Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2022

Apr 26, 2022

2203_rns_2022-04-26_f9d9d222-79f1-4f12-aa47-6c0f0e85669c.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. apríl 2022

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2022

Vöxtur í tekjum og bætt afkoma

Í árshlutareikningi samstæðu Símans fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 er Míla meðhöndluð sem aflögð starfsemi. Hér að neðan er fjallað um rekstur samstæðu Símans án Mílu.

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2022 námu 6.093 m.kr. samanborið við 6.018 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 1.327 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 1.274 m.kr. á sama tímabili 2021 og hækkar því um 53 m.kr. eða 4,2%. EBITDA hlutfallið er 21,8% fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 en var 21,2% á sama tímabili 2021. Rekstrarhagnaður EBIT nam 574 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 504 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Hrein fjármagnsgjöld eru jákvæð sem nemur 92 m.kr. á 1F 2022 en voru neikvæð sem nemur 31 m.kr. á sama tímabili 2021. Fjármagnsgjöld námu 113 m.kr., fjármunatekjur voru 200 m.kr. og gengishagnaður nam 5 m.kr. Breyting í fjármagnsgjöldum er tilkomin vegna breyttrar fjármögnunar í lok 1F 2021 og söluhagnaðar af sölu hluta Símans í Auðkenni á 1F 2022.
  • Hagnaður af áframhaldandi starfsemi á 1F 2022 nam 553 m.kr. samanborið við 376 m.kr. á sama tímabili 2021. Hagnaður tímabilsins með aflagðri starfsemi nam 746 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 8,2 ma.kr. í lok 1F 2022 en voru 8,3 ma.kr. í árslok 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 4,5 ma.kr. í lok 1F 2022 samanborið við 4,8 ma.kr. í árslok 2021.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 43,9% í lok 1F 2022 og eigið fé 30,9 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Árið fer ágætlega af stað og í takti við væntingar okkar. Allt í senn er hóflegur vöxtur í tekjum, EBITDA og EBIT milli ára á fyrsta fjórðungi. Við erum stolt af slíkri þróun í umbreytingaferlinu sem nú fer fram á samstæðunni og því harða samkeppnisumhverfi sem ríkir á mörkuðum fjarskipta og afþreyingar á Íslandi.

Vænta má niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian á dótturfyrtæki okkar Mílu nú í sumar. Ýmsar aðgerðir eins og hönnun framtíðar efnahagsreiknings Símans bíða þess að söluferlið verði til lykta leitt, en við viljum þó nýta tímann vel á meðan. Þannig er nú áhersluatriði innan Símans að byggja upp mannað,


Síminn

þjónustugetu og skipulag félagsins. Verða fjárfestingar auknar tímabundið í þjónustuinniðum Símans á árinu, til að styrkja félagið fyrir nýja tíma.

Við höfum nú auglýst tvær nýjar stöður framkvæmdastjóra hjá félaginu, það er Sölu og þjónustu og Sjálfbærni og menningar. Svið Stafrænnar þróunar og Miðlunar og markaðsmála eru einnig nýmæli og verður þeim stýrt af þeim Erik Figueras og Magnúsi Ragnarssyni, auk þess sem Óskar Hauksson verður áfram framkvæmdastjóri Fjármálasviðs, sem lítið breytist frá núverandi skipulagi. Breytingar á verkefnum innan félagsins munu einnig ná til millistjórnenda og fjölda almennra starfsmanna, en einföldunin sem við hyggjumst ná fram gengur út í gegnum fyrirtækið og styttir boðleiðir innan þess.

