AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2024
Feb 18, 2025
2203_ip_2025-02-18_694d1bb8-9cf7-4cd3-98ff-b7501e364758.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Ársuppgjör 2024
María Björk Einarsdóttir og Óskar Hauksson
18. febrúar 2025


4F - Sterkasti ársfjórðungur ársins
Afkoma samstæðunnar á fjórðungnum var góð og byggir niðurstaðan einkum á fjölgun í sjónvarpsáskriftum, sterkri auglýsingasölu og lækkandi brottfalli í fjarskiptum
- Talsverð fjölgun var í farsímaáskriftum en reikitekjur voru nánast óbreyttar á milli ára
- Áskrifendur af Premium voru rétt tæplega 50 þúsund í árslok og hafa aldrei verið fleiri, en tekjuaukning af Premium var 10% á milli ára
- Fjölgun í internetáskriftum er hægari en í farsíma og sjónvarpi, en brottfall hefur farið lækkandi í kjölfar aukinnar áherslu á gagnadrifna nálgun í þjónustu sem hafa miðað að því að fyrirbyggja brottfall
- Auglýsingatekjur án Billboard aukast um tæp 12% frá árinu áður
Fjármagnstekjur voru óbreyttar á milli ára en fjármagnsgjöld jukust um 200 m.kr. vegna aukinnar skuldsetningar sem tengist yfirtökum á Billboard og Noona Iceland, auk þess sem niðurfærslur útlána aukast
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta jókst um 45% á milli ára og nemur rúmum 2,1 ma.kr.

