AI assistant
Síminn — Investor Presentation 2021
Feb 15, 2022
2203_rns_2022-02-15_51b3a8ce-eed8-4e8f-a140-58695e17eda4.pdf
Investor Presentation
Open in viewerOpens in your device viewer

Ársuppgjör 2021
Orri Hauksson og Óskar Hauksson
- febrúar 2022

Lykiltölur úr rektri
með rektri Mílu
| 4F 2021 | 12M 2021 | |
|---|---|---|
| Tekjur | 6.700 m.kr. | |
| 4F 2020: 6.703 m.kr. | 25.841 m.kr. | |
| 2020: 25.646 m.kr. | ||
| EBITDA * | 2.532 m.kr. | |
| 4F 2020: 2.413 m.kr. | 10.603 m.kr. | |
| 2020: 10.156 m.kr. | ||
| EBITDA % * | 37,8% | |
| 4F 2020: 36,0% | 41,0% | |
| 2020: 39,6% | ||
| EBIT * | 918 m.kr. | |
| 4F 2020: 907 m.kr. | 4.692 m.kr. | |
| 2020: 4.271 m.kr. | ||
| Fjárfestingar | 1.809 m.kr. | |
| 4F 2020: 1.528 m.kr. | 5.498 m.kr. | |
| 2020: 5.648 m.kr. |
Fjórðungurinn
- Leiðrétt fyrir 300 m.kr. lækkun stjórnvaldssektar á 4F 2020 hækkar EBITDA um 5% á milli ára.
- Tekjur í heild óbreyttar á milli ársfjórðunga
- Samdráttur í vörusölu, gagnaflutningi og talsímatekjum
- Tekjur af farsímabjónustu hækka um 6% sem skýrist mest af hækkun reikitekna og velgengni þrennu.
- Reikitekjur aukast um 60 m.kr. sem er meira en tvöföldun á milli ára.
- Búnaðarsala dregst saman sem skýrist af auknum ferðalögum Íslendinga til útlanda. Framlegð vörusölu eykst.
- Tekjur af Premium hækka um 11% á milli ára en tekjur af Síminn Bío og endursölu erlendra rása dragast saman.
-
Kostnaðaraðhald skilar lægri rekstrarkostnaði á milli ára þrátt fyrir aukna verðbólgu.
-
Án stjórnvaldssektar 2F/4F 2020
C
Rekstur
Rekstrarreikningur
| Rekstrarreikningur | 4F með Milu | 12M með Milu | 12M án Milu | Áhrif Milu | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | % | 2021 | 2020 | % | 2021 | 2020 | % | 2021 | |
| Rekstrartekjur | 6.700 | 6.703 | 0,0% | 25.841 | 25.646 | 0,8% | 24.543 | 23.969 | 2,4% | (1.298) |
| Kostnaðarverð sölü | (3.567) | (3.474) | 2,7% | (12.927) | (12.769) | 1,2% | (15.533) | (13.965) | 11,2% | (2.606) |
| Rekstrarkostnaður | (2.215) | (2.022) | 9,5% | (8.222) | (8.806) | -6,6% | (6.750) | (7.860) | -14,1% | 1.472 |
| EBIT | 918 | 1.207 | -23,9% | 4.692 | 4.071 | 15,3% | 2.260 | 2.144 | 5,4% | (2.432) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (279) | (144) | 93,8% | (999) | (705) | 41,7% | (114) | (288) | -60,4% | 885 |
| Tekjuskattur | (108) | (139) | -22,3% | (727) | (704) | 3,3% | (411) | (397) | 3,5% | 316 |
| Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi | 531 | 924 | -42,5% | 2.966 | 2.662 | 11,4% | 1.735 | 1.459 | 18,9% | (1.231) |
| Aflögð starfsemi | 123 | 131 | 2.247 | 254 | 3.478 | 1.457 | 1.231 | |||
| Hagnaður tímabils | 654 | 1.055 | -38,0% | 5.213 | 2.916 | 78,8% | 5.213 | 2.916 | 78,8% | 0 |
| EBITDA | 2.532 | 2.713 | -6,7% | 10.603 | 9.956 | 6,5% | 5.502 | 6.006 | -8,4% | (5.101) |
| Hagnaður á hlut | 0,09 | 0,13 | 0,68 | 0,34 | - | - |

