AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2023
Feb 20, 2024
2203_rns_2024-02-20_bbd99d35-1689-4c1d-a137-4948a3f871c3.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
- febrúar 2024
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 4F 2023
Afkoma fjórða ársfjórðungs 2023 og ársins 2023
- Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2023 námu 6.659 m.kr. samanborið við 6.233 m.kr. á sama tímabili 2022 og jukust um 6,8%. Tekjur í kjarnabjónustu Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsbjónustu aukast um tæplega 7% á fjórðungnum.
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.614 m.kr. á 4F 2023 og minnkar því um 19 m.kr. eða 1,2%. EBITDA hlutfallið er 24,2% á 4F 2023 en var 26,2% á sama tímabili 2022. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 634 m.kr. á 4F 2023 samanborið við 703 m.kr. á sama tímabili 2022. Án niðurfellingar stjórnvaldssektar að fjárhæð 200 m.kr. var EBITDA á 4F 2022 1.433 m.kr. (23,0%) og EBIT 503 m.kr.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 120 m.kr. á 4F 2023 en námu 389 m.kr. á sama tímabili 2022, en á 4F 2022 var færð neikvæð gangvirðisbreyting skuldabréfs vegna sölu Mílu sem nam 382 m.kr. Fjármagnsgjöld námu 287 m.kr., fjármunatekjur voru 195 m.kr. og gengistap nam 28 m.kr.
- Hagnaður á 4F 2023 nam 414 m.kr. samanborið við 381 m.kr. hagnað af áframhaldandi starfsemi á sama tímabili 2022.
- Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 10,5 ma.kr. í árslok 2023, en voru 8,9 ma.kr. í árslok 2022. Handbært fé í árslok 2023 nam 1,8 ma.kr., en var 3,7 ma.kr. í árslok 2022. Staða útlána hjá Símanum Pay var 2,9 ma.kr. í árslok 2023, en var 1,7 ma.kr. í árslok 2022.
- Eiginfjárhlutfall Símans var 52,1% í árslok 2023 og eigið fé 17,6 ma.kr.
Orri Hauksson, forstjóri:
„Árið 2023 gekk vel hjá Símanum, fyrsta heila árið eftir sölna á Mílu. Sú umbreyting á samstæðu Símans yfir í eignalétt bjónustufyrirtæki eru mestu umskipti sem orðið hafa í 118 ára sögu félagsins. Tekjuvöxtur var aðallega á seinni hluta ársins, sérstaklega í farsíma og sjónvarpi, ásamt því að tekjur í interneti sýndu hóflegan vöxt. Eitt af meginverkefnum ársins í ár verður að styrkja þennan stærsta tekjulið félagsins.
Verðbólga á árinu reyndi á bjónustusamninga við birgja Símans, en samningar þessir fela flestir í sér beina eða óbeina verðtryggingu. Síminn komst vel í gegnum þennan kúf og ljóst er að með stöðugra verðlagi fram á við hefur félagið góð tæki til að stýra rekstrarkostnaði.
Átak undanfarinna ára í fjárfestingum skilaði sér í bættri bjónustu við viðskiptavini og leiddi af sér metnýtingu á vörum félagsins. Ráðist var í margþættar umbætur á rekstri Símans, svo sem í uppfærslu ýmissa innri kerfa og áframhaldandi uppbyggingu 5G kerfis í samstarfi við Mílu. Samkvæmt nýlegri rannsókn þýsks mælingafyrirtækis á vegum Fjarskiptastofu býður Síminn
2
upp á besta farsímanetið á Íslandi. Netgæði voru einnig bætt inni á heimilum og hjá fyrirtækjum auk þess sem fjárfest var ríkulega í sjónvarpsefni sem íslenskir neytendur kunna að meta. Þá festi Síminn nýlega kaup á þremur fyrirtækjum sem starfa á sviði umhverfisauglýsinga, sem mun styrkja vöruframboð félagsins á sviði auglýsinga til mikilla muna.
Fjárfestingar fara nú hratt minnkandi á nýjan leik og nema árin 2023 og 2024 umtalsvert lægri upphæðum en afskriftir. Sú þróun byggir á ný undir sterkt fjárflæði og fjármunamyndun. Síminn hefur nýtt skuldléttan efnahag sinn undanfarið til að beina fé myndarlega að kaupum á eigin bréfum, á meðan skorti á ytri vaxtartækifæri. Þrátt fyrir háa vexti á Íslandi hefur Símanum lánast að fjármagna sig með aðferðum sem henta vel þróun á starfsemi félagsins. Nýttum við skuldabréf, vixla og bankalán á kjörum sem eru með því besta sem býðst á Íslandi.
