Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2023

Apr 25, 2023

2203_rns_2023-04-25_d6dd9db2-9e9c-4d6e-9edf-8386ef7103b6.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. apríl 2023

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2023

Tekjuvöxtur í upphafi árs

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2023 námu 6.298 m.kr. samanborið við 6.093 m.kr. á sama tímabili 2022 og jukust um 3,4%. Sé horft fram hjá einskiptisliðum á 1F 2022 jukust tekjur Símans um 5,2%. Stöðugur vöxtur er í kjarnabjónustu Símans, mest í sjónvarpsbjónustu, eða tæplega 10%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.315 m.kr. á 1F 2023 og lækkar því um 12 m.kr. eða 0,9%. EBITDA hlutfallið er 20,9% fyrir 1F 2023 en var 21,8% á sama tímabili 2022. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 318 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 574 m.kr. á sama tímabili 2022.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 1 m.kr. á 1F 2023 en voru jákvæð sem nam 92 m.kr. á sama tímabili 2022. Fjármagnsgjöld námu 249 m.kr., fjármunatekjur voru 260 m.kr. og gengistap nam 12 m.kr.
  • Hagnaður á 1F 2023 nam 246 m.kr. samanborið við 553 m.kr. hagnað af áframhaldandi starfsemi á sama tímabili 2022.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 8,8 ma.kr. í lok 1F 2023, en voru 8,9 ma.kr. í árslok 2022. Handbært fé í lok 1F 2023 nam 1,8 ma.kr., en var 3,7 ma.kr. í árslok 2022. Staða útlána hjá Símanum Pay var 1,9 ma.kr. í lok 1F 2023, en var 1,7 ma.kr. í árslok 2022.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 55,3% í lok 1F 2023 og eigið fé 18,8 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Árið hefst af krafti. Það var ánægjulegt að sjá að Síminn heldur áfram að laða að ánægða viðskiptavini með heildstæðu vöruframboði. Tekjur jukust milli ára í arðbærustu vörum félagsins; neti, síma og sjónvarpi. Fjártækni heldur einnig áfram örum vexti með útgáfu nýs kreditkorts, sem er aðgengilegt fyrir alla landsmenn. Kostnaður Símans eykst einnig milli ára með samningsbundnum launahækkunum, hróðum afskriftum af fjárfestingum og birgjasamningum sem flestir hafa einhvers konar tengingu við gengi eða verðlag. Þannig skilar gengisveiking og verðbólga sér á endanum inn í kostnað Símans og í núverandi ástandi erum við því afar sátt með að ná að halda EBITDA óbreyttu milli ára.

Farsímakerfi félagsins er í stöðugri uppbýggingu um allt land, í samvinnu félagsins við helstu birgja, Neyðarlínuna og fleiri aðila. Ekkert land í heiminum er betur tengt en Ísland samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna og slík uppbýgging kemur ekki af sjálfri sér. Innan fárra ára verður hvert heimili landsins tengt ljósleiðara og í 5G sambandi, en í kjölfar nýrra


Síminn

tíðniúthlutana er Síminn öflugasti samstarfsaðili yfirvalda í að byggja upp farsímanet sem mun ná til allra stofnvega og fjölfornustu hálendisvega landsins á næstu árum.

Við höldum áfram að fjárfesta í hágæða sjónvarpsefni, erlendu og innlendu. Sjónvarpsbjónustu okkar hefur vaxið hratt að burðum og nýgerður samningur við HBO hefur valdið sprengingu í notkun Sjónvarps Símans Premium. Meira en 5 milljónir spilana á mánuði þýða að hver áskrifandi notar þjónustuna að meðaltali meira en fjórum sinnum hvern einasta sólarhring. Slíkar tölur þekkjast ekki hjá öðrum efnisveitum í heiminum.

Stafræn umbreyting Símans er á áætlun og einfaldari rekstur í kjólfar sölu á Mílu mun skila sér markvisst til viðskiptavina okkar í liprari þjónustu, aukinni sjálsafgreiðslu og örari vöruþróun. Framtíðin er björt nú þegar fyrirtækið getur byrjað að keppa á jafnræðisgrundvelli, í stað þess að um það gildi sérstök og aukin reglustýring. Á síðasta degi fyrsta fjörðungs ársins greiddi Síminn ríflega 16 milljarða króna til eigenda sinna og hefur á tveimur árum greitt þeim yfir 55 milljarða króna ásamt því að kaupa eigin bréf að virði 6,6 milljarða króna."

Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2023

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningur 1F
2023 2022 Breyting %
Rekstrartekjur 6.298 6.093 205 3,4%
Kostnaðarverð sölu (4.155) (3.762) (393) 10,4%
Rekstrarkostnaður (1.825) (1.757) (68) 3,9%
EBIT 318 574 (256) -44,6%
Hrein fjármagnsgjöld (1) 92 (93) -101,1%
Tekjuskattur (71) (113) 42 -37,2%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 246 553 (307) -55,5%
Aflögð starfsemi 0 193 (193) -100,0%
Hagnaður tímabils 246 746 (500) -67,0%
EBITDA 1.315 1.327 (12) -0,9%
Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,07 0,08 (0,01) -12,5%

Sala á 1F 2023 nam 6.298 m.kr. samanborið við 6.093 m.kr. árið 2022, sem er 3,4% vöxtur milli tímabila. Sé horft til kjarnavara félagsins er tekjuvöxtur 5,2%.

Tekjur af farsíma námu 1.513 m.kr. og hækkuðu um 100 m.kr. eða 7,1% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 279 m.kr. og lækkuðu um 26,2% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 1.966 m.kr. og hækkuðu um 108 m.kr. eða 5,8% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsbjónustu námu 1.838 m.kr. og hækkuðu um 165 m.kr. eða 9,9% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 472 m.kr. og hækkuðu um 23 m.kr. eða 5,1% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 230 m.kr. og lækkuðu um 92 m.kr. á milli tímabila. Lækkunin er vegna Spotify og sölu á fjarskiptabúnaði til Mílu, en sé litið framhjá þessum liðum hækka aðrar tekjur um 7,5% á milli tímabila.


Síminn

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 4.155 m.kr. og hækkaði um 393 m.kr. eða 10,4% frá sama tímabili 2022 sem skýrist að miklu leyti af auknum afskriftum sýningarrétta. Rekstrarkostnaður nam 1.825 m.kr. og hækkaði um 68 m.kr. eða 3,9% frá sama tímabili 2022.

Afskriftir félagsins námu 997 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 753 m.kr. á sama tímabili 2022 og hækka um 244 m.kr. á milli tímabila. Hækkunin er eins og áður hefur komið fram að miklu leyti tengd afskriftum sýningarrétta auk þess sem afskriftir upplýsingakerfa hafa aukist á milli tímabila.

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar námu samtals 1.315 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 1.323 m.kr. á sama tímabili 2022. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1F 2023 námu 145 m.kr. til lækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 1.170 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 1.636 m.kr. á sama tímabili 2022. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.130 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 1.472 m.kr. á sama tímabili 2022.

Fjárfestingahreyfingar voru jákvæðar sem nemur 13.803 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 222 m.kr. á sama tímabili 2022. Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem hann fékk í tengslum við sóluna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á fjórðungnum.

Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar sem nam 16.785 m.kr. á 1F 2023 sem skýrist helst af því að á fjórðungnum var hlutafé félagsins lækkað með útgreiðslu sem nam tæplega 15,6 ma.kr.

Sjóðstreymi 1F 2023 1F 2022
Rekstrarhagnaður tímabils 318 574
Afskriftir 997 753
Sóluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna 0 ( 4)
Samtals rekstrarhreyfingar 1.315 1.323
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 145) 313
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.170 1.636
Nettó greiddir vextir 118 ( 25)
Greiddir skattar ( 158) ( 139)
Handbært fé frá rekstri 1.130 1.472
Fjárfestingahreyfingar 13.803 ( 222)
Fjármögnunarhreyfingar ( 16.785) ( 994)
Breytingar á handbæru fé ( 1.852) 256
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 37) ( 6)
Handbært fé í upphafi tímabils 3.721 3.509
Handbært fé í lok tímabilsins 1.832 3.759

Síminn

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 33.971 m.kr. í lok 1F 2023 en voru 51.181 m.kr. í lok árs 2022.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 8.825 m.kr. í lok 1F 2023 samanborið við 8.867 m.kr. í lok árs 2022. Handbært fé í lok 1F 2023 nam 1.832 m.kr. samanborið við 3.721 m.kr. í árslok 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 5.052 m.kr. í lok 1F 2023 samanborið við 3.449 m.kr. í árslok 2022.

