Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2024

Apr 23, 2024

2203_rns_2024-04-23_9e477fa8-844e-4850-b695-a13055c6a6fc.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

img-0.jpeg

Síminn

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 31. mars 2024

Síminn hf.

Ármúla 25

108 Reykjavík

Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyfirlit... 6
Skýringar... 7-12
Ársfjórðungsyfirlit... 13

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Hagnaður var af rekstri félagsins sem nam 171 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 246 m.kr. á sama tímabili 2023. Heildartekjur félagsins á tímabilinu 1. janúar til 31. mars námu 6.575 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 6.298 m.kr. á sama tímabili árið 2023. Eignir félagsins í lok tímabils námu 40.723 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 18.101 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 44,4%.

Þann 18. janúar var undirritaður kaupsamningur um kaup Símans á öllu hlutafé í félögunum BBI ehf., Dengsa ehf., og Billboard ehf. Fyrirtækin starfa á auglýsingamarkaði og munu því styrkja enn frekar þjónustuframboð Símans á því sviði. Efndadagur var 27. mars. Kaupverð fyrirtækjanna þriggja á efndadegi nam 4.893 m.kr. að teknu tilliti til stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs. Kaupin voru fjármögnuð með hlutafé í Símanum að nafnverði 101 m.kr. á genginu 9,886. Þá greiddi Síminn 3.714 m.kr í peningum. Miðað við að forsendur Símans um að samlegð gangi eftir er áætlað að ársvelta Símans (e. pro-forma) aukist um 1.450 m.kr. og EBITDA um 800 m.kr. á ársgrundvelli.

Á aðalfundi Símans hf. þann 14. mars 2024 var sambykkt tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé félagsins vegna eigin hluta sem nam 125 m.kr. að nafnverði. Á sama fundi var sambykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins að hámarki 265 m.kr. að nafnverði og tillaga um greiðslu arðs að fjárhæð 500 m.kr. til hluthafa sem félagið greiddi þann 5. apríl s.l. Í samræmi við heimildir aðalfundar félagsins 2023 hafa á tímabilinu janúar til mars verið keypt eigin bréf að nafnverði 19 m.kr. fyrir 191 m.kr. að markaðsverði. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé félagsins.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur félagsins í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 31. mars 2024 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2024. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins og stöðu þess og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem félagið býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 23. apríl 2024

Stjórn

Jón Sigurðsson, formaður

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður

Arnar Þór Másson

Bjarni Þorvarðarson

Valgerður Halldórsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 31. mars 2024
Skýr. 2024 2023
1.1.-31.3. 1.1.-31.3.
Sala 5 6.417 6.153
Kostnaðarverð sólú 6 ( 4.180) ( 4.155)
Framlegð 2.237 1.998
Aðrar rekstrartekjur 158 145
Rekstrarkostnaður 7 ( 1.964) ( 1.825)
Rekstrarhagnaður 431 318
Fjármunatekjur 183 260
Fjármagnsgjöld ( 375) ( 249)
Gengismunur ( 3) ( 12)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 195) ( 1)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 236 317
Reiknaðir skattar ( 65) ( 71)
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 171 246
EBITDA 1.435 1.315
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,07 0,07
Þynntur hagnaður á hlut 0,07 0,07

Skýringar á blaðsiðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 31. mars 2024

Skýr. 31.3.2024 31.12.2023
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 3.444 2.552
Leigueignir 1.563 732
Óefnislegar eignir 25.180 21.047
Aðrar eignir 9 407 431
Fastafjármunir 30.594 24.762
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.304 1.257
Viðskiptakrófur 11 2.509 2.279
Útlán 12 2.801 2.715
Aðrar skammtímakrófur 13 1.489 966
Handbært fé 2.026 1.810
Veltufjármunir 10.129 9.027
Eignir samtals 40.723 33.789
Eigið fé
Hlutafé 2.599 2.517
Yfirverðsreikningur 899 0
Lögbundinn varasjóður 624 629
Annað bundið eigið fé 537 570
Óráðstafað eigið fé 13.442 13.884
Eigið fé 18.101 17.600
Skuldir
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 11.650 7.470
Leiguskuldbindingar 1.163 503
Tekjuskattsskuldbinding 15 292 232
Langtímaskuldir 13.105 8.205
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 2.488 2.281
Viðskiptaskuldir 16 3.829 4.261
Næsta árs afborganir langtímaskulda 462 0
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 447 276
Skattar til greiðslu 295 204
Aðrar skammtímaskuldir 17 1.996 962
Skammtímaskuldir 9.517 7.984
Skuldir samtals 22.622 16.189
Eigið fé og skuldir samtals 40.723 33.789

