Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2024

Oct 22, 2024

2203_rns_2024-10-22_a8d5d6d0-1b8e-4b05-9354-dcacc45b93df.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}
  1. október 2024

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2024

Afkoma þriðja ársfjórðungs 2024

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2024 námu 6.955 m.kr. samanborið við 6.501 m.kr. á sama tímabili 2023 og jukust um 7%. Tekjur af kjarnabjónustum Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsbjónustu aukast um rúmlega 3% á milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.915 m.kr. á 3F 2024 og hækkar um 104 m.kr. eða 5,7%. EBITDA hlutfallið er 27,5% á 3F 2024 en var 27,9% á sama tímabili 2023. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 864 m.kr. á 3F 2024 samanborið við 765 m.kr. á sama tímabili 2023.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 292 m.kr. á 3F 2024 en námu 126 m.kr. á sama tímabili 2023. Fjármagnsgjöld námu 476 m.kr., fjármunatekjur voru 178 m.kr. og gengishagnaður nam 6 m.kr.
  • Hagnaður á 3F 2024 nam 449 m.kr. samanborið við 507 m.kr. hagnað á sama tímabili 2023.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 16,1 ma.kr. í lok 3F 2024, en voru 10,5 ma.kr. í árslok 2023. Handbært fé í lok 3F 2024 nam 1,1 ma.kr., en var 1,8 ma.kr. í árslok 2023. Staða útlána hjá Símanum Pay var 3,2 ma.kr. í lok 3F 2024.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 45,5% í lok 3F 2024 og eigið fé 18,2 ma.kr.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri:

„Afkoma þriðja ársfjórðungs var heilt yfir góð og niðurstöðurnar sýna vel seiglu og styrk félagsins. Við sáum heilbrigðan tekjuvóxt í helstu fjarskiptabjónustum sem og sjónvarpsbjónustu, þar sem áskrifendum hefur haldið áfram að fjölga. Þá hafa fjárfestingar okkar í auglýsingamiðlum staðist þær væntingar sem gerðar voru við kaupin og haft verulega jákvæð áhrif á hlutdeild auglýsingatekna í rekstri félagsins.

Í september voru gerðar breytingar á skipuriti félagsins þar sem eitt stoðsvið var lagt niður og tvö ný svið stofnuð. Markmið breytinganna eru annars vegar að styrkja enn frekar sölu og markaðssetningu á vörum félagsins og hins vegar að auka áherslu á vöru- og viðskiptapróun. Talsverður kostnaður fylgdi þessum breytingum og bættist hann við áfallinn kostnað vegna forstjóraskipta sem einnig var gjaldfærður í ársfjórðungnum.

Í kjölfar breyttra áherslna í rekstri hófum við að endurskoða stefnumið félagsins og verða þau áform kynnt nánar á komandi mánuðum. Það liggur fyrir að félagið hyggst halda áfram að sækja fram og við munum leggja áherslu á að breikka tekjugrunn félagsins með því að þróa og bæta við vöruframboð okkar nýjum stafrænum þjónustum og lausnum sem falla vel að þörfum okkar viðskiptavina.“


Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2024

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningur 3F 9M
2024 2023 % 2024 2023 %
Rekstrartekjur 6.955 6.501 7,0% 20.401 19.082 6,9%
Kostnaðarverð sölu (4.166) (4.113) 1,3% (12.873) (12.378) 4,0%
Rekstrarkostnaður (1.925) (1.623) 18,6% (5.597) (5.259) 6,4%
EBIT 864 765 12,9% 1.931 1.445 33,6%
Hrein fjármagnsgjöld (292) (126) 131,7% (807) (272) 196,7%
Tekjuskattur (123) (132) -6,8% (260) (241) 7,9%
Hagnaður tímabils 449 507 -11,4% 864 932 -7,3%
EBITDA 1.915 1.811 5,7% 5.076 4.536 11,9%
Hagnaður á hlut 0,18 0,18 0,0% 0,34 0,31 9,7%

Sala á 9M 2024 nam 20.401 m.kr. samanborið við 19.082 m.kr. á sama tímabili árið 2023, sem er 6,9% vöxtur milli tímabila. Sé horft til kjarnavara félagsins (farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu) er tekjuvöxtur 5,2%.

Tekjur af farsíma námu 5.115 m.kr. og hækkuðu um 261 m.kr. eða 5,4% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 6.213 m.kr. og hækkuðu um 250 m.kr. eða 4,2% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 5.809 m.kr. og hækkuðu um 343 m.kr. eða 6,3% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 1.187 m.kr. og drógust saman um 74 m.kr. eða 5,9% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 2.077 m.kr. og hækkuðu um 539 m.kr. á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 12.873 m.kr. og hækkaði um 495 m.kr. eða 4,0% frá sama tímabili 2023. Rekstrarkostnaður nam 5.597 m.kr. og hækkaði um 338 m.kr. eða 6,4% frá sama tímabili 2023.

Afskriftir félagsins námu 3.145 m.kr. á 9M 2024 samanborið við 3.091 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkað um 54 m.kr. á milli tímabila.

