AI assistant
Síminn — M&A Activity 2024
Mar 27, 2024
2203_rns_2024-03-27_711c5af6-6d15-441c-a1c3-895381e26bec.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Kaup Símans á BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf.
Síminn hf. - Kaup Símans á BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf.
Þann 18. janúar sl. var tilkynnt um að Síminn hf. hefði undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf. (fyrirtækin). Þann 15. mars sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið Símanum hf. að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar í málinu.
Síminn fékk í dag hlutafé fyrirtækjanna afhent á efndadegi viðskiptanna og hefur greitt stærstan hluta kaupverðsins, en lokauppgjör fer fram eigi síðar en 6 mánuðum frá efndadegi þegar endanleg leiðrétting kaupverðs að teknu tilliti til stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna m.v. efndadag hefur farið fram. Í dag greiddi Síminn 3.714 m.kr. í peningum og afhenti 101.153.146 hluti í Símanum.
Síminn mun birta uppfærða afkomuspá og gera nánari grein fyrir kaupunum og áhrifum þeirra á efnahagsreikning samstæðunnar samhliða birtingu uppgjörs fyrir 1F 2024 þann 23. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson, forstjóri Símans hf. ([email protected])