Eigið fé félagsins nam 18.785 m.kr. í lok 1F 2023 og eiginfjárhlutfall félagsins var 55,3%.

Eignir 31.05.2023 31.12.2022
Rekstrarfjármunir 2.524 2.466
Leigueignir 892 941
Òefnislegar eignir 21.871 22.122
Aðrar eignir 544 580
Fastafjármunir 25.831 26.109
Verðbréf færð á gangvírði 0 15.687
Handbært fé 1.832 3.721
Aðrir veltufjármunir 6.308 5.664
Veltufjármunir 8.140 25.072
Eignir alls 33.971 51.181
Skuldir og eigið fé 31.05.2023 31.12.2022
--- --- ---
Eigið fé 18.785 35.261
Eigið fé 18.785 35.261
Skuldabréfalán 5.960 5.956
Leiguskuldbinding 679 731
Viðskiptaskuldir 0 639
Tekjuskattsskuldbinding 154 89
Langtimaskuldir 6.793 7.415
Aðrar skammimaskuldir 8.393 8.505
Skammimaskuldir 8.393 8.505
Skuldir og eigið fé alls 33.971 51.181

Um starfsemina

  • Frá árinu 2015 hefur Síminn boðið upp á heimilispakkann sem inniheldur internet, heimasíma, sjónvarpsbjónustu og Sjónvarp Símans Premium. Móttökurnar hafa verið mjög góðar frá byrjun og hefur heimilispakkinn verið flaggskip Símans undanfarin ár. Síminn kynnti nýverið fjölbreyttara úrval af fjarskiptapökkum sem nær til stærri hóps. Nýju pakkarnir hafa fengið góðar móttökur fyrstu vikurnar frá því byrjað var að bjóða upp á þá.
  • Útlán Símans Pay eru tvípætt. Félágið hóf útlánastarfsemi með Léttkaupum árið 2019 þar sem viðskiptavinir geta skipt greiðslum á stórum sem smáum hlutum niður í mánaðarlegar greiðslur. Haustið 2022 bættist Léttkortið við þar sem viðskiptavinum bjóðast sveigjanlegar greiðslur og greiða niður neyslu sína á eigin hraða á öllum þeim stöðum í heiminum sem taka við Mastercard. Undanfarið hefur dregið úr vexti á útlánum vegna Léttkaupa, en vöxtur síðustu mánuði tengist Léttkortum og var þriðjungur útlána í lok 1F 2023 vegna léttkorta.
  • Aukið framboð á efni í Sjónvarpi Símans, fyrst og fremst með tilkomu samnings við HBO og nýju íslensku barnaefni hefur skilað sér í mikill aukningu spilana. Á 1F jókst fjöldi spilana í efnisveitu Símans um 25% á milli ára og fór fjöldi spilana í fyrsta skipti yfir 5 milljónir í janúar 2023.
  • Uppbygging 5G heldur áfram og var 5G sendirnúmer 100 settur upp nýlega. Bæði hafa 5G sendar verið settir upp á nýjum stöðum ásamt þéttingu á höfuðborgarsvæðinu og þéttbýliskjörnum viða um landið en samhliða er verið að uppfæra 4G senda sem tryggja aukin afköst og aukna drægni. Nýjustu 5G sendana má t.d. finna á Dalvík, í Grindavík, Hellu, Hvolsvelli, Keflavík, Selfossi og á Tálknafirði.

Síminn

Horfur fyrir árið 2023

Spá fyrir árið 2023 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,9 til 6,3 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 3,6 til 3,9 ma.kr. án fjárfestinga í tíðnileyfum.

Kynningarfundur 26. apríl 2023

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl 2023 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2023

Uppgjör 2F 2023 22. ágúst 2023
Uppgjör 3F 2023 31. október 2023
Ársuppgjör 2023 20. febrúar 2024
Aðalfundur 2024 14. mars 2024

Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])