Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2024

Apr 23, 2024

2203_rns_2024-04-23_42783691-221f-4a67-88af-db89fe0bdcef.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}
  1. april 2024

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2024

Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2024

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2024 námu 6.575 m.kr. samanborið við 6.298 m.kr. á sama tímabili 2023 og jukust um 4,4%. Tekjur af kjarnabjónustum Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsbjónustu aukast um rúmlega 7% á milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.435 m.kr. á 1F 2024 og hækkar um 120 m.kr. eða 9,1%. EBITDA hlutfallið er 21,8% á 1F 2024 en var 20,9% á sama tímabili 2023. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 431 m.kr. á 1F 2024 samanborið við 318 m.kr. á sama tímabili 2023.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 195 m.kr. á 1F 2024 en námu 1 m.kr. á sama tímabili 2023. Vaxtagjöld hafa hækkað en einnig voru vaxtatekjur af skuldabréfi vegna sölu Mílu á 1F 2023. Fjármagnsgjöld námu 375 m.kr., fjármunatekjur voru 183 m.kr. og gengistap nam 3 m.kr.
  • Hagnaður á 1F 2024 nam 171 m.kr. samanborið við 246 m.kr. hagnað á sama tímabili 2023.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 16,2 ma.kr. í lok 1F 2024, en voru 10,5 ma.kr. í árslok 2023. Handbært fé í lok 1F 2024 nam 2,0 ma.kr., en var 1,8 ma.kr. í árslok 2023. Staða útlána hjá Símanum Pay var 2,9 ma.kr. í lok 1F 2024 og jókst lítilsháttar á fjórðungnum.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 44,4% í lok 1F 2024 og eigið fé 18,1 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Tekjur, EBITDA og EBIT aukast milli ára á fyrstu mánuðum ársins sem er ánægjulegt, og eins og stefnt var að. Övenju mikil hreyfing var á fjarskiptamarkaðinum, sem alla jafna er þó afar líflegur, en fyrsti fjórðungur einkenndist af mikilli nýsölu hjá Símanum en einnig meira brottfalli en fyrr. Rífleg inngöngutilboð tiltekinna markaðsaðila höfðu þar talsverð áhrif um nokkurra vikna skeið.

Á kostnaðarhlið rekstrar samstæðunnar gekk flest eftir eins og við mátti búast, utan þess að starfslok eins framkvæmdastjóra voru gjaldfærð. Nýlegir kjarasamningar voru í takt við væntingar okkar og flestir kostnaðarliðir fyrirsjáanlegir og samkvæmt væntingum. Síminn heldur áfram að vera fremur skulldétt félag, þótt fyrirtækjakaup á fjórðungnum hafi að hluta verið fjármögnuð með nýju lánsfe. Álag á þær skuldir sem félagið aflar á markaði er með því hagstæðasta sem þekkist á Íslandi en hátt vaxtastig hefur engu að síður töluverð áhrif.

Síminn gerði breytingar á vöruframboði á einstaklingsmarkaði í fyrra með það að markmiði að sinna betur fleiri markhópum en fyrr. Hefur stökum vörum í sölu hjá Símanum í framhaldinu


2

fækkað en mismunandi pök kum fjölgað. Sífelfdar endurbætur voru gerðar í upphafi árs á farsímakerfi Símans, sem samkvæmt úttektaraðila á vegum Fjarskiptastofu var fyrir, það besta á Íslandi. Ný og uppfærð WiFi tækni hefur einnig verið tekin í gagnið sem mun bæta þráðlausa netupplifun á heimilum og í fyrirtækjum. Pá frumsýndi Síminn þrjár nýjar innlendar leiknar þáttaraðir í sjónvarpi á fjórðungnum auk þess að bjóða í samstarfi við KSÍ upp á beinar útsendingar frá leikjum yngri landsliða Íslands og yngri flokka félagsliða. Stöðugar umbætur og nýjungar eru rauði þráðurinn í þjónustu okkar við heimili.

Á fyrirtækjamarkaði verður á næstunni boðið upp á sterkara vöruúrval en fyrr, meðal annars með nýju fyrirtækjakreditkorti, uppfærðri símavist og bættum netkerfum. Vöruframboð til auglýsenda tók stakkaskiptum með því að Síminn eignaðist Billboard og tengd félög. Fram á við getur samstæðan þannig boðið auglýsendum fjölbreyttar leiðir til að ná til þeirra markhópa sem þeir kjósa. Við fögnum nýjum meðlimum Símafjölskyldunnar og uppfærum afkomuspá fyrir samstæðuna í heild með tilliti til innkomu þeirra, sem og horfur út árið."

Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2024

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningur 1F
2024 2023 Breyting %
Rekstrartekjur 6.575 6.298 277 4,4%
Kostnaðarverð sölu (4.180) (4.155) (25) 0,6%
Rekstrarkostnaður (1.964) (1.825) (139) 7,6%
EBIT 431 318 113 35,5%
Hrein fjármagnsgjöld (195) (1) (194) -
Tekjuskattur (65) (71) 6 -8,5%
Hagnaður tímabils 171 246 (75) -30,5%
EBITDA 1.435 1.315 120 9,1%
Hagnaður á hlut 0,07 0,07 - 0,0%

Sala á 1F 2024 nam 6.575 m.kr. samanborið við 6.298 m.kr. á sama tímabili árið 2023, sem er 4,4% vöxtur milli tímabila. Sé horft til kjarnavara félagsins (farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu) er tekjuvöxtur 7,2%.

Tekjur af farsíma námu 1.628 m.kr. og hækkuðu um 115 m.kr. eða 7,6% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.064 m.kr. og hækkuðu um 98 m.kr. eða 5,0% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 2.009 m.kr. og hækkuðu um 171 m.kr. eða 9,3% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 424 m.kr. og drógust saman um 48 m.kr. eða 10,2% á milli tíma. Aðrar tekjur námu 450 m.kr. og lækkuðu um 59 m.kr. á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 4.180 m.kr. og hækkaði um 25 m.kr. eða 0,6% frá sama tímabili 2023. Rekstrarkostnaður nam 1.964 m.kr. og hækkaði um 139 m.kr. eða 7,6% frá sama tímabili 2023.

Afskriftir félagsins námu 1.004 m.kr. á 1F 2024 samanborið við 997 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkað um 7 m.kr. á milli tímabila.


3

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar námu samtals 1.456 m.kr. á 1F 2024 samanborið við 1.315 m.kr. á 1F 2023. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1F 2024 námu 177 m.kr. til lækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 1.279 m.kr. á 1F 2024 samanborið við 1.170 m.kr. á 1F 2023. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.121 m.kr. á 1F 2024 samanborið við 1.130 m.kr. á 1F 2023.

Í lok 1F 2024 greiddi Síminn rúma 3,7 ma.kr. vegna kaupa á Billboard og tengdum félögum sem hefur áhrif á fjárfestingahreyfingar tímabilsins. Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem félagjó fékk í tengslum við sóluna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á því tímabili.

Á 1F 2024 voru tekin ný langtímalán, m.a. vegna kaupa á Billboard og tengdum félögum, að fjárhæð 4,5 ma.kr. Á sama tímabili árið 2023 voru fjármögnunarhreyfingar neikvæðar sem nam 16.785 m.kr. sem skýrist helst af því að hlutafé félagsins var lækkæð með útgreiðslu til hluthafa sem nam tæplega 15,6 ma.kr. að teknu tilliti til eigin bréfa.

Sjóðstreymi 1F 2024 1F 2023
Rekstrarhangnaður tímabils 431 318
Afskriftir 1.004 997
Líðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi 21 0
Samtals rekstrarhreyfingar 1.456 1.315
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (177) (145)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.279 1.170
Nettó greiddir vextir (68) 118
Greiddir skattar (90) (158)
Handbært fé frá rekstri 1.121 1.130
Fjárfestingahreyfingar (5.143) 13.803
Fjármögnunarhreyfingar 4.240 (16.785)
Breytingar á handbæru fé 218 (1.852)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (2) (37)
Handbært fé í upphafi tímabils 1.810 3.721
Handbært fé í lok tímabilsins 2.026 1.832

Efnahagur

Kaup Símans á Billboard og tengdum félögum sem komu til framkvæmda í lok 1F 2024 hafa talsverð áhrif á efnahag samstæðunnar. Helstu breytingarnar eru að viðskiptavild eykst um 4,4 ma.kr., aðrar eignir aukast um 2,1 ma.kr. Heildarskuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum aukast um 1,6 ma.kr.

Heildareignir félagsins námu 40.723 m.kr. í lok 1F 2024 en voru 33.789 m.kr. í lok árs 2023.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 16.210 m.kr. í lok 1F 2024 samanborið við 10.530 m.kr. í lok árs 2023. Handbært fé í lok 1F 2024 nam 2.026 m.kr. samanborið við 1.810 m.kr. í árslok 2023. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 11.235 m.kr. í lok 1F 2024 samanborið við 5.822 m.kr. í árslok 2023.

Eigið fé félagsins nam 18.101 m.kr. í lok 1F 2024 og eiginfjárhlutfall félagsins var 44,4%.