Rekstrartekjur

EBITDA*

EBIT*
- EBITDA og EBIT í myndum eru án stjörnvaldssektar 2F/4F 2020
Tekjur aft
Tekjur eftir starfsbåttum
| Starfsbåttir | 4F með Milu | 12M með Milu | 12M án Milu | Áhrif Milu | |||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 2021 | 2020 | Breyting | % | 2021 | 2020 | Breyting | % | 2021 | 2020 | Breyting | % | 2021 | |
| Farsimi | 1.455 | 1.368 | 87 | 6,4% | 5.593 | 5.321 | 272 | 5,1% | 5.604 | 5.343 | 261 | 4,9% | 11 |
| Talsimi | 370 | 415 | -45 | -10,8% | 1.551 | 1.714 | -163 | -9,5% | 1.572 | 1.725 | -153 | -8,9% | 21 |
| Gagnaflutningur | 2.199 | 2.237 | -38 | -1,7% | 8.844 | 8.837 | 7 | 0,1% | 7.342 | 7.334 | 8 | 0,1% | -1.502 |
| Sjónvarpsbjónusta | 1.641 | 1.639 | 2 | 0,1% | 6.369 | 6.253 | 116 | 1,9% | 6.383 | 6.266 | 117 | 1,9% | 14 |
| Vörusala | 634 | 677 | -43 | -6,4% | 2.143 | 2.159 | -16 | -0,7% | 2.148 | 2.162 | -14 | -0,6% | 5 |
| Annað | 401 | 367 | 34 | 9,3% | 1.341 | 1.362 | -21 | -1,5% | 1.494 | 1.139 | 355 | 31,2% | 153 |
| Samtals | 6.700 | 6.703 | -3 | 0,0% | 25.841 | 25.646 | 195 | 0,8% | 24.543 | 23.969 | 574 | 2,4% | -1.298 |