Rekstrarreikningur 4F
| 4F | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | Breyting | % | |||
| Sala | 7 291 |
6 468 |
823 | 12 7% , |
||
| Kostnaðarverð sölu |
( 455) 4 |
( 119) 4 |
( 336) |
8 2% , |
||
| Framlegð | 2 836 |
2 349 |
487 | 20 7% , |
||
| Aðrar rekstrartekjur |
140 | 191 | ( 51) |
-26 7% , |
||
| Rekstrarkostnaður | ( 032) 2 |
( 906) 1 |
( 126) |
6 6% , |
||
| Rekstrarhagnaður (EBIT) |
944 | 634 | 310 | 48 9% , |
||
| Fjármunatekjur | 195 | 195 | 0 | 0 0% , |
||
| Fjármagnsgjöld | ( 489) |
( 287) |
( 202) |
4% 70 , |
||
| Gengismunur | ( 12) |
( 28) |
16 | 1% -57 , |
||
| Hrein fjármagnsgjöld |
( 306) |
( 120) |
( 186) |
0% 155 , |
||
| Hagnaður fyrir tekjuskatt |
638 | 514 | 124 | 24 1% , |
||
| Tekjuskattur | ( 121) |
( 100) |
( 21) |
21 0% , |
||
| Hagnaður | 517 | 414 | 103 | 24 9% , |
||
| EBITDA | 2 071 |
614 1 |
457 | 28 3% , |
||
| á Hagnaður hlut |
0 20 , |
0 15 , |
0 05 , |
33 3% , |
Heildartekjur námu 7.431 m.kr. og jukust um rúmar 770 m.kr. frá fyrra ári
- Þar munar mestu um 547 m.kr. vegna tekna af Billboard sem varð hluti af samstæðunni í byrjun annars ársfjórðungs
- Tekjur af kjarnavörum Símans jukust um 297 m.kr. eða 5,3% en tekjur af talsímaþjónustu halda áfram að dragast saman og lækkuðu um 30 m.kr. frá fyrra ári
Kostnaðarverð sölu jókst um 336 m.kr. frá fyrra ári
• Kostnaður vegna Billboard skýrir um 250 m.kr. af aukningunni og kostnaðarhækkanir frá innviðabirgjum voru um 70 m.kr en sá kostnaður er verðtryggður að miklu leyti
Rekstrarkostnaður jókst um 126 m.kr. frá fyrra ári
• Rekstrarkostnaður Billboard var um 190 m.kr.
Hrein fjármagnsgjöld jukust um 186 m.kr. frá fyrra ári
- Fjármunatekjur standa í stað hjá samstæðunni en vaxtatekjur af útlánum Símans Pay jukust um 28 m.kr. og námu 135 m.kr. á 4F 2024
- Fjármagnsgjöld jukust um rúmar 202 m.kr. þar sem Síminn hefur aukið skuldsetningu í tengslum við yfirtökur
2024 - Tímabil vaxtar er hafið
Afkoma félagsins var góð á árinu og nam EBIT rekstrarhagnaður 2.875 m.kr. og hagnaður var 1.381 m.kr.
- Billboard kom inn í reksturinn í byrjun 2F og skilaði rúmlega 1,3 ma.kr. í tekjur og tæplega 600 m.kr. í EBIT. Tekjur Billboard jukust um 17% frá árinu 2023.
- Tekjur samstæðu án Billboard jukust um tæp 3%, EBITDA um rúm 2% og EBIT um tæp 14%
- Vel gekk að hafa stjórn á kostnaði en viðvarandi há verðbólga hefur óhjákvæmilega haft neikvæð áhrif á reksturinn. Stærstu kostnaðarliðir félagsins eru tengdir innviðabirgjum og eru þeir samningar að miklu leyti verðtryggðir.
- Talsverðar breytingar urðu á framkvæmdastjórn og skipulagi árið 2024. Í heildina kostuðu breytingarnar 215 m.kr.
Eftir áralangt tímabil sem einkenndist af eignasölu, einföldun og hagræðingu í rekstri, tók félagið skref til ytri vaxtar með kaupum á Billboard, Noona Iceland og lánasafni Valitor
Á haustmánuðum urðu forstjóraskipti og í kjölfarið voru gerðar breytingar á stefnu og skipulagi félagsins, til að styðja við áframhaldandi vöxt og fjölgun tekjustrauma
Gagnadrifin og viðskiptavinamiðuð nálgun í sölu, þjónustu, markaðssetningu og vöruþróun samhliða metnaðarfullri stafrænni umbreytingu styður við markmið félagsins um arðbæran rekstur, ánægða viðskiptavini og stolt starfsfólk
Rekstrarreikningur 2024
| 12M | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | Breyting | % | |||
| Sala | 27 189 |
25 067 |
2 122 |
8 5% , |
||
| Kostnaðarverð sölu |
( 328) 17 |
( 497) 16 |
( 831) |
0% 5 , |
||
| Framlegð | 9 861 |
8 570 |
1 291 |
1% 15 , |
||
| Aðrar rekstrartekjur |
643 | 674 | ( 31) |
-4 6% , |
||
| Rekstrarkostnaður | ( 629) 7 |
( 165) 7 |
( 464) |
6 5% , |
||
| (EBIT) Rekstrarhagnaður |
2 875 |
2 079 |
796 | 38 3% , |
||
| Fjármunatekjur | 734 | 740 | ( 6) |
-0 8% , |
||
| Fjármagnsgjöld | ( 841) 1 |
( 102) 1 |
( 739) |
67 1% , |
||
| Gengismunur | ( 6) |
( 30) |
24 | -80 0% , |
||
| fjármagnsgjöld Hrein |
( 113) 1 |
( 392) |
( 721) |
183 9% , |
||
| Hagnaður fyrir tekjuskatt |
1 762 |
1 687 |
75 | 4 4% , |
||
| Tekjuskattur | ( 381) |
( 341) |
( 40) |
7% 11 , |
||
| Hagnaður | 1 381 |
1 346 |
35 | 6% 2 , |
||
| EBITDA | 7 147 |
6 150 |
997 | 16 2% , |
||
| Hagnaður á hlut |
0 54 , |
0 46 , |
0 08 , |
17 4% , |
Heildartekjur námu 27.832 m.kr. og jukust um tæplega 2,1 ma.kr. frá fyrra ári
- Þar munar mestu um 1.328 m.kr. vegna tekna af Billboard sem varð hluti af samstæðunni í byrjun annars ársfjórðungs
- Tekjur af kjarnavörum Símans jukust um 1.151 m.kr. eða 5,3% en tekjur af talsímaþjónustu halda áfram að dragast saman og lækkuðu um 370 m.kr. frá fyrra ári
Kostnaðarverð sölu jókst um 831 m.kr. frá fyrra ári
• Kostnaður vegna Billboard skýrir um 630 m.kr. af aukningunni og kostnaðarhækkanir frá innviðabirgjum voru um 270 m.kr en sá kostnaður er verðtryggður að miklu leyti
Rekstrarkostnaður jókst um 464 m.kr. frá fyrra ári
• Þar af var um 215 m.kr. kostnaður við skipulagsbreytingar og forstjóraskipti en 240 m.kr. vegna Billboard
EBITDA nam 7.147 m.kr. og EBIT 2.875 m.kr.
- Útgefin afkomuspá fyrir EBITDA var 7,0 7,3 ma.kr. og EBIT 2,7 3,0 ma.kr.
- Um 150 m.kr. af kostnaði vegna skipulagsbreytinga og 80 m.kr. afskrift óefnislegra eigna féllu til eftir að spáin var gefin út og voru því ekki þekktar áður en spáin var birt.
Hrein fjármagnsgjöld jukust um 721 m.kr. frá fyrra ári
- Fjármunatekjur standa nánast í stað hjá samstæðunni en vaxtatekjur af útlánum Símans Pay jukust um 150 m.kr. og námu tæplega 500 m.kr. árið 2024
- Fjármunatekjur hjá Símanum drógust saman um rúmar 160 m.kr. en vaxtatekjur voru óvenjuháar hjá Símanum á fyrsta ársfjórðungi 2023 þegar hluti af söluandvirði Mílu var í handbæru fé
- Fjármagnsgjöld jukust um 739 m.kr. vegna aukinnar skuldsetningar í tengslum við yfirtökur auk þess sem grunnvextir voru að meðaltali hærri árið 2024 en 2023
Lykiltölur úr rekstri




