AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2020
Feb 20, 2020
2203_rns_2020-02-20_4be72ba6-435e-4077-b4e6-5fd90a0611a7.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Aðalfundur Símans hf.
Verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2020 kl. 16:00
að Nauthól við Nauthólsvík
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
- Ákvörðun um greiðslu arðs.
- Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins í tengslum við skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd og breyting á starfsreglum tilnefningarnefndar.
- Kosning einstaklinga í tilnefningarnefnd.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum og í tilnefningarnefnd.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um lækkun á hlutafé og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
- Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá.
- Önnur mál.
Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins varða greinar 10.12, 11.2 og 11.4, en allar breytingarnar lúta að því að gera breytingar á skipan tilnefningarnefndar þannig að allir þrír nefndarmenn verði kjörnir á hluthafafundi. Þá er lagt til sú breyting að stjórn tilnefni aðila í nefndina þegar boðað er til aðalfundar og að hluthafar geti komið með tilnefningar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Enn fremur er lögð til breyting á grein 4.1 vegna lækkunar á hlutafé félagsins.
Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengjast heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins.
Aðrar upplýsingar
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 16.00, þann 2. mars 2020. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.siminn.is/umsimann/fundir
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu hinn 20. febrúar 2020 er 9.250.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 8.749.852.587.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, https://www.siminn.is/umsimann/fundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2019, umboðseyðublað, framboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum 3 dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík.
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar, þ.e. fyrir kl. 16:00 þann 7. mars 2020 og skal senda framboð á veffangið [email protected]. Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins og tilkynnt verður um framboð til stjórnar á vef félagsins eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfundinn. Fyrir þá einstaklinga sem vilja bjóða sig fram í tilnefningarnefnd þá gildir sami tímafrestur og vegna framboð til stjórnar og skal skila framboðum einnig á veffangið [email protected]. Framboðseyðublöð má finna á vefsíðu félagsins og verður tilkynnt um framboð til tilnefningarnefndar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 15:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 20. febrúar 2020, Stjórn Simans hf.