AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Mar 12, 2018
2203_rns_2018-03-12_1dab4ac5-b773-4500-ac1f-f979a49a9e3d.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Aðalfundur Símans hf.
Verður haldinn fimmtudaginn 15. mars 2018 kl. 10:00
að Nauthól við Nauthólsvík
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um lækkun á hlutafé og breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga og framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Verði tillagan samþykkt felur það í sér að heimildarinnar verður getið í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins og skal viðaukinn vera hluti af samþykktunum þann tíma sem heimildin er í gildi, sbr. grein 8.1 samþykkta félagsins.
- Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá.
Tillaga Eaton Vance Management fyrir hönd sjóða í þeirra stýringu þess efnis að aðalfundur Símans 2018 feli stjórn félagsins að setja á laggirnar og skipa tilnefningarnefnd í samræmi við leiðbeiningar Viðskiptaráðs Íslands um stjórnarhætti fyrirtækja.
- Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 9:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 12. mars 2018,
Stjórn Símans hf.