Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Regulatory Filings 2021

Sep 1, 2021

2203_rns_2021-09-01_7b93f2e5-dbed-4875-adff-f1c38dca8355.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf. – Breytingar á samningum um viðskiptavakt

Síminn hf. – Breytingar á samningum um viðskiptavakt

Breytingar hafa verið gerðar á samningum við Arion banka og Íslandsbanka um viðskiptavakt með hluti í Símanum hf. Breytingarnar eru til komnar vegna innleiðingar á MiFID II og taka gildi í dag, 1. september 2021.

Verðbil kaup– og sölutilboða er nú ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið m.a. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Á sama tíma voru einnig gerðar tvær breytingar á samningi við Íslandsbanka. Fyrri breytingin snýr að fjárhæð kaup- og sölutilboða, sem framvegis verður að lágmarki 1.500.000 krónur að nafnverði í stað 2.500.000 kr. Seinni breytingin snýr að því að Íslandsbanka er heimilt að tvöfalda hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 5,0%. Í eldri samningi var miðað við 10,0%. Að öðru leyti eru samningar um viðskiptavakt óbreyttir.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Hauksson fjármálastjóri Símans, [email protected].