Tekjur eftir starfsþáttum
| Starfsþættir | 4F Starfsþættir |
||||
|---|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | Breyting | % | ||
| Farsími | 1 743 |
1 656 |
87 | 5 3% , |
|
| Gagnaflutningur | 2 064 |
1 976 |
88 | 4 5% , |
|
| Sjónvarpsþjónusta | 2 096 |
1 974 |
122 | 6 2% , |
|
| Vörusala | 547 | 523 | 24 | 6% 4 , |
|
| Annað | 981 | 530 | 451 | 1% 85 , |
|
| Samtals | 7 431 |
6 659 |
772 | 11 6% , |

| 4F | Starfsþættir | 12M 4F Starfsþættir |
12M 4F |
||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 2023 | Breyting | % | 2024 2023 Breyting % 2024 2023 Breyting % |
2024 2024 |
2023 2023 |
Breyting Breyting |
% % |
| Farsími | 1.743 1.656 87 5,3% Farsími |
6.858 1 743 |
6.510 1 656 |
348 87 |
5,3% 3% 5 , |
||
| Gagnaflutningur | 2.064 1.976 88 4,5% Gagnaflutningur |
8.277 2 064 |
7.939 976 1 |
338 88 |
4,3% 5% 4 , |
||
| Sjónvarpsþjónusta | 2.096 1.974 122 6,2% Sjónvarpsþjónusta |
7.905 2 096 |
7.440 1 974 |
465 122 |
6,3% 2% 6 , |
||
| Vörusala | 547 523 24 4,6% Vörusala |
1.734 547 |
1.784 523 |
-50 24 |
-2,8% 4 6% , |
||
| Annað | 981 530 451 85,1% Annað |
3.058 981 |
2.068 530 |
990 451 |
47,9% 85 1% , |
||
| Samtals | 7.431 6.659 772 11,6% Samtals |
27.832 7 431 |
25.741 6 659 |
2.091 772 |
8,1% 11 6% , |
||

Farsími: Farsímaþjónustu hvort sem er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattaþjónusta eða önnur farsímaþjónusta. Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónustu, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet.Sjónvarp: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.Vörusala búnaðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum. Annað: Tekjur tengdar fjarskiptum, talsímaþjónustu, upplýsingatækni og fjármálum. Tekjur Billboard falla hér undir.
Tekjur eftir starfsþáttum

