Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Proxy Solicitation & Information Statement 2019

Feb 27, 2019

2203_rns_2019-02-27_9c0dbb28-65fa-4073-a54e-ddd34175df44.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

Aðalfundur Símans hf.

Verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2019 kl. 10:00

að Nauthól við Nauthólsvík

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til staðfestingar. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs.
  4. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins, ef borist hafa.
  5. Kosning tveggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
  6. Kosning stjórnar félagsins.
  7. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
  8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins sem og þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd fyrir störf þeirra.
  9. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
  10. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga og framkvæmd endurkaupaáætlunar.

Verði tillagan samþykkt felur það í sér að heimildarinnar verður getið í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins og skal viðaukinn vera hluti af samþykktunum þann tíma sem heimildin er í gildi, sbr. grein 8.1 samþykkta félagsins.

  1. Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá.
  2. Önnur mál.

Aðrar upplýsingar

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar

Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 10.00, þann 11. mars 2019. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/hluthafar/hluthafafundir

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Upplýsingar fyrir hluthafa

Heildarfjöldi hluta í félaginu hinn 27. febrúar 2019 er 9.250.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 9.032.680.807.

Aðrar upplýsingar

Á vef félagsins, www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/hluthafar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2018, umboðseyðublað, framboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum 3 dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík.

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar, þ.e. fyrir kl. 10:00 þann 16. mars 2019 og skal senda framboð á veffangið á [email protected]. Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins og tilkynnt verður um framboð til stjórnar vef félagsins eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfundinn. Fyrir þá einstaklinga sem vilja bjóða sig fram í tilnefningarnefnd þá gildir sami tímafrestur og vegna framboð til stjórnar og skal skila framboðum einnig á veffangið [email protected]. Framboðseyðublöð má finna á vefsíðu félagsins og verður tilkynnt um framboð til tilnefningarnefndar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 9:30. Fundurinn fer fram á íslensku.

Reykjavík, 27. febrúar 2019, Stjórn Símans hf.