Farsimi

Gagnaflutningur

Sjónvarpsbjónusta

Aðrir starfsbåttir
Tekjur starfsbátta í súluritum eru án Milu. Tekjur af Spotify og Símanum Pay sem áður voru færðar sem tekjur farsima hafa verið endurflokkaðar og tilheyra nú starfsbåttinum annað.
Rekstur 2021 með Mílu
Góð afkoma skýrist af árangursríkum hagræðingaraðgerðum
- EBITDA eykst um 4,4% á milli ára.*
- Rekstrartekjur hækka lítilsháttar á milli ára.
- Tekjur af farsíma hækka um rúmlega 6% sem skýrist af góðu gengi Þrennu, auknum tekjum af virðisaukandi þjónustu og SMS magnsendingum. Reikitekjur aukast á ný.
- Rekstrarhagnaður eykst um rúmlega 400 m.kr. á milli ára.*
- Afskriftir nánast óbreyttar á milli ára
- Hagnaður eykst um tæpar 300 m.kr.
- Næst þrátt fyrir rúmlega 300 m.kr. aukningu í vaxtagjöldum vegna aukinnar skuldsetningar í kjölfar endurfjármögnunar á 1F 2021.
- Síminn gekk frá sölu á Sensa á 2F 2021 til Crayon Group Holding ASA (Crayon).
- Hluti af söluandvirði voru 699.635 hlutir í Crayon sem hafa nú verið seldir.
- Söluhagnaður hlutanna var ríflega 120 m.kr.
-
Síminn hefur aldrei tekið við fjölmiðlastyrkjum, nýtt hlutabóta leið eða tekið við öðrum opinberum framlögum sem stofnað var til eftir upphaf faraldursins.
-
Launakostnaður lækkar um tæpar 400 m.kr. eða 6,2%.
- Skýrist af fækkun stöðugilda árið 2020 og útvistun á hugbúnaðarþróun. Meginþungi breytingar var á 2F 2020 sem skilar sér í bættri afkomu 2021.
- Útvistun hefur ekki skilað sér í hækkun upplýsingatækni-kostnaðar.
- Kostnaðarverð seldrar þjónustu hækkar vegna tímabundinnar aukningar á kostnaði við sjónvarpsrekstur.
- Starfsmannakostnaður er áfram í lágmarki enda nánast engin ferðalög eða viðburðir á vegum fyrirtækisins.
- Kostnaður við sölu Mílu er færður sem fyrirframgreiddur kostnaður sem færist á móti söluhagnaði þegar viðskiptin klárast.
- Aukið í sölu- og markaðskostnað m.a. vegna áherslu á nýjar vörur Símans.
- Lækkun vörusölu tengist aukningu í ferðalögum Íslendinga erlendis en á móti þá hækkar framlegð.
- Framlegð vörusölu eykst um tæpar 100 m.kr. á milli ára.
*Leiðrétt fyrir 200 m.kr. sekt árið 2020
Efnahagur og sjóðstreymi
Efnahagsreikningur
| Eignir | 31.12.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | ||
| Rekstrarfjármunir | 2.219 | 18.991 |
| Leigueignir | 753 | 5.378 |
| Øefnislegar eignir | 19.403 | 32.544 |
| Aðrar eignir | 675 | 544 |
| Fastafjármunir | 23.050 | 57.457 |
| Veltufjármunir | ||
| Birgðir | 923 | 1.127 |
| Viðskiptakrófur | 2.234 | 3.147 |
| Aðrar skammtímakrófur | 3.082 | 834 |
| Handbært fé | 3.509 | 735 |
| Eignir flokkaðar til sölu | 36.929 | 1.906 |
| Veltufjármunir | 46.677 | 7.749 |
Eignir alls 69.727 65.206
| Skuldir og eigið fé | 31.12.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|
| Eigið fé | ||
| Eigið fé | 31.079 | 37.298 |
| Langtímaskuldir | ||
| Skuldabréfalán | 5.943 | 14.289 |
| Leiguskuldbinding | 653 | 5.066 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 604 | 670 |
| Langtímaskuldir | 7.200 | 20.025 |
| Skammtímaskuldir | ||
| Skuldir við lánastofnanir | 1.518 | 500 |
| Viðskiptaskuldir | 2.141 | 2.554 |
| Næsta árs afborgun | 180 | 1.663 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 1.783 | 2.390 |
| Skuldir vegna eigna sem flokkaðar eru til sölu | 25.826 | 776 |
| Skammtímaskuldir | 31.448 | 7.883 |
| Skuldir og eigið fé alls | 69.727 | 65.206 |

Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldb.