Farsími
- Aukning í fjölda og tekjum á árinu
- Reikitekjur sambærilegar á milli ára
Gagnaflutningur
• Lítilsháttar aukning í fjölda á seinni helmingi árs eftir talsvert brottfall í ársbyrjun
Sjónvarpsþjónusta
- Góður tekjuvöxtur og áskrifendur með Premium hafa aldrei verið fleiri en í árslok 2024
- Sterk auglýsingasala á árinu
Aðrir starfsþættir
- Samdráttur í vörusölu milli ára
- Talsverður tekjusamdráttur í talsíma enda var koparinn lagur niður árið 2024. Varan lifir þó áfram í nýrri mynd.
- Billboard fellur hér undir árið 2024 en auglýsingamiðlun verður birt sem sérstakur starfsþáttur frá og með 1F 2025



Útlán
- Útlán Símans Pay í gegnum vörurnar Léttkort og Léttkaup jukust um tæplega hálfan milljarð árið 2024 og varð aukningin einkum á síðari helmingi ársins
- Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Símans Pay á lánasafni Valitor og munu kaupin ganga í gegn í lok febrúar
- Við kaupin á lánasafninu munu útlán Símans Pay fara yfir 5 ma.kr.
Fyrirtækjakortið
- Þróun á fyrirtækjakorti Símans Pay heldur áfram og hafa viðtökur verið góðar
- Um 100 fyrirtæki nota nú lausnina með góðum árangri og stöðugt bætast fleiri við
Noona Iceland
- Noona Iceland varð hluti af samstæðunni í desember 2024 og verður rekið samhliða Símanum Pay
- Bókunar- og afgreiðslulausnir eru þar með orðinn hluti af fjölbreyttu vöruframboði Símans í fjártækni
Noona Iceland
- Kaupum Símans á innlendum rekstri Noona og SalesCloud lauk í desember 2024 þegar samþykki Samkeppniseftirlitsins lá fyrir
- Hið keypta félag, Noona Iceland ehf. verður rekið samhliða Símanum Pay og rekstur og lausnir félaganna samþættar þar sem við á
- Noona er stærsta tímabókunarkerfi landsins, með um 1.000 fyrirtæki í viðskiptum og 120.000 skráða notendur, en þar af eru 75.000 virkir notendur í hverjum mánuði
- Afgreiðslulausnir SalesCloud henta mjög vel fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og eru sjálfsafgreiðslulausnirnar í sérflokki hér á landi
- Noona appið fékk Meðmælingu Maskínu árið 2024 í flokki vefþjónustuaðila og hlaut verðlaun á UT Messu 2025 í flokki Stafrænnar almennrar þjónustu
- Þá hlaut Noona tilnefningu sem besta íslenska vörumerkið í flokki fyrirtækjamarkaðar hjá vörumerkjastofunni Brandr