Skýringar á blaðsiðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 31. mars 2024

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Lögbundinn varasjóður Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2023 4.242 495 1.061 576 28.887 35.261
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins ... 246 246
Greiddur arður (0,12 á hlut) ( 499) ( 499)
Hlutafjárlækkun ( 1.429) ( 357) ( 13.794) ( 15.580)
Keypt eigin bréf ( 59) ( 495) ( 15) ( 74) ( 643)
Fært af bundnu eigin fé ( 3) 3 0
Eigið fé 31.3.2023 2.754 0 689 573 14.769 18.785
Eigið fé 1.1.2024 2.517 0 629 570 13.884 17.600
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins ... 171 171
Arður (0,2 á hlut) ( 500) ( 500)
Keypt eigin bréf ( 19) ( 5) ( 167) ( 191)
Seld eigin bréf 101 899 1.000
Fært af bundnu eigin fé ( 33) 33 0
Kostnaður v/ kaupréttarsamninga 21 21
Eigið fé 31.3.2024 2.599 899 624 537 13.442 18.101

Skýringar á blaðsíðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 31. mars 2024

Skýr. 2024 2023
1.1.-31.3. 1.1.-31.3.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 431 318
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.004 997
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 21 0
1.456 1.315
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, læk kun (hæk kun) 3 ( 2)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hæk kun) ( 498) ( 479)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hæk kun 318 336
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 177) ( 145)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.279 1.170
Innborgaðir vextir 175 268
Greiddir vextir ( 243) ( 150)
Greiddir skattar ( 90) ( 158)
Handbært fé frá rekstri 1.121 1.130
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 281) ( 268)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 1.020) ( 1.348)
Söluverð rekstrarfjármuna 9 0
Útlán, breyting ( 119) ( 266)
Kaup á dótturfélagi að frádregnu handbæru fé 14 ( 3.732) 0
Sala á verðbréfi 0 15.685
Fjárfestingarhreyfingar ( 5.143) 13.803
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður 0 ( 499)
Kaup eigin bréfa ( 191) ( 643)
Útgreitt hlutafé 0 ( 15.580)
Tekin ný langtímalán 4.500 0
Afborganir leiguskuldbindinga ( 69) ( 63)
Fjármögnunarhreyfingar 4.240 ( 16.785)
Hæk kun (læk kun) á handbær fé 218 ( 1.852)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 2) ( 37)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 1.810 3.721
Handbært fé í lok tímabilsins 2.026 1.832

Skýringar á blaðsíðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög á Íslandi. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur fyrir tímabilið janúar til mars 2024 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“. Dótturfélög Símans hf. eru Síminn Pay ehf., Radíómiðun ehf., Billboard ehf., BBI ehf. og Dengsi ehf.

Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, fjártækni og afþreyingar.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

2.1. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árshlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árshlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2023. Valdar skýringar eru með árshlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árshlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 23. apríl 2024.

2.2. Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

2.3. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

2.4. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2023.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins.

  • Breyting hefur verið gerð á starfsþáttayfirliti félagsins. Talsímaþjónusta hefur verið sýnd sem starfsþáttur en frá og með 2024 er Talsímaþjónusta færð undir starfsþáttinn Annað. Samanburðartölum hefur verið breytt til samræmis.

Starfsemi félagsins skiptist í fimm starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

Starfsþáttur Lýsing
Farsímaþjónusta: Farsímaþjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattaþjónusta eða önnur farsímaþjónusta.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Vörusala búnáðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Tekjur tengdar fjarskiptum, upplýsingatækni og fjármálum. Frá árinu 2024 er hér einnig talsímaþjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga og samanburðartölum breytt til samræmis.
Starfsþættir 1.1.-31.3.2024 Farsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 1.628 2.064 2.009 424 450 6.575
Óskipt rekstrargjöld ( 5.140)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1.435
Afskriftir ( 1.004)
Hrein fjármagnsgjöld ( 195)
Reiknaðir skattar ( 65)
Hagnaður tímabilsins 171
Fjárfestingar ( 1.292)
Óskiptar eignir 31.3.2024 40.723
Óskiptar skuldir 31.3.2024 22.622
Starfsþættir 1.1.-31.3.2023 Farsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnáðar Annað* Samtals
Rekstrartekjur 1.513 1.966 1.838 472 509 6.298
Óskipt rekstrargjöld ( 4.983)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1.315
Afskriftir ( 997)
Hrein fjármagnsgjöld ( 1)
Reiknaðir skattar ( 71)
Hagnaður tímabilsins 246
Fjárfestingar ( 1.616)
Óskiptar eignir 31.3.2023 33.971
Óskiptar skuldir 31.3.2023 15.186

