Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn M&A Activity 2022

Jul 9, 2022

2203_rns_2022-07-09_eb4a8a97-bad5-4c5c-ace7-e3a9a1d36aa7.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf. - Upplýsingar um framgang kaupa Ardian France SA á Mílu ehf. af Símanum hf.

Síminn hf. - Upplýsingar um framgang kaupa Ardian France SA á Mílu ehf. af Símanum hf.

Vísað er til tilkynningar Símans dags. 23. október 2021 þar sem fram kom að Síminn hf. („Síminn“) og Ardian France SA („Ardian“) hefðu undirritað kaupsamning um 100% hlutafjár í Mílu með hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Hefur Samkeppniseftirlitið verið með yfirtökuna til rannsóknar frá 8. febrúar 2022 og hefði fresti Samkeppniseftirlitsins til þess að ljúka rannsókninni átt að ljúka 27. júlí 2022.

Eins og fram kom í tilkynningu Símans hf. dags. 5. júlí 2022 hafði andmælaskjal borist frá Samkeppniseftirlitinu. Ardian hefur upplýst Símann um að Ardian hafi óskað eftir sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið og þar með hefur frestur Samkeppniseftirlitsins til þess að ljúka rannsókn málsins frestast til 18. ágúst nk.

Síminn mun upplýsa um leið og markverðar fréttir í málinu berast.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson ([email protected]).