Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn M&A Activity 2017

Jun 21, 2017

2203_rns_2017-06-21_fe5ad758-975b-49c1-b56b-87a5b206ce0f.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn hf.: Síminn og On-Waves sameinast

Síminn hf.: Síminn og On-Waves sameinast

Stjórnir Símans hf. og On-Waves ehf. hafa samþykkt að sameina félögin undir nafni og kennitölu Símans hf. á grundvelli XIV. kafla laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög og laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Samþykktir Símans hf. gilda óbreyttar um hið sameinaða félag og telst Síminn hf. vera yfirtökufélag.

Samruninn miðast við 1. janúar 2017 og tekur hið sameinaða félag við öllum rekstri, eignum, skuldum, réttindum og skyldum hins yfirtekna félags frá þeim tíma.

Samruninn felur í sér að eigendur hins yfirtekna félags láta af hendi allt hlutafé þess. Hið yfirtekna félag er að 9/10 hlutum í eigu Símans hf. Síminn hf. fær því ekkert endurgjald fyrir hlutafé sitt. 10% heildarhlutafjár hins yfirtekna félags er í eigu annars aðila sem fær sem endurgjald hlutafé í Símanum hf. að nafnverði kr. 8.650.000. Hlutafé yfirtökufélagsins breytist því ekki vegna samrunans, en Síminn hf. afhendir eigin hluti sem endurgjald til minnihluthafans.

Við ákvörðun á skiptihlutfalli hlutafjár er annars vegar litið til markaðsverðs hlutafjár Símans hf. þann 16. júní 2017 og áætlaðs virðis hins yfirtekna félags.

Það er mat stjórna félaganna að með samruna félaganna aukist hagkvæmni í rekstri og reksturinn nái þannig betri ávöxtun eigin fjár.

Nánari upplýsingar veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans hf., s. 550-6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans hf., s. 550-6003 ([email protected])