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala

Seld bjónusta og vörur greinast bannig: 2024 2023
1.1.-31.3. 1.1.-31.3.
Sala á bjónustu 5.959 5.634
Vörusala 458 519
6.417 6.153

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 247 255
Kostnaðarverð seldrar bjónustu 2.670 2.541
Samtengigjöld 145 165
Kostnaðarverð seldra vara 402 453
Eignfærð vinna ( 40) ( 34)
Afskriftir 756 775
4.180 4.155

Kostnaðarverð seldrar bjónustu samanstendur af: efniskostnaði, bjónustusamningum, leyfisgjöldum, aðkeyptri bjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 1.024 927
Markaðs- og sölukostnaður 136 119
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 69 95
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 257 267
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 229 195
Afskriftir 249 222
1.964 1.825

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast bannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 181 258
Fenginn arður 2 2
183 260
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 281) ( 168)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 10) ( 13)
Niðurfærsla útlána ( 67) ( 25)
Önnur fjármagnsgjöld ( 17) ( 43)
( 375) ( 249)
Gengismunur ( 3) ( 12)
Hrein fjármagnsgjöld ( 195) ( 1)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir

31.3.2024 31.12.2023

Aðrar eignir greinast þannig:

Fjárfesting í öðrum félögum 8 8
Sjónvarpsefni til sýningar 242 240
Fyrirframgreiddur kostnaður 9 0
Útlán til meira en 12 mánaða 148 183
Aðrar eignir samtals 407 431

10. Birgðir

Birgðir greinast þannig:

Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 737 639
Sjónvarpsefni til sýningar 567 618
Birgðir samtals 1.304 1.257

11. Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur greinast þannig:

Viðskiptakröfur 2.598 2.357
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 89) ( 78)
Viðskiptakröfur samtals 2.509 2.279

12. Útlán

Útlán félagsins samanstanda af útlánum dótturfélags Síman hf., Síman Pay ehf. Eingöngu er um að ræða útlán til einstaklinga á bilinu 1-36 mánuðir.

| Útlán 31.3.2024: | Brúttó
bókfært
virði | Fært meðal
langtíma-
krafna | Vænt
útlánatap | Útlán
samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Léttkaup fastar greiðslur 1-36 mán | 870 | ( 148) | ( 65) | 657 |
| Léttkort, sveigjanlegar greiðslur | 2.222 | 0 | ( 78) | 2.144 |
| | 3.092 | ( 148) | ( 143) | 2.801 |
| Útlán 31.12.2023: | | | | |
| Léttkaup, fastar greiðslur 1-36 mán | 1.007 | ( 183) | ( 64) | 760 |
| Léttkort, sveigjanlegar greiðslur | 2.000 | 0 | ( 45) | 1.955 |
| | 3.007 | ( 183) | ( 109) | 2.715 |

13. Aðrar skammtímakröfur

Aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 31.3.2024 31.12.2023

Fyrirframgreiddur kostnaður 1.161 719
Áfallnir vextir 16 8
Aðrar skammtímakröfur 312 239
Aðrar skammtímakröfur samtals 1.489 966

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

14. Kaup á dótturfélagi

Pann 27. mars var undirritaður kaupsamningur um um kaup Símans á öllu hlutafé í félögunum BBI ehf., Dengsa ehf., og Billboard ehf. Fyrirtaðin starfa á auglýsingamarkaði og munu því styrkja enn frekar þjónustuframboð Símans á því sviði. Kaupin voru fjármögnuð með hlutafé í Símanum að nafnverði 101 m.kr. á genginu 9,886. Þá greiddi Síminn 3.714 m.kr í peningum auk kostnaðar við kaupin. Auk þess er áætað að greiða þurfi 150 m.kr við lokauppgjör viðskiptanna.