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar námu samtals 5.122 m.kr. á 9M 2024 samanborið við 4.548 m.kr. á sama tímabili 2023. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 9M 2024 námu 299 m.kr. til lækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 4.823 m.kr. á 9M 2024 samanborið við 4.143 m.kr. á sama tímabili 2023. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.842 m.kr. á 9M 2024 samanborið við 3.413 m.kr. á sama tímabili 2023.

Í lok 1F 2024 greiddi Síminn rúma 3,7 ma.kr. vegna kaupa á þremur félögum á

Sjóðstreymi 9M 2024 9M 2023
Rekstrarhagnaður tímabils 1.931 1.445
Afskriftir 3.145 3.091
Uðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi 46 12
Samtals rekstrarhreyfingar 5.122 4.548
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (299) (405)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 4.823 4.143
Nettó greiddir vextir (609) (100)
Greiddir skattar (372) (630)
Handbært fé frá rekstri 3.842 3.413
Fjárfestingahreyfingar (6.759) 11.869
Fjármögnunahreyfingar 2.259 (16.985)
Breytingar á handbærú fé (658) (1.703)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (4) (39)
Handbært fé í upphafi tímabils 1.810 3.721
Handbært fé í lok tímabilsins 1.148 1.979

3

auglysingamarkaði sem hefur áhrif á fjárfestingahreyfingar á fyrri helmingi ársins. Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem félagið fékk í tengslum við söluna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á því tímabili.

Á 1F 2024 voru tekin ný langtímalán, m.a. vegna kaupa á félögum, að fjárhæð 4,5 ma.kr. Á sama tímabili árið 2023 voru fjármögnunarhreyfingar neikvæðar sem nam 17.681 m.kr. sem skýrist helst af því að hlutafé félagsins var lækkað með útgreiðslu til hluthafa sem nam tæplega 15,6 ma.kr. að teknu tilliti til eigin bréfa.

Efnahagur

Kaup Símans á félögum á auglysingamarkaði sem komu til framkvæmda í lok 1F 2024 hafa talsverð áhrif á efnahag samstæðunnar. Helstu breytingarnar eru að viðskiptavild eykst um 4,4 ma.kr.

Heildareignir félagsins námu 39.873 m.kr. í lok 3F 2024 en voru 33.789 m.kr. í lok árs 2023.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 16.071 m.kr. í lok 3F 2024 samanborið við 10.530 m.kr. í lok árs 2023. Handbært fé í lok 3F 2024 nam 1.148 m.kr. samanborið við 1.810 m.kr. í árslok 2023. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 11.736 m.kr. í lok 3F 2024 samanborið við 5.822 m.kr. í árslok 2023.

Eigið fé félagsins nam 18.157 m.kr. í lok 3F 2024 og eiginfjárhlutfall félagsins var 45,5%.

Eignir 30.09.2024 31.12.2023
Rekstrarfjármunir 3.480 2.552
Leigueignir 2.014 732
Õefnislegar eignir 24.428 21.047
Aðrar eignir 544 431
Fastafjármunir 30.466 24.762
Birgðir 1.396 1.257
Víðskiptakröfur 2.420 2.279
Útlán 3.076 2.715
Aðrar skammelmakröfur 1.367 966
Handbært fé 1.148 1.810
Veltufjármunir 9.407 9.027
Eignir samtals 39.873 33.789
Skuldir og eigið fé 30.09.2024 31.12.2023
--- --- ---
Eigið fé 18.157 17.600
Eigið fé 18.157 17.600
Vaxtaberandi skuldir 11.337 7.470
Leiguskuldbinding 1.694 503
Tekjuskattsskuldbinding 263 232
Langtímaskuldir 13.294 8.205
Aðrar skammelmaskuldir 8.422 7.984
Skammelmaskuldir 8.422 7.984
Eigið fé og skuldir samtals 39.873 33.789

Horfur fyrir árið 2024

Afkomuspa er óbreytt frá því sem birt var í kjölfar uppgjörs í samstæðu á 1F 2024.

Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna skipulagsbreytinga rúmist innan afkomuspár. Tekjuþróun ársins er að mestu í takti við áætlun og sala hefur gengur vel í haust sem er eins og alltaf mikilvægur tími fyrir sölustarf félagsins. Innleiðing nýrra fyrirtækja hefur gengið vel og afkoma þeirra samkvæmt væntingum. Ekki er gert ráð fyrir að Noona Iceland og kaup lánasafns verði hluti af rekstri á þessu ári.

Spá fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir eftirtöldu:

  • EBITDA verði á bilinu 7,0 til 7,3 ma.kr.
  • EBIT verði á bilinu 2,7 til 3,0 ma.kr.
  • Fjárfestingar án tíðnileyfa verði á bilinu 3,3 til 3,6 ma.kr.

4

Kynningarfundur 23. oktober 2024

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 23. október 2024 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2024

Ársuppgjör 2024 18. febrúar 2025

Aðalfundur 2025 13. mars 2025

Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])