AI assistant
Síminn — Proxy Solicitation & Information Statement 2017
Feb 22, 2017
2203_rns_2017-02-22_47ff7251-818b-4a2a-aefb-9b75ec78920d.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Aðalfundur Símans hf.
Haldinn fimmtudaginn 16. mars 2017 kl. 10:00
að Nauthól við Nauthólsvík
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár.
- Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
- Tillögur til breytinga á sambykktum félagsins, ef borist hafa.
- Ákvörðun um greiðslu arðs.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé sem breytir grein 4.1 sambykkta félagsins.
- Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigir hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga og framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Verði tillagan sambykkt felur það í sér að heimildarinnar verður getið í sérstökum viðauka við sambykktir félagsins og skal viðaukinn vera hluti af sambykktunum þann tíma sem heimildin er í gildi, sbr. grein 8.1 sambykkta félagsins.
- Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá.
- Önnur mál.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá aðalfundar
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 10.00, þann 6. mars 2017. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á
Síminn
netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á vefsíðu félagsins, www.siminn.is/siminn/fjarfestar/stjornarhaettir/hluthafafundir/.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Upplýsingar fyrir hluthafa
Heildarfjöldi hluta í félaginu hinn 22. febrúar 2017 er 9.650.000.000 hlutir og atkvæði jafnmörg. Þar af eru virk atkvæði 9.444.201.742.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, www.siminn.is/siminn/fjarfestar/stjornarhaettir/hluthafafundir/, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2016, umboðseyðublað, framboðseyðublað auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum a.m.k. 3 dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins og skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík.
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar, þ.e. fyrir kl. 10:00 þann 11. mars 2017 og skal senda framboð á veffangið á [email protected]. Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins og tilkynnt verður um framboð til stjórnar vef félagsins eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 9:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 22. febrúar 2017,
Stjórn Símans hf.