AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2019
Nov 18, 2019
2203_rns_2019-11-18_8eb0ab03-f430-4dae-9bf3-da080443d688.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð til stjórnar Símans hf. á hluthafafundi 21. nóvember 2019
Eftirfarandi aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn Símans hf. á hluthafafundi félagsins þann 21. nóvember 2019.
Bertrand Kan
Bertrand hefur viðtæka starfsreynslu í fjárfestingarbankastarfsemi með sérstaka áherslu á fjarskipta-, fjölmiðla- og tæknimarkaði. Lengst af var Bertrand hjá Morgan Stanley þar sem hann var framkvæmdastjóri og yfirmaður deildar með áherslu á evrópska fjarskiptamarkaði. Í kjölfarið fór Bertrand til Lehman Brothers þar sem hann var meðstjórnandi sviðs yfir alþjóðlegum fjarskiptamörkuðum og var meðlimur evrópsku rekstrarnefndarinnar hjá bankanum. Árið 2008 varð hann forstöðumaður sviðs yfir alþjóðlegum fjarskipta-, fjölmiðla- og upplýsingatæknimörkuðum hjá Nomura og starfaði í framkvæmdanefnd um alþjóðlega fjárfestingabankastarfsemi.
Meðal annarra ábyrgðastarfa er hann nú varaformaður Cellnex Telecom og meðlimur ráðgjafarnefndar Wadhwani Asset Management og eftirlitsnefnd UWC í Hollandi. Bertrand Kan útskrifaðist með B.Sc. og M.Sc. gráð í hagfræði frá London School of Economics.
Bertrand á 31.343.693 hluti í Símanum hf.
Bertrand er ekki tengdur helstu viðskiptaaðilum félagsins, samkeppnisaðilum eða hluthöfum sem eiga 10% eða meira í félaginu.
Bjarni Þorvarðarson
Bjarni lauk B.Sc. prófi í rafmagsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og síðar meistaragráðum í rafmagsverkfræði frá University of Wisconsin, Madison, 1991, í alþjóðaviðskiptum frá ISG í Paris 1993 og fjármálafræðum frá London Business School árið 1998. Eftir sölu- og stjórnunarstörf hjá Tölvusamskiptum og Tæknivali réðist Bjarni sem viðskipta- og sjóðsstjóri til Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og síðar, árið 2002, til fjárfestingarfyrirtækisins CVC í Bandaríkjunum og sat í stjórnun nokkurra af fjarskiptafyrirtækjum CVC á Íslandi, Bandaríkjunum, Kanada, Írlandi, Bretlandi, Hollandi, Indlandi og Ástralíu. Árið 2004 tók Bjarni að sér forstjórastöðu hjá nýstofnuðu fjarskiptafyrirtæki í eigu CVC, Hibernia Networks, og hélt þeirri stöðu þar til Hibernia var selt árið 2017, þá með 240 starfsmenn í 9 lönðum og ljósleiðaranet sem náði til flestra af stærstu borga heims. Frá miðju ári 2018 hefur Bjarni gegnt forstjórastöðu lyfjaframleiðandans Coripharma ehf. í Hafnarfirði auk þess að sinna eigin fjárfestingarverkefnum.
Bjarni á ekki hluti í Símanum hf.
Bjarni er ekki tengdur helstu viðskiptaaðilum félagsins, samkeppnisaðilum eða hluthöfum sem eiga 10% eða meira í félaginu.
Helga Valfells
Helga er stofnandi og framkvæmdastjóri hjá nýsköpunarsjóðnum Crowberry Capital. Helga er varaformaður stjórnar Íslandsbanka auk þess er hún stjórnarmaður í stjórn Sensa og Aldin Dynamics. Áður en Helga stofnaði Crowberry árið 2017 var hún framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins frá 2010. Á þessum tíma sat Helga í stjórnum 14 nýsköpunarfyrirtækja og bar ábyrgð á eignasafni sjóðsins í allt að 41 nýsköpunarfyrirtæki. Helga var stjórnarformaður Frumtaks frá 2010 til 2017. Helga var forstöðumaður hjá Útflutningsráði Íslands frá 1999 til 2005 þar sem hún stýrði m.a. ýmsum verkefnum tengdum markaðsmálum og fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja.
Fyrir utan störf í nýsköpunargeiranum hefur Helga starfað hjá fjárfestingabanka Merrill Lynch í London, í markaðsmálum hjá Estee Lauder í Bretlandi og VÍB. Helga var ópólitískur aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra fyrstu mánuðina eftir hrun.
Helga er með B.A. gráðu frá Harvard Háskóla og MBA gráðu frá London Business School.
Helga á ekki hluti í Símanum hf.
Helga er ekki tengd helstu viðskiptaaðilum félagsins, samkeppnisaðilum eða hluthöfum sem eiga 10% eða meira í félaginu.
