AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2022
Oct 3, 2022
2203_rns_2022-10-03_ca5a9e79-12e3-403c-977e-78905e2fd833.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Hluthafafundur Símans hf.
Verður haldinn miðvikudaginn 26. október 2022 kl. 16:00 að Nauthóli við Nauthólsvík.
Dagskrá
- Tillaga um lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa og breytingu á samþykktum félagsins.
- Önnur mál.
Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar um að hlutafé félagsins verði lækkað með greiðslu til hluthafa og felur sú tillaga jafnframt í sér breytingartillögu á grein 4.1. í samþykktum félagsins. Vísast um það til meðfylgjandi tillögu stjórnar félagsins.
Aðrar upplýsingar
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 16:00, þann 16. október 2022. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um þátttöku, atkvæðagreiðslu og annað tengt fundinum er að finna á vefsíðu félagsins:
https://www.siminn.is/umsimann/fundir
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu hinn 3. október 2020 er 7.300.000.000. Hverjum hlut af virku hlutafé fylgir eitt atkvæði. Miðað við 3. október 2022 eru virk atkvæði 7.091.786.298.
Hluthafar sem eiga þess ekki kost að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á vefsíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Endanleg dagskrá og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum viku fyrir hluthafafundinn á vefsvæði félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.siminn.is/umsimann/fundir. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 15:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 3. október 2022, Stjórn Símans hf.