Efnahagur og sjóðstreymi
Efnahagsreikningur
| 31.12.2024 | 31.12.2023 | Breyting | % | |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 3.543 | 2.552 | 991 | 39% |
| Leigueignir | 1.844 | 732 | 1.112 | 152% |
| Óefnislegar eignir |
26.243 | 21.047 | 5.196 | 25% |
| Aðrar eignir |
638 | 431 | 207 | 48% |
| Fastafjármunir | 32.268 | 24.762 | 7.506 | 30% |
| Birgðir | 1.339 | 1.257 | 82 | % 7 |
| Viðskiptakröfur | 2.503 | 2.279 | 224 | 10% |
| Útlán | 3.204 | 2.715 | 489 | 18% |
| Aðrar skammtímakröfur |
1.033 | 966 | 67 | 7 % |
| Handbært fé |
835 | 1.810 | ( 975) |
-54% |
| Veltufjármunir | 8.914 | 9.027 | ( 113) |
-1% |
| samtals Eignir |
41.182 | 33.789 | 7.393 | 22% |
| Eigið fé |
18.116 | 17.600 | 516 | 3 % |
| Eigið fé |
18.116 | 17.600 | 516 | 3 % |
| Vaxtaberandi skuldir |
12.733 | 7.470 | 5.263 | 70% |
| Leiguskuldbindingar | 1.571 | 503 | 1.068 | 212% |
| Tekjuskattsskuldbinding | 686 | 232 | 454 | 196% |
| Langtímaskuldir | 14.990 | 8.205 | 6.785 | 83% |
| Vaxtaberandi skuldir |
2.084 | 2.281 | -9% | |
| ( 197) |
||||
| Viðskiptaskuldir | 3.760 | 4.261 | ( 501) |
-12% |
| árs afborganir Næsta |
780 | 276 | 504 | 183% |
| Aðrar skammtímaskuldir |
1.452 | 1.166 | 286 | 25% |
| Skammtímaskuldir | 8.076 | 7.984 | 92 | 1 % |
| Eigið fé og skuldir samtals |
41.182 | 33.789 | 7.393 | 22% |
- Aukning í rekstrarfjármunum og leigueignum er einkum vegna kaupanna á Billboard
- Viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir vegna kaupanna á Billboard og Noona hækka óefnislegar eignir um 6 ma.kr. en á móti lækkuðu sýningarréttir um 1,1 ma.kr. á árinu og aðrir óefnislegir liðir hækkuðu um 280 m.kr.
- Ný lántaka á árinu nam um 6 ma.kr., þar af voru 4,5 ma.kr. í bankalánum og 1,5 ma.kr. í formi skuldabréfs
- Víxlar voru gefnir út fjórum sinnum á árinu og var vaxtaálag í kringum 30 bps. Útgefnir víxlar Símans námu 2,2 ma.kr. að nafnvirði í árslok.
- Hluti af kaupverði Billboard var greiddur með eigin bréfum að andvirði 1 ma.kr. á 1F 2024

Hreinar vaxtaberandi skuldir innihalda vaxtaberandi skuldir og leiguskuldbindingar að frádregnu handbæru fé og útlánum Símans Pay 12M EBITDA2024 inniheldur 12M pro forma EBITDA Billboard og Noona.
Sjóðstreymi
| 2024 | 2023 | |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður ársins |
2.875 | 2.079 |
| Afskriftir | 4.272 | 4.071 |
| Liðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi |
57 | 30 |
| Samtals rekstrarhreyfingar |
7.204 | 6.180 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum |
( 244) |
( 568) |
| Handbært fé frá rekstri án og skatta vaxta |
6.960 | 5.612 |
| Innborgaðir vextir |
742 | 758 |
| Greiddir vextir |
( 1.612) |
( 947) |
| Greiddir skattar |
( 289) |
( 570) |
| Handbært fé frá rekstri |
5.801 | 4.853 |
| í | ( 3.673) |
( 3.671) |
| Fjárfestingar rekstrarfjármunum varanlegum Útlán Símans |
( 597) |
( 1.272) |
| Pay á að handbæru fé |
0 | |
| dótturfélögum frádregnu Kaup Sala á verðbréfi |
( 5.352) 0 |
15.685 |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 9.622) |
10.742 |
| Greiddur arður |
( 499) |
( 499) |
| bréfa Kaup eigin |
( 1.424) |
( 2.976) |
| Útgreitt hlutafé |
0 | ( 15.580) |
| Afborganir leiguskuldbindingar |
( 362) |
( 265) |
| Nettó breyting á lánum |
5.136 | 1.852 |
| Fjármögnunarhreyfingar | 2.851 | ( 17.468) |
| Breytingar á handbæru fé |
( 970) |
( 1.873) |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé |
( 5) |
( 38) |
| Handbært fé í byrjun ársins |
1.810 | 3.721 |
| Handbært fé í lok ársins |
835 | 1.810 |
- Handbært fé frá rekstri var 5,8 ma.kr. og jókst um tæpan milljarð frá fyrra ári þrátt fyrir að vaxtagreiðslur hafi aukist um 665 m.kr.
- Fjárfestingar standa því sem næst í stað á milli ára en ef kostnaður vegna tíðnileyfa er undanskilinn þá eru fjárfestingar að lækka um 204 m.kr.
- Fyrirséð er að fjárfestingar muni lækka umtalsvert þegar sýningarrétturinn á enska boltanum færist frá Símanum seinna á þessu ári.
- Útlánaaukning Símans Pay nam 597 m.kr. á árinu samanborið við 1.272 m.kr. árið 2023
- Endurkaup og arðgreiðslur námu alls 1.923 m.kr. sem er 1,4 sinnum hagnaður ársins 2023 en markmið félagsins er að skila að lágmarki 50% af hagnaði til hluthafa í formi arðs og/eða endurkaupa



