Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Proxy Solicitation & Information Statement 2024

Feb 21, 2024

2203_rns_2024-02-21_7cb1ec5c-eb13-44d4-bbc9-98b45173dbec.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

1

Aðalfundur Símans hf.

Verður haldinn fimmtudaginn 14. mars 2024 kl. 16:00 að Nauthóli við Nauthólsvík, Reykjavík.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  2. Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags fyrir liðið starfsár.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs.
  4. Kosning þriggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
  5. Kosning stjórnar félagsins.
  6. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
  7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
  8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum stjórnar og í tilnefningarnefnd.
  9. Tillaga um lækkun á hlutafé vegna eigin hluta og breytingu á samþykktum félagsins.
  10. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
  11. Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá.
  12. Önnur mál.

Tillaga er um breytingar á samþykktum félagsins vegna lækkunar hlutafjár sem varðar grein 4.1 í samþykktunum. Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengist heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins.


2

Aðrar upplýsingar

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar

Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 16:00, þann 4. mars 2024. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected].

Nánari upplýsingar um aðgangsupplýsingar, þátttöku, skráningu og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir.

Hluthafar sem eiga ekki kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Upplýsingar fyrir hluthafa

Heildarfjöldi hluta í félaginu þann 21. febrúar 2024 er 2.775.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 2.497.501.000.

Aðrar upplýsingar

Á vef félagsins, https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. dagskrá fundarins, frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélags fyrir árið 2023, umboðseyðublað, framboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum eigi síðar en 3 dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík.

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynnt skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar, þ.e. fyrir kl. 16:00 þann 9. mars 2024 og skal senda framboð á netfangið [email protected]. Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins og tilkynnt verður um framboð til stjórnar á vef félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Hluthafar sem vilja leggja til aðra einstaklinga í tilnefningarnefnd en þá sem stjórn hefur tilnefnt skulu senda slíkar tillögur á netfangið [email protected] eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 þann 7. mars 2024. Framboðseyðublöð má finna á vefsíðu félagsins og verður tilkynnt um framboð til tilnefningarnefndar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Fundurinn verður haldinn að Nauthóli við Nauthólsvík, Reykjavík. Skráning á fundinn hefst klukkan 15.30 og verða atkvæðaseðlar og önnur gögn afhent á fundarstað frá þeim tíma. Skráningu lýkur klukkan 16.00 þegar fundur hefst.

Fundurinn fer fram á íslensku.

Reykjavík, 21. febrúar 2024

Stjórn Símans hf.