Starfsfólki samstæðunnar hefur fækkæð verulega á undanförnum árum með útvistunum, fyrirtækjasölum og breyttu vinnulagi. Pannig þarf nýtt skipulag félagsins að endurspegla þessa þróun félagsins, auka fjölbreytni við ákvarðanatöku og byggja undir stafræna þjónustu við viðskiptavini á markvissan hátt. Framtíð þjónustukeðju fyrirtækja á borð við Símann byggist á að velja framúrskarandi birgja, vinna náið með þeim og stýra þjónustunni til endanlegra viðskiptavina með öruggum hætti. Við erum því afar sátt við að reiða okkur á óumdeilda tæknibirgja á borð við Ericsson frá Svíþjóð, Cisco frá Bandaríkjunum og SAP frá Þýskalandi. Þar að auki eru Míla og Sensa, sem bráðum verða bæði fyrrum dótturfélög Símans, hluti af lykilbirgjum félagsins.

Við nýtum árið líka í að fjárfesta í umbreytingum og uppbýggingu kerfa og þjónustu. Þar má nefna kjarnakerfi 5G, eflda sjónvarpsþjónustu og stafræna verkferla. Við höfum sett á laggirnar nýja þjónustuleið, sem býður saman internet yfir ljósleiðara og farsíma og hefur fengið góðar móttökur. Vöruframboð okkar til einstaklinga, heimila og fyrirtækja mun breytast enn frekar þegar líður á árið. Síminn er þroskað félag sem starfrækir ýmis kerfi frá gamalli tíð en tímamótin í samstæðunni nú eru kjörin til að leggja mörg þeirra af.

Sem fyrr getur er Míla enn í eigu Símans, þótt í reikningnum sé hún eign flokkuð til sölu. Félagið hefur fyrir sitt leyti aukið fjárfestingar í ljósleiðaravæðingu heimila landsins, sérstaklega á landsbyggðinni. Þá er 5G sendakerfi Mílu byggt hratt upp um þessar mundir.

Ýmsir ytri þættir eru óvissu háðir, eins og jafnan er, en þó í óvenjulega miklum mæli nú. Stríðið í Úkrainu, hækkandi verðlag, þróun ferðamannaiðnaðar á Íslandi og breytingar á gengi krónunnar eru allt þættir sem ekki er hægt að sjá fyrir með vissu. Enn sem komið er hafa þessir þættir samanlagt haft lítil áhrif á rekstur Símans frá því sem gera mátti ráð fyrir og samkvæmt okkar mati má ekki vænta mikilla hreyfinga af slíkum völdum út árið. Þetta mat kemur meðal annars til af því að vissir ytri þættir hafa gagnverkandi áhrif og dempa þannig mögulegt heildarútslag í aðra hvora áttina. Hitt er ljóst, að keðja aðfanga verður áfram hæg af völdum heimsfaraldursins og nú einnig vegna hinna vopnuðu átaka. Hvort tveggja veldur töfum á afhendingu búnaðar. Við getum hins vegar stýrt og haldið jafnvægi í flestum öðrum þáttum rekstrarins og horfum því bjartsýn fram veginn að loknum ágætum fyrsta ársfjörðungi."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2022

Rekstur samstæðu

Rekstrarrelkningar 1F
2022 2021 Breyling %
Rekstrartekjur 6.093 6.018 75 1,2%
Kostnaðarverð sölü (3.762) (3.783) 21 -0,6%
Rekstrarkostnaður (1.757) (1.731) (26) 1,5%
EBIT 574 504 70 13,9%
Hrein fjármagnsgjöld 92 (31) 123 -396,8%
Tekjuskattur (113) (97) (16) 16,5%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 553 376 177 47,1%
Aflögð starfsemi 193 2.508 (2.315) -92,3%
Hagnaður tímabils 746 2.884 (2.138) -74,1%
EBITDA 1.327 1.274 53 4,2%
Hagnaður á hlut 0,08 0,34 (0,26) -76,5%