*Án stjörnvaldssektar 2F/4F 2020
Leiguskuldbindingar taldar með frá árinu 2019
Sjóðstreymi
Sjóðstreymi
| Sjóðstreymi * | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | ||
| Rekstrarhagnaður ársins | 2.260 | 2.144 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | ||
| Afskriftir og virðisrýmun | 3.242 | 3.862 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | (1) | (2) |
| 5.501 | 6.004 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (1.099) | 461 |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 4.402 | 6.465 |
| Nettó greiddir vextir | (77) | (263) |
| Greiddir skattar | (565) | (627) |
| Handbært fé frá rekstri | 3.760 | 5.575 |
| Fjárfestingahreyfingar | ||
| Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum | 5.186 | (3.399) |
| Aðrar fjárfestingarhreyfingar | (894) | (211) |
| Sala eignahluta og aflögð starfsemi | 14.739 | 1.449 |
| Fjárfestingahreyfingar | 19.031 | (2.161) |
| Fjármögnunarhreyfingar | ||
| Greiddur arður | (500) | (500) |
| Viðskipti með eigin bréf | (2.965) | (1.751) |
| Útgreitt hlutafé | (7.968) | 0 |
| Afborganir leiguskuldbindinga | (174) | (334) |
| Nettó breyting á lánum | (8.411) | (292) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (20.018) | (2.877) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 2.773 | 537 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 1 | (19) |
| Handbært fé í upphafi árs | 735 | 217 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 3.509 | 735 |
Efnahagur og sjóðstreymi
- Eignir Mílu eru flokkaðar til sölu í efnahagsreikningi 2021.
- Eiginfjárhlutfall lækkar á milli ára vegna lækkunar á hlutafé árið 2021.
- Endurfjármögnun á 1F 2021 lækkar skuldsetningu Símans og fjármagnsskipan breyttist þegar Míla endurfjármagnaði lán frá Símanum.
- Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum skýrist af fyrirframgreiðslu á hluta sýningarréttar að ensku úrvalsdeildinni og greiddum kostnaði vegna söluferlis Mílu.
- Sala eignahluta og aflögð starfsemi tengist endurfjármögnun Mílu þar sem endurfjármögnun var með ytra láni en greidd upp lán frá móðurfélagi um leið og hlutfé félagsins var lækkáð. Auk þess keypti Míla farsímadreifikerfið og IP/MPLS netið af Símanum.
*Sjóðstreymi samkvæmt ársreikningi. Míla meðhöndluð sem aflögð starfsemi.
Fjárfestingar
Fjárfestingar
með Mílu



Fjárfestingar 2021
- Fjárfestingar samstæðunnar í rekstrarfjármunum, sýningarréttum og öðrum óefnislegum eignum lækka um 145 m.kr. á milli ára.
- Fjárfestingar Símans lækka um 477 m.kr. Þar af fjárfesting í sýningarréttum um 93 m.kr.
- Fjárfestingar Mílu aukast um 259 m.kr.
- Fjárfestingar Síminn Pay í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum aukast um 71 m.kr.
*Endurgert m.v. breytta framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis
Síminn móðurfélag
Fjárfestingar

Fjárfestingar 2021
- Við sölú á farsímadreifikerfinu (RAN) og IP/MPLS netinu yfir til Mílu minnkaði árleg fjárfestingapörf í fjarskiptakerfum Símans um 500-600 m.kr.
- Fjárfestingar Símans hafa farið lækkandi frá árinu 2019.
- Á þessu tímabili hefur mikil áhersla verið lögð á að efla og umbreyta innri kerfum félagsins með það að markmiði að lækka rekstrarkostnað, auka sveigjanleika og auðvelda vöruþróun.
- Hlutur þessara fjárfestinga í árlegri heildarfjárfestingu án sýningarrétta nam að meðaltali um 40% yfir tímabilið 2019 til 2021.
- Eftir minnkandi fjárfestingar í fjarskiptanetum félagsins hefur vægi endabúnaðar viðskiptavina aukist.
- Undanfarin ár hefur árleg fjárfesting í myndlyklum, beinum og öðrum endabúnaði numið á bilinu 400-450 m.kr.
- Undantekning er árið 2021 en þá var fjárfesting í endabúnaði um 35-40% minni en í eðlilegu árferði. Hafði framboðsbrestur erlendra birgja þar mikil áhrif.
*2018-2020 er Pro-forma án farsímadreifikerfis og IP/MPLS nets sem selt var til Mílu í upphafi árs 2021
Mila
Fjárfestingar



