. Að öðru leyti er starfskjarastefnan leiðbeinandi fyrir félagið og stjórn þess. Stjórn félagsins skal færa til bókar í fundargerðarbók frávik frá starfskjarastefnunni og skulu þau frávik studd greinargóðum rökum. Gera skal grein fyrir frávikum á næsta aðalfundi félagsins.