Sala á 1F 2022 nam 6.093 m.kr. samanborið við 6.018 m.kr. á sama tímabili árið 2021, sem er 1,2% vöxtur milli ára. Tekjur af farsima námu 1.413 m.kr. og hækkuðu um 113 m.kr. eða 8,7% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 378 m.kr. og lækkuðu um 6,9% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 1.858 m.kr. og lækkuðu um 1 m.kr. eða 0,1% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 1.673 m.kr. og hækkuðu um 48 m.kr. eða 3,0% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu voru 449 m.kr. og lækkuðu um 69 m.kr. eða 13,3% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 322 m.kr. og hækkuðu um 12 m.kr. á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 3.762 m.kr. og lækkar um 21 m.kr. eða 0,6% frá sama tímabili 2021. Rekstrarkostnaður nam 1.757 m.kr. og hækkaði um 26 m.kr. eða 1,5% frá sama tímabili 2021.

EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 1.327 m.kr. á 1F 2022 en var 1.274 m.kr. á sama tímabili 2021 og hækkaði um 53 m.kr. á milli tímabila eða um 4,2%. EBITDA hlutfallið er 21,8% á 1F 2022, en var 21,2% á sama tímabili árið 2021.

Afskriftir félagsins námu 753 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 770 m.kr. á sama tímabili 2021 og lækka um 17 m.kr. á milli tímabila.

Hrein fjármagnsgjöld voru jákvæð sem nemur 92 m.kr. á 1F 2022 og lækkuðu um 123 m.kr. á milli ára. Lækkunin er tilkomin vegna 113 m.kr. söluhagnaðar af eignarhlut Símans í Auðkenni sem seldur var fyr á árinu.

Hagnaður á 1F 2022 af áframhaldandi starfsemi nam 553 m.kr. samanborið við 376 m.kr. á sama tímabili 2021. Hagnaður 1F 2022 með aflagðri starfsemi nam 746 m.kr.


Síminn

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar nema samtals 1.323 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 1.273 m.kr. á sama tímabili 2021. Aukning á rekstrartengdum eignum og skuldum 1F 2022 eru 313 m.kr.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 1.636 m.kr. 1F 2022 samanborið við 2.507 m.kr. á sama tímabili 2021. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.472 m.kr. 1F 2022 samanborið við 2.172 m.kr. á sama tímabili 2021.

Fjárfestingahreyfingar námu 222 m.kr. 1F 2022 samanborið við 1.482 m.kr. á sama tímabili 2021.

Sjóðstreymi 1F 2022 1F 2021
Rekstrarhagnaður tímabils 574 504
Afskriftir og virðisrýrnun 753 770
Sóluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 4) ( 1)
Samtals rekstrarhreyfingar 1.323 1.273
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 313 1.234
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.636 2.507
Nettó greiddir vextir ( 25) ( 115)
Greiddir skattar ( 139) ( 220)
Handbært fé frá rekstri 1.472 2.172
Fjárfestingarhreyfingar ( 222) ( 1.482)
Fjármögnunarhreyfingar ( 994) ( 721)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 256 ( 31)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 6) ( 7)
Handbært fé í upphafi tímabils 3.509 735
Handbært fé í lok tímabilsins 3.759 697

Fjármögnunarhreyfingar eru neikvæðar sem nemur 994 m.kr. á 1F 2022. Stærstur hluti þess er tilkominn vegna kaupa eigin bréfa á tímabilinu að fjárhæð 930 m.kr.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 70.432 m.kr. í lok 1F 2022 en voru 69.727 m.kr. í lok árs 2021.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 8.245 m.kr. í lok 1F 2022 samanborið við 8.294 m.kr. í lok árs 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 4.486 m.kr. í lok 1F 2022 og lækkuðu um 299 m.kr. frá árslokum 2021. Hlutfall hreinna vaxtaberandi skulda að leiguskuldbindingum meðtöldum á móti EBITDA síðastliðinna tólf mánaða var 0,81.

Eigið fé félagsins nam 30.895 m.kr. í lok 1F 2022 og eiginfjárhlutfall félagsins var 43,9%.