Tengiframvinda - Höfuðborgarsvæðið

Tengiframvinda - Landsbyggðin
Ljósléiðaraverkefnið
- Undanfarin ár hefur megináhersla verið á ljósleiðaravæðingu, fyrst á höfuðborgarsvæðinu, en árið 2021 var mest fjárfest í ljósleiðaravæðingu í þéttbýli á landsbyggðinni og mun áherslan framvegis vera meiri á landsbyggðina.
- Árið 2021 nam fjárfesting í ljósleiðaraverkefnum 1.663 m.kr. sem er um 56% af heildarfjárfestingu ársins.
- Heildarfjárfestingar árið 2021 aukast um 260 m.kr. á milli ára og liggur sú aukning alfarið í öðru en ljósleiðaratengdum verkefnum.
- Um 108.400 heimili/rými voru með aðgang að ljósleiðara í árslok 2021, þar af um 80 þúsund á höfuðborgarsvæðinu.
- Um 13.400 ný heimili fengu aðgang að ljósleiðara á árinu, þar af um 7.800 á landsbyggðinni.
Um starfsemina
Síminn
- Síminn og Míla gerðu samning við Ericsson um farsímakerfi
- Samstarf Símans og Ericsson spannar yfir 100 ár
- Ericsson er óumdeildur tæknibirgi á heimsvísu sem stjórnvöld reyna ekki að þrengja að
- Samningur til fimm ára
- Áframhaldandi uppbygging á 4G og hraðari uppbygging á 5G þar sem markmiðið er að ná 90% dekkningu um mitt ár 2025
- Aukinn gagnahraði og ný viðskiptatækifæri
-
Í mars munu viðskiptavinir Símans með 5G tæki eiga kost á öflugra sambandi óháð áskriftarleiðum
-
Nýir fyrirtækjapakkar settir á markað í byrjun árs
- Lausnir hjá Símanum með áherslu á netöryggi
- Fjarskipta- og netöryggisþarfir fyrirtækja leyst með fyrirtækjapakka á föstu verði
- Öflugur eldveggur, vöktun 24/7, uppsetning og ráðgjöf
- Mikilvæ gir samstarfsaðilar lykilatriði

ERICSSON
FORTINET.
CISCO
Míla
- Ljósløaravæðing
- Árið 2021 fjölgaði ljósleiðaratengdum rýmum um 13.400 og voru tengd rými alls 108.400 í lok ársins.
- Fjölgunn var meiri á landsbyggðinni þetta árið, eða um 7.800 á móti 5.600 á höfuðborgarsvæðinu.
-
Áherslan er nú meiri á lagningu ljósleiðara á landsbyggðinni og mun sú þróun halda áfram.
-
Farsímadreifikerfi
- Fyrir lok árs lauk Míla við uppsetningu á 31 5G sendastað á landinu.
- Tíðnileyfi Símans var sett skilyrði um uppsetningu á 30 5G sendastöðum.
- Sendarnir voru settir upp á höfuðborgarsvæðinu, í Þorlákshöfn, á Egilsstöðum og á Blönduós, auk Seyðishóla.
-
Þar með var útbreiðslukrafa tíðnileyfis Símans uppfyllt.
-
Útlandagátt
- Í lok árs skrifuðu Míla og Farice undir samning sem tryggir Mílu næga útlandabandvídð næstu 2 ár miðað við áætlaða þörf.
- Samningurinn gerir ráð fyrir útlandasamböndum yfir FARICE strenginn til London, DANICE strenginn til Amsterdam og sambanda yfir nýjan streng, IRIS til Dublinar, en gert er ráð fyrir að hann verði tekinn í notkun fyrir lok árs 2022.
- Auk þess kaupir Míla útlandasambönd af Tele Greenland yfir Greenland Connect strenginn til New York.
- Með þessum samningi tryggir Míla áfram besta mögulega öryggi á útlandasamböndum.

