Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Legal Proceedings Report 2016

Oct 27, 2016

2203_rns_2016-10-27_4567b4aa-700f-42fc-a3e6-556c55ffc662.html

Legal Proceedings Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf. - Niðurstaða Hæstaréttar Íslands í máli Símans hf. gegn íslenska ríkinu

Síminn hf. - Niðurstaða Hæstaréttar Íslands í máli Símans hf. gegn íslenska ríkinu

Hinn 13. desember 2013 tilkynnti Ríkisskattstjóri um endurákvörðun opinberra
gjalda Símans hf. og Skipta hf. fyrir árið 2008 á þeim grundvelli að vaxtagjöld
hefðu verið offærð í skattskilum. Um væri að ræða vaxtagjöld vegna lána sem
tekin höfðu verið vegna kaupa Skipta ehf. á Símanum hf. árið 2005.

Síminn hf. höfðaði dómsmál gegn íslenska ríkinu til ógildingar á þessari
ákvörðun Ríkisskattstjóra með stefnu þingfestri 10. febrúar 2015. Héraðsdómur
Reykjavíkur sýknaði ríkið af kröfu Símans hf. með dómi þann 26. október 2015 en
Síminn hf. áfrýjaði málinu til Hæstaréttar Ísland. Í dag kom endanleg
niðurstaða í málið þegar Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms og sýknaði ríkið.

Síminn hf. bakfærði á árinu 2013 vaxtagjöld að fjárhæð 22,6 milljarðar króna
sem tengist ágreiningi við Ríkisskattstjóra. Með því voru að fullu leyti tekin
inn neikvæð áhrif á afkomu félagsins vegna framangreinds úrskurðar á því
tímabili sem var til skoðunar. Þar sem Síminn hf. hefur þegar tekið fullt
tillit til úrskurðar Ríkisskattstjóra í reikningsskilum félagsins hefur
dómurinn ekki áhrif á afkomu Símans hf.

Með dómi Hæstaréttar hefur málið verið endanlega til lykta leitt.