Eignir 31.01.2024 31.12.2023
Rekstrarfjármunir 3.444 2.552
Leigueignir 1.563 732
Õefnislegar eignir 25.180 21.047
Aðrar eignir 407 431
Fastafjármunir 30.594 24.762
Birgðir 1.304 1.257
Víðskiptakrófur 2.509 2.279
Útlán 2.801 2.715
Aðrar skammtímakrófur 1.489 966
Handbært fé 2.026 1.810
Veltufjármunir 10.129 9.027
Eignir samtals 40.723 33.789
Skuldir og eigið fé 31.01.2024 31.12.2023
--- --- ---
Eigið fé 18.101 17.600
Eigið fé 18.101 17.600
Vaxtaberandi skuldir 11.650 7.470
Leiguskuldbinding 1.163 503
Tekjuskatssskuldbinding 292 232
Langtímaskuldir 13.105 8.205
Aðrar skammtímaskuldir 9.517 7.984
Skammtímaskuldir 9.517 7.984
Eigið fé og skuldir samtals 40.723 33.789

4

Um starfsemina

  • Pann 15. mars sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið Símanum að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupungin Símans á Billboard ehf., Dengsa ehf. og BBI ehf. og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða ihlutunar í málinu. Ílok mars 2024 fékk Síminn afhent hlutafé fyrirtækjanna og greiddi stærstan hluta kaupverðsins, 3.714 m.kr. í peningum og 101.153.146 hluti í Símanum. Lokauppgjör, 150 m.kr., fer fram eigi síðar en 6 mánuðum frá efndadegi þegar endanleg leiðrétting kaupverðs að teknu tilliti til stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna m.v. efndadag hefur farið fram.

  • Billboard á rætur sínar að rekja til ársins 2016 þegar fyrstu skjáirnir voru settir upp. Ári síðar keypti félágið Dengsa og samningur við Reykjavíkurborg um rekstur strætóskýla var gerður árið 2018. Í dag er félágið með auglýsingaskjái á rúmlega 300 stöðum, þar af 540 skjái á 270 strætóskýlum. Í dag starfa 27 starfsmenn hjá félaginu.

  • Aðeins hefur hægst á útlánum Símans Pay, en útlánaaukning á 1F 2024 nemur 85 m.kr. Léttkaup halda áfram að dragast saman og lækka um 14% frá áramótum, en útlánastaða Léttkorta jókst um 11% frá áramótum. Fyrirtækjakort Símans Pay hefur verið í kynningu á markaði og hafa viðtökur verið framar væntingum.

  • Á 1F 2024 frumsýndi Síminn þrjár innlendar þáttaraðir, en Síminn mun sýna sex af þeim ellefu innlendu leiknu þáttaröðum sem sýndar verða á árinu. Þróun á samstarfi Símans við HSÍ og KSÍ hefur gengið vel og þannig hafa verið beinar útsendingar frá landsleikjum U19, U20 og U21 landsliða í samstarfi við KSÍ ásamt beinum útsendingum frá bikarúrslitum yngri flokka og vináttuleikjum A-landsliðs karla í samstarfi við HSÍ.

  • Áframhaldandi uppfærsla á 4G sendum viða um landið sem auka afkost og drægni ásamt fjölda nýrra 5G senda í þéttbýli, orlofshúsasvæðum og á hringveginum.

  • Síminn er fyrstur íslenskra fjarskiptafyrirtækja að bjóða upp á WiFi 7 netbeina sem tryggja aukinn hraða, lægri svartíma og styðja aukinn fjölda tækja.

  • Samstarf við Barnaheill var sett á laggirnar sem ætlað er að hvetja til ábyrgrar símanotkunar og símalausrar samveru.

Horfur fyrir árið 2024

Afkomuspa fyrir samstæðuna hefur verið uppfærð þar sem Billboard varð hluti af samstæðu Símans frá og með 31. mars sl. Á ársgrundvelli eru tekjur Billboard um 1.400 m.kr. og EBITDA um 800 m.kr.

Spá fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir eftirtöldu:

  • EBITDA verði á bilinu 7,0 til 7,3 ma.kr.

  • EBIT verði á bilinu 2,7 til 3,0 ma.kr.

  • Fjárfestingar án tíðnileyfa verði á bilinu 3,3 til 3,6 ma.kr.


5

Kynningarfundur 24. apríl 2024

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl 2024 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2024

Uppgjör 2F 2024 27. ágúst 2024
Uppgjör 3F 2024 22. október 2024
Ársuppgjör 2024 18. febrúar 2025
Aðalfundur 2025 13. mars 2025

Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:
Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])