Fjárfestingar

- Fjárfestingar lækka um 204 m.kr. á milli ára og eru um miðbik útgefinnar spár sem var 3.300 – 3.600 m.kr.
- Fjárfesting í sýningarréttum lækkar um 490 m.kr. á milli ára sem skýrist að miklu leyti af því hvernig fjárfesting í sýningarrétti á enska boltanum fellur til yfir samningstímabilið, sem hófst árið 2022 og lýkur nú í vor
- Fjárfestingar í tæknilegum innviðum þ.m.t. endabúnaði (myndlyklar, beinar) aukast um 284 m.kr. eða 18% á milli ára. Um 90 m.kr. af þessari aukningu er vegna fjárfestinga hjá Billboard.
- Síminn Pay fjárfesti í fjártækninýjungum með áherslu á fyrirtækjakort fyrir 140 m.kr. sem er aukning um 40 m.kr á milli ára eða ríflega 40%
- Spá fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir frekari lækkun fjárfestinga, eða á bilinu 400 – 700 m.kr., einkum vegna sýningarréttarins á enska boltanum
Fjárfestingar – Innviðir og sýningarréttir

Þróun 2020 - 2024 Fjárfestingar í innviðum


Um starfsemina
Stærsta ár Sjónvarps Símans Premium frá upphafi
- Í lok árs 2024 var metfjöldi áskrifenda með Sjónvarp Símans Premium
- Síminn frumsýndi flestar innlendar leiknar þáttaraðir allra á árinu. IceGuys slógu áhorfsmet í 4F í sinni annarri þáttaröð og sú þriðja verður sýnd á árinu 2025
- Þættirnir Lubbi finnur málbein voru þó með flestar spilanir, enda rík eftirspurn eftir fræðandi og vönduðu innlendu barnaefni
- Árið 2025 verður stærsta sjónvarpsár Sjónvarps Símans Premium frá upphafi, en fimm nýjar innlendar leiknar þáttaraðir verða frumsýndar á árinu
- Einnig verða þrjár nýjar þáttaraðir í flokki barnaefnis frumsýndar á árinu
- Samstarf Símans við HSÍ, KSÍ og Livey gengur vel. Aldrei hafa verið fleiri beinar útsendingar frá efstu deildum handbolta á Íslandi.

Ný stefna Símans
Stafrænt samfélag sem auðgar lífið
Sterkur grunnrekstur
Áfram verður lögð rík áhersla á skynsemi og hagkvæmni í rekstri
Sterkt sjóðstreymi og fyrirsjáanleiki í fjárfestingum
Virði skilað til hluthafa í gegnum arðgreiðslur og endurkaup
Arðbær rekstur
Vöxtur og nýir tekjustraumar
Stóraukin áhersla innan Símans á vöru - og viðskiptaþróun jafnt á einstaklingsmarkaði og fyrirtækjamarkaði
Stjórnendur munu skoða frekari tækifæri til ytri vaxtar með hliðsjón af stefnu félagsins
Þrjár tekjustoðir félagsins eru fjarskipti og tækni, stafræn miðlun og fjártækni
Stolt starfsfólk
Framúrskarandi upplifun
Síminn er stafrænt þjónustufyrirtæki sem skapar verðmætar tengingar fyrir fólk og fyrirtæki á hinum ýmsu sviðum dagsleg lífs
Metnaðarfull stafræn umbreyting styður við samþættingu lausna sem skapar heildræna upplifun viðskiptavina og hagræði í rekstri
Viðskiptavinamiðuð og gagnadrifin nálgun í sölu, þjónustu, markaðssetningu og vöruþróun
Ánægðir viðskiptavinir