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson er stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Stoða hf., sem er stærsti hluthafi Símans. Jón er fæddur 1978 og er viðskiptafræðingur að mennt. Jón hefur starfað á íslenskum og erlendum fjármálamarkaði í u.þ.b. 20 ár, ýmist sem stjórnandi, fjárfestir, ráðgjafi eða stjórnarmaður.
Jón starfaði við fyrirtækjaráðgjöf hjá Búnaðarbanka Íslands og Landsbanka Íslands á árunum 2002-2005 og sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs og síðar forstjóri Stoða frá 2005-2010. Jón hefur setið í stjórnum fjölmargra félaga, skráðra jafnt sem óskráðra, innanlands sem og erlendis. Jón sat m.a. í stjórn Refresco B.V. á árunum 2006-2018 og tók virkan þátt í uppbýggingu Refresco, m.a. kaupungin fjölmargra félaga og sameiningu þeirra, skráningu á Euronext Amsterdam og lokus sölu Refresco og afskráningu. Þá sat Jón í stjórn N1 (nú Festi) á árunum 2014 til 2018 en miklar breytingar urðu á rekstri og efnahag N1 á því tímabili, sem lauk með kaupum N1 á Festi. Jón hefur hin síðari ár sinnt eigin fjárfestingum, m.a. sem framkvæmdastjóri Helgafells ehf. og sem stjórnarformaður Stoða, en Helgafell á óbeinan 22% eignarhlut í Stoðum.
Jón á ekki hluti í Símanum hf.
Jón er ekki tengdur helstu viðskiptaaðilum félagsins eða samkeppnisaðilum.
Jón er stjórnarformaður Stoða hf. sem á 1.300.000.000 hluti eða 14,05% í Símanum hf.
Kolbeinn Árnason
Kolbeinn er lögmaður og eigandi hjá Dranga Lögmönnum ehf., sem er sérhæfð lögmannsstofa sem sinnir verkefnum á réttarsviðum tengdum viðskiptalífinu. Hann hefur setið í stjórn LBI ehf., frá því að nauðasamningur við kröfuhafa félagsins var staðfestur árið 2016. Kolbeinn var framkvæmdastjóri Samtaka Fyrirtækja í Sjávarútvegi frá 2013 til 2016 og sat á því tímabili einnig í Framkvæmdastjórn Samtaka Atvinnulífsins. Hann var aðallögfræðingur og framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kauppings hf. frá 2008 til 2013 og hafði sem slíkur umsjón með lögfræðilegri vinnu sem snéri að endurskipulagningu, sölu og innheimtu á eignum Kauppings auk endurskipulagningar félagsins, með það að markmiði að
leggja niður starfsemi þess og greiða eignir þess út til kröfuhafa á skipulegan hátt. Kolbeinn hefur einnig langa reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar. Hann var skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins frá 1999 til 2004 og fulltrúi í fastanefnd Íslands hjá Evrópusambandinu í Brussel frá 2004 til 2006.
Kolbeinn er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Þá lagði hann stund á framhaldsnám í alþjóðlegri viðskiptalögfræði við Háskólann í Leuven. Kolbeinn er með AMP gráðu frá IESE Business School í Barcelona.
Kolbeinn á 1.000.000 hluti í Símanum hf.
Kolbeinn er ekki tengdur helstu viðskiptaaðilum félagsins, samkeppnisaðilum eða hluthöfum sem eiga 10% eða meira í félaginu.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Sylvía lauk mastergráðu frá London School of Economics í Aðgerðarannsóknum árið 2006. Fyrir það, eða árið 2005 lauk hún BSC í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Sylvía starfaði í 5 ár hjá Amazon first sem sérfræðingur í nýfjárfestingum á fjármálasviði og seinna sem yfirmaður viðskiptagreindar og vörustjóri í Kindle deild Amazon. Árin 2007 til 2010 starfaði hún fyrir Seðlabanka Íslands sem Forstöðumaður viðbúnaðarsviðs.
Frá 2015 og 2018 starfaði Sylvía hjá Landsvirkjun sem Forstöðumaður tekjustýringar og seinna sem Forstöðumaður jarðvarmadeildar. Sylvía var einnig stundakennari við Háskóla Íslands í kvikum kerfisliðönum, rekstrarfræði og verkefnastjórnun (MPM). Sylvía geginr nú stöðu sem Forstöðumaður á rekstrarsviði hjá Icelandair ásamt því að vera í stjórn Ölgerðarinnar og WCD (Women Corporate Directors á Íslandi).
Sylvía á ekki hluti í Símanum hf.
Sylvía er ekki tengd helstu viðskiptaaðilum félagsins, samkeppnisaðilum eða hluthöfum sem eiga 10% eða meira í félaginu.