AI assistant
Síminn — Regulatory Filings 2015
Oct 16, 2015
2203_rns_2015-10-16_4e7401b9-2309-4521-bb7c-d8378f5d5dec.html
Regulatory Filings
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Samningur um viðskiptavakt við Íslandsbanka hf.
Síminn hf. - Samningur um viðskiptavakt við Íslandsbanka hf.
Síminn hf. hefur gert samning við Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt með
hlutabréfum útgefnum af Símanum hf. sem skráð eru á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Nasdaq
Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð
skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 5.000.000 hlutir á nafnvirði
á gengi sem Íslandsbanki ákveður, þó ekki með meira en 3% fráviki frá síðasta
viðskiptaverði. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er 1,5%. Eigi Íslandsbanki
viðskipti með bréf félagsins fyrir 35.000.000 hluti eða meira að nafnvirði í
sjálfvirkri pörun („automatch“) innan dags, sem fer um veltubók Íslandsbanka
(eigin viðskipti bankans), falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og
sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting upp á 10% eða meira á sér stað
getur Íslandsbanki að undangengnum símafundi og umsögn félagsins fellt niður
tímabundið skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða.
Frekari upplýsingar veitir Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550-6003