Sala Mílu til Ardian
Sala Mílu til Ardian er til umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu
- Til upprifjunar
- Síminn undirritaði í október sl. samning um sölu á öllum eignarhlut sínum í Mílu.
- Kaupandi er Ardian sem er leiðandi innviðafjárfestir í Evrópu.
- Virði viðskiptanna er 78 ma.kr. og áætlaður söluhagnaður rúmlega 46 ma.kr.
- Síminn fær greitt á efndadegi (e. closing) um 44 ma.kr. í reiðufé og 15 ma.kr. í formi skuldabréfs til þriggja ára.
- Gerður er 20 ára heildsölusamningur á milli Símans og Mílu.
-
Ardian hefur boðið íslenskum lífeyrissjóðum að taka þátt í kaupunum.
-
Samkeppniseftirlitið er með málið á sínu borði
- Stofnunin tilkynnti 10. febrúar sl. að samrunatilkynningin væri fullnægjandi og hófust þá lögbundnir frestir að líða.
-
Ekki hægt að segja til um hvenær Samkeppniseftirlitið lýkur afgreiðslu málsins, en vart síðar en um mitt ár.
-
Samningur við ríkið
- Viðræðum milli ríkisins og fulltrúa Mílu, Símans og Ardian um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðaröryggishagsmunum í nýju eignarhaldi erlendra aðila lauk með undirritun samnings í desember sl. um kvaðir sem Míla tekur á sig vegna þjóðhagslega mikilvægra fjarskiptaneta.
- Þar með er staðfest að fjarskiptakerfi Mílu uppfylla kröfur ríkisins um þjóðaröryggi og má því segja að kerfi Mílu séu öruggustu fjarskiptakerfi landsins.
Sala Mílu hefur överuleg áhrif á rekstur Símans
- Væntur söluhagnaður er mjög mikill sem gerbreytir efnahag félagsins.
- Utan söluhagnaðar hefur salan sem slík óveruleg áhrif á rekstur Símans hf.
- Viðskipti Símans og Mílu byggja áfram á sama grunni og verið hefur frá stofnun Mílu.
- Viðskipti félaganna hafa ávallt byggt á armslengdarsjónarmiðum og Míla hefur haft fullt sjálfstæði í sínum rekstri enda ríkar kvaðir frá opinberum aðilum þar að lútandi.
- Megnið af vörum Mílu byggja á kostnaðargreindum verðum og fullt jafnræði er á milli aðila á fjarskiptamarkaði.
- Stór breyting varð á viðskiptasambandi Símans og Mílu þegar eignasala RAN og MPLS var framkvæmd.
- Sú breyting fór fram í ársbyrjun 2021, löngu áður en sala Mílu fór fram, og stendur því ein og sér óháð sölunni. Áhrif af umræddum breytingum eru að fullu inni í rekstrartölum síðasta árs.
- Gerð var ítarleg grein fyrir áhrifum af þeirri eignasölu á rekstur Símans og Mílu í fjárfestakynningu 1F 2021.
- Í ársreikningi samstæðu árið 2021 eru eignir Mílu flokkaðar sem eignir til sölu og rekstur Mílu er flokkaður sem aflögð starfsemi.
