AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2023
Mar 6, 2023
2203_rns_2023-03-06_364dd28c-92ff-4817-a4f8-5a97842dbb5d.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Aðalfundur Símans hf.
Verður haldinn fimmtudaginn 9. mars 2023 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
- Ákvörðun um greiðslu arðs.
- Kosning þriggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum og í tilnefningarnefnd.
- Kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn lögð fram til samþykktar.
- Tillaga um lækkun á hlutafé vegna eigin hluta og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um lækkun á hlutafé með greiðslu til hluthafa og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
- Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
a. Breytingartillaga Gildis vegna tillögu um breytingu á grein 10.6. - Önnur mál.
Nokkrar tillögur eru um breytingar á samþykktum félagsins. Vegna lækkunar hlutafjár eru tvær tillögur sem báðar varða grein 4.1 í samþykktum félagsins en tillögurnar lúta að lækkun eigin hluta annars vegar og lækkun með greiðslu til hluthafa hins vegar. Þá eru lagðar til breytingar á greinum 10.2., 10.6. og 10.7., sem fela í sér breytingar varðandi tímaramma fundarboðunar, heimild stjórnar til þess að ákveða fresti til skráningar á rafræna hluthafafundi og aðlögun á ákvæði varðandi bréflegar atkvæðagreiðslur. Ennfremur eru lagðar til breytingar á grein 11.2. sem er einföldun á efnisatriðum aðalfundarboðunar og að lokum er lagt til afnám greinar 24 sem inniheldur útrunna heimild til hlutafjárhækkunar. Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengist heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins. Um nánari útskýringar á breytingum á samþykktum er vísað til tillagana stjórnar.
Breytingartillaga Gildis vegna greinar 10.6. felur í sér að frestur til að skrá þátttöku á rafrænan hluthafafund verði að hámarki tveir dagar í stað fimm. Ennfremur felst í breytingartillögunni að hlutöfum er heimilt að leggja fram skriflegar spurningar á fundinum sjálfum. Frekari útskýringar á breytingartillögunni má finna í greinargerð Gildis inn á https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Aðrar upplýsingar
Nánari upplýsingar um þátttöku, skráningu og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér þennan rétt er bent á heimasíðu félagsins, þar sem finna má leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu þann 6. mars 2023 er 4.400.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 4.191.725.061.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, https://www.siminn.is/fjarfestar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. dagskrá fundarins, endanlegar tillögur stjórnar félagsins, ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélags fyrir árið 2022, umboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.
Fundurinn verður haldinn að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Skráning á fundinn hefst klukkan 15.30 og verða atkvæðaseðlar og önnur gögn afhent á fundarstað frá þeim tíma. Skráningu lýkur klukkan 16.00 þegar fundur hefst.
Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 6. mars 2023
Stjórn Simans hf.