Hluthafar

| Hluthafar 17.2.2025 | Fjöldi hluta | Eignahlutur |
|---|---|---|
| Stoðir hf. | 461.194.170 | 17,40% |
| Brú Lífeyrissjóður starfs sveit | 274.877.095 | 10,37% |
| Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 258.771.439 | 9,76% |
| Lífeyrissjóður verzlunarmanna | 173.922.187 | 6,56% |
| Gildi - lífeyrissjóður | 149.446.085 | 5,64% |
| Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 88.830.504 | 3,35% |
| Birta lífeyrissjóður | 86.438.951 | 3,26% |
| Stefnir - Innlend hlutabréf hs. | 78.205.439 | 2,95% |
| Brú R deild | 71.407.033 | 2,69% |
| Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild | 60.306.152 | 2,28% |
| 10 stærstu hluthafar | 1.703.399.055 | 64,28% |
| Aðrir hluthafar | 759.428.483 | 28,66% |
| Samtals útistandandi hlutir | 2.462.827.538 | 92,94% |
| Eigin bréf | 187.172.462 | 7,06% |
| Heildarhlutafé | 2.650.000.000 | 100,00% |

-
-
-
-
-
Hluthafar
- Hluthafar voru 931 í árslok 2024
- Greiddur var 500 m.kr. arður 5. apríl 2024
- Hlutafé var lækkað 27. mars 2024 um 125.000.000 eigin hluti og er hlutafé í félaginu 2.650.000.000
- Síminn greiddi hluta kaupverðs Billboard með eigin bréfum í Símanum, eða samtals 101.153.146 hluti
- Endurkaup árið 2024 námu 1.424 m.kr.
- Endurkaupum lauk fyrr í mánuðinum og á Síminn í dag 187.172.462 hluti sem nemur 7,06% af útgefnu hlutafé
- Hlutabréf Símans hækkuðu um 35,7% á árinu 2024, en frá áramótum hefur gengi hlutabréfa hækkað um 3,3 %
- Hagnaður á hlut var 0,54 árið 2024 og hækkar um 17% frá fyrra ári

Afkomuspá fyrir árið 2025
- Rekstur samstæðu Símans fer vel af stað á árinu 2025 og horfur fyrir árið eru almennt góðar
- Breytingar verða í rekstri félagsins í vor þegar samningur um sýningarrétt á enska boltanum líður undir lok
- Ákveðin óvissa skapast við þessa breytingu en áætlanir gera ráð fyrir jákvæðum áhrifum á sjóðstreymi og EBIT, en neikvæðum áhrifum á EBITDA
- Sýningarrétturinn er eignfærður og áætlun þessa árs gerir ráð fyrir að lækkun afskrifta verði meiri en möguleg neikvæð tekjuáhrif
- Almennur rekstrarkostnaður mun áfram litast af verðbólguáhrifum en þar fyrir utan er þróun næstu missera nokkuð fyrirséð
- Rekstur Noona Iceland kemur inn frá byrjun árs og keypt lánasafn í byrjun mars
- Fjárfestingar lækka talsvert frá 2024 vegna minni fjárfestinga í sýningarréttum




Síminn vekur athygli á því að upplýsingar í þessari kynningu byggja á heimildum sem félagið telur áreiðanlegar á hverjum tíma og staðhæfingar sem finna má í kynningunni kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við kynningu. Staðhæfingar sem finna má í þessari kynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar kynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.
Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í kynningunni. Kynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Kynningin er eingöngu hugsuð til upplýsingagjafar en ekki ætluð sem hluti af eða grundvöllur ákvarðanatöku þeirra aðila sem fá hana í hendur. Viðtakendur eiga því ekki að nokkru leyti að túlka innihald kynningarinnar sem loforð eða leiðbeiningar.
Sérhver yfirlýsing í kynningu þessari sem vísar til framtíðaráætlunar eða framtíðarárangurs er einungis spá um framtíðarhorfur félagsins, byggð á núverandi þróun, fyrirliggjandi upplýsingum og áætlunum. Framtíðarhorfur félagsins eru háðar fjölda áhættu- og óvissuþátta sem getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari kynningu. Þar má nefna ytri þætti á borð við breytingar á efnahagsumhverfi, framboð á fjármagni og áhrif eftirlitsaðila.
Með móttöku þessarar kynningar staðfestir viðkomandi að hann sé bundinn af framangreindum fyrirvörum og takmörkunum.