- Salan hefur engin áhrif umfram það sem hefðbundið er vegna sölu dótturfélaga.
- Ekkert í viðskiptum félaganna flokkast sem sala / endurleiga (e. sale-leaseback).
- Engin leiguskuldbinding myndast vegna IFRS 16.
- Míla mun áfram reka opið fjarskiptanet eftir sölu til Ardian.
Síminn í kjölfar sölu Mílu
| Samstæða | 2021 | Sala Mílu | 2021 PF |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | 23.050 | 15.000 | 38.050 |
| Veltufjármunir | 9.748 | 42.500 | 52.248 |
| Eignir flokkaðar til sölu | 36.929 | -36.929 | 0 |
| Eignir | 69.727 | 57.500 | 90.298 |
| - p.a. handbært fé | 3.509 | 42.500 | 46.009 |
| - p.a. skuldabréf | 0 | 15.000 | 15.000 |
| Eigið fé | 31.079 | 46.397 | 77.476 |
| Langtímaskuldir | 7.200 | 0 | 7.200 |
| Skammtímaskuldir | 5.622 | 0 | 5.622 |
| Skuldir flokkaðar til sölu | 25.826 | -25.826 | 0 |
| Skuldir og eigið fé | 69.727 | 46.397 | 90.298 |
| - p.a. vaxtaberandi skuldir | 7.461 | 7.461 | |
| - p.a. leiguskuldbinding | 833 | 833 | |
| Eiginfjárhlutfall | 44,6% | 85,8% |
Síminn samstæða
- Efnahagsreikningur Símans mun breytast mikið við sölu Mílu.
- Ljóst er að geta félagsins til ytri vaxtar og/eða arðgreiðslna verður umtalsverð.
- Á meðan salan er til umfjöllunar Samkeppnisyfirvalda er ekki hægt að bregða skýru ljósi á næstu skref Símans.
- Um leið og niðurstaða fæst verða hugmyndir félagsins varðandi framtíðarstefnu Símans og ráðstöfun söluandvirðis bornar undir hlutahafa félagsins.
S
Tillögur fyrir aðalfund
Aðalfundur 2022
Arðgreiðsla og endurkaup
Arðgreiðslustefna:
„Síminn hf. stefnir að því að greiða hluthöfum árlega arð og/eða framkvæma endurkaup sem nema að lágmarki 50% af hagnaði eftir skatta í samræmi við lög og reglur hverju sinni. Við gerð tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn meðal annars taka tillit til viðmiða við fjárhagsskipan félagsins, aðstæðna á markaði, fjárfestingarþarfar á næstu árum og skuldbindinga félagsins.“
Óskað verður eftir heimild aðalfundar þann 10. mars 2022 til að:
- Greiða út 500 milljónir króna í arð – Sama fjárhæð og árið 2021.
- Lækka hlutafé félagsins um 240 milljónir að nafnverði með jöfnun á eigin hlutum félagsins. Er 3,18% af útgefnum hlutum í félaginu.
-
Óskað verður eftir heimild til að kaupa allt að 10% af útgefnu hlutafé á næstu 18 mánuðum.
-
Ákvörðun um heildarfjárhæð endurkaupa ársins liggur ekki fyrir en stjórn verður heimilt að vinna innan þess ramma sem heimild aðalfundar veitir og byggir á arðgreiðslustefnu.
Hluthafar
Hluthafar

