AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Nov 7, 2018
2203_rns_2018-11-07_cb82d093-0a2b-4f5d-8c6c-e3d79d33fa00.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Hluthafafundur Símans hf. verður haldinn
þann 28. nóvember 2018 kl. 10
í höfuðstöðvum félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Dagskrá
- Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
- Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar.
- Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Önnur mál löglega upp borin.
Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins varða grein 11.2 og 11.4 og þá er lagt til að ný grein 10.12 bætist við samþykktir, en allar breytingarnar lúta að því að koma á fót tilnefningarnefnd í félaginu í samræmi við góða stjórnarhætti. Einnig er gerð tillaga um bráðabírgðaákvæði í þeim tilgangi að unnt verði þá strax að ganga frá skipan nefndarinnar svo hún megi hefja þegar störf til undirbúnings fyrir aðalfund á næsta ári.
Þá er gerð tillaga sem mælir fyrir að félagið skuli á vef sínum birta upplýsingar um 20 stærstu hluthafa félagsins, verður það ný grein 5.4.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 10.00, þann 18. nóvember 2018. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, https://www.simin.n.is/forsida/simin/fjarfestar/hluthafafundir. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, https://www.simin.n.is/forsida/simin/fjarfestar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við hluthafafundinn, þ.m.t. drög að dagskrá fundarins og tillögur stjórnar félagsins, umboðseyðublað, framboðseyðublað vegna tilnefningarnefndarinnar auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum á framangreindum vef félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík.
Hluthöfum er bent á að framboð til setu í tilnefningarnefnd samkvæmt dagskrárlið 3 skal hafa borist skriflega til stjórnar félagsins á þar til gerðu eyðublaði skemmst fimm dögum
Síminn
fyrir hluthafafundinn, p.e. fyrir kl. 10:00, 23. nóvember 2018. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Hægt er að senda framboðstilkynningar á veffangið [email protected]. Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar á vefsvæði félagsins a.m.k. tveimur dögum fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 9:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 7. nóvember 2018
Stjórn Símans hf.