Síminn hélt áfram að auka útlán sín til viðskiptavina í gegnum léttkort Símans. Stóðu útlánin í um þremur milljörðum króna um áramót og halda þau áfram að vaxa. Eins er nú boðið upp á rafrænt beiðnakerfi í innkaupum milli fyrirtækja, sem viðskiptavinir hafa tekið afar vel. Byggir sú þjónusta undir útgáfu kreditkorts fyrir fyrirtæki, sem er væntanlegt innan skamms.
Vinsældir Sjónvarps Símans hafa aldrei verið meiri, en spilanir í Sjónvarpi Símans voru um milljón talsins í hverri viku allt árið í fyrra. Sérstaklega erum við stolt af því að styðja vel við íslenska framleiðslu, en Síminn frumsýndi fjórar leiknar innlendar þáttaraðir í sjónvarpi af þeim sex sem voru framleiddar á landinu öllu. Í ár verða sex þáttaraðir af ellefu framleiddar af Símanum. Þess ber að geta að Síminn nýtur sjálfur engra ríkisstyrkja, en helstu keppinautar félagsins á þessu sviði eru ríkisfyrirtæki annars vegar og ríkisstyrkt einkafyrirtæki hins vegar.
Þróunarverkefni félagsins með HSÍ og KSÍ um beinar útsendingar frá kappleikjum, bæði innanlands sem utan, hófst í vetur og mun aukast að gæðum á næstunni. Næsta laugardag verður sett met í stýringartækni sjónvarpsútsendinga á Íslandi, þegar Sjónvarp Símans sinnir 17 beinum útsendingum sama daginn.
Sá sem á einna mestan heiður af þessu forystuhlutverki Símans á sviði íslenskrar miðlunar á undanförnum árum, Magnús Ragnarsson, hyggst hverfa frá Símanum innan skamms. Auk lykilhlutverks hans við umbreytingu og eftirtektarverðum vexti miðla Símans á undanförnum árum hefur Magnús leitt vöruþróun og nýsköpun félagsins á fjölmörgum öðrum sviðum. Það verður eftirsjá að Magnúsi og verður þakklátt verkefni okkar sem eftir standa að taka við þeirri góðu uppbýggingu sem hann hefur sinnt."
Helstu niðurstöður í rekstri árið 2023
Rekstur samstæðu
| Rekstrarreikningur | 4F | 12M | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | % | 2023 | 2022 | % | |
| Rekstrartekjur | 6.659 | 6.233 | 6,8% | 25.741 | 24.572 | 4,8% |
| Kostnaðarverð sölu | (4.119) | (3.874) | 6,3% | (16.497) | (14.914) | 10,6% |
| Rekstrarkostnaður | (1.906) | (1.656) | 15,1% | (7.165) | (6.713) | 6,7% |
| EBIT | 634 | 703 | -9,8% | 2.079 | 2.945 | -29,4% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (120) | (389) | -69,2% | (392) | (546) | -28,2% |
| Tekjuskattur | (100) | 67 | -249,3% | (341) | (337) | 1,2% |
| Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi | 414 | 381 | 8,7% | 1.346 | 2.062 | -34,7% |
| Aflögð starfsemi | 0 | 289 | -100,0% | 0 | 36.205 | -100,0% |
| Hagnaður tímabils | 414 | 670 | -38,2% | 1.346 | 38.267 | -96,5% |
| EBITDA | 1.614 | 1.633 | -1,2% | 6.150 | 6.149 | 0,0% |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | 0,15 | 0,08 | 87,5% | 0,46 | 0,31 | 48,4% |
Sala árið 2023 nam 25.741 m.kr. samanborið við 24.572 m.kr. árið 2022, sem er 4,8% vöxtur milli ára. Sé horft til kjarnavara félagsins (farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu) er tekjuvöxtur 7,6%.
Tekjur af farsíma námu 6.510 m.kr. og hækkuðu um 475 m.kr. eða 7,9% á milli ára. Tekjur af talsíma námu 1.100 m.kr. og lækkuðu um 18,0% á milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 7.939 m.kr. og hækkuðu um 348 m.kr. eða 4,6% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 7.440 m.kr. og hækkuðu um 718 m.kr. eða 10,7% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 1.784 m.kr. og drógust saman um 54 m.kr. eða 2,9% á milli ára. Aðrar tekjur námu 968 m.kr. og lækkuðu um 76 m.kr. á milli ára. Lækkunin er aðallega vegna sölu á fjarskiptabúnaði og þjónustu til Mílu og endursölu á Spotify á 1F 2022.
Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 16.497 m.kr. og hækkaði um 1.583 m.kr. eða 10,6% frá árinu 2022 sem skýrist af auknum afskriftum sýningarrétta og auknum kostnaði frá fjarskiptabírgjum vegna hárrar verðbólgu. Rekstrarkostnaður nam 7.165 m.kr. og hækkaði um 452 m.kr. eða 6,7% frá árinu 2022.
Afskriftir félagsins námu 4.071 m.kr. árið 2023 samanborið við 3.204 m.kr. árið 2022 og hækkað um 867 m.kr. á milli ára. Hækkuðin er eins og áður hefur komið fram að miklu leyti tengd afskriftum sýningarrétta auk þess sem afskriftir upplýsingakerfa hafa aukist á milli tímabila.
4
Sjóðstreymi
Rekstrarhreyfingar námu samtals 6.180 m.kr. árið 2023 samanborið við 6.092 m.kr. árið 2022. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum árið 2023 námu 568 m.kr. til lækkunar.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 5.612 m.kr. árið 2023 samanborið við 8.134 m.kr. árið 2022. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 4.853 m.kr. árið 2023 samanborið við 7.240 m.kr. árið 2022.
Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem félagið fékk í tengslum við sóluna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á tímabilinu.
| Sjóðstreymi | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður tímabils | 2.079 | 2.945 |
| Afskriftir | 4.071 | 3.204 |
| Liðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi | 30 | (57) |
| Samtals rekstrarhreyfingar | 6.180 | 6.092 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (568) | 2.042 |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 5.612 | 8.134 |
| Nettó greiddir vextir | (189) | (12) |
| Greiddir skattar | (570) | (882) |
| Handbært fé frá rekstri | 4.853 | 7.240 |
| Fjárfestingahreyfingar | 10.742 | 26.861 |
| Fjármögnunarhreyfingar | (17.468) | (33.889) |
| Breytingar á handbæru fé | (1.873) | 212 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (38) | 0 |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 3.721 | 3.509 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 1.810 | 3.721 |
Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar sem nam 17.468 m.kr. árið 2023 sem skýrist helst af því að á 1F 2023 var hlutafé félagsins lækkæð með útgreiðslu til hluthafa sem nam tæplega 15,6 ma.kr. að teknu tilliti til eigin bréfa.
Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 33.789 m.kr. í lok árs 2023 en voru 51.181 m.kr. í lok árs 2022.
Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 10.530 m.kr. í lok árs 2023 samanborið við 8.867 m.kr. í lok árs 2022. Handbært fé í lok árs 2023 nam 1.810 m.kr. samanborið við 3.721 m.kr. í árslok 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 5.822 m.kr. í árslok 2023 samanborið við 3.449 m.kr. í árslok 2022.
Eigið fé félagsins nam 17.600 m.kr. í árslok 2023 og eiginfjárhlutfall félagsins var 52,1%.