| Hluthafar 8.2.2022 | Fjöldi hluta | Eignahlutur |
|---|---|---|
| Stoðir hf. | 1.162.220.631 | 15,41% |
| Lifeyrissjóður verzlunarmanna | 868.257.927 | 11,52% |
| Lifeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 744.000.000 | 9,87% |
| Gildi - lifeyrissjóður | 612.192.195 | 8,12% |
| Íslandsbanki hf, safnskráning 2 | 396.693.435 | 5,26% |
| Stapi lifeyrissjóður | 307.351.432 | 4,08% |
| Brú Lifeyrissjóður starfs sveit | 305.650.161 | 4,05% |
| Lifeyrissj.starfsm.rík. B-deild | 286.618.000 | 3,80% |
| Birta lifeyrissjóður | 275.446.563 | 3,65% |
| Söfnunarsjóður lifeyrisréttinda | 251.575.320 | 3,34% |
| 10 stærstu hluthafar | 5.210.005.664 | 69,10% |
| Aðrir hluthafar | 2.070.691.792 | 27,46% |
| Samtals útistandandi hlutir | 7.280.697.456 | 96,56% |
| Eigin bréf | 259.302.544 | 3,44% |
| Heildarhlutafé | 7.540.000.000 | 100% |

- Stoðir hf.
- Lifeyrissjóður verzlunarmanna
- Lifeyrissj.starfsm.rík. A-deild
- Gildi - lifeyrissjóður
- Íslandsbanki hf, safnskráning 2
- Stapi lifeyrissjóður
- Brú Lifeyrissjóður starfs sveit
- Lifeyrissj.starfsm.rík. B-deild
- Birta lifeyrissjóður
- Söfnunarsjóður lifeyrisréttinda
- Aðrir hluthafar
- Eigin bréf
Hluthafar
- Endurkaupaáætlun
- Endurkaup ársins 2021 námu 2.965 m.kr. sem er aukning um ríflega 1.200 m.kr. frá árinu 2020.
- Arðgreiðsla ársins var 500 m.kr. sem er óbreytt greiðsla frá árinu 2020.
- Hlutafé félagins var lækkað með 8.000 m.kr. greiðslu til hluthafa í apríl 2021.
- Endurkaup eru í gangi og byggja á áætlun sem tilkynnt var til Kauphallar þann 13. desember sl.
- Hluthafar voru 1.242 í árslok og fjölgaði þeim um 369 árið 2021.
- Hlutabréf Símans hækkuðu um 49,6% árið 2021.
Horfur 2022
Rekstrarhorfur 2022
Ár mikilla breytinga framundan
- Miklar breytingar hafa verið á skipulagi samstæðu undanfarið með sölu á Sensa í árslok 2020 og sölu á Mílu í október 2021.
- Afkomu- og fjárfestingaspá er án rekstrar Mílu.
- Gert er ráð fyrir lítilli breytingu á EBITDA Símans.
- Gert er ráð fyrir tekjuvexti en ólíklegt að aukning núverandi tekna haldi í við verðbólguþróun.
- Komi til styrkingar krónunnar mun það vega á móti kostnaðarhækkunum innanlands.
-
Fjárfestingar Símans aukast talsvert í ár, sem er tímabundin aukning.
-
Vegna aukins kostnaðar við sýningarrétt að ensku úrvalsdeildinni og þar sem nú er fyrsta ár nýs samnings (framhlaðin fjárfesting). Nýr sýningarréttur færist á fjárfestingu á 3F 2022. Fyrsta greiðsla var árið 2021 en ekkert er greitt vegna réttarins árið 2022.
- Vegna aukinnar fjárfestingar í innri kerfum Símans. Verkefnin tengjast nýjum tekjutækifærum á m.a. sjónvarpsmarkaði og stafrænni þróun Símans.
- Án þessara tímabundnu fjárfestinga eru fjárfestingar í hefðbundnum rekstrarfjármunum og öðrum sýningarréttum 2,3 til 2,6 ma.kr.
Horfur fyrir árið 2022

EBITDA samstæðu án Mílu var 5.502 m.kr. árið 2021
Fjárfestingar samstæðu án Mílu voru 2.503 m.kr. árið 2021
Viðaukar
Lýsing starfsþátta
- Farsími: Farsímaþjónustu innanlands og erlendis, hvort sem er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattaþjónusta eða önnur farsímaþjónusta.
- Talsími: Talsímaþjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
- Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónustu, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet.
- Sjónvarp: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
- Vörusala búnáðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
- Annað: Tekjur tengdar fjarskiptum, upplýsingatækni og fjármálum.
Fyrirvari
Síminn vekur athygli á því að upplýsingar í þessari kynningu byggja á heimildum sem félagið telur áreiðanlegar á hverjum tíma og staðhæfingar sem finna má í kynningunni kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við kynningu. Staðhæfingar sem finna má í þessari kynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar kynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.
Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í kynningunni. Kynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Kynningin er eingöngu hugsuð til upplýsingagjafar en ekki ætluð sem hluti af eða grundvöllur ákvarðanatöku þeirra aðila sem fá hana í hendur. Viðtakendur eiga því ekki að nokkru leyti að túlka innihald kynningarinnar sem loforð eða leiðbeiningar.
Sérhver yfirlýsing í kynningu þessari sem vísar til framtíðaráætlunar eða framtíðarárangurs er einungis spá um framtíðarhorfur félagsins, byggð á núverandi þróun, fyrirliggjandi upplýsingum og áætlunum. Framtíðarhorfur félagsins eru háðar fjölda áhættu- og óvissuþátta sem getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrögðinn því sem spáð er í þessari kynningu. Þar má nefna ytri þætti á borð við breytingar á efnahagsumhverfi, framboð á fjármagni og áhrif eftirlitsaðila.
Með mottöku þessarar kynningar staðfestir viðkomandi að hann sé bundinn af framangreindum fyrirvörum og takmörkunum.