31.3.2024

Rekstrarfjármunir 1.743
Veltufjármunir 309
Samtals eignir 2.052
Langtímaskuldir 910
Skammtímaskuldir 655
Samtals skuldir 1.565
Hrein eign 487
Kaupverð 4.893
Viðskiptavild 4.406

15. Tekjuskattsskuldbinding

Hreyfingar á tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:

31.3.2024 31.12.2023

Tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun. 232 89
Breyting skatthlutfalls. 12 0
Kaup á dóttufélagi. 82 0
Tekjuskattur tímabilsins. 54 346
Skattar til greiðslu á næsta ári. (88) (204)
Leiðrétting frá fyrra ári. 0 1
Tekjuskattsskuldbinding samtals. 292 232

16. Viðskiptaskuldir

Viðskiptaskuldir greinast þannig:

Viðskiptaskuldir 3.147 2.980
Áfallinn kostnaður 682 1.281
Viðskiptaskuldir samtals 3.829 4.261

17. Aðrar skammtímaskuldir

Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:

Áfallinn kostnaður 693 489
Ógreidd laun og launatengd gjöld 182 159
Ógreiddur virðisaukaskattur 453 314
Aðrar skammtímaskuldir 668 0
Aðrar skammtímaskuldir samtals 1.996 962

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024
Fjórhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

18. Málarekstur

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu á árinu 2020 að Síminn hefði brotið gegn ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin felldi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegn 6/2015 og lækkaði sektina niður í 200 m.kr. Síminn og Samkeppniseftirlitið höfðuðu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. október 2022 var að fella ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi og gerði Samkeppniseftirlitinu að endurgreiða Símanum 200 m.kr. auk dráttarvaxta. Samkeppniseftirlitið áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms með dómi þann 16. febrúar 2024, um að ógilda ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í heild sinni. Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir leyfi til þess að áfrýja málinu til Hæstaréttar en Hæstiréttur á eftir að taka afstöðu til beiðnar stofnunarinnar.

Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn taldi háttsemi félagsins í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkaði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og hækkaði sektina aftur í 9 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en rétturinn ómerkti niðurstöðu Landsréttar og héraðsdóms og vísaði málinu aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. Héraðsdómur skilaði dómsúrlausn og staðfesti meint brot en felldi niður sektina á þeim grundvelli að lagaheimild skorti til að sekta. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. vegna áranna 2015-2017. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar en þann 19. febrúar 2024 dæmdi Héraðsdómur Símann til þess að greiða Sýn 16,5 m.kr. í skaðabætur, auk dráttarvaxta frá 7. apríl 2020. Sýn hefur áfrýjað málinu til Landsréttar. Sýn stefndi Símanum einnig til greiðslu fjárhæðar 270 m.kr. vegna áranna 2018-2019. Síminn skilaði greinargerð þar sem málatilbúnaði Sýnar var hafnað.

Staða eftirfarandi mála er óbreytt frá útgáfu ársreiknings 2023.

Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands komst að þeirri niðurstöðu að sekta Símann um 76,5 m.kr. á grundvelli þess að stofnunin taldi að Síminn hefði ekki birt ætlaðar innherjauppfýsingar eða tekið ákvörðun um frestun á birtingu á ætluðum innherjauppfýsingum þann 31. ágúst 2021 í tengslum við sölu á dótturfélaginu Mílu ehf. Síminn hefur áfrýjað málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur til að fá ákvörðuninni hnekkt. Félagið hefur greitt fjárhæðina en ekki gjaldfært í rekstri.

Árið 2019 sendi Gagnaveita Reykjavíkur (nú Ljósleiðarinn) Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Ljósleiðarans að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða.

PFS og Sýn hafa ennfremlur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um að úrskurður úrskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 verði felldur úr gildi, en úrskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 m.kr. á Símann. Síminn mun gera kröfu um að úrskurður nefndarinnar standi óhaggaður.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum enda mat félagsins að þau séu tilhæfulaus.

19. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf uppfýsingar um.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

| | 1 F
2023 | 2 F
2023 | 3 F
2023 | 4 F
2023 | 1 F
2024 |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.153 | 6.117 | 6.329 | 6.468 | 6.417 |
| Kostnaðarverð sól | ( 4.155) | ( 4.110) | ( 4.113) | ( 4.119) | ( 4.180) |
| Framlegð | 1.998 | 2.007 | 2.216 | 2.349 | 2.237 |
| Aðrar rekstrartekjur | 145 | 166 | 172 | 191 | 158 |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.825) | ( 1.811) | ( 1.623) | ( 1.906) | ( 1.964) |
| Rekstrarhagnaður | 318 | 362 | 765 | 634 | 431 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1) | ( 145) | ( 126) | ( 120) | ( 195) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 317 | 217 | 639 | 514 | 236 |
| Reiknaðir skattar | ( 71) | ( 38) | ( 132) | ( 100) | ( 65) |
| Hagnaður tímabilsins | 246 | 179 | 507 | 414 | 171 |
| EBITDA | 1.315 | 1.410 | 1.811 | 1.614 | 1.435 |

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2024
13
Fjórhæðir eru í milljónum króna