Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Regulatory Filings 2019

Dec 19, 2019

2203_rns_2019-12-19_f2242117-a7a9-4fea-8533-f51735a22db3.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf., Sýn hf. og Nova hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um viðræður um möguleika á samnýtingu og samstarfi við uppbyggingu fjarskiptainnviða.

Síminn hf., Sýn hf. og Nova hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um viðræður um möguleika á samnýtingu og samstarfi við uppbyggingu fjarskiptainnviða.

Markmið viðræðna aðila er að kanna möguleika á því að vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagins, draga úr umhverfisraski og auka almannaöryggi með því að eiga með sér samstarf um uppbyggingu fjarskiptainnviða.

Með viðræðunum vilja aðilar kanna möguleika á því að fyrirtækin geti byggt undir markmið Alþingis sem koma fram í stefnu Alþingis í fjarskiptum fyrir árin 2019-2033 um aðgengi að fjarskiptum, öryggi fjarskipta, hagkvæmni og skilvirkni fjarskipta sem og að draga úr umhverfisáhrifum fjarskipta.

Mikilvægi fjarskipta í tengslum við náttúrúhamfarir kom bersýnilega í ljós í óveðri sem nýverið gekk yfir landið þar sem fjarskiptafyrirtækin geta unnið að því samfélagslega markmiði að tryggja eftir fremsta megni uppitíma fjarskipta þegar mikið liggur við, að því marki sem það er í þeirra höndum.

Viðræðurnar munu taka mið af fyrirhuguðum breytingum á fjarskiptalögum vegna innleiðingar á regluverki vegna samstarfs Íslands á vettvangi Evrópska Efnahagssvæðisins en þar er í auknum mæli hvatt til samreksturs, samfjárfestinga og samnýtingar fjarskiptainnviða.

Viljayfirlýsingin felur ekki í sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir fyrirtækin og hafa ekki áhrif á rekstur eða afkomu þeirra. Fyrirhugaðar viðræðurnar eru samhliða tilkynntar Samkeppniseftirlitinu og  háðar samþykki þess ef þær leiða til samkomulags.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson, forstjóri Símans hf., s. 550-6003 ([email protected])