| Eignir | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 2.552 | 2.466 |
| Leigueignir | 732 | 941 |
| Öefnislegar eignir | 21.047 | 22.122 |
| Aðrar eignir | 431 | 580 |
| Fastafjármunir | 24.762 | 26.109 |
| Verðbréf færð á gangvirði | 0 | 15.687 |
| Handbært fé | 1.810 | 3.721 |
| Aðrir veltufjármunir | 7.217 | 5.664 |
| Veltufjármunir | 9.027 | 25.072 |
| Eignir alls | 33.789 | 51.181 |
| Skuldir og eigið fé | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
| --- | --- | --- |
| Eigið fé | 17.600 | 35.261 |
| Eigið fé | 17.600 | 35.261 |
| Vaxtaberandi skuldir | 7.470 | 5.956 |
| Leiguskuldbinding | 503 | 731 |
| Viðskiptaskuldir | 0 | 639 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 232 | 89 |
| Langtímaskuldir | 8.205 | 7.415 |
| Aðrar skammúmaskuldir | 7.984 | 8.505 |
| Skammúmaskuldir | 7.984 | 8.505 |
| Skuldir og eigið fé alls | 33.789 | 51.181 |
5
Um starfsemina
-
Í janúar undirritaði Síminn kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í þremur tengdum fyrirtækjum á auglýsingamarkaði, sem eru Billboard ehf., Dengsi ehf. og BBI ehf. Síminn hefur verið að þróa auglýsingakerfi í sjónvarpi sem gerir viðskiptavinum kleift að beina auglýsingum á ákveðna markhópa og svæði, sem hefur í för með sér að auglýsingarnar eru markvissari fyrir viðskiptavini Símans. Kaupin munu styrkja enn frekar þjónustuframboð Símans á auglýsingamarkaði og mun Síminn fá enn frekara tækifæri til að þróa og vikka út auglýsingaþjónustu sína. Heildarvirði fyrirtækjanna nemur 5.150 m.kr. og verða fjármögnuð með hlutafé í Símanum að andvirði 1.000 m.kr. og handbæru fé. Áætlað er að ársvelta Símans aukist um 1.450 m.kr. og EBITDA um 800 m.kr. á ársgrundvelli. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
-
Uppbygging öflugs farsímadreifikerfis heldur áfram og eru sendistaðir farsíma 680 talsins á landinu öllu. Um síðustu áramót voru 135 5G sendar komnir í notkun og fjölgaði þeim því um rúmlega 50 á árinu 2023. Auk þess var afkastageta á 4G sendum aukin á næstum 80 stöðum á landinu. Síminn fékk nýlega úthlutað 4G og 5G tíðnum til 20 ára. Mikil aukning var á gagnaflutningi um farsímakerfi Símans á árinu, en aukning á milli ára var tæplega 50%.
-
Síminn brást hratt við þegar óróa fór að gæta á Reykjavesi. Sendar í nágrenni Grindavíkur og Svartsengis voru tvítengdir við farsímamiðjur, bæði með ljósleiðurum og örbylgju, til að tryggja sem best samband ef stofnleiðir að sendistöðum skyldu rofna. Varaaflsvélar voru einnig settar á svæðin til að tryggja styttra viðbragð ef rafmagn skildi fara af svæðinu, sem svo raungerðist samhliða eldsumbrotum. Þetta var unnið í góðu samstarfi við Mílu. Einnig var mikil og góð samvinna við Neýðarfjarskipti og önnur fjarskiptafélög til að tryggja sem best fjarskipti við þessar krefjandi aðstæður.
-
Árið 2023 var gott ár í Sjónvarpi Símans. Aldrei hafa verið fleiri áskrifendur að Sjónvarpi Símans Premium og þjónustan því stærsta innlenda áskriftarveitan. Áhorfsmet voru slegin og nemur aukningin á milli ára um 15%. Yfir milljón spilanir voru í hverri viku á árinu sem leið. IceGuys var vinsælasti þáttur ársins en allir þættirnir um strákasveitina settu áhorfsmet ásamt því að samstarf við HBO hefur vakið mikla lukku. Síminn frumsýndi fjórar leiknar innlendar þáttaraðir af þeim sex sem voru framleiddar á landinu öllu. Í ár verða sex leiknar þáttaraðir af ellefu framleiddar af Símanum.
-
Síminn Pay setur nýtt fyrirtækjakort á markað á næstu víkum. Fyrirtækjakortið er eingöngu rafrænt og því virkjað um leið og umsókn hefur verið samþykkt. Stjórnendur fá fullkomna stjórn á utanumhaldi allra korta fyrirtækisins og hafa rauntímayfirsýn á notkun þar sem allar færslur verða sýnilegar á þjónustuvef. Korthafar eru auðkenndir með rafrænni auðkenningu sem tryggir að kortið sé einungis notað af réttum aðilum. Tími sem fer í flokkun og bókanir á færslum minnkar um 95% þar sem allar færslur eru flokkaðar sjálfvirkt um leið og þær eru framkvæmdar.
6
Horfur fyrir árið 2024
Spá fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir eftirtöldu:
- EBITDA verði á bilinu 6,4 til 6,7 ma.kr.
- EBIT verði á bilinu 2,5 til 2,8 ma.kr.
- Fjárfestingar án tíðnileyfa verði á bilinu 3,2 til 3,5 ma.kr.
Kynningarfundur 21. febrúar 2024
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar 2024 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning.
Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fjárhagsdagatal 2024
Aðalfundur 2024 14. mars 2024
Uppgjör 1F 2024 23. apríl 2024
Uppgjör 2F 2024 27. ágúst 2024
Uppgjör 3F 2024 22. október 2024
Ársuppgjör 2024 18. febrúar 2025
Aðalfundur 2025 13. mars 2025
Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])