Eignir 31.03.2022 31.12.2021
Rekstrarfjármunir 2.123 2.219
Leigueignir 716 753
Öefnislegar eignir 19.055 19.403
Aðrar eignir 544 675
Fastafjármunir 22.438 23.050
Eignir flokkaðar til sólu 37.232 36.929
Handbært fé 3.759 3.509
Aðrir veltufjármunir 7.003 6.239
Veltufjármunir 47.994 46.677
Eignir alls 70.432 69.727
Skuldir og eigið fé 31.03.2022 31.12.2021
--- --- ---
Eigið fé 30.895 31.079
Eigið fé 30.895 31.079
Skuldabréfalán 5.946 5.943
Leiguskuldbinding 617 653
Tekjuskattsskuldbinding 502 604
Langtimaskuldir 7.065 7.200
Skuldir flokkaðar til sólu 25.936 25.826
Aðrar skammimaskuldir 6.536 5.622
Skammimaskuldir 32.472 31.448
Skuldir og eigið fé alls 70.432 69.727

Síminn

Um starfsemina

  • Fyrirhugaðar eru breytingar á skipuriti Símans sem miða að því að auka sveigjanleika til að takast á við breytingar á markaði. Nýtt skipulag mun styðja við stuttar boðleiðir, ýta undir opin samskipti, fjölbreytt viðhorf og hraða ákvarðanatöku þar sem sérstök áhersla verður lögð á sjálfbærni og sjálfsafgreiðslu. Fjölgað verður í framkvæmdastjórn félagsins og hefur þegar verið auglýst eftir tveimur nýjum framkvæmdastjórum. Millistjórnendum mun fækka í tengslum við breytingarnar og skilvirkni í rekstri aukast. Einnig verður farið í auknar fjárfestingar til að hraða stafrænni þróun hjá félaginu.

  • Hugmyndasamkeppni meðal starfsmanna (Magnaður mars) var haldin í annað sinn. Komu fram margar hugmyndir og hefur verið ákveðið að fara áfram með 9 verkefni. Sigurverkefni síðasta árs, raddstýring á íslensku, hefur verið í þróun undanfarið ár og eru prófanir hafnar. Í tengslum við það fór Síminn, í samstarfi með Almannarómi og Háskólanum í Reykjavík, af stað með Reddum málinu.

  • Áskrifendur að Sjónvarpi Símans Premium kunna að meta fjölbreytt innlent dagskrárefni. Venjulegt fólk var vinsælt í vetur og fimmta þáttaröðin verður tekin upp í sumar. Þá var Brúðkaupið mitt frumsýnt í heild sinni í Sjónvarpi Símans Premium um páskana og hafa þættirnir þegar náð yfir 100 þúsund spilunum. Áhorf á enska boltann hefur aukist mikið síðustu þrjú tímabil. Í ágúst hefst fyrsta tímabilið af enska boltanum af nýju samningstímabili Símans við Premier League.

  • Allur rekstur sem tengist fjártæknilausn Símans var færður í dótturfélag Símans um sl. áramót. Félagið heitir Síminn Pay ehf. og er í fullri eigu Símans. Góður stigandi hefur verið í útlánum allt frá því þjónustan var kynnt árið 2019. Í lok 1F 2022 var staða útlána 1.370 m.kr. og hafði tvöfaldast á einu ári. Rekstur félagsins er sjálfbær og hagnaður er af rekstri félagsins. Síminn mun útvíkka vöruframboð sitt á næstu misserum. Skráðir notendur Síminn Pay appsins eru nú 59 þúsund.

Horfur fyrir árið 2022

Spá fyrir árið 2022 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,3 til 5,6 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 ma.kr.

Kynningarfundur 27. apríl 2022

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl 2022 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni:

https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjá[email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.


Síminn

Fjárhagsdagatal 2022

  • Uppgjör 2F 2022 23. ágúst 2022
  • Uppgjör 3F 2022 25. október 2022
  • Ársuppgjör 2022 14. febrúar 2023
  • Aðalfundur 2023 9. mars 2023

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])

6