AI assistant
Síminn — Regulatory Filings 2015
Oct 15, 2015
2203_rns_2015-10-15_e8d590ae-5de5-4339-8309-7d47ab2558b7.html
Regulatory Filings
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf.: Leiðrétting á upplýsingum í lýsingu dagsettri 25. september 2015
Síminn hf.: Leiðrétting á upplýsingum í lýsingu dagsettri 25. september 2015
Í sátt sem gerð var við Samkeppniseftirlitið er ákvæði sem kveður á um að séu
laun og önnur starfskjör starfsmanna Mílu ehf. tengd við afkomu skuli tengingin
aðeins miðast við afkomu og árangur Mílu ehf. Samkvæmt kaupréttaráætlun sem
samþykkt var á hluthafafundi Símans hf. 8. september 2015 nær hún ekki til
starfsmanna Mílu ehf. Hvorki framkvæmdastjóri né starfsmenn Mílu ehf. hafa því
kauprétt að hlutum í Símanum hf., líkt og fram kemur í kafla 4.4.3 í
lýsingunni. Í töflu í sama kafla er hins vegar ranglega tilgreint að
framkvæmdastjóri Mílu ehf., Jón Ríkharð Kristjánsson hafi kauprétt að 714.853
hlutum. Framkvæmdastjóri Mílu ehf. á því ekki kauprétt að hlutum í Símanum hf.