Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Regulatory Filings 2022

Nov 17, 2022

2203_rns_2022-11-17_94fb571d-e2a4-4cc2-b3fc-f8846f01f975.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf. - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt

Síminn hf. - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt

Síminn hf. hefur gert nýjan samning við Arion banka um viðskiptavakt. Arion Banki mun dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsvirði skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkustum og gagnsæjustum hætti.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 1.500.000 bréf að nafnvirði á gengi sem Arion banki ákveður. Slíkt tilboð skal þó ekki vera með meira en 3% fráviki frá síðasta viðskiptaverði hlutanna á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki lægra en 1,45%. Þó skal Arion banka vera heimilt að setja fram kaup- og sölutilboð með lægra verðbili en að framan greinir, t.d. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Eigi Arion banki innan sama viðskiptadags viðskipti með hluti útgefanda, sem fram fara um veltubók Arion banka (markaðsvakt bankans), sem nema samtals 100.000.000 kr. að markaðsvirði, falla niður framangreindar skyldur Arion banka um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting á hlutabréfum útgefanda innan viðskiptadags er umfram 10% er Arion banka heimilt að auka hámarksverðbil í 3,0%.

Samningurinn gildir frá og með 17. nóvember 2022 og er ótímabundinn en samningsaðilum er heimilt að segja honum upp með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Hauksson fjármálastjóri Símans, [email protected].